Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
3
Fréttir
Fiskvinnslan:
Vaxtagreiðslur
um 8 prósent
af tekjum
Samkvæmt útreikningum Þjóðhags-
stofnunar greiddu fiskvinnslufyrir-
tæki rúm 9 prósent af heildartekjum
sínum í vexti á síðasta ári. Frystingin
greiddi um 10 prósent í vexti en sölt-
unin um 7 prósent. Þetta er ívið meiri
vaxtakostnaður en í flestum öðrum
atvinnugreinum.
Til frádráttar þessum vaxtagreiðsl-
um fyrirtækjanna koma vaxtatekjur
þeirra. Hreinn vaxtakostnaður í fisk-
vinnslunni var því um 8 prósent í
fyrra; 8,8 prósent hjá frystingunni
og 5,8 prósent í söltun.
Samkvæmt áætlun Þjóðhagsstofn-
unar má búast við því að sjálfur
rekstur fiskvinnslunar skili um 2.350
milljónum á ársgrundvelli miðað við
núverandi rekstrarskilyröi. Það eru
um 8,1 prósent af tekjum eða ívið
meira en vaxtabyrði fyrirtækjanna
var í fyrra. Ef vextir haldast svipaðir
og þeir voru í fyrra má því búast við
að fiskvinnslufyrirtækin standi und-
ir þeim miðað við núverandi aðstæð-
ur. Eins og fram kom í DV er staða
fyrirtækja í fiskvinnslu afar misjöfn.
Ef meðaltalshúsið er á núlhnu eru
jafnframt til hús sem hafa dágóðan
hagnaö og önnur sem eru í botnlausu
tapi.
I ársreikningum fyrirtækja koma
vaxtagreiöslur til frádráttar þeim
bókfærðu tekjum sem fyrirtækin fá
vegna þess að birgðir þeirra og eign-
ir hækka í verði. Þegar tekið hefur
verið tillit til þessa lækkar vaxta-
byrði fiskvinnslunar úr 8 prósentum
í 2,75 prósent miðað við árið í fyrra.
Þetta hlutfall er ef til vill hinn raun-
verulegi fjármagnskostnaður.
í fyrra skilaði rekstur fiskvinnsl-
unar svipuðu hlutfalli af heildartekj-
um greinarinnar og vaxtagreiðslur
námu. Þá skiluðu fyrirtækin hins
vegar um 3,2 prósent bókfærðúm
hagnaði þegar tekið hafði verið tillit
til tekna vegna verðhækkunar á
eignum og birgðum.
-gse
Selur eignir til að
geta greitt skuldir
Stjórn Kaupfélags Önfirðinga á Flat-
eyri hefur gripið til þess ráðs að
stofna hlutafélag um fiskverkunar-
hús kaupfélagsins á staðnum. Er
þetta gert til að hægt sé að greiða
brýnustu skuldir kaupfélagsins. Hef-
ur Einar Harðarson kaupfélagsstjóri
sent þeim aðilum sem kaupfélagið
skuldar bréf þar sem þeim er boðið
að gerast hluthafar í Sjávarútvegs-
deild kaupfélagsins. Er fyrirhugað
að þetta nýja fyrirtæki taki yfir veru-
legan hluta skulda kaupfélagsins.
„Að öðrum kosti liggur beint við að
óskað verði eftir greiðslustöðvun eða
nauðungarsamningum sem leitt geta
til gjaldþrots," segir í bréfi kaup-
félagsstjóra. Ennfremur segir: „Veð-
skuldir kaupfélagsins eru það miklar
að út úr gjaldþroti fengist vart mikið
upp í almennar kröfur. Viljum vér
fara þess á leit við yður að þér breyt-
ið skuldum vorum við yður í hluta-
bréf í hinu nýja fyrirtæki...“
Einar Harðarson sagði í viðtali við
DV að lausafjárstaðan væri óneitan-
lega slæm eins og fram kæmi í bréf-
inu. Margar ástæður lægju til þess,
m.a. minnkandi velta fyrirtækisins á
undanfórnum árum. Nú virtist hins
vegar bjartari tíð fram undan. Veltan
væri farin að aukast aftur og eins
væri unnið að ýmsum breytingum
kaupfélaginu til hagsbóta. Þá mætti
nefna úreldingu á sláturhúsinu sem
skilaöi af sér fjármunum.
„Staða kaupfélagsins er þannig að
eignir eru töluvert umfram skuldir í
bókfærðu verði,“ sagði Einar.
„Kaupfélagið stefnir því ekki í gjald-
þrot í bráð. En það er búið að ganga
á lausaféð þannig að ekki er til fyrir
skuldum. Þessu erum við að kippa í
lag núna og það er ekkj einu sinni
víst að þaö þurfi að selja eignir til
að laga lausafjárstöðuna."
-JSS
SOL + INNKAUP
Örstuttar haustferðir fyrir þá sem
gleymdu að fara í sumarfrí og eiga eftir
að gera jólainnkaupin.
BRO
ir
[FAR
23. OKTOBER 6 DA6A
28. OKTÓBER 8 DAGA
4. NÓVEMBER 8 DAGA
Á þessum tíma er ágætisveður á Mallorca,
hitastig yfir 20 gráður. Óvíða er betra að
gera innkaup en í Palma.
Þar fæst tískuvarningur á góður verði.
ÞETTA ER TILVALIÐ FYRIR
SAUMAKLÚBBA OG AÐRA HÓPA.
VERÐ FRÁ KR. á
(6 DAGAR
A MANN
TVEIR í STÚDÍÓI).
Oadgo
Dodge Aries
Við rýmum fyrir 1989 árgerðinni af Dodge Aries og
seljum síðustu bílana af '88 árgerðinni á fádæma
góðum kjörum. Við bjóðum 100.000 króna afslátt
og allt niður í 25% útborgun og eftirstöðvar til 18
mánaða á óverðtryggðu láni.
Dodge Aries, 2 dyra, á kr. 741.300,-
Dodge Aries, 4 dyra, á kr. 790.300,-
Dodge Aries station á kr. 841.900,-
Innifalið í verði m.a.: sjálfskipting - aflstýri - afl-
hemlar - 4 cyl. 2.2 I vél með beinni innspýtingu, 101
ha - framhjóladrif, litað gler, stereo AM/FM útvarp
með stöðvaminni og 4 hátölurum. Dodge Aries stati-
on hefur auk þess styrkta fjöðrun (heavy duty).
JÖFUR - ÞEGAR
ÞÚ KAUPIR BÍL
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2, SÍMI 42600
OPIÐ 9-18 VIRKA DAGA
OG 13-17 LAUGARDAGA