Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988. Spumingin Hafa íslenskir fjölmiðlar verið of neikvæðir í garð íslensku ólympíufaranna? Garðar Siggeirsson. Já. íslenskur fréttaflutningur er yflrleitt neikvæð- ur. Haraldur Benediktsson: Nei. Frétta- flutningur hefur verið sanngjarn. Helga Aðalgeirsdóttir: Nei, það held ég ekki. Annars hef ég ósköp lítið fylgst með þessu. Gylfi Magnússon: Nei, þó hefur þaö verið misjafnt eftir fjölmiðlum en þaö má fjaila um þetta eins og annað. Sigríður Baldursdóttir: Nei, þaö flnnst mér ekki. Geröu ekki allir eins og þeir gátu. SigurðurSigurliðason. Já, mér finnst þaö. En landsliðið stóð sig heldur ekki vel. Lesendur Eiga Flugleiðir biðsalinn? Úr hinum umdeilda biðsal í Leifsstöð. - Eiga Flugleiðir eitt félaga að sitja að aðstöðunni? Jón Björnsson hringdi: í frétt DV sl. laugardag kemur fram aö Flugleiðir hf. meini Arnar- flugsfarþegttm, þeim sem kaupa farseðla á dýrara farrými félagsins, að nýta biðsal þann sem til staðar er í nýju flugstööinni á Keflavíkur- flugvelli. í fréttinni kemur fram að í samningi flugmálayfirvalda við Flugleiðir hf. sé sérstaklega áréttaö að Flugleiðir skuli heimila öðrum flugfélögum, innlendum jafnt og erlendum, sem veita sambærilega þjónustu og hér um ræðir, aðgang aö þessum biðsal. Með neitun Flugleiða kemur fram hjá fulltrúa fyritækisins mjög svo einkennileg röskemdafærsla. Einkennilegust eru þau rök að „er- lendu félögin sem hingað fljúga, SAS og Lufthansa, neiti farþegum erlendra flugfélaga, þar á meðal Flugleiða, um aðgang að eigin biö- sölum í heimalöndum sínum“! Eru þá Flugleiðir að hefna sín á Arnar- flugsfarþegum vegna ófamaðar í erlendum flughöfnum? Önnur rök framkvæmdastjórans hjá Flugleiðum eru harla fánýt, t.d. þau að félagið hafi við „upphaf teikninga flugstöðvarinnar", eins og það er orðað, óskað eftir að fá þessa aðstöðu til að bæta þjónustu við farþega sína en ekki til að bæta þjónustu annarra flugfélaga! Það segir sig nú auðvitað sjálft, en það réttlætir ekki að útiloka önnur flugfélög frá eina biðsalnum í flug- stöðinni sem er fyrir þessa þjón- ustu. Ekki nema Flugleiðir hf. eigi salinn og hafi kostað sérstaklega til innréttinga og búnaðar. Þær skýringar Flugleiðafulltrú- ans að nú hafi leigusamingsdrögin verið send til flugvallarstjóra með beiðni um að þeim verði breytt þannig að félagið sitji eitt að bið- salnum eru, svo vægt sé til orða tekið, hrokafullar og hljóta að vera óaðgengilegar með öllu. - Og nú stendur málið þannig, eins og haft er eftir markaðsfulltrúa Flugleiða: „Við höfum þessa stofu og rekum hana fyrir okkur og ætlunrað gera. Það var ásetningur okkar frá byij- un.“ Já, miklir menn erum við, Hrólfur minn. Hvað verður um gróðann? Reykvíkingur skrifar: Hvað verður um verslunargróða KRON og Sambands ísl. samvinnufé- laga? Maður opnar varla svo blað vinstn pressunnar að ekki sé sífellt verið að tíunda sögur um hinn mikla verslunargróða í Reykjavík! - En svo kemur frétt í sjónvarpinu eins og þruma úr heiðskíru lofti um alvar- legan taprekstur KRON og Sam- bandsins, og það um margra ára skeið. Og þó hefur vöruverð hjá þess- um aðilum jafnan verið í hærri kant- inum. Hvað hefur þá orðið um versl- unargróðann hjá þessu félagshyggju- liði sem svo nefnir sig? Hvemig hafa þessar verslanir get- að gengið árum saman með sífelldu tapi en samt stöðugt verið aö þenjast út? Er þetta ekki verðugt rannsókn- arefni? Þetta eru kannski verslanir sem settar eru á laggimar einungis fyrir forstjóra fyrirtækjanna - og þá af forstjórahyggju en ekki félags- hyggju! Eða hvaða bankar lána þess- um fyrirtækjum endalaust af sparifé okkar? - Er þessi frétt sjónvarpsins ekki einmitt skýringin á því m.a. hvers vegna bankamir hafa ámm saman hlunnfarið spariíjáreigendur og spanaö upp veröbólgu og vaxtaok- úr sem fólk kiknar undan? í nágrannalöndum okkar em bankastjórar látnir íjúka og mega þakka fyrir að lenda ekki í fangelsi ef þeir lána fé til gjaldþrota fyrir- tækja. En hér á landi er það nefnt hinu misnotaða orði „félagshyggja". Það er ekki ónýtt fyrir KRON að hafa nýja fjármálaráðherrann ráöa- mann yfir hinum nýja „skussasjóði" innan sinna vébanda. - Hann mun síöar geta upplýst okkur um hvað varð af verslunargróða þeirra. „Sifellt tap en stöðug útþensla," segir bréfritari m.a. um verslanir KRON og Sambandsins. Ostjóm á póstburði Dóra Jónsdóttir hringdi: Fyrir stuttu kvaddi maöur dyra hjá mér. Hann var með bréf í hendi og spurði hvort það ætti heima hér. Bréflð var sennilega eitt þeirra sem borin em út sérstaklega (ábyrgð eða „express“ eða hvemig þau em flokk- uö) og þakið mörgum frímerkjum. Samkvæmt heimilisfangi var mað- urinn á réttum stað en skráður viö- takandi á umslaginu fannst ekki í húsinu og hafði ekki verið þar, a.m.k. ekki sl. 12 ár. Ég gat því engar upplýs- ingar gefiö og viö svo búið hvarf maðurinn á braut. Daginn eftir kemur svo bréfberinn okkar meö póstinn. Og viti menn - þama var bréfiö komið aftur! Hvem- ig skyldi nú standa á svona vinnu- brögðum hjá Pósti og síma? Segir ekki heilbrigð skynsemi aö maöur- inn, sem kom með bréflö upphaflega, hefði átt aö geta þess utan á bréfinu áöur en hann skilaði því af sér aö viðkomandi mann væri ekki að finna í þessu húsi? - Eöa tóku viökomandi aöilar ekki mark á þeim athuga- semdum hans og sendu bréfið því aftur í umferö? Spyr sá sem ekki veit. Lögregian völd að umferðaróhöppum Sjónarvottur skrifar: Mig hefur stundum furðað á vinnubrögðum lögreglunnar þeg- ar hún er á árekstrarstað. Hún virðist ekki leggja mikla áherslu á að færa bílana svo aö þeir teppi sem minnst umferðina. I morgun (28. sept.) varö árekst- ur á Njaröargötu. - Annar bíl- anna tveggja stóð út í hina ak- reinina. Bílar komu að og reyndu að komast fram hjá með þvi að aka upp á eyjuna. Það tókst þó ekki betur til en svo, að einn bfll- inn skrapaði endilanga hlið árekstrarbílsins. Enginn var úti að mæla en lög- reglan sat inni í sinum bíl og var að skrifa. - Ég hefði haldiö að þarna heföi þurft að færa bílana fýrst og skriía svo. Sennilega tug- þúsunda króna tjón í seinni árekstrinum. Framtið Borgara- flokksins Magnús Hafsteinsson skrifar: Framtíö Borgaraflokksins, eins og annarra lýðræðisflokka, bygg- ist á fijálsri hugsun, tjáningar- frelsi og því að standa og falla með sannfæringu sinni um fram- tíð lands og þjóðar. Til þess að svo geti oröið, verö- um viö, stuðningsmenn Borgara- flokksins, að tileinka okkur allar hugmyndir, hvaðan sem þær koma, ef þær miða að því að ein- staklingurinn fái aö nióta sín á hvaða.sviði sem er, til orðs og æðis - innan laga og réttar. Við erum svo heppin að eiga sterkan og heiðarlegan foringja, Albert Guðmundsson sem, eins og flestir vita, áttí aö' útiloka frá pólitískum afskiptum af öfund og vegna vinsælda hans í Sjálfstæö- isflokknum. Enginn okkar er fullkominn, en það lengsta sem maöurinn getur komÍ8t er að vera einstaklingur, en ekki hópsál. Við munum heyja harða baráttu gegn skrímsli kommúnismans. Eg undanskil þó ekki suma sjálfstæðismenn um að þjóna þeirri ófreskju, því mið- ur. - Óttumst ekki, grátum ekki, því aö lokum munum viö verða dæmd af verkum okkar sjálfra, en ekki verkum annarra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.