Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Side 17
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Lesendur
17
DV
Verðhrun á
olíu erlendis
Sigurður Sígurðsson skrifar:
Furöu vekja áhrif Alþýðu-
bandalagsmanna við myndun
núverandi ríkisstjórnar. Þeir
fengu fjármálaráöuneytið í sinn
hlut, en það kallar ÓMur Ragnar
„stjórastöð ríkiskerfisins", og
mun þó Jón Baldvin ekki hafa
verið fús að láta það af hendi
þótt hann fengi utanrikisráðu-
neytið í staöinn.
Ég vi) raunar taka fram að sum-
ar þeirra breytinga, sem Jón
Baldvin kom á, era til verulegra
bóta dg munu síðar koma betur
í Ijós.
Þá gerðu Alþýðubandalags-
menn það að skilyrði að einn
stjómmálaflokkurinn yrði ekki
með í stjórainni. En ef svo skyldi
samt tara þá yrði einn þing-
maima hans ekki ráðherra! -
Þessum skilyrðum virðist Stein-
grímur Hermannsson hafa orðið
að kyngja, þegjandi og hljóða-
laust. Slikur var ákafi hans í að
verða forsætisráðherra. - Sem sé:
Ekkert kaífi, bara hátta!
Bjarni P. hringdi:
Olíuverð hefur verið að lækka und1
anfarið á alþjóðamarkaði og er nú
komið niður í 11.50 dollara fatið. Ég
veit til þess að verð á bensíni hefur
nú þegar lækkað á Norðurlöndunum
um nokkra aura og von er á enn
meiri lækkun þar.
Hér á íslandi er allt við það sama,
engin lækkun sjáanleg og ekki reikn-
að með neinni lækkun í bráð, að því
er manni skilst á talsmönnum olíufé-
laganna. „Lækkun á olíu erlendis
getur aldrei skilað sér hingað um
leið því að olíufélögin veröa að eiga
birgðir til lengri tíma,“ segir einn
talsmaðurinn.
Hækkanir erlendis skila sér þó svo
að segja samstundis. Og það er alveg
með eindæmum hvernig íslensk olíu-
félög túlka sinn málstað. í Morgun-
blaðinu í dag er t.d. viðtal við einn
talsmann Olíufélagins hf. og segir
hann þar: „Þessi lækkun getur þó
ekki skilað sér strax og ég vil benda
á að olíuverðiö fór ekki aö lækka
fyrr en nú í september!" - Og þá spyr
ég: Hvers vegna segir maðurinn „nú
í september"? Það vita allir að það
er kominn október! - Eða skyldi
Mbl. hafa rætt við manninn í síðasta
mánuöi?
Ég veit sannarlega ekki hvað veld-
ur því að hér á landi er eins og ekk-
ert falli að tímans rás. Allir, einstakl-
ingar og ríki, reyna að pretta. Ein-
staklingarnir pretta hver annan og
sameiginlega pretta einstaklingarnir
ríkið og ríkið svo aftur einstakling-
ana þar til hringnum er lokað og
enginn kannast við neitt. Það er því
kannski ekki að undra þótt olía lækki
ekki á íslandi í samræmi við þaö sem
gerist í öðrum löndum. Það er bara
eftir öðru.
Áfram heldur eftirlltið:
Og nú leynilogregla
Þorsteinn Ó. hringdi:
Það hefur löngum verið haft á orði,
að hér á landi beindist hið alsjándi
auga „stóra bróður“ ríkisins um of
að almenningi. Við búum jú sannar-
lega við ýmis þau höft og reglur sem
annars staðar væru ekki talin sæma
í lýðræðisríki. Og það einkennilega
er að fólk virðist sætta sig við þetta
á borði, þótt í orði sé það lítt hrifið
af of miklum ríkisafskiptum.
En þetta eftirlit með hinum al-
menna borgara gengur í mörgum til-
fellum allt of langt og hreinasta furða
að ekki skuh fleiri en raun ber vitni
bera sig upp við alþjóðamannrétt-
indadómstól. - Það nýjasta í almenn-
ingseftirlitinu er að nú eiga óein-
kennisklæddir lögreglumenn að fara
um höfuðborgarsvæðið til að fylgjast
með því hvort ökumenn virði um-
ferðarljósin!
Það þykir sem sé ekki nóg að lög-
reglan sé á ferðinni eins og maður á
að venjast og aUs staðar er viðtekin
regla, heldur á nú að koma upp leyni-
lögreglu í umferðinni og fólk getur
búist við aö fá á sig kæru og heim-
sendan sektarmiða, án þess að hafa
nokkurn tímann orðið vart við að
það hafi brotið af sér.
Er þetta ekki alveg dæmigert fyrir
okkar þjóðfélag? Þetta er svipaðs eðl-
is og er að gerast þessa dagana, þegar
óeinkennisklætt fólk bankar upp á
hjá íbúðareigendum og spyr hvort
þar sé óskráð sjónvarpstæki og vill
gjarnan fá að koma inn og rannsaka
húsnæðið! - Er hér verið að koma á
leynilögregluríki í stað þess lögreglu-
ríkis sem við höfum átt að venjast?
Á sama tíma og verið er að slaka á
í Rússlandi í þessum efnum, færumst
viö í aukana hér og komum upp
leynilögreglu!
Þeim orðrómi hefur líka skotið upp
nú allra síðustu daga að skattaeftir-
litið muni, samkvæmt fyrirskipun
„að ofan“, hafa útsendara á helstu
og dýrustu matsöluhúsunum til að
komast að hverjir leyfi sér að eyða
fiármunum í slíkan óþarfa, sem senn
verður tahnn, að fara á veitingahús
og borða. - En er það nokkuð ótrú-
legra en sú ráðstöfun að liggja í leýni
við umferðarljós eða ganga í hús og
skrifa upp heimilistæki hjá fólki?
Herför gegn sjónvarpseigendum og laumast á gatnamótum. - Er næsta
skrefið að horfa á þig við sælkeraboróið?
PERMANENT
Ef þú ert að
hugsa um að fá
permanent hafðu
þá samband við
okkur.
Við munum með
ánægju leið-
beina þér.
Opið til kl. 7 á
föstudögum og
til hádegis á
laugardögum.
VALHÖLL HÁROREIÐSLUSTOFA
ÓÐinSGÖTU 2, REYKJAm • SIMI:22138
AUGLÝSING
FRÁ IÐNAÐAR-
RÁÐUNEYTINU
Ráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi atriði í yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar um fyrstu aðgerðir og stefnu
í ríkisfjármálum, með vísan til bráðabirgðalaga nr.
83, 28. september 1988:
„Gjaldskrár fyrirtækja á vegum ríkis eða sveitarfélaga
og gjaldskrár sjálfstætt starfandi sérfræðinga, verða
óbreyttar til 28. febrúar 1989, að öðru leyti en því,
að heimilt verður að taka tillit til hækkana á erlendu
innkaupsverði aðfanga. Sama gildir um hvers kyns
útselda vinnu og þjónustu."
Þannig munu gjaldskrár hitaveitna og rafveitna yfir-
leitt haldast óbreyttar til 1. mars á næsta ári.
Þá er einnig vakin athygli á því, að útseld vinna sér-
fræðinga rannsóknastofnana ríkisins mun haldast
óbreytt til 1. mars á næsta ári, sem og annarra sjálf-
stætt starfandi sérfræðinga.
&
í helgarkálfi föstudags-
blaðsins verða sérstaklega
kynnt tvö íslensk leikrit sem
frumsýnd verða um helgina.
Þjóðleikhúsið frumsýnir
Hvar er hamarinn eftir Njörð
Njarðvík og verða sýningar
í Gamla bíói og á Akureyri
verður frumsýnd Skjald-
bakan kemst þangað líka
eftir Árna Ibsen.
Þá verður gerð úttekt á
vetrardagskrá ríkisútvarps-
ins sem hefur að venju að
geyma ýmislegt áhugavert
og skemmtilegt. Þá er sagt
frá nýjum myndlistarsýn-
ingum, hvað er nýjast í kvik-
myndahúsum og mörgu
fleiru sem er að gerast um
helgina.