Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Síða 36
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
LífsstOl
íslending-
ar eru
hrifnir af
hágæða-
töskum
Hluti af daglegum fatnaði okkar
íslendinga eru töskur. Þær eru jafn-
nauðsynlegar fyrir okkur, sem erum
vanar töskum, eins og skómir okkar.
Þrátt fyrir það eru aöeins starf-
ræktar þrjár sérverslanir með tösk-
ur hér á landi. En þar fyrir utan fást
töskur víða í tískuvöruverslunum.
Fólk slítur skóm en þaö er ekki svo
auðvelt að slíta töskum. Það er til
dæmis mjög stór hópur fólks sem
kaupir sér ekki tösku nema á 10 ára
fresti. En margar konur kaupa sér
nokkrar töskur á ári. Fólk er einnig
misjafnlega sett efnahagslega og get-
ur þá fremur sparað sér töskukaupin
en til dæmis skókaupin. Þetta fólk
er þá gjarna með klassíska tösku sem
dugar við öll tækifæri og endist.
Hjá unga fólkinu í dag er mikið í
tísku að kaupa plasttöskur. Það eru
fremur töskur sem fólk hugsar sér
að eiga í 3 til 4 mánuði meðan þær
eru í tísku. Það sér síðan um að end-
umýja þær með reglulegu milhbih.
Plasttöskumar eru orðnar fallegri
og vandaðri en áöur og höfða til unga
fólksins sem hátískuvara. Karlmenn
ganga orðið minna með tösku en
þeir gerðu fyrir tveimur þremur
ámm. Helst er að þeir gangi með
úlnhöstöskur en skjalatöskur eru
ahtaf vinsælar hjá karlmönnunum.
4 Ford Bronco - 30 Fiat Uno
Dregið 7. októker.
Heildarverómceti vinninga 16,5 milljón.
fi/tt/r/mark
Ekki hvaða
leður heldur
hvemig unnið
Ýmiss konar leður er í tísku en það
er ekki spuming um hvaða leður er
í tísku heldur lagið á töskunum og
hvemig leðrið er unniö. Að sögn eru
íslendingar hrifnir af hágæðatösk-
um, dýrum, fínum og góöum töskum
sem þeir gera í raun ekki slæm kaup
í vegna þess að þær endast oft leng-
ur, em bæði klassískar og sterkar.
Víðir Þorgrímsson kaupmaður hefur
verslað með töskur undanfarin 20 ár
og segir að mikið hafi breyst á þess-
um árum, meðal annars vegna þess
að nú hefur fólk meiri peninga á
milh handahna.
„Konur em harðir húsbændur,
þær vhja það nýjasta og ekkert ann-
að. Það er af sem áður var þegar
konur áttu eina bahtösku og eina
hversdagstösku. Þær vhja fá góðar
töskur á góðu verði og þær vita upp
á hár hvað þær em með í höndun-
um,“ sagði Víðir.
Fyrir þær fínu sem eru á
leið á stefnumót. Munstrið
er eins og á krókódíla-
skinni, mjög eðlilegt.
Svona munstur er mjög
mikið á töskum í dag.
Canon
Ljósritunarvélar
FC-3, 43.600 stgr.
FC-5, 46.300 stgr.
Skrifvélin, sími 685277
Varmi
BlLASPRAUTUN / BlLARÉTTINGAR
AUÐBREKKU 14, KÓPAV., SÍMI 44250
Þessi taska er fín fyrir þá sem alltaf eru á þönum. I hana má troða nánast hverju sem
er og auk þess er hún hátískuvara, í leirbrúnum lit.
Hún fæst einnig í svörtu og kostar 12.500.
Ódýrari en
erlendis
Víðir tjáði okkur meðal annars að
töskur á íslandi væm ódýrari hér en
erlendis.
„Þær era tollfríar, með aðeins 3%
jöfnunargjaldi. Þannig að ef miðaö
er við sömu tösku og sama framleið-
anda þá em þær ódýrari hér eða á
sama verði en ekki dýrari. Fólk á
íslandi er að gera sér grein fyrir því
og er farið að versla meira heima.
Fólk er að breyta þeirri stefnu sinni
að troðfyha töskuna af vömm í hvert
skipti sem það fer út. Tohar em mis-
háir á vöm þannig að það borgar sig
að kaupa sumt og annað ekki. Töskur
og skór em ódýrari hér á landi og
fólk er að kveikja á perunni hvað það
varöar.
Einnig er bæði hagstæðara fyrir
kaupmenn og ríkið ef fólk kaupir
töskur hér á landi. Ríkið fær sinn
söluskatt."
Að sögn Víðis eru 10 th 15 ár síðan
hann hætti að kaupa töskur í Eng-
Tíska
landi vegna þess að honum finnast
þær einfaldlega ljótar. í dag segir
hann aö best sé að kaupa inn töskur
frá Finnlandi, Danmörku, Hohandi,
Þýskalandi, Itahu og Hong Kong.
Hann sagöi það sína reynslu að Ítalía
væri besta leðurlandið en Spánn það
ahra lélegasta og vhdi vara fólk við
að fjárfesta í leðurvörum þar.
DV-myndir BG
Varðandi töskur fara gæði og verð
ekki ahtaf saman. Á Ítalíu geta þær
verið stórglæshegar en að sama
skapi ekki vandaðar. Fyrir íslend-
inga skiptir miklu máh að fá góðar
töskur á góðu verði. En það er einnig
th mjög mikið af rándýmm og han-
dónýtum töskum.
Koma þeim
ekki við
Merki í töskum eru ekki algeng á
íslandi. Að dómi töskukaupmanna
er ekkert varið í þær töskur sem
framleiddar eru undir merkjum.
Þeim finnast þær yfirleitt ekki falleg-
ar og frekar dýrar. Þá er átt við tösk-
ur eins og Dior, Gucci, Louis Vitton
og fleiri í svipuðum dúr. Einnig eru
geröar eftirlíkingar af þeim í Kóreu
og fleiri löndum og þar kosta þær
mjög htið. Erlendis hggur við að önn-