Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 42
42
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Jarðarfarir
Valgerður S. Austmar lést 29. sept-
ember sl. Hún fæddist á Húsavík 17.
nóvember 1909, dóttir Sigurðar J.
Austmar og konu hans, Svanfríðar
Jónasdóttur. Vaigeröur var tvígift.
Fyrri maður hennar var Leó Áma-
son. Þau eignuðust saman tvö böm.
Þau shtu samvistum. Síðari eigin-
maður hennar var Sigurgeir Eiríks-
son en hann lést árið 1979. Þau eign-
uðust saman fimm böm. Útför Val-
gerðar veröur gerð frá Bústaða-
kirkju í dag kl. 14.
Þór Benediktsson lést 27. september.
Hann fæddist í Reykjavík 17. júní
1937, sonur hjónanna Benedikts
Kristjánssonar og Fríöu Eggerts-
dóttur. Hann lauk prófi í bygginga-
verkfræði frá verkfræðiháskólanum
í Kaupmannahöfn árið 1963. Hann
fluttist heim árið 1965 og réðst þá til
starfa hjá verkfræðistofunni Hönn-
un hf. í Reykjavík. Árið 1981 lét Þór
af störfum hjá Hönnun og hóf eigin
ráðgjafarstarfsemi. Skömmu síðar
stofnaði hann verkfræðistofuna Ný-
verk með bróður sínum Leifi þar sem
hann starfaði til dauðadags. Hann
kvæntist Huldu Jónasdóttur en þau
slitu samvistum. Þau eignuðust tvær
dætur. Útför Þórs verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Albert Gunnlaugsson, Þinghólsbraut
23, Kópavogi, verður jarösunginn frá
Neskirkju þriðjudaginn 11. október
kl. 13.30.
Sveinsína Narfadóttir, Austurgötu
43, Hafnarfirði, sem lést á Sólvangi
30. september sl., verður jarðsungin
frá Hafnarfj arðarkirkj u föstudaginn
7. október kl. 13.30.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Bergstaða-
stræti 53, sem andaðist í Borgarspít-
alanum sunnudaginn 2. október,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 7. október kl.
10.30.
Ingibjörg Vilborg Benjaminsdóttir
verður jarðsungin frá Laugames-
kirkju föstudaginn 7. október kl. 15.
Magnús Hallsson frá Gríshóli, Háa-
leitisbraut 44, verður jarðsettur frá
Fossvogskirkju föstudaginn 7. októb-
er kl. 13.30.
Bjarni Þórarinsson lést 25. septem-
ber sl. Hann fæddist í Reykjavík 12.
júlí 1915. Foreldrar hans voru Þórar-
inn Bjamason og kona hans, Guðrún
Hansdóttir. Bjarni lærði eirsmíði og
starfaði lengst af f vélsmiðjunni
Héðni. Eftirlifandi eiginkona hans er
Þómnn Guðmunda Kristinsdóttir.
Þau hjónin eignuðist þijú börn. Útför
Bjarna verður gerð frá Neskirkju í
dag kl. 13.30.
Úlfur Gunnarsson, heiðursborgari
ísafj arðarkaupstaðar og fyrrverandi
yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins
á ísafirði, verður jarðsunginn frá
kapellu ísafj arðarsafnaðar í Mennta-
skólanum á ísafirði föstudaginn 7.
október kl. 14.
Lovísa Magnúsdóttir, Ennisbraut 23,
Ólafsvík, verður jarðsungin frá Ól-
afsvíkurkirkju laugardaginn 8. okt-
óber kl. 14.
Útför Bjargar Árnadóttur, Seljalandi
7, fyrrum húsfreyju á Stóra-Hofi,
Gnúpveijahreppi, fer fram frá Bú-
staðakirkju föstudaginn 7. október
kl. 13.30. Ferð verður frá Félags-
heimilinu Ámesi kl. 11.30, Fossnesti,
Selfossi, kl. 12.
Sigrún Jónasdóttir, Eskihlíð 12a,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 7. október nk. kl.
15.
Andlát
Helgi Jónsson, írabakka 6, lést í
Borgarspítalanum 4. október.
Pétur Grétar Steinsson, Tunguvegi
96, Reykjavík, andaðist aðfaranótt 4.
október.
Sigríður Guðmundsdóttir, Öldugötu
14, Hafnarfirði, lést á Landspítalan-
um 4. október.
Kristín Gísladóttir frá Mosfelli, til
heimilis í Fumgerði 1, andaðist í
Landspítalanum þann 3. október.
Tilkyniúngar
Húnvetningafélagið
Félagsvist laugardaginn 8. október kl. 14.
Spilað í Húnabúð, Skeifunni 17. Vetrar-
fagnaður félagsins verður laugardaginn
22. október í Félagsheimili Seltjamar-
ness. Allir velkomnir.
Félagsvist og dans í
Templarahöliinni
Föstudaginn 7. október hefst vetrarstarf-
semi SGT með félagsvist og dansi í
Templarahöllinni, Eiríksgötu 5. Vegleg
kvöldverðlaun verða veitt í félagsvistinni
sem hefst kl. 21 en dansinn síðan kl. 22.30.
Hljómsveitin Tíglar heldur uppi stans-
lausu fjöri til kl. 1.30. Hljömsveitina
skipa: Sigurgeir Björgvinsson, Birgir Ott-
ósson, Eggert Kristjánsson og Sigfús Am-
þórsson. Leiknir verða bæði gömlu og
dansamir og samkvæmisdansar. Allir
sem vilja skemmta sér án áfengis em
hvattir til að mæta. Nemendum í dans-
skólum er sérstaklega bent á að koma
og æfa sig á besta dansgólfi bæjarins.
Miðasala hefst kl. 20.30. Miðaverð fyrir
félagsmenn er kr. 500 fyrir félagsvistina
og dansleikinn en kr. 400 fyrir dansleik-
inn einan.
t
Úlfur Gunnarsson, heiðursborgari ísafjarðar-
kaupstaðar og fyrrverandi yfirlæknir Fjórðungs-
sjúkrahússins á ísafirði, verður jarðsunginn frá
kapellu ísafjarðarsafnaðar í Menntaskólanum á
ísafirði föstudaginn 7. okt. kl. 14.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vildu
minnast hans eru beðnir að láta fjórðungssjúkra-
húsið á ísafirði njóta þess til tækjakaupa.
Fyrir hönd fjölskyldu hins látna og bæjarstjórnar
ísafjarðar.
Bæjarstjórinn á ísafirði
Meiming
Orð í tíma töluð
- um syningu Dagmar Rhodius í Nýlistasafninu
Nú stendur yfir í Nýlistasafninu
allsérkennileg sýning. Þýska lista-
konan Dagmar Rhodius sýnir þar
flennistórar ljósmyndir af fiöru-
grjóti sem í hafa verið felld ólæsileg
orð. Dagmar hefur semsé þann
hátt á við skriftimar að hún setur
stafina hvem ofan á annan svo úr
verður þykkur, svartur og ólæsi-
legur massi. Þessi massi er for-
vitnilegur fyrir margra hluta sakir.
í honum birtist svart á hvitu mi-
sjöfn „veðrun“ tungumálanna. Eða
svo vitnað sé í orð Jean Baud-
rfilards í sýningarskrá:..tungu-
málsklettar rísa skyndilega upp,
undirorpnir óumflýjanlegri veðr-
un, árþúsundagömul setlög, hverra
þversækin dýpt kemur til af upp-
blæstri (merkingin spratt af veðr-
un orðanna, þýðingin af veðrun
táknanna) og er þetta Kjörið til
náttúrufriðlýsingar eins og öll
menning nú á dögum.“ Sýiiingar-
skráin er raunar óvenju vönduð og
skemmtileg. Þar má meðal annars
finna þessa hugleiðingu eftir Einar
Guðmundsson: „Orð era ratvís;
þeirra leið er löng, þau taka breyt-
ingum eins og steinar sem vatns-
dropar hola.“ Orð þýska spekings-
ins Wilhelms von Humboldt, um
það „þegar viss, mikilvæg hljóð
fara að linast og slípast", hljóta
einnig að eiga erindi á þessari gós-
enöld kjaftavaðalsins. Hinu djúp-
hugsaða líkingamáh Dagmar
Rhodius virðist á þann hátt beint
að háværu brimróti fiölmiðlanna,
en hið ógnvekjandi myndhögg
tímans er þó tæpast minni þáttur
í því máh. Skyldi Uða á löngu áður
MyncUist
Ólafur Engilbertsson
en aUar nefnifaUsmyndir í íslensku
detta upp fyrir og bátur verður að
bát eða kannski bat? Auglýsinga-
kenningar dagsins í dag ganga ein-
mitt út á slík orð- og tímahögg. Orð
mega hvorki vera plássfrek í tíma
né rúmi og því um að gera að slá
tvær flugur í einu höggi: sneiða af
þeim skankana og hækka í þeim
rostann.
Burt séð frá hugmyndafræðinni
er sýningin skemmtilega útfærð.
Þama skiptast á hreinar ljósmynd-
ir af sorfnu grjóti, ljósmyndir með
orðum og stórar týpógrafískar
myndir af orðum, þ.á m. orðinu
„trekt" sem er vel sUpuð mynd hins
latneska og löguleg trajectorium.
Orðinu „orð“ dugir hins vegar ekk-
ert minna en að greypast í stein.
Það væri óráð aö láta þessa sýningu
framhjá sér fara. Henni lýkur á
sunnudag.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag
kl. 14. Frjáls spilamennska. Kl. 19.30 fé-
lagsvist, hálft kort. Kl. 21 dans. Námskeið
í Tómstundaskólanum hefjast bráðlega.
Kennslugreinar: enska, danska, þýska,
sænska, Ijósmyndun, skrautritun og bók-
band. Leitið nánari upplýsinga hjá Tóm-
stundaskólanum, sími 621488.
Tónleikar
Smekkleysukvöld íTunglinu
í kvöld, 6. október, kl. 22 verður haldiö
Smekkleysukvöld á skemmtistaðnum
Tunglinu við Lækjargötu en Tunglið var
nýverið opnað á ný eftir gagngerar end-
urbætur. Fram kemur hljómsveitin HAM
og auk hennar hljómsveitin Hið afleita
þríhjól en hana skipa þeir Þór Eldon syk-
urmoli og ljóðskáldið Jóhamar. Þeir sem
sótt hafa Smekkleysukvöld kannast
eflaust við Hið afleita þríhjól en þetta eru
fyrstu tónleikar þeirra um langt skeið.
Auk þess eru þetta fyrstu tónleikar HAM
með nýrri hðsskipan þar sem hún mun
kynna efni af væntanlegri plötu.
Fundir
Friðarömmur
í kvöld kl. 20.30 halda fiiðarömmur fund
á Hótel Sögu. Þórdis Þórðardóttir fóstra
heldur erindi um friðaruppeldi fóstra.
Allar ömmur velkomnar.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í
safnaðarheimili kirkjunnar í kvöld, 6.
október, kl. 20. Sýndar verða myndir fi-á
sumarferðalaginu í Keriingarfjöll. Svan-
hildur Sveinbjömsdóttir syngur einsöng.
Kaffi verður drukkið og að lokum verður
hugvekja sem sr. Ragnar Fjalar Lárusson
flytur. Fundurinn er opinn öhum konum.
Mætið vel og stundvíslega.
Ráöstefnur
Tækni og umferðaröryggi
Föstudaginn 7. október efnir Verkfræð-
ingafélag íslands, í tilefni af Norrænu
tækniári 1988, til ráðstefiiu með ofan-
greindu heiti. Ráðstefnan verður haldin
í A-sal Hótel Sögu og stendur kl. 9 -17.30.
Á ráðstefnunni verður fjallað um hönnun
bíla, vega, gatnalýsingar og umferðar-
Ijósa með tilliti til umferðaröryggis. Auk
íslenskra fyrirlesara, frá Vegagerð ríkis-
ins, Reykjavíkurborg og verkfræðistof-
um, verður fyrirlesari frá Saab-Scania,
sem fjallar um nýjustu þróun í öryggis-
málum bíla, frá Jamkonst AB, sem fjall-
ar um gatnalýsingu, og frá Dansk Signal
A/S, sem gerir grein fyrir nýjustu tækni
í samstýringu umferðarljósa. Ráðstefnan
er öllum opin en hún ætti að vera sér-
staklega áhugaverð fyrir tæknimenn og
umferðamefndir sveitarfélaga, svo og
löggæslumenn. Skráning er á skrifstofu
Verkfræðingafélags íslands í síma 688505
kl. 9-13. Þátttökugjald er kr. 2.500.
Nýtt verk eftir Leif Þórarinson verður Nýr stjórnandi hjá Sinfóníuhljóm-
flutt á tónleikunum í kvöld og nefnist sveit íslands er Finninn Petri Sakari.
það För 88.
Sinfóníuhljómsveit íslands í kvöld:
Nýtt tónverk efti r
Leif Þórarinsson
í kvöld heldur Sinfóníuhljómsveitin tónskáld, flautukonsert eftir Þorkel
fyrstu áskriftartónleika sína á þess- Sigurbjömsson, eftir hálfan mánuð,
um vetri. Sfiórnandi er Finninn Petri síöan verk eftir Áskel Másson, Atla
Sakari. Þótt hann sé aðeins þrítugur Heimi, Jón Ásgeirsson og Magnús
að aldri þykir hann mjög fær og mun Bl. Jóhannsson og loks verða tónleik-
stjóma allmörgum tónleikum næstu ar í maí eingöngu með verkum Jóns
misseri. Leifs. Paul Zukofsky sfiórnar minn-
Fyrsta verkiö á tónleikunum í ingartónleikunum um Jón Leifs sem
kvöld er eins og vera ber bæði nýtt hefði orðiö níutíu ára á þessu vori.
og íslenskt. Það heitir För 88 og er Fastir áskriftartónleikar era
eftirLeifÞórarinssonsemerlesend- haldnir hálfsmánaðarlega en inn á
um DV að góðu kunnur fyrir tónhst- milli koma oft aukatónleikar. Einir
argagnrýni sína. Upphaflegur efni- slíkir verða haldnir næsta fimmtu-
viður þess var tónhst sem Leifur dag, þann 13. október, til að styrkja
samdi fyrir fáum árum viö leikrit byggingu á nýrri tónhstarhöll en það
eftir Strindberg, Til Damaskus, þeg- er orðið mjög brýnt verkefni. Tólf
ar það var flutt í útvarpi. ungir einsöngvarar og tveir karla-
í kvöld verður einnig flutt fyrsta kórar, Karlakórinn Fóstbræður og
sinfónía Sibehusar og tríókonsert Karlakór Reykjavíkur, koma þá fram
Beethovens. Fontenay-tríóið frá með Sinfóníuhljómsveitinni og
Þýskalandi kemur þar við sögu. Síð- syngja ýmis óperulög undir sfiórn
ar í vetur verða alhr einleikskonsert- Anthony Hose.
ar Beethovens fluttir smátt og smátt, Enn er hægt aö fá áskriftarkort í
eingöngumeðíslenskumflyfiendum. Gimh við Lækjargötu og einhveijir
Á efnisskránni í vetur verður flutt miðar munu óseldir á tónleikana í
ahnokkuð af verkum eftir íslensk Háskólabíóiíkvöld. -ihh
Ljóðspor
Vegna fréttar um hið stórvinsæla
ljóðasafn Ljóðspor í blaðinu á mánu-
dag vih Námsgagnastofnun koma því
á framfæri aö það voru Kolbrún Sig-
urðardóttir, Sverrir Guðjónsson og
Þórdís S. Mósesdóttir sem ljóöin
völdu. Þorsteinn Þorsteinsson kann-
aði síðan heimildir og samræmdi
stafsetningu. Verksfióm haföi á
hendi Ami Ámason, en hann hefur
yfirumsjón með gerð alls námsefnis
í íslensku. Tíu þúsund eintökum af
Ljóðsporum hefur verið dreift í
grunnskóla landsins, en að vísu eru
þau ekki seld heldur fá skólamir þau
endurgjaldslaust. Dreifinguna ann-
ast sérstök afgreiðsludeild í Brautar-
holti 6.