Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1988, Side 31
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1988.
43
Meiming
Laugarasbío/I skugga hra&isins:
Það gustar af Hrafninum
I skugga hrafnsins, framleidd af Cinema
Art og F.I.L.M., með aðstoð sænsku
kvikmyndastofnunarinnar og Kvik-
myndasjóðs íslands
Framleiðandi: Christer Abrahamsen
Leikstjórn og handrit: Hrafn Gunnlaugs-
son
Aðstoðarleikstjóri: Daniel Bergman
Framkvæmdastjóri: Kristján Þórður
Hrafnsson
Kvikmyndataka: Esa Vuorinen
Kvikmyndatónlist: Hans-Erik Philip
Tónlist í brúðkaupi: Egill Ólafsson
Leikmynd, útlit og búningar: Kari Július-
son
Innanhúss í kvikmyndaveri: Bo Lind-
gren
Hljóð: Gunnar Smári Egilsson
Klipping: Edda Kristjánsdóttir
Leikendur: Reine Brynjolfsson, Tinna
Gunnlaugsdóttir, Egill Ólafsson, Sune
Mangs, Kristbjörg Keld, Klara iris Vig-
fúsdóttir, Helgi Skúlasson, Johann Ne-
unman, Helga Bachmann, Sigurður Sig-
urjónsson, Sveinn M. Eiðsson, Flosi
Ólafsson, Guðmunda Eliasdóttir, Rúrik
Haraldsson og fleiri.
Manni segir svo hugur aö í
skugga hrafnsins njóti ekki síður
hylh á Norðurlöndunum og víðar
en forveri hennar, Hrafninn flýgur,
enda virðist Hrafninn sjáifur orð-
inn einn þekktasti leikstjóri norö-
ursins. Það þýðir að fólk fer að sjá
þessa mynd þó ekki sé nema fyrir
forvitni sakir. Bergmansnafnið er
notað í myndina en ekki er augljóst
hvar handtök hans hggja. Það gust-
ar öðrum fremur af Hrafninum í
skugga hrafnsins. Eílaust hafa þó
fagmannlegar ráðleggingar og pen-
ingavald sett Hrafninum skorður
og í senn gefið honum frelsi sem í
útkomu þessarar myndar er já-
kvætt; Hrafninn hefur agast.
Góömenni og ihmenni eru sem
fyrr aðalviöfangsefnin. Skarpar
andstæður sögubókmennta okkar
Kvikmyndir
Guðrún Kristjánsdóttir
tíma koma sterkt fram í persónun-
um og eðh þeirra. Menn eru að taka
kristna trú með mismunandi for-
merkjum. Þeir góðu byggja upp
sanna trú en þeir vondu hégóma.
Þjóðsagan um ástina, Tristan og
ísold, hefndina, fyrirgefninguna,
hatrið og afbrýðina eru sterkustu
goðsagnavopnin í myndinni.
Hvalreki er fyrsti átakaþáttur
myndarinnar sem leiðir af sér
stærri og meiri átök, Trausti aðal-
persóna myndarinnar, sá góði sem
kemur th Islands eftir nám í guð-
fræði. Með honum í för er ítalskur
hstmálari, Leonardo, sem ætlar að
mála altaristöflu fyrir móður
Trausta.
í átökunum um hvalrekann sær-
ist móðir Trausta og Trausti og
menn hans hefna sín á höfði þeirr-
ar ættar. Eiríkur er veginn en
Trausti ákveður að bjarga ísold og
dóttur hennar úr eldsvoða. Smám
saman kviknar ást í brjósti Trausta
Kristbjörg Keld og Sune Mangs í bakgrunni.
og ísoldar sem teygir loga sína til
biskupsættarinnar og Hjörleifs,
sonar biskups, sem ásett var að
eiga ísold. Fjölskylda hans vill þar
sameina tvær auðugustu ættir
landsins. Um ástina, hefndina og
afbrýðina gengur svo meginþorri
myndarinnar.
Kvenskörungar setja mestan svip
sinn á myndina og hafa valist í
hlutverk þeirra þrjár miklar leik-
konur. Eddu, móður Trausta, leik-
ur Helga Bachmann og gerir þaö
af skörungsskap. Sigríöi, móður
Hjörleifs, leikur Kristbjörg Kjeld.
Hennar framlag er framúrskarandi
gott í hlutverki hinnar ráðríku
móður. Og aðalhlutverk kvenn-
anna leikur svo Tinna Gunnlaugs-
dóttir sem frægt er orðið. Hún leik-
ur skapmikla og htríka konu sem
er meira en karlmannsígildi og
ferst það geysivel, að ógleymdri
dóttur ísoldar, Sól, sem leikin er
af Klöru írisi Vigfúsdóttur. Hún er
sólarljósiö, hið barnslega og hlýja
sem hvergi hefði mátt missa sig.
Helgi Skúlasson leikur Grím,
þræl Trausta. Það þarf ekki að hafa
mörg orð um framgang hans; hann
vinnur alltaf leiksigra og þarf orðið
ekki annað en að sýna andlit sitt
til að ná athygli áhorfandans.
Fleiri sýna framúrskarandi leik í
myndinni. Johann Neuman leikur
Leonardo hstmálara. Það er sama
með hann og dótturina, Sól. Sak-
leysið innan um ahan ljótleikann
er Hrafni einum lagið. Leikstjóran-
um hefur tekist að finna svipríkt
fólk í hlutverk þrælanna, sem
minnir um margt á fjölbreytnina í
kvikmyndinni Nafn rósarinnar.
Reine Brynjolfsson sem Trausti
er valinn í sitt hlutverk sem þó er
ekki átakamikið miðað viö kven-
hlutverkin. Egih Ólafsson er leik-
ari af guðs náð og aðrir standa sig
vel. Það má segja að Hrafn sé leik-
stjóri leikaranna.
Búningunum svipar mjög til fyrri
myndar og þeir eru sem fyrr
skemmtileg hönnun Karls Júhus-
sonar. Sviðsmyndin er vel unnin
og landslagið er ægifagurt og lætur
vel í augum Esa Vourinen. Hljóðið
hljómar vel nema hvað talsetning-
in fer oft ekki saman, sérstaklega
ekki þegar Kristinn Hahsson, þó
rödd hans sé mögnuð, talar fyrir
biskupinn. En það er líka það eina
sem má setja alvarlega út á þessa
mynd.
I skugga hrafnsins er safarík
mynd, enn safameiri en sú fyrri.
Hún fer hægt af stað en verður
óvænt og spennandi þegar líður á.
Þetta er mynd sem allir ættu að sjá
sem aldur hafa th. -GKr.
Mazda 323 GTi '88 til sölu, ekinn 15
þús. km, rafdrifin topplúga, vetrar- og
sumardekk, útvarp + kassettutæki,
fullkominn radarvari. Verð 720 þús.
Skipti á ódýrari koma til greina. Topp-
bíll. Uppl. í síma 91-35000.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Bflar til sölu
Pontiac 6000 station, árg. 1987, ekinn
12.000 mílur, V-6 2,8i, sjálfskiptur,
vökva- og veltistýri, centrallæsingar
o.fl. Mjög góður bíll. Uppl. gefur Atli
í síma 76040 e.kl. 17.
Honda Accord EX ’82, ekinn 54 þús.,
sjálfsk., vökvastýri, rafm. í rúðum,
centrallæsingar. Verð 370 þús. Uppl.
í síma 91-20955 e.kl. 18. \ ■
Oldsmobile Cutlass Supreme ’86 til
sölu, ekinn 35 þús. mílur, V-6 vél, velti-
stýri, rafmagn í rúðum, t-toppur, sjálf-
skiptur í gólfi, toppbíll. Uppl. í síma
91-25101, 91-39931 og 91-673595.
Mazda 626 2,0i ’88 2 dyra, rauður, ek-
inn 20 þús. km, verðhugmynd 1.220
þús. Uppl. í síma 44283 eftir kl. 20.
GMC Vandura 78, toppeintak. 350,
sjálfsk., vökvast., powerbr., innréttað-
ur, sóllúga, loftræstihattur, álfelgur,
ný dekk, óryðgaður, vel einangraður,
stigi, toppgr. Verð 450 þús., skipti ód.,
skuldabréf. Upplýsingar: Þórmundur,
s. 20256.
Ford Bronco árg. 79, 351 cc, ný dekk,
upphækkað boddí. Verð 580 þús. Uppl.
í síma 91-17857 og 985-22028.
■ Þjónusta
Viðgerðir á myndbandstækjum, sjón-
vörpum og hljómtækjum. Öll loftnets-
þjónusta ásamt þjónustu við gervi-
hnattamóttökubúnað. Vanir menn.
Öreind sf., Nýbýlavegi 12, simi
91-641660.
■ Ymislegt
omeo
UllCU
Hjálpartæki ástarlifsins eru bráðnauð-
synleg til að auka á tilbreytingu og
blása nýju lífi í kynlíf þitt og gera það
yndislegra og meira spennandi. Við
höfum leyst úr margvíslegum kynlífs-
vandamálum hjá hjónafólki, pörum
og einstaklingum. Mikið úrval f/döm-
ur og herra. Ath., sjón er sögu ríkari.
Opið 10-18 mán. - föstud. og 10-16
laugard. Erum í húsi nr. 3, 3. hæð
v/Hallærisplan, sími 14448.
M. Benz 809, árg. '83, með lyftu,
möguleiki á stöðvarleyfi, mjög góður
bíll. Uppl. í síma 681155 á daginn.
Mitsubishi Pajero '89 til sölu, bifreiðin
er ný og gjörsamlega óekin. Uppl. í
síma 622975 og 687810.
Mazda RX7 '87 til sölu, alvöru sport-
bíll, rauður, 150 ha., sóllúga, vökva-
stýri, 4WS o.fl. Uppl. í síma 91-656062
og 91-14225.
Man 10136, árg. 1982, til sölu, með 6
metra kassa og vörulyftu. Uppí. í síma
91-52518 og 985-21160.
í f.aPQPbPoddi fpa 1928
Á veisluborðiö: brauð, snittur og
brauðtertur. Munið vinsælu sam-
kvæmissnitturnar okkar, alveg nýtt
af nálinni. Heimilismatur, borðaður á
staðnum eða tekinn með heim. Opið
frá kl. 9-20. Munið að síminn er 15105.
Alveg sjúklega smart fatnaður úr plasti
og gúmmíefnum á dömur. s.s. kjólar,
pils, buxur, jakkar, bolir, hanskar
o.m.fl. Frábært á böllin og árshátíð-
ina, einnig nærfatnaður úr sömu
efnum. Leitið upplýsinga, sjón er sögu
ríkari. Rómeó & Júlía.
Mercedes Benz 190 E ’84, 4ra dyra,
keyrður 87.000 km, rauður, með topp-
lúgu og álfelgum. Uppl. í síma 91-34878
á daginn, 91-43443 á kvöldin.
é'nnubrauliSíofan
BtlÖRNINN
iljnla’götu 49 öimi 15105
Æðislega smart nærfatnaður í miklu
úrvali á dömur, s.s. sokkabelti, nælon-
sokkar, netsokkar, netsokkabuxur,
opnar sokkabuxur, heilir bolir, m/og
án sokkabanda, toppar/buxur, corse-
lett, st. stærðir, o.m.fl. Sjón er sögu
ríkari. Rómeó og Júlía.
fflfcriiwrr