Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Page 47
MÁNUDAGUá 12. DESEMBER 1988. ......... ....... ........ .,47'
pv______________________________________________________________________________Menning
Baldnir snillingar
Gauragangur.
Kápa: Guöjón Ketilsson.
Útg.: Mál og menning.
Rvik. 1988. 260 bls.
Bókin Gauragangur eftir Ólaf Hauk
Símonarson fjallar um 16 ára Reyk-
víking, Orm Óðinsson. Ormur er
greindur strákur í uppreisnarhug
sem lítur andaktugur til skálda og
listamanna sem ögrað hafa smáborg-
aralegri hugsun og lífsháttum. Hann
sér sjálfan sig sem einn af snilhngun-
um og reynir eftir megni að tileinka
sér þá hegðun að ergja þröngsýna
kennará, geðstirð meðalmeniii og
afhjúpa fáránleika tilverunnar.
Ormur er ofurraunsæisskáld sem
setur viðmælendur sína úr jafnvægi
með óúfreiknanlegum tilsvörum og
ræðustúfum. Svör hans eru hnyttið
Ólafur Haukur Símonarson. Sögu-
hetja hans er 16 ára og skáld.
DV-mynd GVA
Unglingabækur
Margrét Erlendsdóttir
sambland bók menntafrasa og frjós
ímyndunarafls. Franska skáldið Art-
hur Rimbaud, sem fór hamfórum í
ljóðlistinni fyrir tvítugt, er hans
maður enda þótt Ormur sé langt frá
því að vera jafn-vel lesinn og Rim-
baud var á hans aldri. íslensk fyrir-
mynd hans er Dagur Sigurðsson sem
seint ætlar að njóta sannmælis sem
áhrifavaldur ungra skálda. Ormur
ætlar að njóta sannmæhs sem áhrifa-
valdur ungra skálda. Ormur hefur
eins og Rimbaud fiktað við gullgerð-
arlist með Ranúr, vini sínum, sem
finnst ekki nógu ofurraunsæislegt að
heita Rúnar, auk þess er hann les-
blindur og sér 007 í staðinn fyrir 700.
Ormur reynir að leika hlutverk
baldna snillingsins sem tekur ekkert
hátíðlega. Það er hins vegar ekki allt-
af auðvelt. Enda þótt hann hafi í mal
sínum gnægð fleygra setninga megna
þær ekki að vísa burt tilfinningum
eins og ást og væntumþykju sem gera
hann að ofur venjulegum 16 ára
strák. Heimsmynd hans er brota-
kennd, lífsreynslu skortir og mis-
þroskinn lætur á sér kræla þegar
minnst varir. Ormur er nefnilega
hjartahlýr strákur sem lætur sig
fleira varða en gáfað ofurraunsæis-
skáldið kærir sig um. Ólafi Hauki
tekst á skemmtilegan hátt að sýna
lesendum misþroskann og gera
þannig aðalpersónuna trúverðuga.
Að leyfa „Orminum í sjálfum sér
að gægjast fram.
Það er Ormur sem segir söguna,
ekki bara á þann hátt að hún sé sögð
í 1. persónu, heldur notar höfundur
gamalkunnugt bragð, þ.e. aö láta
Orm sjálfan skrifa hana, sitjandi við
ritvél í sumarbústað, vel birgan af
rúgbrauði og fiskbollum. Vegna
þessa leyfir Ólafur Haukur Ormi að
geysast áfram í frásögninni þannig
að stundum verður maður örlítið
þreyttur á orðaflaumnum úr þessum
skemmtilega strák. Hins vegar hefur
Ólafi þótt gaman að skrifa þessa sögu
og það skín í gegn þótt hann hefði
að ósekju oftar mátt hleypa að ein-
lægni og hlýju Orms.
Aukapersónur sögunnar eru vel
gerðar og sannfærandi en hafa eins
og gengur misjafnt vægi. Fegurðar-
dísin Linda, sem Ormur er ástfang-
inn af, er ósköp venjuleg sæt stelpa.
Samband þeirra er laust í reipunum
og veldur Ormi talsverðu hugar-
angri. Ólafur Haukur forðast ódýrar
lausnir og tilfmningaklisjur í sam-
skiptum þeirra. Það eru einkum tvær
persónur sem bregða ljósi á hlýjar
tilfinningar Orms. Hreiðar, forn-
bóksahnn gamli, sem lætur sig
glaum og glys heimsins engu varða,
er annt um Örm og uppsker í staðinn
virðingu hans og væntumþykju, og
Halla, bekkjarsystir Orms, sem hefur
einstakt lag á að sjá í gegnum ólík-
indalæti hans. Þótt Ormur særi hana
stundum með vanhugsuðum brönd-
urum um holdafar hennar fær hann
samstundis bakþanka og reynir að
sýna henni vináttu sína. Aðrar per-
sónur sögunnar verðskulda líka
umfjöllun en verður hér fórnað á
altari plássleysis. Aukapersónur eiga
það sammerkt að þjóna vel fram-
vindu sögunnar. Samskipti þeirra
við Orm eru trúverðug, samtölin lif-
andi og lipurlega skrifuð.
Gauragangur er bók sem hiklaust
má mæla með, ekki bara handa ungl-
ingum, hún er bráðskemmtileg lesn-
ing öllum þeim sem vilja leyfa „Orm-
inum“ í sjálfum sér að gægjast upp
úr moldinni.
ME
!>
I'
Híllll’-M.UI*.
eru einna besl geymcfir
í rikisvíxlum
vegna öryggis
«9
óvöxlunar
Eftirá grciddir vcxtir;
/. • '
Ríkisvíxlar eru mjög.gotjt'tæki.í *
peningastjórnun fyrirtækja, síofnana
og sjóða,’sem þurfa að ávaxta laust fé á
• öruggan og arðbæran 'hátt til skémmri
tíma.. Að sjálfsögðu''gefa einstajdingar
einníg nýtt sér þessá h'agstæðit leið til
fjárfestingar. . .
Ríkigvíx'lar bera nú
10,5% forvexti á ári, ..
sem jafngildir 11,23%
eftirá greiddum vöxtum '
,á ári miðað við 9.0 daga
lánstíma í senn.
Lágmarksfjárhæð
ríkisvíxla er 500.000' kr.;‘
en getúr verið hvaða
fjárhæð se'm er umfram
það. • •
11,23% ''
• 11,17% 11,20% ’
•
11,15%
■
45 dagar 60 dagar 75 dagar 90 dagar
• Einnig er hægt að velja gjalddaga frá
4'5-dögum - 90 daga. . .
. Ríkisvíxiár béra efekert stimpilgjald
og um skattalega meðferð þeirra gilda
. sömu reglur og um sparifé í þönkuni og
spárisjóðum.
Ríkisvíxlaf eru til sölu í Seðlabanka
íslands. Einnjg er hægt
að panta þá í síma.
91 -'699863, gfeiða með. •
C-gíróseðli og fá þá
síðan senda í ábyrgðar
pósti. :’. •.' .. ' ' . . ■
Leitaðu upplýsinga
um tikisvíxla í •
Seðlabanka íslands í
síma 91-699863.
RIKISSJOÐUR ISLANDS
1
• i
...