Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989.
17
Lesendur
„Heimtufrekja“ ríkisstarísmanna:
„Vilja þessir
andsk... meira?“
Baldur Ragnarsson kennari skrifar:
„Heimtufrekja þessara ríkisstarfs-
manna á sér §ngin takmörk. Réttast
væri að láta þessa kennara dúsa í
verkfalli i allt sumar. Þessar kröfur
eru alger vitfirring". - Ummæli af
þessu tagi eru ekki óalgeng manna á
meðal þegar talið berst aö kröfugerð
og verkfalli BHMR.
Fæstir virðast hins vegar nokkuð
vita um hin raunverulegu kjör ríkis-
starfsmanna og hvemig þau hafa
þróast á undanfómum árum. - Lítum
nánar á það dæmi.
Algeng byrjunarlaun BHMR-
félaga, þ.á.m. kennara, hjúkrunar-
fræðinga, lögfræðinga, o.fl., eru sam-
kvæmt launaflokki BHMR 141-32.
Þann 1. des. 1986 voru þessi laun
nákvæmlega kr. 42.791. í dag eru laun
samkvæmt þessum sama launa-
ílokki kr. 55.559. Hækkunin á ríflega
tveimur árum nemur kr. 12.786 eða
tæplega 30%.
„Nú, og er það ekki nóg? Vilja þess-
ir andsk... meira?" - Ójá, og það
ekki að ófyrirsynjú. Hækkun láns-
kjaravísitölunnar á sama timabili
var nefnilega 55%, hækkun fram-
færsluvísitölunnar 63% og hækkun
launavísitölu 62%.
Nú skal ekki um það deilt að taxta-
kaup hefur almennt ekki hækkað um
mikið meira en 30 - 40% á umræddu
tímabili. En hækkun launavísi-
tölunnar segir okkur þó að flestir
launþegar hafa aukið tekjur sínar
umfram hækkun taxtakaups.
Það er algengt úrræði þeirra sem
ekki vinna hjá ríkinu að bæta sér
upp kjaraskerðingar með aukinni
yfirvinnu. Sumir njóta að auki ríf-
legra yfirborgana á taxta. Þessi leiö
stendur t.d. kennurum alls ekki til
boða. Yfirvinna er af skornum
skammti og yfirborganir engar. Því
hafa kennarar tekið höndum saman
við aöra háskólamenntaða ríkis-
starfsmenn og krefjast nú mann-
sæmandi launa fyrir dagvinnu.
Sumir landsmenn virðast haldnir
„Dennaveikinni" alræmdu. Þeir hafa
hreinlega steingleymt þeirri stefnu
allra launþegasamtaka að menn eigi
að geta lifað af dagvinnunni ein-
göngu. En hætt er við að margur
Séð yfir þjóðgarðinn í Skaftafelli.
í þjóðgaröinum í SkaftafellL:
Salerni, lokun
og samskipti
Magnús Karlsson hringdi:
Eg hef verið að fylgjast með skrif-
um í DV um störf landvarða í þjóð-
garðinum í Skaftafelh og samskipti
þeirra við þjóðgarðsvörðinn Stefán
Benediktsson.
Mig langar að segja frá því að um
páskana kom ég í Skaftafell og ég var
m.a. að aðstoða þrjá Breta frá BBC
sjónvarpsstöðinni sem voru að vinna
heimildarmynd þarna fyrir austan.
Þessir menn vildu fá að nota salern-
isaðstöðu að Skaftafelli, en Stefán
Benediktsson þjóðgarðsvörður
meinaði þeim aðgang. Það var ekki
fyrr en undir lok dvalar Bretanna
þarna, eftir 1-2 vikur, sem Stefán
Ekið á bifreið:
Vitni vantar
S.G. skrifar:
Aðfaranótt sunndagsins 23. apríl
var ekið á bifreið mína kyrrstæða
fyrir utan heimili mitt í Hléskóg-
mn. Svo mikið gekk á hjá tjón-
valdinum að með spymum og
dekkjavæli vakti hann upp fólk í
húsunum í götunni sem telur sig
geta borið kennsl á hann.
Það er ansi hart að leggja bíl sín-
um fyrir utan heimili sitt og verða
fyrir því að hann er skemmdur af
ungum piltum sem ekki hafa í sér
manndóm til að taka afleiðingum
gerða sinna heldur láta annan sitja
uppi með skaðann.
Þessi ungi ökumaður ók á nýleg-
um, ljósum eða hvítum Mitsubisi
Lancer bil. Pilturinn er grannleit-
ur, ekki mjög hávaxinn, með skol-
leitt stutt hár. - Ef þú, lesandi góð-
ur, kannast við lýsinguna, vertu
þá híálplegur og láttu vita í síma
72322.
Það er ótækt að menn skuli kom-
ast upp með að vinna tjón sem í
þessu tilfelli er á dauðum hlut. En
á hvað ekur hann næst? Ég er sann-
færð um aö ökumanni Mitsubishi-
bílsins væri það lærdómsríkt að
taka afleiðingum gerða sinna.
nemandinn gleymi því ekki hvernig
menntun er metin í þessu þjóðfélagi
þegar hann sjálfur þarf aö velja
framtíðarstarf sitt.
Aðrir landsmenn eru svo haldnir
„Guðrúnarflensunni". Þeir fjasa og
fárast yfir hlutum sem þeir hafa nú
bara eiginlega ekkert vit á, t.d. laun-
um ríkisstarfsmanna. Þaö er von
þess sem þetta ritar að sem flestir
hristi af sér veikindaslenið (orsakast
líklega af of mikilli yfirvinnu) og taki
undir rétmætar kröfur BHMR um
mannsæmandi laun fyrir dagvinnu
og að menntun verði metin að verð-
leikum.
Breiðir, rryúkir og þægilegir.
Margar gerðir
og litir.
Verð kr. 3.600,-
Skóbúðin
Snorrabraut 38
Sími 14190
Póstsendum
Lipurtá
Borgartúni 23
Sími 29350
bauð þeim náðarsamlega að nota sal-
ernin, og þá fylgdu reyndar með
whisky og vindlar!
Þarna voru að sjálfsögðu fleiri á
feröinni og mér fmnst það furðuleg
framkoma af þjóðgarðsverði að leyfa
ekki aðgang aö salernum í þjóðgarð-
inum um páskana. Mér er sagt að
túnin þarna hafi ekki verið falleg
yfir að líta þegar snjórinn fór,
mannasaur og klósettpappír úti um
allt. Þessir menn sem ég nefndi voru
að vinna að stórum þætti fyrir BBC,
þætti sem um 60 milljónir manns
munu sjá, og það var athyglisvert
hvernig var tekið á móti þeim í
Skaftafelli...
Uncle Berís og DV
Hrísgrjón allan ársins hring
Hrísgrjón eru ekki árstímabundin, hvorki í gæðum né
verði. Þau eru jafn góð og jafn ódýr hvenær árs sem er.
Og nú er alveg tilvalinn tími til þess að bregða sér
inn í eldhús, taka út Uncle Ben’s hrísgrjónapakkann, gefa
hugarfluginu lausan tauminn og byrja að elda.
Hrísgrjón í alla rétti
Aðalréttir, forréttir, eftirréttir; sendu okkur eftir-
lætisuppskriftina þína. Uppskriftasamkeppnin er
öllum opin og við höfum áhuga á alls konar
uppskriftum. Þriggja manna dómnefnd velur
síðan verðlaunaréttina 10.
«==*)
FYRSTU VERÐLAUN
Ferð fyrir tvo til Florida í sex
daga, með gistingu á fyrsta flokks hóteli.
2.-10. VERÐLAUN “
Við bjóðum 9 aukaverðlaun; níu hágæða
finnsk pottasett frá Hackmann. Eitthvað
sem allir kokkar vilja eiga.
Þátttökureglur:
Nota skal Uncle Ben's hrisgrjón í uppskriftina.
Nákvæm mál skulu gefin upp og uppskriftin skýrt uppsett, helst vélrituð.
Merkið með dulnefni og látið nafn, síma og heimilisfang fylgja í lokuðu umslagi, merkt dulnefninu.
Verðlaunauppskriftir verða birtar í DV og framleiðendur Uncle Ben’s áskilja sér rétt til frekari birt-
inga. Ennfremur að hætta við keppnina ef ekki berast uppskriftir sem uppfylla kröfur dómnefndar.
Uppskriftir skulu sendar til DV. Utanáskriftin er „Hrísgrjónasamkeppni" DV
Þverholti 11, 105 Rvk. SÍÐASTI SKILADAGUR ER 7. MAÍ.
Unde Ben’s
Uncle Ben’s - hrísgrjónin sem ekki klessast saman.
Ml •*—r- • - lip