Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Side 16
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ1989. W__________ Spumingin Hvað þyrfti til að þú flyttist úr landi? Oddgeir Jóhannsson: Það kæmi ekki til greina að ég flyttist úr landi. Linda Gunnlaugsdóttir: Ekkert gæti fengið mig til að flytjast héðan. Þaö er svo ágætt að búa héma. Bryndis Hauksdóttir: Ég veit það ekki. Það er ómögulegt að segja. Sesselja Jónsdóttir: Það þyrfti ansi mikið til að koma mér úr landi. Helst væri það ef ég gæti ekki með nokkru móti framfleytt fjölskyldu minni. Sveinn Arason: Ætli þyrfti ekki alls herjar eldgos til að ég flytti frá ís- landi. Kristján Jóhann Karlsson: Það þyrfti helvíti mikið. Það væri helst ef eitt- hvert atvinnuvesen yrði. Lesendur Fékk símareikning efl ir að síma var lokað ÍAKT Account Number Statement Clocing Date Payment Due Date PAGE 1 OF 1 218 236 2Í53 881 5/31/88 6/30/88 Sunanary of Long Dr.stance Charges: Quostions about your bill? Call 1-800-222-0300. Current Charges Oirect Dialed Cal s Call Total Interstate Surcharge (2.78%) Federal Tax State/Local Tax fotal Current Charges 61.86 1.56 1.90 3.92 $69.24 Previous Ealance Paynents Current Charges New Bilance Due For infomation on Reach Out, a new way to auy long distancc* Call 1-800-222-0300. Account Status 125.20 125.20CR 69.24 We've cloí.ed your account. Thank you for using ATftT. We look forward to serving you again. Detail of Cuppent Transactions: No. | Date j Tlme Place | Area - Number | Mins. | Type ol Call* | Amount 1 5/01 2 5/08 3 5/08 4 5/08 5 5/09 6 5/11 7 5/14 8 5/17 9 5/18 10 5/18 11 5/18 12 5/19 13 5/19 2:19 PM TO 12:02 PM TO 1:30 PM TO 1:39 PM TO 3:09 PM TO 3:13 PM TO 1:32 PM TO 2:41 PM TO 1:24 PM TO 4:19 PM TO 8:22 PM TO 6:59 AM TO 1:56 PM TO ICELAND CLINTON ICELAND ICELAND LEONIA WHIPPANY CLINTON STILLWATER STILLWATER STILLWATER STILLWATER STILLWATER ICELAND 354144036 MN 612 325 5375 35491714 354144036 NJ 201 947 3440 NJ 201 884 8539 HN 612 325 5375 MN 612 439 9493 MN 612 439 9493 MN 612 439 9493 MN 612 439 9493 MN 612 439 9493 354144036 7S Dialed- t Dialed 6 Jialed- 6 Dialed- 1 Dialed 1 Dialed 6 Dialed 1 Dialed 1 Dialed 1 Dialed 1 Dialed 3 Dialed 19 Dialed- Overseas Discount N/Wknd Overseas Discount Overseas Discount Day Day N/Wknd Day Day Day Eve N/Wknd Overseas Discount 33.79CR Payment - Thank You 91.41CR Payment - Thank You Call Total: O $61.86 'Se« Reverse Slde For Important Inlormatlon Bandarískir símareikningar gefa nákvæma sundurliðun á símtölum. Eya Eliasdóttir kom: í ágúst í fyrra kom inn um lúguna hjá mér símareikningur upp á rétt um 18.000 krónur. Mér fannst reikn- ingurinn vera heldur í hærri kantin- um en borgaði samt. Næst þegar ég fékk símareikning var upphæðin komin upp í 30.000 kr. Ég stórefaðist um að þetta gæti verið rétt, en borg- aði samt möglunarlaust til að láta ekki loka símanum hjá mér. Þegar reikningurinn fyrir tímabil- ið desember-febrúar kom, hljóðaði sá upp á 30.270,95 kr. Mér var þá al- veg nóg boðið, þetta gæti ekki verið rétt. Ég talaði því við Póst og síma í Hafnarfirði en þar varð lítið um svör. Mér var boðið að sjá skrefafjöldann, en það segir mér ekki neitt. Ég hefði viljað fá nákvæma sundurliðun á reikningnum, t.d. hvert var hringt. Mér var sagt að þær upplýsingar gæti ég ekki fengið, þ.e. búið var að ganga frá símareikningum fyrir þetta tímabii. Ég taldi útilokað að reikningurinn gæti verið réttur þótt ég hringdi stöku sinnum til Færeyja. Ég lét því loka hjá mér símanum um 10 dögum eftir að þessi reikningur kom. Ef ég hefði sjálfvirkilega notfært mér sím- ann þetta mikið, þá hefði ég borgað með glöðu geði. En vandi minn var ekki úr söguxmi þó símanum væri lokað. Mér var sendur símareikningur fyrir mars- maí upp á 22.880,30 kr. Ég talaði aftur við þá hjá Pósti og síma í Hafnarflrði en mér var ekki trúað. Ég þvemeita að borga símareikn- inga sem geta ekki staðist. Það hlýtur að vera eitthvað aö símakerfinu, og ekki nokkur leið fyrir mann að sanna að svo sé. Skrefafjöldinn einn segir manni ekki nokkum skapaðan hiut. Ég hef heyrt að farsímamir hafi lent inn á línum hjá fólki og eins er mjög mikið um það að línunum slái sam- an. Ég held að símakerfið héma sé mjög lélegt og það bitnar á blásak- lausu fólki. Það ætti að vera sjálfsagður réttur símnotanda að fá skýrar upplýsingar um símareikninga sína, þ.e. hvert hringt var, hversu lengi talað o.s.frv. Maður er alveg vamarlaus þegar maður fær svöna reikninga framan í sig. Bág kjör á landsbyggðinni: Leiða vonandi huggulegri kaffihusa Daglaunamaður skrifar: Ég hef oft velt því fyrir mér hvað það er leiðiniegur eiginleiki hjá ís- lendingum hversu stórhuga þeir em. Hjá þeim þjóðum sem ég hef heim- sótt er algengt að fjölskyldur reki saman til dæmis litla veitingastaði eða kaffistofur og láti sér nægja að lifa þokkalegu lífi af því sem þessi litiu fyrirtæki gefa af sér. Þetta fólk metur sjálfsagt meira að þurfa ekki að hlýöa skipunum frá öðrum og vinna saman en að komast í álnir. Hér em hins vegar fá lítil fyrirtæki þar sem eigendumir sætta sig við að vera eigendur lítilla fyrirtækja. Jafn- vel þegar maöur kemur inn í Utla sælgætis- og tóbaksverslun fær mað- ur á tilfinninguna að hún sé einung- is' fyrsta skrefiö á leið eigandans til mikils auðs. Hann sé þegar kominn með heildsölu í bílskúrinn og búinn aö panta Range Rover hjá umboðinu. Þetta er kannski sök sér í sælgætis- verslunum en er verra þegar maður ætlar að fá sér kaffibolla eða eitthvað í svanginn að ekki sé talað um ef maður ætlar að fá sér eina bjór- könnu. Þeir staðir sem selja þennan vaming hreinlega lykta af þeim ásetningi eigendanna að ætla að verða „ógeðslega ríkir“ eins og segir í danslaginu. Ég hef verið að velta þessu fyrir mér að undanfornu vegna umræðna um bág kjör landsbyggðarfólks og nauðsyn þess að fækka störfum bæði í landbúnaði og fiskvinnslu. Em þetta í raun ekki gleðitíðindi? Þegar þetta fólk flosnar upp frá sinni heimabyggð getur það flutt í bæinn og sett á stofn litlar kaffistofur eða bari. Þar sem það er vant haröæri úr sveitinni sættir það sig kannski við að reka þessi afdrep en láta ekki ffeistast af draumum um Range Ro- ver enn stærri fyrirtæki og sand af seðlum. Mörgum finnst harðfiskur hið mesta sælgæti. Þjóðlegt sælgæti: Góður harðfiskur Helgi Vigfússon hringdi: Mig langaöi til að benda fólki á að það fæst alveg einstaklega góður harðfiskur í versliminni Guðmundi H. Albertssyni á Langholtsvegi 42. Harðfiskurinn er alveg hreinn, ekki eitt einasta bein í honum. Er harðfiskur þessi hreinasta sælgæti. Ég hef ekki fengið hann svona góðan síðan Sigurgeir Falsson verkaði harðfisk vestur í Bolungavík um miðja öldina. Þetta er allt saman svo einstaklega snyrtilegt aö það vekur traust og aðdáun á kaupmanninum. Hringið í síma milli kl. ð og 16. eða skrifið. Brúðuviðgerðar- maður f undinn Mlkið hefur verlð leitað aö brúöuviögerðarmanninum. Kristbjörg hringdi: Þann 3. júlí var auglýst eftir brúðu- viðgerðarmanni í lesendadálki DV. Mig langar fyrst til að leiðrétta að maðurinn heitir Jón Traustason, en ekki Kristinsson. Ég var sjálf búin að leita lengi að þessum manni og auglýsa eftir hon- um, en án árangurs. Loks tókst mér upp á eigin spýtur að finna hann. Eins og áður segir þá heitir hann Jón Traustason og býr á Skúlagötu 76, fjórðu hæð. Ég held að hann sé ekki með síma, og því er erfitt að ná sam- bandi við hann. Ég vona að upplýsingar þessar geti komið einhvexjum að gagni. Ég er sjálf með brúðu í viðgerð hjá honum núna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.