Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1989, Page 5
5
MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1989.
Fréttir
Innganga Borgaraflokksins í ríkisstjóm:
Tveir ráðherrar kosta
rúmar 15 milljónir á ári
- ríkisstjómin kostar um 85 milljónir meö öllu
Kostnaður skattgreiðenda við
fjölgun ráðherra úr níu í ellefu er
um 15 milljónir á ári. Þá er einungis
reiknað með launum ráðherra, að-
stoðarmanna, ritara, ráðherrabíl-
stjóra, rekstri á ráðherrabíl og ferða-
kostnaði. Það má því segja að inn-
ganga Bo'rgaraflokksins muni kosta
skattgreiðendur um 15 milljónir á
ári.
valið sér bíla sem kosta um 2 til 4
milijónir nýir.
Ef reiknað er með að hver ráðherra
sé í um 10 daga í ferðum erlendis á
ári hveiju og þar af í 4 daga með
maka má áætla kostnað ríkissjóðs
af þessum ferðum um 250 þúsund
krónur.
Samkvæmt ofansögöu kostar hver
ráðherra um 7 mihjónir og 650 þús-
und krónur. Báðir ráðherrar Borg-
araflokksins kosta skattgreiðendur
því um 15,3 milijónir. Ríkisstjómin
öll ætti því að kosta tæplega 85 millj-
ónir króna.
-gse
Rekstur á ráðherra á ári
í þús. kr.
Feröalög
(10dagar)
Bíll 250
Samtals 7.650 þús. kr.
Ráðherralaim í ár eru rúmlega ein
milljón á ári. Þau leggjast ofan á
þingfararkaup ráðherra.
Aðstoðarmenn ráðherra hafa mis-
munandi laun eða aUt frá 150 þús-
undum á mánuði og upp í hátt í 300
þúsund. Níu ráöherrar í annarri rík-
isstjóm Steingríms höfðu 14 aðstoð-
armenn eða um 1,6 á ráðherra.
Kostnaður við aðstoð við þá Júlíus
Sólnes og Óla Þ. Guðbjartsson ætti
að verða um 3,3 milljónir ef reiknað
er með aö aðstoðarmenn þeirra hafi
um 170 þúsund krónur á mánuði.
Hver ráðherra hefur sinn ritara. Ef
gengið er út frá því að ritari ráöherra
hafi um 90 þúsund krónur á mánuði
kosta tveir ritarar skattgreiðendur
um 2,2 milljónir.
Ráðherrar eiga rétt á ráðherrabíl.
Samkvæmt upplýsingum frá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda kostar
rekstiu- á bfi, svipuðum þeim sem
ráðherrar hafa valið sér, um 520 þús-
und krónur á ári. BOunum fylgja bO-
stjórar. Ef þeir hafa um 120 þúsund
krónur á mánuði taka þeir um 2,9
milljónir á ári. Hér er ekki reiknað
með kaupverði á ráðherrabO en þeir
ráðherrar, sem nú sitja, hafa flestir
Undirskriftir
gegn ryki á
Þjóðbraut
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Á annað hundrað íbúar við Skarðs-
braut og starfsmenn fyrirtækja við
Þjóðbraut hafa skorað á bæjaryfir-
völd að rykbinda Þjóðbrautina hið
snarasta. íbúamir við Skarðsbraut,
sem Uggur samsíða Þjóðbrautinni,
verða fyrir miklum óþægindum
vegna ryks frá Þjóðbraut í þurrkum,
enda er umferö um götuna talsverð.
í áskorun íbúanna kemur fram að
við Skarðsbraut og Þjóðbraut búa
hátt á þriðja hundrað manns. Þar
segir enn fremur:
„Við undirrituð teljum bæjaryfir-
völd beinlínis sýna okkur óvirðingu
með því að láta sóðaskapinn, sem
hlýst af núverandi ástandi Þjóð-
brautarinnar, viðgangast ár eftir ár
og krefjumst úrbóta strax.“
„Okkar stefna er auðvitað sú að
steypa þessa götu. En það er ekki
gott að segja hvenær af því getur
orðið. Hér er um 20-30 mOljóna
króna framkvæmd að ræða en gatan
gefur htið sem ekkert af gatnagerðar-
gjöldum. En við vOjum auðvitað að
gatan verði steypt sem fyrst,“ sagði
Gísh Gíslason bæjarstjóri, en hann
tók við undirskriftum íbúanna.
Togaramir að
klára kvótann
Regína Thorarensen, DV, SeMossi:
Eskifjarðartogararnir Hólmatind-
ur og Hólmanes, sem gerðir eru út á
sóknarmarki, hafa aflað sem hér seg-
ir frá áramótum. Hólmatindur hefur
fengið 2.150 tonn og er brúttóverð
aflans liölega 70 mihjónir króna.
Hólmanes er með 2.400 tonn og er
brúttóverðið rúmar 76 milljónir.
Verulega er nú farið að ganga á
þorkskvótann þannig á Hólmatindur
á eftir um 130 tonn en Hólmanesið
215 tonn.
VIDEOHOLLIN
LÁQMUUV 7, SIMI 685333
HAMRABORQ 11, SÍMI 641320
ÞÓNQLABAKKA 6, MJÓDD, SÍMI 670066
MAVAHUð 25, SÍMI 10733
HRAUNBERQI 4. Sl'MI 77770