Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1989, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1989,
7
Fréttir
§ SAMSUIMG
VGA
PatreksQörður:
Rúmri hálfri
milljón safnað í
varmateppi yfir
sundlaugina
m
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
------------------------------------
Síöastliöinn sunnudag stóö íþrótta-
félagiö Höröur á Patreksfirði fyrir
áheitasundi til styrktar sundlauginni
á staðnum. Markmiöiö meö sundinu
var að safna fyrir varmateppi sem
breytt veröur yfir sundlaugina.
Meö tilkomu teppisins verður hægt
að spara kyndingarkostnað á laug-
inni til muna, auk þess sem bæjarbú-
ar vonast til að geta notað laugina
lengur en í þrjá mánuöi á ári eins
og einungis hefur verið hægt hingað
til.
Syntir voru 100 kílómetrar og tók
sundiö 12 klukkustundir. Áheitum
var safnaö á laugardeginum með því
að velunnarar sundlaugarinnar
gengu í hús. Alls söfnuöust 230 þús-
und krónur frá einstaklingum. Þá
hafa fyrirtæki á Patreksfirði gefið
vilyrði fyrir 300 þúsund króna fram-
lagi. Varmateppi, eins og safnað var
fyrir, kostar tæpar 600 þúsund krón-
ur.
Sundhópurinn Dúllumar, sem
skipaður er konum sem alltaf koma
tvisvar í viku í sund, efndi til kaffi-
sölu á sunnudeginum og tókst hún
hið besta. Þær söfnuðu 16 þúsund
krónur sem þær gáfu til styrktar
þessu verkefni.
íþróttafélagið Hörður á Patreksfirði efndi siðastliðinn sunnudag til áheitasunds þar sem markmiðið var að safna
fyrir varmateppi sem hægt verður að breiða yfir sundlaugina á staðnum. DV-mynd BB, ísafirði
Hvammstangi:
Líkur á að
sparisjóð-
urinn selji
sláturhúsið
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkroki:
Forráöamenn Ferskra afurða hf. -
hlutafélagsins sem tók sláturhús Sig-
urðar Pálmasonar á Hvammstanga á
leigu á síðasta hausti - hafa undan-
fariö átt viðræður við stjórn Spari-
sjóðs Hvammstanga um kaup á slát-
urhúsinu.
Sparisjóðurinn keypti húsið á
nauðungaruppboði í fyrra en leigu-
samningur, sem FA gerði við þrota-
búið í fyrra, rennur út nú í haust.
Taldar eru miklar líkur á að af kaup-
unum verði.
Sigfús Jónsson á Laugarbakka,
einn forsvarsmanna Sláturfélagsins,
segir rekstur siáturhússins ganga
vel. Lögð er áhersla á að selja sem
mest af kjötinu ferskt og spara þann-
ig frystikostnað.
Sumarslátrun hófst hjá félaginu
fyrir tveim vikum og kom á óvart
hvað dilkar eru vænir. Fallþungi er
að meðaltali 15 kíló og er það talin
kjörþyngd með tilliti til fitu.
ísaQöröur:
Sektir ef
beltin eru
ekki notuð
Lögreglan á ísafirði ætlar næstu
daga að taka hart á þeim ökumönn-
um sem ekki hafa ljósin kveikt og
eins ef fólk notar ekki bílbelti. A
fimmtudag voru sjö bíleigendur
kærðir fyrir að hafa ekki fært bíla
sína til skoðunar.
TÖLVUSKJAIR
\
Brautarholti 2, Rvk, sími 27133
■sme