Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1989, Qupperneq 17
.>>:«•< fiafJMaT^ag .it itjoaöiivia
MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1989.
17
REYKJMJÍKURBORG
AeutMn Atödwi
BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR
Lausar stöður bókavarða við Borgarbókasafn. Upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu Borgarbókasafns í
síma 27155. Umsóknum ber að skila til starfsmanna-
halds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6 hæð, á
sérstökum eyðublöðum, sem þar fást, fyrir 20. sept-
ember 1989.
Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðn-
aðarráðherra, mun flytja framsögu-
erindi um uppbyggingu iðnaðar á
grundvelli orkulindanna, sérstak-
lega um hugmyndir um nýtt álver í
tengslum við virkjun Jökulsár í
Fljótsdal.
Að framsöguerindinu loknu verða
pallborðsumræður. Þátttakendur í
umræðunum verða auk ráðherra
sérfræðingar frá iðnaðarráðuneyt-
inu og Landsvirkjun og fulltrúar
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar og
sveitarfélaganna á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Fundargestum gefst færi á þv
að beina spurningum til ráðherr
eða annarra þátttakenda í pall
borðsumræðunum.
IÐNAÐARRAÐ UNEYTIÐ
Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar gengst fyrir almennum fundi miðvikudaginn,
13. september 1989, kl. 20.30, í Alþýðuhúsinu á Akureyri.
Lesendur
Hundadagar 89:
Lifandi myndir
Edda Hákonardóttir skrifar: styrktir af ríkinu og einum um- tilvalið að veita okkur aðstöðu þar.
Miðvikudaginn 9. ágúst sl. var sjónarmanni greitt fyrir sitt starf. Hann er nú leigður fyrir sýningar
stuttmyndasýning á Hótel Borg og Styrkír eru veittir til listrænna á „Láght Nights“ sýningunum á
komu þangað um 200 manns. Er mynda, ég held þó að enginn lifi í sumrin.
það furðulega mikiU áhugi, miðað raun af þessu. Það sem ég er hrifn- Uppáhaldslistamennimir mínir á
við að þetta er ein af fyrstu sýning- ust af á þessu sviði er alvarleg þessu sviði eru þeir frönsku en
unum hér á landi - fyrir utan þær myndlist, atvinnumennska. - Það þeir hafa fengist mikið við „Body
sýningar sem ég hefi haldið, t.d. í var gott framtak h)á Alþýðuleik- Art“ og „Body Performance", og
Tjaniabíói ’78 og var sú sýning líka húsinu að sýna þessar myndir og það er það sem ég geri líka. - Þetta
vel sótt. það á þakkir skilið. er eins konar stefna, líkt og im-
EinnigvarsýningáListahátíð88, Edda Sverrisdóttir, sem sá um pressionistarnir fylgdu, t.d. Van
og voru þar sýndar þijár myndir sýninguna.sagðiaðhúnheíöitekið Gogh, Seurro, Renoir, Monet og
eftir Brýnju Ben, Lárus Ými og þátt í sýningu á kvennamyndum í Cesanne.
Maríu Kristjóns, og voru þá veitt Stjörnubíói fyrir nokkrum árum. Van Gogh málverk eru nú seld á
verðlaun. Mér fannst myndir Eddu bestar á 24 milljónir punda. Einhvem tíma
Ég hef verið að bíða eftir þvi að þessari sýningu. Hún hefur stund- eigiun við kannski eftir að selja
eitthvaðgerðistáþessumvettvangi að nám í kvikmyndagerö í San okkar myndir á sama verði. - Eg
héma heima, en erlendis hafa Fransisco og geröi m.a. myndina er að reyna að fá þessa frönsku
stuttmyndir þekkst lengi. Hef ég LífsbjörgíNorðurhöfumsemhefur myndlistarmenn hingað til lands
víða sýnt erlendis. - Á stööum eins veriö svo umdeild. ' til að sýna, t.d. Teo Hemandez,
og Millenium í Greenvich village í Það kemur að því að við þurfum Michel Nedjar, Katarina og Maria
New York, og eins í London, París, okkar stað fyrir svona myndir og (grískar). En þeir gera eingöngu
Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. vil ég þá nefna Tjarnarbíó. Ríkið „Super-8“ myndir.
Allir slíkir sýningarstaðir eru eöa borgin á þann stað og því er
Atvinna og orkulindir
Landbúnaður og stjómmál:
Koma mörg-
um á kaldan
klakann
Sigurður skrifar:
Laugardaginn 2. sept. sl. var viðtal
í Sjónvarpinu við Steingrím Her-
mannsson, Þorstein Pálsson og Júl-
íus Sólnes. Lítillega var komið inn á
landbúnaöarmál. Stjórnmálamenn-
irnir töldu landbúnaðarmálin „við-
kvæm mál“ og ekki auðvelt að ná
samstöðu um þau.
Ekki kom fram hjá þeim að það'
væri neitt „viðkvæmt" fyrir neyt-
endur að mjólkurvörur voru hækk-
aðar um allt að 14% daginn áður, á
þessum tímum hraðminnkandi
kaupmáttar launa og vaxandi at-
vinnuleysis. - í framhaldi af því kvað
Steingrímur Hermannsson ekki vera
hægt að „kasta bændum á kaldan
klakann", um 20 þúsund manns -
hvaðan sem hann fær þá tölu.
Skattgreiðendur hafa látið sig hafa
það þótt háum upphæðum af skatt-
peningum þeirra hafi verið veitt til
landbúnaðarins í ýmsum myndum á
undanfornum árum og nú er þessi
fjárhæð komin í 10% af öllum skatt-
peningunum. - Og eru nú landbún-
aðarvörur á íslandi u.þ.b. fimm sinn-
um dýrari en í nágrannalöndunum!
Réttara væri að segja aö land-
búnaðarstefnan með stjórnmála-
mennina í fararbroddi sé sú aö kaupa
sér dýrmæt atkvæði og að kasta
NEYTENDUM landsins á kaldan
klaka og eyða upp auðlindunum. -
Bændur sitja hins vegar eftir með
sárt ennið, hanga á horriminni og
láta nota sig. Þeir sem hagnast eru
milliliðir, m.a. þeir sem selja til land-
búnaðarins og auglýsa gjarnan með
ákallinu „Bændur og búalið"!
Er nú ekki tími til kominn fyrir
bændur að rísa úr öskustó og taka
málin í sínar hendur? Til að svo
megi verða þarf að leyfa innflutning
á landbúnaðarafurðum - þó með
háum verndartollum sem gætu farið
lækkandi þegar betur færi að ganga.
Virkja þarf hugkvæmni og framtak
bændanna. Þeir þurfa að selja sínar
afurðir undir mismunandi merkjum,
allt eftir því hvaðan afurðirnar koma
af landinu, og leggja áherslu á gæði
og bragð og verðleggja eftir því.
Eftir því sem auðlindum fækkar
og skattpeningar minnka verður
slagurinn haröari um sameiginlega
sjóðinn. Neytendur eru að verða
miklu meðvitaðri um rétt sinn og
hafa meiri samanburð við það sem
gerist og gengur hjá nágrannaþjóð-
um í verðlagi og gæðum matvæla. -
Það verður æ erfiðara fyrir stjórn-
málamenn okkar að ráðskast með
þá. Þakka ber auknum umræðum og
skrifum í fjölmiölum um þessi mál.
En róðurinn er þungur því kolkrabb-
inn teygir sig víða.
TUNGSRAMUMBOÐIÐ: RAFTÆKJAVERSLUN ÍSLANDS HF.
KNARRARVOGI 2, REYKJAVÍK - SÍMI 68-86-60
Myndin sem Margrét sendi.
Hver þekkir barnið?
Margrét skrifar:
Ég sendi ykkur á lesendasíðu DV
mynd af 36 mynda filmu sem fannst
á tjaldstæöi nálægt Bjarkarlundi
þann 21. ágúst sl.
Gaman væri ef einhver þekkti þetta
bam af myndinni og myndimar
kæmust þannig til réttra eigenda.
Upplýsingar fást í síma 98-21086