Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 2.; JÚNÍ 1990.
Fréttir
Bráðabirgðauppgjör Sambandsins kynnt á stjórnarfundinum í fyrradag:
Mikið tap á Sambandmu
fyrstu fjóra mánuðina
Á stjórnarfundi Sambandsins í
fyrradag var bráðabirgöauppgjör
Sambandsins fyrir fyrstu fjóra
mánuði ársins lagt fram, sam-
kvæmt heimildum DV. Niðurstað-
an er sú að Sambandið var rekið
með bullandi tapi fyrstu fjóra mán-
uðina. Mikill fjármagnskostnaður
er aðalorsök tapsins. Verslunar-
deildin kemur langverst út af ein-
stökum deiidum og er byggingin í
Holtagörðum, en á henni hvíla
þung erlend lán, erfiöur baggi.
Samkvæmt heimildum DV sýndu
aðrar deildir Sambandsins en
verslunardeildin sæmilega út-
komu. Rekstur þeirra mun vera að
batna. Sérstaklega var fjórði mán-
uðurinn, apríl, hagstæður, nema
hjá verslunardeildinni.
Burt með verslunar-
deildina?
Slæm útkoma verslunardeildar-
innar endurspeglast vel í tillögu
stjómar Sambandsins sem lögð
verður fyrir aöalfundinn 7. og 8.
júní og kynnt var blaðamönnum í
fyrradag. Orðrétt segir í tillögunni:
„Gera skal sérstakar ráðstafanir
bæði skipulags- og rekstrarlegs eöl-
is, til að snúa við taprekstri versl-
unardeildarinnar og Jötuns. Takist
það ekki veröi eignir þeirra seldar
og deildimar lagðar niður.“
Gap milli stjórnar og
forstjórans birtist á ný
Stjórnarfundur Sambandsins í
fyrradag var merkilegur fyrir
fleira en aö kynnt væri tap félags-
íns fyrstu fjóra mánuðina. Enn á
ný kom upp á yfirborðið það gap
sem orðið er á milli stjórnar Sam-
bandsins og forstjórans, Guðjóns
B. Ólafssonar.
Að þessu sinni kom þetta fram í
því að í upphafi stjórnarfundarins
flutti Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
Sambandsins og formaöur skipu-
lagsnefndar Sambandsins, hug-
myndir nefndarinnar að tillögu
sem flytja ætti á aðalfundinum.
- stjómin stakk tillögu skipulagsnefndar undir stól
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
Sambandsins, flutti hugmyndir
skipulagsnefndar á stjórnarfundin-
um. Þessum hugmyndum stakk
stjórn Sambandsins undir stól og
samdi i staðinn harðorða tillögu
að ályktun aðalfundar í næstu viku.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Þess má geta að Guðjón situr með-
al annarra í nefndinni.
Gert var fundarhlé eftir
orð Sigurðar Markússonar
Það er skemmst frá þvi að segja
að gert var fundarhlé og eftir það
tætti stjóm Sambandsins hug-
myndir nefndarinnar í sig og bjó
þegar til nýja tillögu að ályktun
aðalfundarins. Var því hugmynd-
um nefndarinnar stungið undir stól.
Hugmyndir nefndarinnar, sem
Sigurður Markússon flutti og fengu
ekki náð, ganga út á að aðalfundur-
inn í júní eigi að fela stjórn Sam-
bandsins að leita leiða til að rétta
hag fyrirtækisins við. Jafnframt aö
ef stjóm Sambandsins sýndist það
Sambandið tapar og tapar. Nú er svo komið að innan samvinnuhreyfingarinnar spyrja menn sig hvort hægt
sé að bjarga fleyinu og jafnframt hvort skipulagsbreytingarnar séu ekki dauðateygjur fyrirtækisins.
hentugt að skipta Sambandinu í
sjálfstæð hlutafélög gæti hún farið
þá leið.
Þessi tillaga Sigurðar og félaga í
nefndinni var því miklu mildari og
óljósari en sú tillaga sem stjómin
samdi á fundinum og samþykkti
síðan 9-0, algjörlega samhljóða.
Samkvæmt heimildum DV vildi
stjórnin hafa tillöguna harðorða og
afdráttarlausa með tilliti til stöðu
Sambandsins.
Þaö vekur athygli hve mildilega
og óljósa Siguröur og félagar vildu
hafa tillöguna þegar haft er í huga
að á sögulegum stjórnarfundi Sam-
bandsins fyrir rúmum hálfum
mánuði samþykkti stjórnin sam-
hljóða að láta kanna leiðir til að
skipta félaginu upp í sex sjálfstæð
hlutafélög.
Þessi afdráttarlausa skoðun
stjórnarinnar birtist síðan í tillögu
hennar að ályktun aðalfundarins í
næstu viku. Orðrétt segir: „Deild-
um Sambandsins verði breytt í
hlutafélög eftir starfsgreinum enda
veröi náið samráð haft við innlenda
og erlenda lánardrottna.“
Ekki allir sáttir við
SlS-höllina við Kirkjusand
í tillögu stjórnarinnar frá því í
fyrradag að ályktun aðalfundarins
segir að núverandi fjárhagsvanda
Sambandsins megirekja til þriggja
atriða. Nefnt er: „í fyrsta lagi erf-
iður efnahagur þar sem tekjurýrar
eignir standa á móti dýrum lán-
um.“ Samkvæmt heimildum DV
mun margur stjórnarmaðurinn
ekki síst hafa í huga byggingu SÍS-
hallarinnar við Kirkjusand sem er
óvenjulega vönduð og íburðarmikil
og kostaði hundruð milljóna króna.
Út í þessa byggingu var farið á
meðan samvinnuhreyfingin á ann-
ars staðar vannýtt skrifstofu- og
verslunarhúsnæði.
Á stjórnarfundinum í fyrradag
mun það hafa komið mörgum
stjórnarmönnum á óvart hvað for-
stjórinn sjálfur, Guðjón B. Ólafs-
son, hafði sig htið í frammi þegar
skipulagshugmyndirnar voru
ræddar.
í ljósi þess taps sem varð á Sam-
bandinu fyrstu fjóra mánuðina
spyrja margir innan samvinnu-
hreyfingarinnar sig nú að því hvort
ekki sé orðið of seint að bjarga
Sambandinu frá gjaldþroti. Og
hvort þær skipulagsbreydngar sem
nú eru ræddar séu ekki aðeins
dauðateygjur risans í íslensku
efnahagslifi?
Bakkafiskur bauð atvmnulausum Selíyssingum vinnu sem þeir afþökkuðu:
Vinnuafl flutt inn á með-
an Islendingar fá bætur
- keyrsla boðin til og frá vinnustað en fólkið vilcli ekki vinnuna
Maður, sem var að vinna i um tiu metra
hæð viö fjölbýlishús á Skúlagötu, slasaðist
alvarlega er hann féll til jarðar á fimmtu-
dag. Húsið er á fjórum hæöum auk kjallar-
a og féll maðurinn niður þar sem hann var
að lagfæra glugga á efstu hæö hússins.
Pallurinn var þó engan veginn nægilega
tryggur. Maöurinn er um fimmtugt og ligg-
ur hann nú á Borgarspitalanum. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem DV fékk siödegis
i gær, leið honum vel miðað við aöstæð-
ur. Hann er þó alvarlega slasaður.
DV-mynd S
„Þegar fólk kemst upp með að
vera á atvinnuleysisskrá þá er ekki
nema von að svona lagað gerist.
Við leituðum til atvinnulausra á
Selfossi og buðum þeim vinnu hjá
okkur en án árangurs - þrátt fyrir
að fólkinu væri boðinn akstur,
hvort heldur það hefði unnið ailan
daginn ellegar fyrir eöa eftir há-
degi. Þarna er nú ekki um miklar
vegalengdir að ræða. í það minnsta
ekki lengra en þið þurfiö að feröast
á milli staða í Reykjavík," sagði
Hjörleifur Brynjólfsson hjá Bakka-
fiski á Eyrarbakka í samtah við
DV í gær.
Bakkafiskur þurfti í vetur að fá
10 stúlkur í vinnu við snyrtingu á
fiski. Töluvert atvinnuleysi er á
Selfossi, sem er í 13 kílómetra fjar-
lægð frá Eyrarbakka. Var því fólki
á atvinnuleysisbótum boðin \dnna
en hún var afþökkuö. Var þá gripið
til þess ráðs að fá 10 pólskar konur
í snyrtinguna og una þær hag sín-
um vel, að sögn Hjörleifs.
„Við erum ekki að flytja inn er-
lent vinnuafl að gamni okkar. Hins
vegar er það kjánalegt þegar ná-
grannabæirnir Selfoss og Eyrar-
bakki teljast ekki sama atvinnu-
svæðið. Mér vitanlega er enginn á
atvinnuleysisskrá á Eyrarbakka en
öðru máli gegnir á Selfossi. Þar er
fjöldi fólks á atvinnuleysisskrá sem
vill ekki vinnu. Hins vegar erum
við nú með nokkra Selfyssinga í
sumarvinnu hjá okkur - en það eru
aðallega unghngar," sagöi Hjörleif-
ur.
Sigurbjörg Karlsdóttir Schiöth
hjá Félagsmálastofnun Selfoss-
bæjar sagði við DV að 70 manns
væru nú á atvinnuleysisbótum á
Selfossi. Bæturnar nema um 40
þúsund krónum á mánuði. Útgjöld
til atvinnulausra þar nema því 2,8
milljónum króna á mánuði.
„Það er eins og við íslendingar
viljum alltaf halda okkur í vinnu í
túngarðinum hjá okkur. Með réttu
ætti eitt verkalýðsfélag að vera á
öllu svæðinu - það er fyrir Selfoss,
Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorláks-
höfn og Hveragerði," sagði Sigur-
björg, er hún var spurð um hina
atvinnulausu Selfyssinga sem ekki
vildu vinnu hjá Bakkafiski á Eyr-
arbakka.
-ÓTT