Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990.
„Þessar kosningar sýna aö Alþýöu-
flokkurinn er mjög sterkur og stöð-
ugur. Hann vann gífurlegan sigur í
bæjarstjórnarkosningum 1986 og á
landsvísu má segja að hann vinni
vamarsigur og sé flokkur á bilinu
14-16% eftir því hvernig á sameigin-
leg framboð er litið. Ég held að Al-
þýðuflokkurinn hafi sannað að hann
byggir ekki á lausafylgi eða tíma-
bundnu fylgi sem dali fljótt aftur. í
Reykjaneskjördæmi, þar sem flokk-
urinn hefur farið með stjórn mála,
svo sem í Kópavogi, Hafnarfirði,
Keflavík og Njarðvík, er hann yfir-
leitt stærsti flokkur að undanskild-
um Kópavogi. Alþýðuflokkurinn er
mjög sterkur eftir þessar kosning-
ar,“ sagði Guðmundur Árni Stefáns-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði, er
hann var spurður hvort von væri á
breytingum í Alþýðuflokknum nú
eftir kosningamar. Deilt hefur verið
á sameiginleg framboð síðustu daga
svo sem Nýjan vettvang en Alþýðu-
flokkur missti borgarfulitrúa sinn í
Reykjavík eins og mönnum er kunn-
ugt um.
Guðmundur Ami Stefánsson, sem
er 35 ára gamall, hefur tvívegis unn-
ið kosningasigra í Hafnarfirði. Fyrst
árið 1986 og aftur á laugardaginn var
og jók þá fylgi sitt talsvert. Menn
hafa velt þessum unga Hafnfirðingi
fyrir sér sem væntanlegum foringja
í Alþýðuflokknum enda hefur bæjar-
stjórinn sínar skoðanir á landspólitík
ekki síður en bæjarmálefnum og hef-
ur látið þær skoðanir sínar í ljósi
opinberlega.
Félagshyggjufólk
undir einn hatt
„Menn þurfa fyrst og síðast að velta
fyrir sér ágæti þessara sameiginlegu
framboða og hvemig beri að lesa nið-
urstöður þeirra í kosningunum."
- Varst þú á móti Nýjum vettvangi
í fyrstu?
„Nei, ég var með því framboði. Þar
sem jarðvegurinn var þannig, t.d. í
Reykjavík, fannst mér full ástæða til
að gera þessa tilraun. Ég hef löngum
verið þeirrar skoðunar að það þyrfti
að leita leiða til að ná félagshyggju-
fólkinu undir einn hatt. En ég hef
sagt og segi að það er blindur maður
sem ekki sér að þetta gekk ekki upp.
Kosningabandaiög, sem urðu til á til-
tölulega stuttum tíma, þar sem safn-
að var saman fólki úr ólíkum jarð-
vegi, gerðu sig ekki. Þessar kosning-
ar sýna að fólk vill mjög skýra og
afdráttarlausa valkosti. Kosning-
abandalög em það ekki. Við alþýðu-
flokksmenn eigum að draga þann
lærdóm af kosningunum að nú sé
tími til að efla flokkinn sem slíkan
og gera hann að raunverulegum val-
- segir Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði
„Ef rétt er á spilum haldió er engin spurning um að frá vinstri kemur fjöldi
fólks til okkar,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði. Hann telur þó að ekki verði farnar fleiri ferðir á rauðu Ijósi.
kosti. Það eru allir möguleikar í
þeirri stöðu. Við sjáum að til vinstri
við Alþýðuflokkinn er Alþýöubanda-
lagið í andarslitrunum. Hvert eiga
þeir fjölmörgu jafnaðarmenn sem
þar em að fara annað en til okkar?
Alþýöuilokkurinn er skipulagslega
opinn flokkur. Ef rétt er á spilum
haldið er engin spurning um aö frá
vinstri kemur fjöldi fólks til okkar.
Ægivald Framsóknarflokksins til
sveita er hverfandi og fylgi hans fer
stöðugt minnkandi, ekki bara til
sveita heldur um allt land. Þessi
„nýju framboð“, t.d. Kvennahstinn,
sýnist mér á leið út úr pólitík. Mér
finnst forsenda fyrir að Alþýöuflokk-
urinn geti haslað sér völl sem mjög
öflugur, stór og sterkur sosíaldemó-
kratískur flokkur sem mótvægi við
Sjálfstæðisflokkinn. Nú eigum við að
sæta lagi og gera hann að þessum
raunverulega sterka valkosti eins og
við þekkjum hann annars staðar á
Norðurlöndunum. Ég hef alltaf undr-
ast og aldrei skilið þessa styrku stöðu
Sjálfstæðisflokksins hér á landi, sem
á hvergi sinn líka í heiminum, og
hitt að hér hafi ekki vaxið upp mjög
stór og öflugur sósíaldemókratískur
flokkur sem allir í hinum vestræna
heimi þekkja.
Fylgi til
Sjálfstæðisflokksins
Það er alveg sýnt aö í kosningunum
um síðustu helgi voru Alþýðuflokks-
menn í Reykjavík ekki með þessu
nýja framboði heldur fóru í ríkum
mæh yfir til Sjálfstæðisflokksins. Ég
er hins vegar alveg sannfærður um
að ef Alþýðuflokkurinn hefði verið
með sitt framboð hefði Bjarni P.
Magnússon og jafnvel fleiri farið inn
og flokkurinn fengið um 10% at-
kvæða. Nýr vettvangur var tilraun-
arinnar virði og prýðilegt fólk sem
að honum stóð. Hins vegar veröum
viö alþýðuflokksmenn að skoða
hvort árangurinn hafi verið eins og
til stóð. Helmingur af kjörfylginu fór
yfir á aðra flokka. Þegar mesti æsing-
urinn og taugatitringurinn í kjölfar
kosninganna fer að réna bind ég von-
ir við að frambjóðendur Nýs vett-
vangs komi til liðs við Alþýðuflokk-
inn.“
- Óhna Þorvarðardóttir var ekki
ánægð er hún heyrði það eftir þér
haft að hún ætti eftir að ganga til liðs
við Alþýðuflokkinn. Taldi þig engu
ráða um þau mál.
„Ég er ekki að ákvarða eitt eða
neitt fyrir Alþýðuflokkinn. Formað-
ur flokksins ákveður heldur ekki
neitt upp á eigin spýtur. Ég hef alltaf
talið að Ólína væri lýðræðisjafnaðar-
maður og hún ætti að vita að aðrir
sem starfa í pólitík eiga rétt á að
hafa skoðanir. Ég vonast eftir góðu
samstarfi við Ólínu og annað gott
fólk í Nýjum vettvangi. En ég mun
hafa,mínar skoðanir áfram hvort
sem ég er bæjarstjóri í Hafnarfirði
eða eitthvað annað.“
- Áttu von á að breytingar veröi á
forystu flokksins á flokksþingi í
haust?
„Það er ekkert fyrirséð í þeim efn-
um frekar en fyrri daginn. Eg sé ekk-
ert borðliggjandi nema ef forysta
flokksins tekur einhveijar þær
ákvarðanir sem eru óskynsamlegar
og mönnum ekki að skapi.“
- Kemur ekki upp óánægja vegna
borgarstjórnarkosninganna í
Reykjavík?
„Ég held varla að óánægja geti ver-
ið með þetta framboð og hef ekki
heyrt nokkurn flokksmann skamma
formann flokksins eða aðra þá sem
hvöttu til að þetta yrði reynt. Hins
vegar kem ég til með að skammast,
og vafalaust einhverjir aðrir, ef
menn ætla ekkert að læra af þessum
niðurstöðum. Og ef þeir ætla að
halda áfram tilraunum í þessa átt
þegar aðeins er eitt ár í þingkosning-
ar og fólkið í landinu vill skýrar og
hreinar línur kallar það auðvitað á
sterk viðbrögð.“
Ekki fleiri
ferðir á rauðu ljósi
- Nú hafa Ólafur Ragnar og Jón
Baldvin reynt með sér samvinnu.
Telur þú að framhald verði þar á?
„Þeir reyndu samvinnu. í mínum
huga hggur ljóst fyrir að fleiri feröir
á rauðu ljósi verða ekki famar. Ég
geng út frá því sem vísu að formaður
flokksins, eins og aðrir flokksmenn,
dragi réttar ályktanir af niðurstöð-
um kosninganna."
- Áttu von á að Ólafur Ragnar eigi
eftir aö ganga til hös við Alþýðu-
flokkinn?
„Ég vil ekki spá um það. Ólafur
Ragnar hefur veriö á ferðinni milh
flokka og á Alþýðuflokkinn eftir. Það
gæti margt ólíklegra gerst. Ég er al-
veg sannfærður um að fjölmargir
alþýðubandalagsmenn, sem í hjarta
sínu auðvitað eru jafnaðarmenn,
vilja gjaman, þegar réttar aðstæður
eru til staðar, koma til hðs við okkur
alþýðuflokksmenn. Það gerist bara
ekki í einum grænum hvelli. Fólk
vill vera sínum flokki trútt svo lengi
sem kostur er en ég veit engu að síö-
ur að það eru stórir hópar alþýðu-
bandalagsmanna sem hvorki vilja
vera í óskilgreindum erfiðum flokki
Ólafs Ragnars, þar sem allt logar í
ihdeilum, og þaðan af síöur í htlum
einangruðum þjóðræknisflokki Sva-
vars Gestssonar sem er ekki í takt
við nútímann. Ég sé út af fyrir sig
ekki hvar alþýðubandalagsmenn
ætla að flnna hinn gullna meðalveg
í þessum efnum. Mér sýnist ljóst að
Alþýðubandalagið er aö heyja sitt
dauðastríð og það verður með einum
eða öðram hætti, uppgjör eða klofn-
ingur. Þá spyr ég mig einfaldlega og
svara: Það fólk sem þarna finnur
ekki fótfestu og á málefnalega sam-
leiö með Alþýðuflokki hlýtur að
koma til liðs við okkur.“
Þrírflokkar
í framtíðinni
- Þér er spáð gengi í landsmálapóht-
ík á næstu ámm. Sérðu fyrir þér
miklar breytingar?
„Ég sé ekki þær breytingar sem
margir spá að verði. Að ein ahsherjar
uppstokkun verði á íslensku flokka-
kerfi og þessir svokölluðu fjórflokkar
hverfi af sjónarsviðinu og ný fram-
boð taki við. Ég held þvert á móti að
þessar bæjarstjórnarkosningar hafi
undirstrikað að þrír flokkanna haldi
sinni stöðu. Ég sé hins vegar aðra
gerjun, sem ég lýsti hér áðan, og það
er stór og öflugur jafnaðarmanna-
flokkur sem Alþýðuflokkurinn er,
Framsókn verði htih miðjuflokkur
og Sjálfstæðisflokkurinn verði hinn
raunverulegi hægri flokkur sem
hann gefur sig stundum út fyrir að
vera. Sjálfstæðisflokkurinn er ein-
kennileg blanda þar sem frelsi ein-
takhngs og frelsi í viðskiptum eru
efst á blaði en á móti er hann einnig
kerflsflokkur hinn versti sem styður
einokun í viðskiptum og óbreytt
ástand í landbúnaðarmálum og út-
flutningsmálum. Þar eru margir
flokkar í einum. Hvað shkur flokkur,
sem stendur fyrir svo ólík hugtök,
lifir lengi óbreyttur skal ég ekkert
um segja. En þar hlýtur gerjun að
eiga sér stað mjög fljótlega. Eftir ekk-
ert langan tíma verða tvö meginöfl í
íslenskri pólitík."
Dæmdir af verkum
- Þið Davíð eruð oft nefndir í sömu
andránni, báðir í svipuðum stöðum
og tilvonandi frambjóðendur í lands-
pólitíkinni. Verðið þið báðir á þingi
að ári?
„Ég hef ekki leitt hugann að því. Á
laugardag var ég kosinn bæjarstjóri
í Hafnarfirði og þakka þann stuðn-
ing. Hins vegar hef ég alltaf haft
áhuga á landsmálum og það kemur
að því að ég gef mig að þeim í ríkari
mæli. Þar sem við Davíð erum nefnd-
ir flnnst mér það eftirtektarvert, og
ég er stoltur af því, að við emm
dæmdir af þeim verkum sem við
höfum unnið í póhtík, ekki einungis
af hugmyndum, tah og ræðuhöldum.
Við getum sýnt fram á að við höfum
náð árangri í pólitÍK. Mér finnst tími
til kominn að menn hefjist til áhrifa
í íslenskri póhtík sökum verka sinna
en ekki vegna þess að þeir séu létttal-