Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Síða 25
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990.
33
„Þar sem við Davíð erum nefndir finnst mér það eftirtektarvert, og ég er stoltur af því, að við erum dæmdir af þeim verkum sem við höfum unnið í pólitik, ekki einungis af hugmyndum, tali
og ræðuhöldum," segir alþýðuflokksmaðurinn Guðmundur Árni sem menn telja að verði kominn í landsmálapólitíkina áður en langt um líður. DV-myndir Brynjar Gauti
andi í sjónvarpi eöa á fundum. Aö
ööru leyti geri ég ekki langtímaplön
í stjómmálum. Ef svo skipast mál aö
flokkurinn sækist eftir mér í trúnað-
arstöður á landsmálasviðinu kem ég
til með að vega það og meta. Ég hef
ekki sóst eftir völdum og til að mynda
varð ég óvænt bæjarstjóri við kosn-
ingamar 1986. Ég tek því sem að
höndum ber eftir því sem aðstæður
kalla á.“
Pólitísk ábyrgð
- Þúvarstbæjarfulltrúiíminnihluta
frá 1982-86. Áttu skýringu á sigri
flokksins fyrir fjórum árum sem nú
hefur verið endurtekinn?
„Fyrir kosningar 1986 fundum við
meðbyr en áttum ekki von á svo
miklum sigri. Við fómm úr 20% fylgi
í 35% og úr tveimur mönnum í fimm.
Eftír gaumgæfilega athugun í okkar
flokki tókum við þá ákvörðun sem
ég tel að hafi verið rétt. Að axla hina
póhtísku ábyrgð á verkum fram-
kvæmdastjóra bæjarfélagsins og að
einn úr okkar hópi tæki að sér það
starf. Það lá í augum uppi að það
yrði oddviti flokksins og eftír íhugun
tók ég starfið að mér. Það var hár-
rétt ákvörðun fyrir flokkinn í Hafn-
arfirði og raunar fyrir sjálfan mig
líka. Ég hef haft gaman af þessu
starfi og vonandi gert gagn.“
- Hafði þá ekki verið póhtískm- bæj-
arstjóri áður?
„Ekki um 24 ára skeið. Síðasti póht-
íski bæjarstjórinn á undan mér var
raunar faðir minn sem var hér frá
’54-’62 en þá misstí Alþýðuflokkur-
inn aftur meirihlutaaðstöðu í bæjar-
stjórninni."
- Telurðu betra að bæjarstjórinn sé
póUtískur?
„Ég er ekki í nokkmm vafa um að
það er betra. Um leið bera þeir flokk-.
ar sem eru í meirihluta og bæjar-
stjórinn póUtíska og embættislega
ábyrgð. Þegar kemur að kosningum
getum við lagt verk okkar á borð
fyrir kjósendur. Það er mjög mikil-
vægt að fólk fái það sem það kýs.
Mig langar að nefna að við hafnfirsk-
ir kratar höfum ekki kaUað til frægar
sjónvarpsstjömur, poppara eða veð-
urfræðinga tU aö draga að. Ailir sex
bæjarfuUtrúar kratanna, sem voru
kosnir sl. laugardag, eru úr rót ungra
jafnaöarmanna og kvennahreyfingar
flokksins í bænum og hafa vaxið upp
með flokknum. Það finnst mér
merkUegt. Nú rennur upp tímabil
þar sem fólk lætur ekki bjóða sér að
frambjóðendur séu tíndir eins og
epU af tijánum og þeim snaggað í
framboðsfótin í einu vetfangi."
Spenntum bogann
hátt
- Á undanfórnum árum hafa orðið
miklar framkvæmdir í Hafnarfirði
en jafnframt kostnaðarsamar. Er
bærinn ekki skuldum vafmn eftir
síðasta kjörtímabil?
„Við þurftum að koma Hafnarfirði
á landakortíð með skýrum Uætti. Það
þurfti að breyta andrúmslofti í bæn-
um því hér ríktu stöðnunareinkenni,
doði og framkvæmdaleysi. Ég trúi
aö við höfum náð að lyfta Hafnar-
fjarðarbæ talsvert upp í hugum
landsmanna. Við ýttum fjölmörgum
framfaramálum úr höfn og höfum
gert stóráták á nánast öllum sviðum
bæjarlífsins. Auðvitað hefur þetta
reynt á þolrifin og í fjármálum höfum
við spennt bogann hátt en aUs ekki
þó þannig að hættumerki séu á ferð-
inni. Á þessu ári erum við að safna
kröftum fyrir næsta átak. Mín skoð-
un er sú að ráöast eigi í verkefni um
leið og ákvörðun hefur verið tekin,
hvíla sig og helja síðan nýja fram-
farasókn. Hafnfirðingum fjölgaði á
síðasta kjörtímabUi um fimmtán
hundruð manns sem er álíka mikið
og Hveragerði eða Egilsstaðir telja.
Fjölgun hefur verið hér langt um-
fram landsmeðaltal."
Viljum álverið
- Hafnarfjörður hefur veriö í
sviðsljósinu undanfarið bæði vegna
álvers og sorpböggunarstöðvar.
Hvað líður þeim máluni?
„Álmáhð er í fullum gangi og við
gefum ekkert eftir í þeirri baráttu
sem um álverið stendur. Við teljum
aö það sé sýnt að staðsetning nýs
álvers sé heppilegust í Straumsvík.
Hér er ódýrast að reisa álverið,
vinnuaflið er til staðar og minnst
hættaáfélagslegriröskun.Þaðvegur '
einnig þungt aö við þekkjum hvernig
það er að búa í nálægð við stóriöju
af þessum toga. Ég trúi að skynsemin
eigi eftir að ráða. Hitt er ekkert laun-
ungarmál að álverið myndi virka
eins og vítamínsprauta hér á alla
uppbyggingu og hraða henni enn
frekar. Við erum í viðræðum við
hina erlendu aðila og mér skUst að
endanleg niðurstaða fáist um mitt
sumar.
Menn virðast fara af taugum þegar
rætt er um sorpböggunarstöðina.
Hún hefur flækst úr Kópavogi í Árbæ
og þar fór allt upp í loft. Við bentum
á að við ættum hér svæði til slíkrar
starfsemi og gætum auk þess urðað
sorpið í Krísuvíkinni. Niðurstaðan
varð önnur og farið með þetta á hinn
endann, Kjalarnes og Grafarvog. Ég
held að því máli sé lokið og þar verði
þetta reist og menn verða að taka
afleiðingum þeirrar ákvörðunar."
Sameiginlegur strætó
- Er mikið samstarf milli sveitar-
stjórna á höfuðborgarsvæðinu?
„Formlegt samstarf er aðallega á
tveimur sviðum. Það er vegna sorps-
ins og síðan á að hefjast samstarf
árið 1992 um almenningssamgöngur.
Þær hafa verið daprar í Hafnarfirði
og það er búið að skrifa undir samn-
ing þess efnis að sveitarfélögin, að
undanskihnni Reykjavík, hefji sam-
eiginlegan rekstur strætísvagna. Ég
vonast til að það lagfæri mjög ástand-
ið í þeim málum í Hafnarfirði.
Það gætír ákveðinnar íhaldssemi
að mínu áhti í sveitarfélögunum
varðandi bæjamörk. Allir þekkja
deiluna milli Kópavogs og Reykja-
víkur um Vatnsendalandið. Hafn-
firðingar hafa oft og einatt bent
Garbæingum á að það hggi betur fyr-
ir okkur að byggja út að Álftanesinu.
Við erum komin að bæjarmörkum
vestan megin í bænum, þar tekur
Garðabær við og síðan Álftanes-
hreppur. Garðbæingar hafa ekki vilj-
að láta okkur eftir þetta land og mér
þykir sveitarfélögin dálítið stif, stirð
og þver. Viö náðum ágætu samstarfi
við Garðbæinga um Setbergssvæðið.
Hluti iðnaðarsvæðis ofan Keflavík-
urvegar er í Garðabæ, hversu kúnst-
ugt sem það er, og fyrirtæki þar njóta
allrar þjónustu í Hafnarfirði þótt þau
séu skráð í Garðabæ. Þar sem mal-
bikinu sleppir á Kaplakrikasvæðinu
og malarvegir taka við eru menn
komnir í Garðabæ."
Alinn upp í pólitík
- Hvað er langt síöan þú hófst af-
skiptí af pólitík?
„Ég hef verið á kafi í stjórnmálum
síðan ég var smástrákur. Ég ólst upp
í póhtík þar sem faðir minn var á
kafi í henni. Við bræðurnir höfum
alhr verið í stjórnmálum og systír
mín, Snjólaug, reyndar líka. Hún fór
til liðs við Kvennaframboöið í
Reykjavík í upphafi þess en er núna
flutt í Hafnarfjörð og komin heim í
tvenns konar merkingu þess orðs.
Bræður mínir, Finnur Torfi og
Gunnlaugur, sátu á þingi 1978-79 og
eru rammpólitískir en hafa þó minni
afskipti en þeir höfðu. Gunnlaugur
er prestur í Heydölum en Finnur
Torfi, sem er lærður lögfræöingur,
hefur verið við nám í tónsmíðum í
Bandaríkjunum um nokkurra ára
skeið og er framtíðar músíkant.
Yngstí bróðir minn, Ásgeir, sem er
nýstúdent, er að fá pólitísku bakter-
íuna líka. Móðir mín er sennilega
mestí stjórnmálamaðurinn af okkur
öllum því hún er mikill kosninga-
smali. Það er fræg sagan af henni
þegar hún kom inn í sjoppu í próf-
kjöri og spurði eigandann hvort
hann vagri búinn að kjósa. Þegar
hann sagðist ekki komast frá bauðst
hún til að afgreiða meðan hann færi
og það gerði hún,“ segir Guðmundur
Ámi.
Lífssýnin breyttist
Hann er kvæntur Jónu Dóru Karls-
dóttur og eiga þau þrjú börn, 9 ára
dóttur og 6 og 4ra ára syni. Guð-
mundur Árni og Jóna Dóra urðu fyr-
ir því áfalli fyrir nokkrum ámm að
missa tvo unga syni sína. „Maður
verður auðvitað aldrei samur eftir
slíkt og lifssýnin breytist. Ég held að
fjölskylda mín hafi lært að lifa með
þessari nöpru og köldu staðreynd.
Auðvitað trúði maður því ekki fyrst
á eftir aö það tækist nokkurn tíma
en okkur hefur tekist að lifa við stað-
reyndir lífsins. Á margan hátt hefur
þetta hjálpaö mér og ég nota oft á
mig: Fyrst ég gat lifað og starfað þrátt
fyrir þetta áfall eru þau vandamál
sem eru að koma upp í hinu daglega
lífi frá einum degi tíl annars smá og
lítil samanborið við það. Maður verð-
ur umburðarlyndari gagnvart fólki
og kannski ekki eins dómharður í
garð náungans og oft áður. Einnig les
ég blöðin á annan hátt en áður. Mað-
ur skynjar og skilur langtum betur
hvað er á bak við litlar fréttir um
slys eða óhöpp og þá miklu sorg sem
býr að baki,“ segir Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarstjóri.
- Að lokum. Hvenær verður þú ráð-
herra?
„Framtíðin mun skera úr um það.“
-ELA