Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Síða 26
'34
I.AUGARDAGUR í ÍÚkl’ 1990.
Knattspyman er
eins og lífið sj álft
Bo Johansson: „Takmarkiö er að
sjálfsögðu að vera alitaf númer eitf.“
íslenska landsliðið í knattspyrnu
bar sigurorð af Albönum í landsleik
í Evrópukeppninni á miðvikudags-
kvöldið. Þjálfari liðsins er Svíinn Bo
Johansson sem þykir ekki eiga margt
sameiginlegt með forvera sínum,
Sigfried Held. Bo er margreyndur
þjálfari og gamalreyndur knatt-
spyrnumaður.
Hann lék með sænska liðinu Kalm-
ar FF sem nú leikur í 1. deild í Sví-
þjóð. Bo þótti fjölhæfur leikmaður
og gat spUað nánast allar stöður á
vellinum. Með Kalmar FF lék hann
390 leiki og skoraði 135 mörk. Eftir
að knattspyrnuskórnir voru komnir
á hilluna sneri hann sér að þjálfun
og hefur nú tæpa tvo áratugi að baki
í því starfi. Meðal þeirra liöa sem Bo
hefur stjórnað eru Kalmar FF og
Öster en með síðartalda félaginu lék
Teitur Þórðarson um árabU.
Áður en hingað kom var hann í
Grikklandi við stjórnvölinn hjá 1.
deUdar liðinu Panionios en lét þar
af störfum í lok nóvember á síðasta
ári. Helgarblað DV hitti Bo að máli
í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal og
hann var fyrst spurður um móttök-
urnar hér á landi.
„Það er erfitt að segja. íslendingar
og Svíar eru um margt líkir. Báðar
•þjóðimar em frekar lokaðar en í
knattspymunni er maður fljótur að
eignast vini og þar hafa allir veriö
vingjarnlegir og hjálpsamir. Sam-
skipti við forráðamenn knattspymu-
sambandsins og félaganna hafa líka
verið mjög góð. Ég kom hingað einn
en dóttir mín varð eftir í Svíþjóð þar
sem hún er í skóla.
Við verðum að viðurkenna að gæði
deildarkeppninnar hérlendis eru
nokliru minni en annars staöar á
Norðurlöndum. T.d. í Svíþjóð og Nor-
egi. Hér eru e.t.v. nokkur lið sem
gætu att kappi við önnur lið á Norð-
urlöndunum. Staðreyndin er sú að
keppnistímabilið hér er aðeins fjórir
mánuðir en t.d. sjö mánuðir í Dan-
mörku. Af þessum ástæðum er tölu-
verður munur á þjóðunum."
Langaðiað
breyta til
„Ég vissi ekki mikið um íslenska
knattspymu áður en ég kom hingað
en þekkti ágætlega til nokkurra ein-
stakra knattspyrnumanna. í Svíþjóð
hafa nokkrir íslendingar spilað og
þeir gáfu ýmislegt til kynna. Ég
þekkti ekkert sérstaklega vel til
deildarkeppninnar hér eða liöanna
sem slíkra. Ég sá reyndar bæði ÍBK
og ÍA spila í Evrópukeppnum úti í
Syíþjóð.
Ég haíði verið í fullu starfi sem
þjálfari hjá félagsliði frá árinu 1977
og langaði því að breyta til og kynn-
ast annarri hlið á starfinu. Núna hef
ég ekki mitt eigið lið sem slíkt og
ekki er æft á hverjum degi. Ekki er
spilað um hveija helgi o.s.frv. Að
vera landsliðsþjálfari snýst um ýmsa
aðra hluti og það verður áhugavert
að kynnast þeim.
Ein leiðin til að ná árangri er aö
lengja keppnistímabilið en af veður-
farsástæöum er slíkt ekki inni í
myndinni á íslandi. Fyrir nokkmm
* árum var keppnistímabilið í Svíþjóð
jafniangt og hér en þar er nú farið
að leika jafnvel í janúar eða febrúar.
Leikmennimir þar spila árið um
kring og ekkert frí er gefið. Sömu
sögu er að segja af Dönum og Norð-
mönnum. í Svíþjóð var brugöið á það
ráð að spila innanhúss og þaö er ein
leiðin til að lengja keppnistímabilið
hér.“
„Knattspyrnan er eins og lífið
sjálft. Stundum gengur vel og stund-
um illa. Þess vegna finnst mér knatt-
spyrnan skemmtilegt starf.
Það er ekki svo mikil spurning um
kröfur með landsliðið. Áhorfendur
hugsa oft með hjartanu. Þeim líkar
vel við strákana í liöinu og vilja aö
þeim gangi vel. Ef hlutirnir ganga
illa verða áhorfendur vonsviknir en
það er bara eðlilegt. Ég held því að
oft sé ekki um pressu frá áhorfendum
aö ræða, frekar vonir þeirra eða
óskir um góöan árangur. í Grikk-
landi var stanslaus pressa en maður
lærir aö lifa með því. Álagið er hluti
af knattspyrnunni og stendur því
ekki í veginum. Ég held að flestir
þjálfarar vilji hafa ákveðna pressu.
Maður vinnur betur undir álagi og
ég tel nauðsynlegt að það sé til stað-
ar,“ sagði Bo Johansson.
-GRS
segir Bo Johansson landsliðsþjálfari
Álagið erhluti af
knattspyrnunni
Framtíóin
virðist björt
„Þjálfarar hérlendis hafa unniö
ágætt starf því boltameðferö og
knatttækni íslenskra leikmanna er
með ágætum. Líkaftilegt ástand leik-
manna virðist einnig vera ágætt og
hugarfarið virðist vera rétt. Sönnun-
in fyrir því aö íslenskir leikmenn séu
á réttri leið hlýtur að vera sú stað-
reynd að margir leikmenn eru nú
atvinnumenn erlendis. Sé tekið mið
af höíðatölu er hlutfallið ansi hátt.
Framtíðin virðist mjög björt og það
er mikið af efnilegum leikmönnum
um tvítugt og þaðan af yngri. Þaö
hefur greinilega verið unnið gott
unglingastarf. Leikmenn fá einnig
tækifæri í meistaraflokki nokkuð
snemma og þaö er af hinu góða. Þrátt
fyrir þetta þarf alltaf að hugsa um
hvaö sé hægt að bæta.
Takmarkið er aö vinna hvern leik.
Það hlýtur að vera svar allra þjálf-
ara. Það þýðir ekkert að vera að
hugsa um leikina á næsta ári. Næst
þarf að huga að leiknum við Frakka
í byrjun september. í knattspyrnu
er enginn raunveruleiki, hlutirnir
bara gerast. Það er aldrei hægt að
vita fyrirfram hvað skeður. Ef svo
væri myndu allir hafa tólf rétta um
hverja helgi. Það þarf líka heppni.
Ég veit aldrei hvort hlutirnir ganga
vel eða illa. Þegar tvö liö mætast
halda bæði að þau geti unnið enda
ættu Uð að halda sig utan vallar ef
þessi trú væri ekki til staðar.
Styrkur okkar er, eins og ávallt,
baráttan í liðinu og góður andi innan
þess. Leikmennirnir hjálpa hvor öðr-
um mikið og spila hver fyrir annan.
Þeir þekkjast vel og viðurkenna að
þeir eru ekki bestu knattspyrnu-
menn heims en þeir leggja sig aUan
fram og reyna ávallt sitt besta. Þeir
eru á engan hátt ofdekraöir og eiga
auðvelt nieð að aðlagast aðstæðum
hverju sinni.
Hvað varðar tæknilegu hliðina er
um töluverðar framfarir að ræða og
hún er ekki vandamál hjá okkur.
Albanir voru t.a.m. nokkuð tekniskir
en það dugði ekki til enda þarf margt
annað að spila inn í.“
Félögin vinna
undirstöðuatrióin
„Það hefur ekki verið um nein
vandamál að ræða í tengslum við það
að lið okkar er skipað áhuga- og at-
vinnumönnum. Strákamir hafa allif'
staðiö sig vel og veriö staðráðnir í
að gera sitt besta.
Við höfum haft ágætan tíma til
undirbúnings fyrir leiki. Jafnvel of
mikinn tíma fyrir síðasta leik. Við
æfðum tvisvar á laugardag, einu
sinni á mánudag, tvisvar á þriðjudag
og ein stutt æfing var leikdaginn. Það
verður að teljast ágætur tími til und-
irbúnings. Á þessu tímabili er aöeins
hægt aö fara yfir ákveðin atriði.
Hvað varöar líkamlegt ástand leik-
manna er þaö félaganna að sjá um
þá hliö málsins. Lítið meira væri
hægt að gera þótt meiri tími væri til
stefnu því aö félögin sjálf vinna aö
undirstöðuatriðunum og í þeim efn-
um hafa þau staðið sig vel. Það er
útilokað fyrir mig að bæta tækni eða
þrek leikmanna á fáeinum dögum.
Minn tími fer í að skipuleggja leikað-
ferð og ákveða leikskipulag.
Við leikum of fáa leiki. Það á við
bæði um landsliðið og félagsliðin
hérlendis. Við reynum að spila fleiri
leiki en það er oft erfitt að koma því
við. Fram að leiknum við Albani lék-
um við þrjá leiki. Einn gegn Lúxem-
borg og tvo í Ameríkuforinni. Ég er
búinn að vera hér of stutt til að sjá
hvernig landsliðsmálin þróast. Þó er
það alveg ljóst að leikmenn hér
heima veröa ekki í toppformi fyrr en
í september. Núna er þeirra versti
tími. Þeir hafa aðeins spilað tvær
umferðir í deildinni og vellirnir eru
ekki orðnir nógu góðir. Atvinnu-
mennirnir hafa hins vegar lokið
sinni deildarkeppni og sumir þeirra
hafa ekki spilaö í þijár vikur. Áð því
leytinu til var leikdagurinn gegn Al-
baníu óheppilegur. Við verðum ör-
ugglega betri í september."
Mióla sjálfsaga
til leikmanna
„Takmarkiö er að sjálfsögðu að
vera alltaf númer eitt. Það er ekki til
neitt annað takmark. T.d. í riðla-
keppninni er aðeins eitt lið sem
kemst í úrslit. Það væri bjánaskapur
að stefna að þriðja sætinu í riðlinum,
slíkt væri rangur hugsunarháttur.
Það á alltaf að stefna á fyrsta sætið
jafnvel þótt trúna vanti. Við verðum
aö trúa því að viö getum oröið efstir
og þess vegna er best að taka bara
fyrir einn leik í einu.
Ég verð hérlendis í allt sumar til
að fylgjast með íslandsmótinu en fer
reyndar til Ítalíu á heimsmeistara-
keppnina á vegum sænska knatt-
spyrnusambandsins. Það mál var
frágengið áöur en ég skrifaði undir
við KSI. Hlutverk mitt þar verður að
taka saman ýmsar upplýsingar og
DV-myndir Eiríkur Jónsson
gera skýrslu sem verður notuð í Sví-
þjóð og jafnvel á íslandi líka.
Þegar maður er starfandi þjálfari
er nánast ekkert annað sem kemst
að. Knattspyrnan situr algerlega í
fyrirrúmi. Keppnistímabilið er að
vísu í nokkra mánuði en þegar það
stendur ekki yfir ver ég tíma mínum
mikið við lestur. Eitt af mínum
áhugamálum er heimspeki og ég les
mikið um það efni. Ég sæki jafnvel
fyrirlestra hjá ýmsum mönnum enda
fléttast íþróttir mikið inn í þetta efn-
i. Þetta kennir mér sjálfsaga sem ég
reyni að miðla til leikmanna."
Bo Johansson t.h. ásamt Asgeiri Sigurvinssyni, fyrrum leikmanni landsliðsins.