Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Síða 30
38
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990.
Lífsstfll
Legoland:
Ein milljón gesta í sumar
Legoland var opnað árið 1968 og
hefur verið í stöðugri þróun síöan. í
sumar er búist viö að 1 milljón gesta
heimsæki staðinn.
Það er bara til eitt Legoland í öllum
heiminum og það er í Danmörku.
I staðinn fyrir að þurfa að líta upp
fyrir sig til að horfa á sögufrægar
byggingar, þarf að líta til jarðar í
Legolandi.
Margir hafa farið fram á að fá aö
byggja eftirlíkingar af þessum stór-
kostlega garði en leyfi hefur hingaö
til ekki fengist og ólíklegt er að svo
verði í náinni framtíö því í könnun
sem gerð var síðastliðið sumar kom
í ljós að 59 prósent allra þeirra sem
heimsóttu Legoland komu eingöngu
til Danmerkur til að skoða garðinn.
Kubbaborg
í Legolandi er allt byggt úr lego-
kubbum, og hafa tugir milljóna
kubba verið notaöar í þessar litlu
byggingar sem eru byggðar í hlut-
föllunum 1:20.
Þar er að finna þekktar byggingar
frá öllum heimshomum og minnis-
merki, jafnvel eftirlíkingar af heilum
borgarhverfum.
Börnin sem heimsækja Legoland
verða agndofa yfir öllum ósköpun-
um, og þeir sem fullorðnir eru óska
þess að þeir væru aftur orönir börn.
Þama eru lestir á ferð, umferðar-
ljós sem blikka, skip á siglingu, bílar
á keyrslu, flugvellir og flugvélar og
ýmislegt fleira.
í garðinum er 30 metra hár útsýnis-
tum og úr honum er gott útsýni yfir
Veðrið í útlöndum
HITASTIG í GRÁÐUM
-10 oða laogra * Ottl-S 1 tll 5 ! - 11 tll 15 1611120 2011125
Byggl á veöurlróttum Veöurstotu Islands kl. 12 á hádegi, töstudag
garðinn, en sökum þess hversu litlar
byggingarnar em fmnst fólki það
mun hærra uppi.
Annar möguleiki til að fá góða yfir-
sýn yfir garðinn er aö taka hring
með Legolestinni og halda að því
loknu í gönguferð um garðinn.
3000 bílastæði
í Legolandi hefur verið komið upp
aðstööu fyrir þá sem koma með nesti
með sér, en auk þess eru starfræktir
nokkrir veitinga- og skyndibitastaðir
í garðinum.
Þaö eru 3000 ókeypis bílastæði fyrir
Ferðir
þá sem koma á einkabílum, en að-
gangurinn kostar 40 krónur danskar
eða rétt tæpéir 400 krónur íslenskar,
börn greiða helming þess gjalds.
Bók með kortum og upplýsingum
um garðinn kostar 20 krónur dansk-
ar eða rétt tæpar 200 krónur íslensk-
ar.
Kort með átta miðum í leiktæki í
garðinum kostar 48 krónur eða tæp-
ar 460 krónur en stakur miði kostar
7 krónur danskar eða 66,50 krónur
íslenskar.
í áðumefndri könnun frá í fyrra
sumar var einnig spurt hversu mikl-
um peningum fólk eyddi í heimsókn
sinni í garðinn. Kom þá í ljós að
meðaleyðsla hjóna með tvö böm var
á milli 600 og 700 krónur danskar eða
5.700-6.700 krónur íslenskar og var
þá gert ráð fyrir að hjónin borðuðu
á veitingastöðum í garðinum. Þeir
sem komu með nesti með sér eyddu
helmingi minna.
-J.Mar
Mikill fjöldi ýmissa leiktækja er í Legolandi.