Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Side 31
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990.
DV
39
LífsstOl
Ferðafélagið Útivist efnir til mikllar gönguferðar um miðjan júní.
Útivist:
Frá Þingvöllum
um Hlöðuvelli
í Brúarárskörð
Um miðjan júní næstkomandi
hyggst ferðafélagið Útivist efna til
gönguferðar með viðleguútbúnað
frá Þingvöllum, austur Eyfirðinga-
veg aö Hlöðufelli og þaðan niður
Brúarárskörð og að Brekku í Bisk-
upstungum, þangað sem hópurinn
veröur sóttur í rútu.
Austur að
Hoffmannaflöt
Að kveldi 15. júní verður ekið
með hópinn austur að Hofmanna-
flöt þar sem tjaldað verður fyrstu
nóttina. Morguninn eftir er lagt
upp gangandi, fyrst norðaustur en
síðan sveigt nær beint í austur.
Land þama er þýft og miklar mosa-
þembur og víða seinfært en gamla
þjóðleiðin er greinileg og auðveld-
ast er að fylgja henni. í upphafi
ferðar gengið með Lágafell á vinstri
hönd. Suður yfir hraunbreiðuna
sér til Hrafnabjarga og á hægri
hönd til Tindaskaga. Framundan
er svo Skjaldbreiður sem nefnd
hefur verið fegursta fjall á íslandi.
Jarðvegur er gljúpur á þessum
slóðum og engir lækir. Því er gott
að hafa með sér vatn til göngunnar
fyrsta daginn en vatnsból er nálægt
Kerinu þar sem gist verður aðra
nóttina.
Önnur dagleiðin er stutt og öllu
léttari en sú fyrsta og liggur sunn-
an við Skjaldbreið. Skriðan heitir
fjallið á hægri hönd, snarbrött og
ísköld þarna norðan í móti. Síðan
er krækt fyrir Skriðuhnúk og inn
á Hlöðuvelli.
Hlöðufell
er framundan
Hlöðufell er framundan, hár mó-
bergsstapi sem minnnir um margt
á Herðubreið en er þó mun minni.
Upplagt er fyrir ferðalanga að
ganga á Hlöðuvelli ef skyggni er
gott. Þaðan geta menn virt fyrir sér
leiðina og helstu kennileiti. í vestri
er Skjaldbreiður, þá Tindaskagi,
Skriðan, Skriðutindar, Miðfells-
fiaU, Rauðafell, Brúarárskörð,
Högnhöfði, Hellisskarð, í fjarska
Bjamarfell, Kálfstindar, Lamba-
hraun, Jarlhettur og loks Langjök-
ull sem trónir í norðri.
Á Hlöðuvöllum er vatnsból
steinsnar frá sæluhúsinu en í
þurrkum síðsumars þomar það
upp.
Áþriðjadegi
Brúará á upptök sín að hluta til
í Rótarsandi. Þriðja daginn er geng-
ið með þessum upptakakvíslum
árinnar yfir Rótarsand í suður og
niður Brúarárskörðin en þau hefur
árin grafið, hugsanlega í stórleys-
ingum vegna edlgoss undir jökh.
I Brúarárskörðum er fagurt um
að htast og auðvelt að gleyma sér
á leiðinni niður. Fyrripart sumars
steypist áin hér niður í myndarleg-
um fossum en verður þó heldur til-
komuminni þegar líða fer á sumar-
ið. Út úr klettunum spretta lækir
og hndir sem sameinast ánni og
Rauðafeh og Högnhöfði mynda
svipmikinn ramma um Skörðin.
Er þessumáfanga hefur verið náð
breytir gönguleiðin mjög um svip.
Að baki er kaldranaleg fegurð
auðnarinnar en við tekur kjarri-
vafið land. Kjörið er að tjalda á
sléttum flötum neðan við Skörðin
síðustu nóttina. Síðasta daginn er
gengið niður með ánni gegnum
Brekkuskóg, þar sem ýmis stéttafé-
lög eiga sumarhús, og til móts við
rútubílinn.
Hótel Hekla á Spáni
Hostal Hekla er htið vinalegt hótel
í eigu íslendings, Magnúsar Krist-
jánssonar í ferðamannabænum
Tossa de Mar á Costa Brava strönd
Spánar.
Magnús hefur búið þarna í yfir 30
ár og því kunnugur á þessum slóð-
um.
Hótelið gæti verið heppilegur án-
ingastaður fyrir íslendinga sem ferð-
ast í bíl á eigin vegum. Þegar ekið
er eftir hraðbrautinni til Barcelona
er beygt útaf nokkru fyrir sunnan
borgina Girona og stefna tekin á
Lloret de Mar. Síðan er ekið sem leiö
hggur í gegnum Lloret og til Tossa
sem er um 11 km. leið. Þegar ekið
er inn í bæinn má sjá auglýsinga-
spjöld sem vísa veginn upp að hótel-
inu, en þar er um þröngar götur að
fara og erfitt fyrir stóra bíla. Hótelið
stendur á einum fallegasta stað í
bænum með útsýni yfir ströndina.
Aðal ferðamannatíminn er frá 15.
Hekla er lítið vinalegt hótel.
júlí th 15. ágúst, en þá er erfitt að fá
gistingu nema hafa bókað hana með
góðum fyrirvara. Á öðrum tímum
eru yfirleitt laus herbergi þó að
stundum fyhist um helgar. Hafa má
samband við Magnús í síma (3472)
340248. Heimilisfangið er:
Hostal Hekla
c/Mirador del Codolar, 10
17320 Tossa de Mar-Girona
(Costa Brava) Spain
-J.Mar
Hostal Hekla er í eigu íslendingsins Magnúsar Kristjánssonar
Akureyrarblað
f if
Miðuikudaginn 13. júní nk. mun Akureyrarblað fylgja
DV í tiunda sinn.
Efhi Akureyrarblaðs DV verður fjölbreytt að uanda og ,,púls-
inn" tekinn á mannlífinu i bænum. Fjölmörg uiðtöl uerða í
blaðinu, m.a. uið Sigurð Thorarensen, framkuæmdastjóra
Sjallans, skíðakappana tiauk Jóhannsson og Tómas Leifs-
son og rætt uerður uið nýja menn i bæjarstjórn Akureyrar.
Farið uerður í heimsókn á uinnustaði og rætt uið fólk á förn-
um uegi, suo eitthuað sé nefnt af efni blaðsins.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði, uinsamlega hafi samband uið auglýsingadeild
DV hið fyrsta í síma 27022.
Athugið að skilafrestur auglýsinga er fyrir
fimmtudaginn 7.júní.
auglýsingar
Þverholti 11, simi 27022