Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1990, Síða 17
ÍSIENSKA AUGLÝSINGASTOFAN HF.
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 1990.
17
2. des. kl. 20.35 - MEÐ SÓL í HJARTA. Fram
koma Stjórnin, Síðan skein sól, Sléttuúlfarnir,
Langi Seli og Skuggarnir, Possibillies, Laddi,
Rúnar Þór og Hjördís Geirsdóttir.
8. des. kl. 20.00 — LENNON. Nærri tveggja
klukkustunda þáttur gerður í minningu um
John Lennon sem féll fyrir hendi morðingja
þennan dag fyrir tíu árum. Útvarpað samtímis
í steríó á Bylgjunni.
24. des. kl. 11.00 - JÓLAGLEÐI. íslenskt
jólaævintýri þar sem nokkrir krakkar velta fyrir
sér spurningunni unt hvort jólasveinar séu til.
1. jan. kl. 20:15 - FISKURINN WANDA.
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna og ætti
enginn að láta fram hjá sér fara. Aðalhlutverk:
John Cleese, Jantie Lee Curtis og Kevin Kline.
9., 10. og 11. des. - GLASABÖRN. Einstæð
framhaldsmynd í þremur þáttum um ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar tæknifrjóvgunar og þess að
hjón verða að leita aðstoðar annarrar konu til að
ganga með barnið.
25. des. klv 21.00 - ÁFANGAR. Sérstakur
jólaþáttur um dómkirkjuna á Hólum í Hjaltadal,
elstu steinkirkju á íslandi. Handrit og umsjón:
Björn G. Björnsson.
25. des. kl. 22.25 - REGNMAÐURINN.
Margrómuð Óskarsverðlaunamynd með Dustin
Hoffman og Tom Cruise í aðalhlutverkum.
26. des. kl. 18.05 - SAGAN AF GULLA GRÍS.
Falleg og einstaklega vel gerð ævintýramynd,
byggð á samnefndri sögu Beatrix Potter og
frumsýnd samdægurs hér heima og á Englandi.
26. des. kl. 13.50 - SKRÝTIN JÓLASAGA.
Frábær gamanmynd um ungan sjónvarpsstjóra
sem fmnst lítið til jólanna koma. Þrír draugar
reyna að telja hann á aðra skoðun.
26. des. kl. 19.45 - JÓL í PARÍS. Geraldine
Chaplin kynnir stórskemmtilegan þátt um
frönsk jól að hætti Parísarbúa þar sem tónlistin
er í fyrirrúmi undir stjórn Lorin Maazel.
29. des. kl. 23.40 - í LJÓSUM LOGUM.
(Mississippi Burning). Víðkunn bandarísk
kvikmynd um válega atburði í skugga kynþátta-
haturs ogofbeldis. Aðahlutverk: William Dafoe
og Gene Hackman.
26. des. kl. 15.30 - PAVAROTTI. Tónleikar
Pavarotxis í Mílanó í maí í tilefni af heimsmeist-
arakeppninni í fótbolta.
— af fúsum og fjálsum vilja