Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991.
Sviðsljós
Skjaldbökuæðið og bömin:
Þær vinsælu
verða enn vinsælli
Skjaldbökumar Donatello, Rapha-
el, Leonardo og Michaelangelo, sem
viö sögöum frá í síðasta helgarblaöi
og öll böm dásama, viröast síöur en
svo vera að missa vinsældir sínar.
Skjaldbökurnar fjórar em til í mörg-
um útgáfum og börnin telja þær sína
bestu vini. Þaö kom berlega í ljós í
vikunni þegar íslensk börn ætluðu
niöur í holræsin til aö heimsækja
vini sína. Þaö sama gerðist í New
York fyrst eftir aö æðiö byrjaði. Ekki
þarf aö taka fram aö þetta er stór-
hættulegur leikur enda finnast
skjaldbökumar hvorki í holræsum
Reykjavíkur né New York borgar.
Og nú er komin önnur bíómynd um
skjaldbökumar. Kannski eru ekki
allir sem átta sig á þessu „Turtles"
æöi bamanna og því birtum við hér
nokkrar myndir sem sýna vel hversu
margháttað skjaldbökuæðið er.
„Min eftiriætisskjaldbaka er Rapha-
el vegna þess að hann er svo likur
mér,“ segir þessi gallharða snót þar
sem hún mundar sverðið ekki ósvip-
að og átrunaðargoðið. „Raphael er
hetjan mín.“
„Min uppáhaldsskjaldbaka er Donatello. Hann á flott vopn og er með
svarta beltið I karate eins og ég,“ segir þessi drengur. Og hans Donatello
er engin smásmíði.
„Raphael er bestur vegna þess að
honum finnst rautt fallegasti liturinn
eins og mér,“ segir hann þessi sem
hefur safnað öllum helstu vinum og
óvinum skjaldbaknanna.
Þessi unga stúlka, sem klæðist
skjaldbökubol, hefur stórt arm-
bandsúr með skjaldbökum á vegg í
herbergi sinu auk annarra turtles-
muna, heldur á vini sínum, Michae-
langelo.
„Donatello er bestur. Hann fær svo stórkostleg-
ar hugmyndir. Mér likar vel við allar skjaldbök-
urnar en Donatello er samt bestur," segir þessi
stutta sem heldur á uppáhaldinu sínu.
Elísabet Taylor:
Fann ástina undir sólinni í Mexíkó
„Ég er yfir mig ástfanginn af Elísa-
betu,“ segir Tony Rullan, 39 ára
mexíkóskur elskhugi leikkonunar
frægu, Elísabetar Taylor. Þau El-
ísabet hafa verið saman í nokkra
mánuði en farið mjög leynt meö
sambandið, enda er Tony tuttugu
árum yngri en leikkonan. Þegar
þau sáust saman opinberlega fyrir
stuttu voru ljósmyndarar ekki
seinir á sér að mynda parið og þar
með var sambandið ekki lengur
neitt leyndarmál. Hins vegar var
vel tekið eftir hversu vel leikkonan
lítur út um þessar mundir. Ljós-
myndir sýndu að Elísabet er bæði
grönn og falleg en hún hefur átt
það til að fitna og missa vald á út-
liti sínu.
Nýi unnustinn er margmilljóneri,
eigandi þekkts diskóteks í Acap-
ulco í Mexíkó, þar sem hann býr.
Sagt er að Elísabet hafi hug á að
flytja til hans í Mexíkó og kaupa
hús við hliðina á hans sem hún er
reyndar með á leigu núna.
Tony hefur viðurkennt samband
sitt við Elísabetu, enda segist hann
vera aö deyja úr ást. Vinir leikkon-
unnar segja aö hún sé ekki minna
skotin í þeim mexíkóska. Því er þó
ekki að leyna að Elísabet hefur
verið með öðrum manni, Larry
Fortensky, og herma sögur að hann
hafi ekki veriö mjög kátur er hann
heyrði um ástarsamband Elísabet-
£t______________________
Þessi mynd var lekin fyrir stuttu af Liz Taylor og nýja kærastanum, diskó-
tekeigandanum Tony Rullan, sem er tuttugu árum yngri.
ar og diskóeigandans.
Þegar Elísabet dvelur í Mexíkó
sendir Tony henni fjólubláar rósir
á hverjum degi en það er einmitt
eftirlætislitur hennar. Alveg eins
og Onassis gerði á sínum tíma er
hann sendi Jacqueline blóm setur
Tony lítinn pakka í blómvöndinn.
Það hafa verið eyrnarlokkar, næla
eða aðrir skartgripir.
Tony er heimsmaður. Eins og
Elísabet hefur hann mikinn áhuga
á hvers konar list. Hann hefur ferð-
ast um allan heim og lifir í vellyst-
ingum eins og kóngur.
Diskótekiö hans Tonys er einnig
heimsfrægt, enda á vinsælum
ferðamannastað, sérstaklega hjá
fræga fólkinu. Frank Sinatra, Liza
Minelli og Sylvester Stallone hafa
komið þangað og keypt sér kampa-
vínsflösku á 15 þúsund krónur án
Á þessari mynd er Liz með Larry
Fortensky sem hún kynntist á
Betty-Ford meðferðarstofnuninni
þar sem þau bæði dvöldu vegna
áfengissýki. Það kom öllum á óvart
þegar Liz sást með Tony og ekki
sist Larry.
þess að blikna.
Tony hefur helst vakiö á sér at-
hygli með frægar fyrirsætur sér við
hlið en nú er það Elísabet sem á
hug hans allan. Þetta allt hefur
orðiö til þess að Elísabet vill helst
selja húsið sitt í Hollywood og
kaupa húsið sem hún leigir í Acap-
ulco. Húsið heitir Casa Cleopatra
og þegar Liz heyrði það sagði hún:
„Þar vil ég búa“.
Þetta fallega hús, sem stendur
hátt með útsýni yfir sjóinn, er til
sölu á litlar 300 milljónir króna.
Húsið er með tíu svefnherbergjum
og jafnmörgum baðherbergjum.
Sundlaug er bæði innan og utan-
húss, tennisvellir og nuddpottar. Á
þaki hússins eru nokkrir píramíd-
ar þar sem eigendur geta fengið
andlega afslöppun.
Elísabet Taylor hefur reyndar
alltaf verið hrifin af Mexíkó. Hún
bjó lengi í Puerto Vallarta með Ric-
hard Burton. Frá þeim staö á hún
sárar minningar og aldrei fer hún
þangað aftur, segja góðir vinir.
En nú þegar stutt er í að leikkon-
an verði sextug virðist hún vera
búin að finna ástina á nýjan leik á
uppáhaldsstað sínum. Flestir eru
sammála um að sjaldan hafi hún
litið betur út. Hvort níunda hjóna-
band leikkonunnar sé í deiglunni
þorir þó enginn að spá í. Tony og
Liz búa ekki saman og virðast ekki
hafa gert slíkar áætlanir þótt sumir
segi að hann vilji það. En leikkonan
virðist hafa fundið ástina undir
sólinni í Mexíkó. Ástin gerir hana
unga, fallega og hamingjusama.