Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Síða 60
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sirni 27022
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991.
Vinnuslys á
Kjalarnesi
Vinnuslys varð á Brautarholti á
Kjalarnesi í gær er tvær stúlkur um
tvítugt féllu niður af þaki. Stúlkurn-
ar voru við málningarvinnu og virð-
ist sem þeim hafi skrikað fótur í
blautri málningu með þeim afleið-
ingum að þær féllu niður af þakinu
og var fallið fimm metrar. Þær komu
niður á malarplan.
Stúlkurnar voru fluttar á Slysa-
deild og voru þær töluvert slasaðar.
Meðal annars var talið að þær væru
báðar fótbrotnar. -J.Mar
Mikil umferð
áSuður-
landsvegi
Mikil umferð var síðdegis í gær á
Suðurlandsvegi, að sögn lögreglu.
Löggæslumenn bjuggust við að
umferð þyngdist verulega í dag og á
morgun, eða eins og einn löggæslu-
maðurinn orðaði það:
„Það verður snarvitlaust að gera
hjá okkur um helgina. Það virðist
sem hálf þjóðin sé á leið í útilegu eða
• í sumarbústaði." -J.Mar
DV kemur næst út þriðjudaginn 18.
júní.
Smáauglýsingadeild blaðsins verð-
ur opiri um helgina sem hér segir:
í dag, laugardag, til kl. 14.00,
sunnudag frá kl. 18.00-22.00.
Lokað verður mánudaginn 17. júní.
ÞRDSTIJR
68-50-60
VANIR MENN
Ólafur B. Thors um borgarstjóraembættið:
___■-_________
Myndi nugsa mig um
efeftiryrðileitað
„Það hefur ertginn farið þess á arstjóri en ef eftir yröi leitað myndi
leit við mig að ég taki að mér borg- maður hugsa sig um,“ segir Ólafur
arstjóraembættið né orðað það við B. Thors, forstjóri Sjóvár-
mig. Ég var í borgarstjórn Reykja- Almennra.
víkur í tólf ár og minn starfsvett- Ólafur segir að sér þyki eðlilegast
vangur núna er ailt annar. Hefði að borgarfulitrúar Sjálfstæðis-
ég hugsaö mér frekari frama í borg- fíokksins velji einn úr sínum röö-
arsljóm hefði ég sjálfsagt haldið um í embættið. Hann útilokar þó
áfram á sinum tima. Ég hef því ekki þann möguleika að aðstæður
ekkiléðþvíhugsunaðgerastborg- kalli á undantekningu frá þessari
reglu. að verði út fyrir borgarstjórnar-
„Ef einhverjar þær aðstæður flokkinn við val á borgarstjóra.
koma upp að þetta fyrirkomulag Öðruvisi verði ekki hægt að koma
gangi ekki þá er náttúrlega alveg í veg fyrir frekari ágreining milli
ljóst að menn verða aö leita að borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
borgarstjóraefni út fyrir hópinn,“ ins. í því sambandi hafa menn
segir hann. einkum nefnt nafn Ólafs B. Thors.
Samkvæmt heimildum DV er nú Hann segist ekki hafa verið beittur
-kaa
mikið um það rætt meðal forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins að leit-
þrýstingi vegna þessa.
Það var fríður krakkahopur sem fór í skrúðgöngu í gær og heimsótti vist-
heimili aldraðra við Seljahlið þar sem börnin tóku lagið fyrir vistmenn.
Þetta voru börn af dagvistarheimilunum Jöklaborg við Jöklasel. Seljakoti
við Rangársel og Seljaborg við Tungusel, Hálsakoti og Hálsaborg við
Hálsasel sem héldu sérstaka hátíð í tilefni þjóðhátíðardags á mánudag.
Auk þess að fara i skrúðgöngu var útivistarsvæðið skreytt og síðdegis var
haldin heljarmikil grillveisla. DV-mynd GVA
Ríkisendurskoðun:
Þurf um erlend
lán vegna halla
ríkissjóðs
- innlendlándugaekkilengurtil
Ríkisendurskoðun segir nú að ekki
séu horfur á að lánsfjárþörf ríkis-
sjóðs verði svarað að fullu innan-
lands, eins og yfirlýst var við gerð
fjárlaga fyrir þetta ár. í íjárlagafrum-
varpi hafði því verið lýst sem einu
af markmiðum fjárlaga að lánsfjár-
þörf ríkissjóðs yrði að fullu fjár-
mögnuð innanlands. En nú stefnir
sem sé í erlendar lántökur.
Ríkisendurskoðun segir í skýrslu,
sem kom fram í gær, að þau mark-
mið, sem að var stefnt í fjárlögum
fyrir árið 1991, virðist ekki ætla að
nást og sé þá samt tekið tillit til þeirra
aðgerða sem nýja ríkisstjórnin
kynnti nú fyrir mánaðamótin.
Rekstrarhalli ríkissjóðs stefni í að
verða sem svarar 2 til 2,5 prósent af
brúttó-framleiðslunni í landinu í stað
1,1 prósent sem hafi verið áformað í
fjárlögum. Hrein lánsfiárþörf ríkis-
sjóðs er nú áætluð 2,2 til 3 prósent
af landsframleiðslurmi en í fiárlögum
var hún áætluð 1,6 prósent.
Hlutur ríkisins af kökunni hefur
einnig verið að vaxa frá þvi sem fiár-
lög gerðu ráð fyrir. Útgjöld A-hluta
ríkissjóðs sem hlutfall af landsfram-
leiðslunni er nú áætluð á bilinu 30
prósent til 31 prósent í stað 29,1 pró-
sents sem ráðgert var við afgreiðslu
fiárlaga fyrir árið 1991.
Ríkisendurskoðun gerir í skýrsl-
unni upp dæmið fyrstu fióra mánuði
þessa árs. Það voru einkum lánsfiár-
lögin fyrir kosningarnar sem settu
hlutina úr öllum skorðum. Fyrir
kosningar mætti ríkissjóður mikilli
fiárþörf sinni að stærstum hluta með
yfirdrætti hjá Seðlabankanum.
Heildarskuldir A-hluta ríkissjóðs við
Seðlabankann námu í lok apríl 10,3
milljörðum króna og höfðu aukist frá
ársbyrjun um 8,9 milljarða króna.
-HH
LOKI
Til hverserlend lán,
geta ekki allir fengið lán
í Landsbankanum?
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Rigningarleg þjóðhátíð suðvestanlands
en bjartari fyrir norðan
Á sunnudag lítur út fyrir hæga breytilega átt og þurrt veður um allt land. Víða verður léttskýjað, þó síst á Norðausturlandi. Áfram verður hlýjast
á Suöur- og Suðausturlandi með allt að 16 stiga hita. Á mánudag, þjóðhátíðardaginn, fer að þykkna upp suðvestanlands með suðlægri átt og trúlega fer
að rigna undir kvöld. Á Norðausturlandi léttir til og hlýnar og áfram verður hlýtt og bjart á Suðausturlandi. Hiti verður mestur um 14 stig.