Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991. Tívolí OPIÐ ALLAR HELGAR í OKTÓBER og NÓVEMBER Hjá okkur er alltaf gott veður. Góð fjölskylduskemmtun. Til okkar er styttra en þú heldur. Tívolí, Hveragerði L LANDSVIRKJUN Landsvirkjun auglýsir til sölu og brott- flutnings vöruskemmu við Blönduvirkjun Stærð: Lengd 30 metrar Breidd 13 metrar Vegghæð 8 metrar Kaupandi skal fjarlægja skemmuna á sinn kostnað eigi síðar en 15. desember nk. Nánari upplýsingar veitir byggingardeild Landsvirkj- unar, Reykjavík. Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, innkaupa- deildar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 19. nóvember nk. MARKAÐSTORG MEÐ NOTAÐAR OG NÝJAR VÖRUR OPNUM LAUGARDAGINN 16. NÓVEMBER Enn eru nokkur pláss laus lyrir: a) húsmóðurina til að losa dótið úr skápum og geymslum og selja b) fyrirtækjaeigandann að losna við lager og fjölga útsölustöðum c) og félagið þitt að selja og afla fjár d) opnunartilboð: fataslá, borð og pláss aðeins 1.500,- kr. Í Undralandi verður mikið um að vera, gleði, grín og alls kyns uppákomur: töframaður, eldgleypir, klessubílar og margt, margt fleira. Opið frá kl. 11.00 til 18.00 á laugardögum og frá kl. 12.00 til 18.00 á sunnudögum. Upplýsingar i síma 651426 eða 74577 Undraland, Grensásvegi 14, Reykjavík —--------------------------—--------------------------------- Matgæðingur vikimnar DV „Bastarður af austurlensk- umættum" „Ég hef alltaf haft mjög gaman af að búa til mat. Þetta kemur í köstum og fer eftir því hvað maður hefur mikið að gera,“ segir Tómas Tómasson, bassaleikari og mat- gæðingur vikunnar. Reyndar var svo mikið að gera hjá Tómasi þessa vikuna að hann hafði varla tíma til að setjast niður og skrifa uppskrift. Það tókst þó að lokum en þá hafði hann verið í hljóðupptökuveri í heilan sólarhring viö vinnu. En uppskriftin kom og hljóðar svo: 500 g hakk (svína-, lamba- eöa nauta-) 4 laukar 2 paprikur 2-3 hvítlauksrif og annað tilfallandi grænmeti 2 bananar 'A stk. kókósmassi (fæst í Krydd- kofanum) 3 tsk. tómatkraftur svartur pipar 2 msk. milt Madraskarrí 1 tsk engiferduft kjötkraftur og salt eftir smekk olía til steikingar 'A lítri vatn Tómas Tómasson bassaleikari er matgæðingur vikunnar. Takið rúmgóðan pott og kraumiö grænmetið í oliunni. Ekki má hafa mikinn hita undir. Á meðan græn- metið kraumar er hakkið steikt á pönnu, helst í eigin fitu. Þegar það er vel steikt er því bætt út í kraum- andi grænmetið. Hálfum lítra af vatni bætt út í ásamt kókósmassan- um, tómatmaukinu, kryddinu og hvítlauknum. Að síöustu er kjöt- kraftur settur saman við og saltaö. Þetta er látið krauma í hálftíma. Þá eru bananar sneiddir og bætt út í. Hræra verður vel í á meðan rétturinn kraumar og fylgjast með honum. Með þessu eru síðan borin fram hrísgijón og ferskt salat. Tómas segir smekksatriði hvað mikið af kryddi fari í réttinn, það fari eftir smekk hvers og eins. „Þetta er bæði góður réttur og ódýr. Mjög gott er líka að hita hann upp daginn eftir ef einhver afgangur verður," segir hann. Rétturinn er miðaður við fjórar manneskjur. Tómas á sjálfur hugmyndina að þessum rétti en kallar hann þó hálfgerðan bastarö þvi að hann sé undir austurlenskum áhrifum. Tómas ætlar að skora á góðan kunningja sinn, Ásgeir Jónsson söngvara í Góðkunningjum lög- reglunnar, að verða næsti matgæð- ingur. „Hann er mjög góður kokk- ur,“ sagði Tómas Tómasson. -ELA Hinhliöin Mjólk uppá- haldsdrykkurinn - segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sýnir á sér hina hiiðina að þessu sinni. Hann segist hafa gert helsta áhugamál sitt, neytendamál, að lifibrauði í byxjun árs 1990. Hann hafði þá reyndar verið fórmaður Neytenda- samtakanna síðan 1984. Til Neytendasamtakanna kom Jóhannes frá Verðlagsstofnun þar sem hann starfaði í tíu ár eftir að hann hætti í mjólkurfræðinni 1980. Jóhannes er nefnilega gamall mjólkurfræðingur. Fullt nafn: Jóhannes Gunnarsson. Fæðingardagur og ár: 3. október 1949. Maki: Sigþrúður Sigurðardóttir. Börn: Sigrún, 21 árs, Erla, 19 ára, LOja, 19 ára, Gunnar, 14 ára, og Elín, 12 ára. Bifreið: Lada árgerð ’87. Starf: Formaður Neytendasamtak- anna. Laun: Ágæt. Áhugamál: Það eru neytendamál, ég lifl og hrærist í þeim. Auk þess hef ég gaman af lestri skáldsagna. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Þijár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að slappa af heima hjá mér. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að þrífa bílinn. Uppáhaldsmatur: Rjúpur. Uppáhaldsdrykkur: Mjólk, ég er gamall mjólkurfræðingur. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Það er erfitt að nefna einn umfram aöra því við Jóhannes Gunnarsson. eigum svo marga góða en mér finnst Ólafur Þórðarson, knatt- spymumaður í Lyn í Noregi, rosa- lega góður og mikill baráttujaxl. Uppáhaldstímarit: Þjóðlíf. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkonuna? Það eru svo margar fallegar konur til en ég nefni allar dætumar mín- ar, ég geri ekki upp á milli þeirra. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Það em ekki alhr hlutir góðir sem hún gerir. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Gorbatsjov, forseta Sovét- ríkjanna. Ég hef haft mikið áht á honum og þætti gaman að fá að ræða við hann. Uppáhaldsleikari: Dustin Hoff- mann. Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep. Uppáhaldssöngvari: Peter Gabriel. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn sérstakur. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Ég les ekki mikið teiknimyndasögur í dag en mér þótti áður gaman af Smáfólkinu. Uppáhaldssjónvarpsefni: Breskir gæðaspennuþættir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Ég hef aldrei verið hlynntur her. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Þær eru margar mjög góöar en ég hlusta mest á rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Stefán Jón Hafstein. Hvort horfir jiú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Eg horfi nokkurn veg- inn jafnt á stöðvamar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig- mundur Emir Rúnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn sérstakur, ég fer htið á skemmti- staöi. Uppáhaldsfélag í íþróttum? Fylkir, af því að sonur minn æfir í því. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Að standa mig í starfi og leik. Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég var eina viku í Munaðarnesi. Ann- ars var ég að uppgötva að ég á inni aht sumarfríið. -IBS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.