Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 9. NOVEMBER 1991. Dýrasta mynd Frakka, Les amants du Pont-Neuf: Kostnaðurinn fhnmfalt meiri en áætlanir gerðu ráð íyrir Nýjasta franska stórmyndin, Les amants du Pont-Neuf hefur aö und- aníomu verið umtalsefni París- arbúa, og þá aöalllegá vegna hins gifurlega kostnaðar viö myndina sem er dæmigerð epísk stórmynd um ástríður, ástir, svik, undirferli og hatur. Og þessi lýsing gæti einn- ig átt viö alla gerð kvikmyndarinn- ar. Það er enginn vafi að frumsýning Les amants du Pont-Neuf er mesti viðburðurinn í franskri kvik- myndagerð á þessu ári. Umgjörð myndarinnar er elsta brúin í París þar sem við fylgjumst með fólki sem þar lifir í vesöld en einnig um ást tveggja einstæðinga. Fyrir rúmu ári voru allir tilbúnir að spá því að þessi kvikmynd kæmi aldrei fyrir sjónir almennings, en leikstjórinn, Léos Carax, er þrjósk- ur maður og neitaði að gefast upp þrátt fyrir mýmörg vandamál sem flest tengdust geysistórri leikmynd er hann lét reisa á mýrum í Suður- Frakklandi. Þar enduroyggði hann elstu brú í París, bjó til ána Signu og umhverfið í kringum brúna. Þegar upp var staðið var kostnað- urinn'kominn í 28 milljónir dollara eða 1,6 milljarða íslenskra króna sem er fimmfaldur kostnaður mið- að við upprunalega kostnaðaráætl- un. Þessi upphæð'þykir ekkert svakaleg í Hollywood en í evr- ópskri kvikmyndagerð er þetta stjamfræðileg upphæð. Les amnats Pont-Neuf var síðan frumsýnd í París 16. október við sem var myndinni vinveittur, til að leggja 12 milljónir dollara í hana svo hægt væri að bjarga verkinu. Carax lauk svo myndinni gegn öll- um spádómum. Það er margt sem gerði þaö að verkum að kostnaðurinn við Les amants du Pont-Neuf hljóp upp úr öllu valdi. Fyrst og fremst var það kostnaöurinn vdð svdösetninguna í Suöur-Frakklandi, en þar sem það tók svo langan tíma að kvdkmynda urðu vond veður iðulega til að eyði- leggja hið stóra svdð og hin tilbúna Signa fór hvað eftir annað yfir bakka sína. Annaö sem hleypti upp kostnaðinum var atriðið sem gerist 1989 þegar haldið var upp á 200 hundruö ára afmæli frönsku bylt- ingarinnar, Til að það yrði sem trú- verðugast lét Carax endurtaka alla hina miklu flugeldasýningu og annað sem var til skemmtunar Paríasrbúum á þessum degi. Ytri aðstæður hjálpuðu til að hleypa kostnaðinum upp úr öllu valdi, en flestir eru samt á því að sökin sé aö mestu leyti hjá Carax. Þegar nánar er skoöað af hveiju Léos Carax lét kostnaðinn fara upp úr öllu valdi er ekki laust vdð að maður hugsi til Michael Cimeno og hvernig hann hagaði sér vdð gerð Heavens Gate. Eins óg kunngt er fór sú mynd heiftarlega fram úr kostnaðaráætlun og er hún nánast eingöngu þekkt fyrir hinn mikla kostnað. Til dæmis er ein lína í handriti Carax sem er á þennan veg: „Michelle fer á vatnaskíði á Signu, Alex keyrir bát með utan- borðsmótor." Þessi eina lína kost- aði 800.000 þúsund dollara (54 millj- ónir króna). Vegna séróska sinna og þeirra samstarfserfiðleika, sem Carax átti vdð tæknimenn sína, eru kvikmyndafræðingar í Frakklandi einmitt hræddir um að Les amants du Pont-Neuf veröi Heavens Gate Frakka. Leikararnir stóðu með Carax Carax kláraði myndina á þijósk- unni einni saman, en hann getur um leið og hann þakkar sjálfum sér þakkað aðalleikurunum það að myndin var kláruð, þau stóðu við hlið hans á hverju sem gekk. Denis Lavant hefur sagt að hann hefði ekki getað lifað við það að myndin yrði ekki kláruð. Það var þó Juli- ette Binoche sem fórnaði mestu til að geta klárað að leika í myndinni. Meðan á tökum stóð kom kvdk- mynd hins frábæra Philips Kauf- man, The Unbearable Lightness of Being, á markaðinn þar sem Binoc- he leikur eitt aðalhlutverkið. Varð hún samdægurs að stjörnu í hinum alþjóðlega kvdkmyndaheimi. Binoche neitaði þó öllum tilboðum, sem sum hver hefðu freistað allra leikkvenna, meöal annars aðal- hlutverk á móti Robert De Niro og að leika undir stjóm Eha Kazan. Binoche er samt ekki gleymd og er nú að leika aöalhlutverkið í endur- gerð á Wuthering Heights sem Franco Zeffirelli leikstýrir. í heild urðu gagnrýnendur í Frakklandi fyrir vonbrigðum með myndina. Flestir eru á því að mörg stórkostleg atriði séu til stáðar en þær vonir, sem bundnar voru við myndina, hafi brugðist. Þaö er sér- staklega handritið sjálft sem þeim finnst í þynnra lagi, en verst af öllu segja þeir að það sé ómögulega hægt að sjá að Binoche og Lavant séu ástfangin í myndinni. Léos Carax hefur lítið látið á sér bera eftir að myndin var fmmsýnd, hefur neitaö vdðtölum og aöeins sagt aö hann hafi gefið þrjú ár af lífi sínu í þessa kvdkmynd og hann sé mjög feginn að þessu sé lokiö. -HK Hér má sjá hina ^————— Kvikmyndir ur-Frakklandi sem hieypti Hilmar Karisson kostnaðinum --------------- upp. til að kvikmynda við hina 400 ára gömlu brú í þijár vdkur sumarið 1988, en af því varð aldrei vegna þess að átta dögum áður en tökur áttu að hefjast veiktist Lavant. Vegna þess stutta tíma, sem Carax hafði til að kvdkmynda vdð brúna, hafði hann gert ráðstafanir til að byggja lauslega eftirlíkingu í Suð- ur-Frakklandi þar sem næturatriði yrðu kvdkmynduð. Carax ákvað nú nánast að endurbyggja brúna svo einnig væri hægt að taka atriði þar sem gerast að degi til. Við þetta fór kostnaðurinn fyrst að fara úr bönd- unum, enda fór það svo að þegar búið var byggja brúna og umhverf- ið þá hefðu Hollywoodframleiðend- ur getað verið hreyknir af hinni vönduöu svdðsmynd. Peningarnir fljóttbúnir í desember 1988 var í fyrsta skipt- ið hætt að vdnna við myndina vegna fjárskorts. Þá hafði 10,5 milljónum dollara verið eytt og aðeins til 45 mínútur af kvdkmynd- aðri filmu. Svdssneskir kvdk- myndaframleiðendur hlupu í skarðið og lofuðu 3 milljónum doll- ara í vdðbót og haldiö var áfram sex mánuðum síöar. Sex vdkum síðar voru þessar þijár milljónir upp- umar og aftur stöðvaðist verkið og þá var fyrst farið að afskrifa mynd- ina fyrir fullt og allt. Carax gafst samt ekki upp. í ágúst 1990 fékk hann Lang menntamálaráðherra, misjafnar undirtektir gagnrýn- enda, en allt umtaliö um myndina hefur gert það að verkum að hún er vel sótt. Þrjú ár í framleiðslu Raunveruleg saga „elskendanna vdð Pont-Neuf‘ byrjar 1987. Carax var í miklum metum eftir að hafa gert tvær frekar ódýrar kvdkmynd- ir, Boy Meets Girl og Mauvais sang, sem báðar voru vel sóttar og gengu í augun á dómnefndum á ýmsum Aöalhlutverkin i Les amants du Pont-Neuf leika Dany Lavant og Juliette Binoche. kvdkmyndahátíðum. Hann var því fullur sjálfstrausts þegar hann hóf undirbúning þriðju kvikmyndar sinnar og var áætlaður kostnaður 6,25 milljónir dollara (375 milljónir íslenskar). Hann fékk Denis La- vant, sem hafði leikið aðalhlut- verkið í fyrri myndum hans, til að leika annaö aðalhlutverkið, Alex, útigangsmann sem bjó vdð Pont- Neuf. Juliette Binoche, sem hafði leikið á móti Lavant í Mauvais sang, samþykkti að leika hitt aðal- hlutverkið, Michéle sem á á hættu að verða blind vegna sjúkdóms. Yfirvöld í París gáfu Carax leyfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.