Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 32
44 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991. „Ég uppgötvaöi snemma'að ég gat komið fólki til að hlæja. Ég grínaðist heima hjá mér og þar voru áhorfend- umir mamma og Hermóður bróðir minn,“ segir Laddi eða Þórhallur Sig- urðsson, hinn landsfrægi skemmti- kraftur, í nýrri viðtalsbók eftir Þráin Bertelsson. Helgarblaðið hefur feng- ið leyfi til að birta úr bókinni og höf- um við valið tvo stutta kafla sem les- endur ættu að hafa gaman af. „Ég fíflaðist lika stöðugt í skólan- um. Þegar ég var tekinn upp var það aldrei ég sjálfur sem fór upp að töflu heldur einhver allt annar og ég skmmskældi mig og umlaði og allir skeflihlógu - nema kennarinn sem horfði í forundran og vorkunnsemi á þetta barn sem stóð þarna og geifl- aði sig með úfinn hárlubba og græna hormottu á efri vörinni. Sennilega er ég feiminn að upplagi, aUavega man ég ekki eftir að hafa nokkurn tímann verið laus við feimni." Kom frá fátæku heimili „Ég kom frá fátæku heimiU. Mamma, sem var þá orðin einstæð móðir, vann langan vinnudag í fiski og við bræðurnir gengum mestan part sjálfala, svo að þegar ég mætti í skólann var ég hvorki prúðbúinn né vatnsgreiddur. Við höfðum alltaf nóg að borða og áttum föt utan á okkur, en þau föt voru oft dáldið ósamstæð og stærðir ekki alltaf við okkar hæfi. Ég man eftir þvi að ein- hvern tímann var ég umkringdur krökkum sem höfðu tekið eftir því að nærbuxurnar mínar gægðust nið- ur undan skálmunum á stuttbuxun- um og voru að skemmta sér við að toga þær lengra niður. Eg þótti ekki par fríður. Ég var kallaður Apabróðir og það var ekki í virðingarskyni, eins og Tarsan.l Þetta var æpt á mig á götunni, og þegar Hemmi bróðir var með mér var hann spurður að því hvort hann ætlaði ekki að gefa mér banana." Eins og skrímsli „Við áttum heima í Hafnarfirði og þegar ég var að byrja í skóla var ég búinn að átta mig á því af fjölmörg- um ábendingum, að ég væri útlits eins og skrímsli og heimskur eftir þvi. Eins og gefur að skilja átti ég fáa vini, meira að segja Hemmi bróöir sem er rúmlega ári eldri en ég varð fyrir aðkasti ef ég sást í fylgd með honum. Hann var fríðleikspiltur og vinsæll og það kostaði hann þess vegna fórnir að vera á ferli með Apa- bróðurinn í eftirdragi. Ég lék mér mest einn. Stundum þó með öðrum strák, sem einhverra hluta vegna hafði engar áhyggjur af heimsku minni eða útlitsgöllum. Við lékum okkur mest þar sem nú er Norðurbærinn í Hafnarfirði. Ég átti heima í Vesturbænum, þá skiptist byggðin bara í Suðurbæ og Vest- urbæ. í hrauninu var okkar leiksvæði. Viö vorum athafnasamir og príluð- um út um allt. Við sáum kastala og riddaraborgir í hveijum kletti og sjálfir áttum við þarna stórkostlegt virki sem hét Krókótti kastalinn og þaöan ríktum við yfir víðlendu ríki.“ Bræðurnir Halli og Laddi voru vinsælustu skemmtikraftar landsins um árabil. Samstarf þeirra hófst þar sem þeir störfuðu saman hjá Sjónvarpinu. Skrópað í skólanum „Svo byijaði skólinn og Apabróðir- inn átti erfitt uppdráttar. „Með því að fiflast tókst mér að losna við stríðnina, en best var að fá að vera í friði, og þá var skrópað. Ég fór með töskuna að heiman og stakk henni ofan í gjótu. Svo tók frelsiö við. Enginn skipti sér af manni. Mamma var alltaf að vinna. Við lékum okkur saman í hraun- inu, vinur minn og ég, en stundum vildi ég vera einn, bæði til að sökkva mér niður í draumóra þar sem ég barðist við ósýnilega óvini og hafði betur og svo til þess að velta fyrir mér hlutskipti mínu. Stundum var ég aö því kominn að bugast af sjálfs- vorkunn. Afhveiju var ég svona heimskur, svona ljótur, svona asna- legur, svona rosalega feiminn? Apabróðirinn í Hafnarfirði, Skrímslið unga, heimskastur allra í bænum. Afhveiju einmitt ég? Við því kunni ég engin svör, en úr því ég var svona misheppnaður lá beint við að betra væri að gerast ein- hver annar og ég fór að herma eftir, bæði fólki sem ég sá og því sem ég hafði séð í bíó. Jerry Lewis var min mikla fyrir- mynd. Tímunum saman æfði ég mig að gera geiflur og glenna mig eins og hann. Chaphn var hka í uppá- haldi og Bakkabræöumir amerísku „Three Stooges". Ég stældi þá aha og bætti við uppátækjum frá sjálfum mér. Og það varð líft í skólanum þegar í ljós kom að Apabróðirinn gat breytt sér í Chaplin og Jerry Lewis. Með því að breyta mér gat ég losnaö við að vera ég sjálfur. Um stund.“ Myrkur yfir minningum „Þegar ég leita í huganum eftir minningum til að draga fram í dags- ljósið verð ég þess var að björtu minningarnar eru endingarbetri en þær dökku. En engu að síður á ég minningar sem myrkur grúfir yfir og hafa fylgt mér fram á þennan dag. Það er engin birta yfir óreglunni. í Hafnarfirði var talsverð óregla á heimilinu og oft gestkvæmt. Þetta spurðist út í þessu litla bæjar- félagi og varð auðvitað ekki til að styrkja stöðu okkar bræðranna. Mamma er góð kona, en það er ekki auðvelt hlutskipti að vera ein- stæð móðir, ekki í dag og þaðan af síður á þessum tíma. Hún vann mik- ið og lét okkur mestan part afskipta- lausa. Þess heldur kom það sér vel að eiga hlýtt skjól hjá ömmu og afa. Það er stundum sukksamt í mínum bransa. Ég komst ungur í tæri við óregluna, ólst upp við hana og hafði kannski meira sjálfsforræöi en ég var maður til að rísa undir. Óreglan hefur haft áhrif á líf mitt; það er ekki gott að segja til um hversu mikil þau áhrif eru, en hún hefur ekki náð að gleypa mig. En hún hefur tekið sinn toll. Fjölskyldan hefur liðið fyrir at- vinnu mína og það sem henni hefur tengst. Og hjónabandið mitt - sem núna er á enda.“ Óreglan eins og piparogsalt „Mikil vinna, streita, feröalög og tengslin við skemmtanalífið, allt er þetta slítandi fyrir hjónaband og íjöl- skyldulíf. Öregla og skemmtanir eiga samleið eins og pipar og salt. Að vísu er til fólk sem hefur unnið við svipaðar aðstæður og ég og haldið sig frá allri óreglu. Ég valdi ekki þá leiðina. Hitt er svo annað mál að ef líf mitt hefði verið jafnsukksamt og gróusög- ur herma, þá hefði ég látist í hárri elli fyrir mörgum árum. Ég held að ég geti ekki talist bitur eða beiskur, en ég verð samt að við- urkenna að mig hefur oft sviðiö und- an þeim sögum af sjálfum mér sem mér hafa borist til eyrna og enginn flugufótur er fyrir. Sérstaklega fannst mér ómaklegt þegar Rósa kon- an mín varð fyrir barðinu á þessum sögum sem öldungis vandalaust fólk fann hjá sér hvöt til að spinna upp um mig og koma á framfæri við hana. Það liggja ekki góðar hvatir að baki slúðursögum. Stundum gátum við þó hlegið að þessum sögum, sérstaklega ef Gróa á Leiti var búin að útlista í löngu máli framferöi mitt á tilteknum stað og stund á einhverju landshorni, þeg- ar við Rósa vissum bæði að ég var staddur heima hjá mér við einhverja siðsamlega iðju.“ Gróa á Leiti í heimsókn „En illt umtal, baknag, rógur, sög- urburður - allt þetta hefur komið illa við mig. Ég hef aldrei gert kröfu til þess að lífið væri samfelldur dans á rósum, en ég verð dapur þegar ég hugsa til þess að til skuli vera fólk sem lifir svo ófullnægjandi lífi að það grípur tfi þess ráðs að reyna að troða sér inn í líf annarra og skilja þar eft- ir sig spor. Umtal er að sjálfsögðu fylgifiskur frægðarinnar. Það skil ég vel. Sum- part þess vegna er ég að rifja upp söp mína. Ég veit að ég hef afsalað mér hluta af réttindum almennra borgara til einkalífs. En ég hef ekki afsalað mér öllum réttindum. Og gæti þaö ekki þótt ég vildi. En úr því að einkalíf þekktra aðila er að hluta til opinbert umræðuefni finnst mér rétt aö sannleikurinn fái að koma fram, eins og ég sé hann frá mínum bæjardyrum, og kann best aö greina frá honum. Ný bók iim Ladda eftir Þráin Bertelsson: „Heimskur, ljótur og kallaður apabróðir" - skemmtikrafturinn segir opinskátt frá lífi sínu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.