Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 54
66
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991.
Afmæli
Ásta Jónasdóttir
Ásta Jónasdóttir húsmóöir, Bólstað-
arhlíð 45, Reykjavík, er áttræð í dag.
Starfsferill
Ásta fæddist á Sauðárkróki og ólst
þar upp. Hún stundaði ýmis störf
utan heimihsins, einkum skrifstofu-
störf og vann hjá Skipaútgerð ríkis-
insífimmtánár.
Fjölskylda
Fyrri maður Ástu var Bjarni Páls-
son frá Hrísey, f. 27.7.1906, d. 1967,
vélstjóri og framkvæmdastjóri í
Reykjavík. Bjarni var sonur Páls
Bergssonar, útgerðarmanns í Ólafs-
flrði, og Svanhildar húsmóður Jör-
undsdóttur (Hákarla-Jörundar),
formanns og útgerðarmanns í Hrís-
ey, Jónssonar.
Seinni maður Ástu var Skúh Guð-
mundsson, f. 6.11.1902, d. 1987,
kennari í Reykjavík. Hann var son-
ur Guðmundar Þorleifssonar,
múrara í Reykjavík, og Guðrúnar
Filippusdóttur húsmóður.
Börn Ástu eru Svanhildur Bjarna-
dóttir, f. 8.2.1937, sölumaður hjá
Flugleiðum, og á hún fimm syni;
Jónas Bjarnason, f. 23.6.1938, efna-
verkfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins, kvæntur
Kristínu Hjartardóttur og eiga þau
einn son; Svavar Bjarnason, f. 26.7.
1946, tæknifræðingur hjá Pósti og
síma, kvæntur Brynju Halldórsdótt-
ur og eiga þau tvo syni og tvær
dætur.
Systkini Ástu: Rannveig Jónas-
dóttir, f. 18.10.1903, lengst af kenn-
ari við Austurbæjarskólann í
Reykjavík; Regína Margrét, f. 30.4.
1905, d. 31.8.1923; Guðbjörg, f. 7.5.
1908, gift Sigurði Birkis söngmála-
stjóra; Kristján, f. 12.5.1914, d. 27.7.
1947, læknir í Reykjavík, kvæntur
Önnu Pétursdóttur.
Fóstursystkini Ástu: Hansína Sig-
urðardóttir, var frá fæðingu hjá for-
eldrum hennar, gift Magnúsi Magn-
ússyni, fulltrúa í Reykjavík; Páll
Daníelsson, f. 1913, var frá sex ára
aldri hjá foreldrum hennar; Ingi-
björg H. Jónsdóttir, f. 1917, var frá
sex ára aldri hjá foreldrum hennar,
og Hansína Bjarnadóttir var í nokk-
ur ár hjá foreldrum hennar, ekkja
eftir Jón V. Bjarnason garðyrkju-
bónda.
Foreldrar Ástu voru Jónas Kristj-
ánsson, f. 20.9.1870, d. 3.4.1960,
læknir og alþingismaður á Sauöár-
króki, og kona hans, Hansína Bene-
diktsdóttir, f. 17.5.1874, d. 21.7.1948,
húsmóðir.
Ætt
Jónas var sonur Kristjáns, b. á
Snæringsstöðum í Svínadal, Kristj-
ánssonar „ríka“, b. í Stóradal, bróð-
ur Péturs, afa Þórðar Sveinssonar,
yfirlæknis á Kleppi. Kristján var
sonur Jóns, b. á Snæringsstöðum í
Svínadal, Jónssonar, b. á Bala-
skarði, Jónssonar „haröabónda", b.
í Mörk í Laxárdal, Jónssonar, ætt-
föður Harðabóndaættarinnar. Móð-
ir Jónasar var Steinunn, systir Jó-
hannesar Nordals, fóður Sigurðar
Nordals. Steinunn var dóttir Guð-
mundar, b. í Kirkjubæ í Norðurár-
dal, Ólafssonar, bróður Frímanns,
afa Valtýs Stefánssonar ritstjóra og
hálfbróður Páls, langafa Ólafs Ól-
afssonar landlæknis. Móðir Guð-
mundar var Sigríður, systir Vatn-
senda-Rósu. Bróðir Sigríðar var
Jón, langafl Þuríðar Pálsdóttur
óperusöngkonu. Sigríður var dóttir
Guðmundar, b. í Fornhaga, Rögn-
valdssonar og konu hans, Guðrún-
ar, hálfsystur Guðrúnar, langömmu
Guðrúnar, móður Friðriks Friðriks-
sonar æskulýðsleiðtoga. Guðrún
var dóttir Guðmundar, b. í Löngu-
hlíð, ívarssonar, bróður Björns,
langafa Stefáns, afa Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi. Björn var
einnig langafi Björns, föður Þór-
halls biskups, fóður Tryggva forsæt-
isráðherra.
Hansína var dóttir Benedikts,
prófasts á Grenjaðarstað, Kristjáns-
sonar, hálfbróður Kristjáns, b. á
Asta Jónasdóttir.
Snæringsstöðum. Móðir Hansínu
var Regína Magdalena Hansdóttir
Sívertsen, kaupmanns í Reykjavík,
Sigurðssonar Sívertsens, kaup-
manns í Reykjavík, Bjarnasonar Sí-
vertsens, kaupmanns í Hafnarfirði.
Móðir Hans var Guðrún Guð-
mundsdóttir, systir Helga Thorder-
sens biskups, afa Ragnheiðar
Melsted (Hafstein), ömmu Hannesar
Þ. Hafstein sendiherra. Móðir Hans-
ínu var Christiane Hansdóttir Linn-
ets, verslunarstjóra í Hafnarflrði,
og konu hans, Regine Seerup.
Frank Michelsen
Frank Michelsen, Engjaseli 13,
Reykjavík, verður fimmtugur á
morgun.
Starfsferill
Frank fæddist í Hveragerði og ólst
þar upp. Hann er garðyrkjumaður
að mennt og hefur lengst af unnið
við þau störf. Þá rak hann heild-
verslun í fimmtán ár en hefur nú
síðari árin verið sendibílstjóri.
Fjölskylda
Kona Franks er Sveinbjörg Stein-
þórsdóttir, f. 15.3.1945, húsmóðir en
hún er dóttir Steinþórs Eiríkssonar,
verkstjóra í Reykjavík, og konu
hans, Guðríðar Steindórsdóttur.
Böm Franks og Sveinbjargar eru
Steinþór Frank, f. 2.9.1965, bakari,
búsettur í Kópavogi, kvæntur Sig-
ríði Heiðu Ragnarsdóttur og eiga
þau einn son, Benedikt, f. 20.9.1990;
Arnar Páll, f. 7.4.1969, málari, bú-
settur í Kópavogi, kvæntur Guð-
rúnu Ólínu Ágústsdóttur og eiga
þau einn son, Ágúst Frank, f. 25.8.
1991; Emil Orri, f. 26.4.1973, málara-
nemi í foreldrahúsum.
Frank á tvo bræður.
Foreldrar Franks: Paul Michelsen
garðyrkjub. ogkonahans, Sigríður
Ragnarsdóttir Michelsen húsmóðir
sem er látin.
Ætt
Bróðir Paul er Ottó Michelsen,
forstjóri IBM. Paul er sonur Jörgen
Frank Michelsen, úrsmíðameistara
og kaupmanns á Sauðárkróki, sonar
Jens Michelsen múrarameistara og
konu hans, Karenar Michelsen.
Móðir Pauls var Guðrún Pálsdótt-
ir, b. á Draflastöðum í Eyjafirði,
Ólafssonar, b. á Gilsbakka, Benja-
mínssonar, og Maríu Jónasdóttur,
b. í Meðalheimi, Jónssonar.
Móðir Guðrúnar var Kristín
Frank Michelsen.
Gunnlaugsdóttir, b. á Draflastöðum,
Sigurðssonar, b. á Þormóðsstöðum,
Jónassonar.
Sigríöur var dóttir Ragnars,
birgðastjóra hjá Reykjavíkurborg
Guðmundssonar, og Petrínu, dóttur
Þórarins á Melnum í Reykjavík.
Frank verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Sigrún Ásgeirsdóttir
Sigrún Ásgeirsdóttir fóstra, Víði-
hvammi 14, Kópavogi, verður fertug
ámorgun.
Starfsferill
Sigrún er fædd á Hólmavík og ólst
þar upp. Hún tók barna- og ungl-
ingapróf frá Hólmavíkurskóla og
lagði síðar stund á nám í Hús-
mæðraskólanum að Laugalandi í
Eyjaflrðieinn vetur, 1968^69. Sigrún
hóf nám við Fóstruskóla íslands
1978 og útskrifaðist þaðan 1981.
Sigrún hefur meðal annars unnið
við fiskvinnslu, afgreiðslu og hótel-
störf en þó mest við uppeldisstörf.
Fjölskylda
Sigrún giftist 24.6.1973 Gunnari
Hólm Hjálmarssyni, f. 5.3.1950, iön-
fræðingi, en foreldrar hans voru
Hjálmar Hinrik Jóhannsson, f. 6.8.
1920, d. 28.5.1983, bóndi, og Jónina
Þrúður Hermannsdóttir, f. 13.3.
1919, d. 4.6.1990. Þau bjuggu í Hóls-
gerði í Eyjafirði og síðar á Akureyri.
Börn Sigrúnar og Gunnars: Agnes
Hólm, f. 26.10.1974, iðnnemi, unn-
usti Arnþór Hupfeldt Þorvaldsson;
Reynir Hólm, f. 31.5.1983; Róbert
Hólm, f. 23.9.1989.
Systkini Sigrúnar: Svava Hall-
dóra, f. 16.8.1949, sjúkraliði, maki
Smári Jónatansson vélfræðingur,
þau eiga einn son en Svava á þijú
börn frá fyrra hjónabandi; Ásgeir
Ragnar, f. 10.6.1953, sjómaður, hann
á einn son og einn stjúpson; Heið-
rún, f. 11.12.1958, húsmóðir, hún á
fjóra syni. Hálfsystir Sigrúnar, sam-
mæðra; Erla, f. 30.5.1943, húsmóðir,
maki Garðar Steinsson, þau eiga
þrjú börn.
Foreldrar Sigrúnar: Ásgeir Ólafur
Sigurðsson, f. 20.11.1915, fyrrv. skip-
stjóri og útgerðarmaður, og Rann-
veig Guðríður Halldórsdóttir, f. 30.8.
1921, d. 2.7.1973. Þau bjuggu á
Hólmavík en Ásgeir býr nú í Reykja-
vík.
Ætt
Foreldrar Ásgeirs voru Sigurður
Gísli Magnússon, b. í Vonarholti í
Tungusveit, og seinni kona hans,
Kristrún Jónsdóttir. Meðal fóður-
systkina Ásgeirs voru Jóhanna Sig-
ríður, móðir Guðjóns, b. í Arn-
kötludal, föður Guðmundar, skrift-
arkennara í Reykjavík. Önnur föð-
ursystir Ásgeirs var Guðbjörg, móð-
ir Guðrúnar Jóhönnu, móður lög-
regluþjónanna Kristins og Guð-
mundar Óskarssona. Sigurður var
sonur Magnúsar, b. í Vonarholti,
bróður Guðlaugar í Ólafsdal, ömmu
Snorra skálds og Torfa, fyrrv. toll-
stjóra, Hjartarsona. Magnús var
sonur Zakaríasar, b. á Heydalsá,
Jóhannssonar, prests í Garpsdal,
Bergsveinssonar, Hafliðasonar er
var prestur í Stað í Grunnavík en
kona hans var Halldóra (Mála) Snæ-
bjarnardóttir á Sæbóli á Ingjalds-
sandi. Dóttir Jóhanns var Guðrún,
kona Eyjólfs Einarssonar (eyja-
jarls), ættforeldrar Svefneyjarætt-
arinnar. Önnur dóttir Jóhanns var
Þórunn, móðir Guðbrands Stur-
laugssonar, b. í Hvítadal í Saurbæ,
föður Helgu, móður Haraldar Böð-
varssonar, útgerðarmanns á Akra-
Til hamingju með
afmaelið 9. nóvember
80 ára 40ára
Páll Ólafsson, Safamýri 11, Reykjavik. Jóhannes Jóhannesson, Vallarbarði 6, Hafnarfirði. Sigríður Þorsteinsdóttir, Nesbala86, Seltjarnarnesi. Valdimar Valdimarsson,
75ára
Eirikur Einarsson, Lagarási 33, Egilsstöðum. Andrea Daviðsdóttir, Grænumýri 13, Akureyri. Ágústa Magnúsdóttir, Vallholti 18, Ólafsvik. Guðrún Atladóttir, Lækjarfit5, Garðabæ.
Norðtungu I, Þverárhlíðarhreppi.
60ára María B. Guðbjartsdóttir, Blesugróf38, Reykjavík. Hildur Steingrímsdóttir, Miðleiti 4, Reykjavík. Gunnar Hafsteinsson, Brekkubraut 2, Akranesi. Þorstína Aðalsteinsdóttir, Móaflöt 24, Garðabæ. Guðrún Sigurðardóttir, Leirulæk, Alftaneshreppi.
Gísli Þórðarson, Hlíðarvegi 34, Njarðvík. Erla Þorvaldsdóttir, Skúlagötu 55, Reykjavík.
50ára
Kristján Kristjánsson, Ásgeröi 6, Reyðarfirði. Guðrún Guðmundsdóttir, Maríubakka 22, Reykjavík. Þórólfur Árnason, Lambhaga 12, Bessastaðahreppi. Grétar Jón Kristjánsson, Vesturbergi 125, Reykjavík. Þórarinn Sæmundsson, Laugarnesvegi 43, Reykjavík. Skúli Lýðsson, Jörundarholti 28, Akranesi.
Sigrún Asgeirsdóttir.
nesi. Móðir Sigurðar Gísla var Guð-
rún Sigurðardóttir, b. á Borgum í
Hrútarfirði, Jónssonar og konu
hans, Ingibjargar, systur Guðríðar,
ömmu Bjarna Þorsteinssonar,
prests og tónskáld á Siglufirði. Ingi-
björg var dóttir Þorsteins, prests á
Staðarhrauni, Einarssonar, prests á
Reynivöllum, Halldórssonar, bróð-
ur Jóns, vígslubiskups og fræði-
manns í Hítardal, föður Finns, bisk-
ups í Skálholti.
Foreldrar Rannveigar Guðríðar
voru Halldór Ingimundur Borgars-
son, f. 9.4.1891, d. 10.8.1971, b. á
Tyrðilmýri á Snæíjallaströnd, og
kona hans, Svava Guðmundsdóttir,
f. 3.4.1903, d. 25.5.1944. Halldór var
sonur Borgars Bjarnasonar, f. 19.1.
1865, d. 22.5.1910, b. á Tyrðilmýri,
og konu hans, Guðnýjar Pálsdóttur,
f.21.5.1858, d. 10.1.1925.
Sigrún tekur á móti gestum á
heimili sínu í dag (9. nóvember) kl.
16-19.
Sigurður Bjöm Bjömsson
Sigurður Björn Björnsson húsa-
smíðameistari, Efstasundi 31,
Reykjavík, veröur fimmtugur á
mánudaginn.
Starfsferill
Sigurður er fæddur í Seli í Gríms-
nesi en ólst upp í Reykjavík.
Hann hóf nám í húsasmíði hjá Sig-
urði Elíassyni haustiö 1957 og starf-
aði þar til 1963. Sigurður lauk námi
í meistaraskóla húsasmíða 1965.
Sigurður hefur ávallt starfað að
iðn sinn síðan, aö frátöldum sex
árum sem hann hefur starfað sem
smíðakennari við Réttarholtsskóla.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 11.11.1961 Sig-
ríði Elsu Óskarsdóttur, f. 19.7.1942.
Foreldrar hennar: Óskar Áskelsson,
látinn, fyrrum bóndi á Bassastöðum
í Steingrímsfirði, og Jóhanna Hall-
dóra Elíasdóttir.
Börn Sigurðar og Sigríðar Elsu:
Guðrún, f. 10.3.1961, húsmóðir,
maki Alfreð Svavar Erlingsson,
deildarstjóri í Ríkisbókhaldi, þau
eiga tvö börn, Elsu Ósk og Matthías
Svavar; Berglind, f. 20.51964, skrif-
stofum. hjá Smith og Norland, maki
Viktor Sveinn Viktorsson, sölumað-
ur hjá Mjólkursamsölunni; Björn
Smári, f. 18.9.1966, starfsm. hjá Eim-
Sigurður Björn Björnsson.
skip; Hjördís, f. 23.6.1977, nemi.
Systir Sigurðar er Sigríður og
hálfhræður, sammæðra, Helgi Ól-
afsson og Ingimundur Óskarsson.
Foreldrar Sigurðar: Björn Kjart-
ansson, f. 26.7.1905, d. 9.9.1989, b. í
Seli og síðar verkamaður í Reykja-
vík, ogUnnur Sigurðardóttir, f. 18.7.
1916, d. 5.7.1958, en þau slitu sam-
vistum. Sigurður ólst upp hjá föður
sínum ogföðursystur, Guðrúnu
Guðjónsdóttur, f. 2.6.1899, d. 11.1.
1991, en hún gekk honum í móður-
stað. Þau bjuggu lengst af á Baldurs-
götu 18íReykjavík.
Sigurður tekur á móti gestum á
heimili sínu í dag (9. nóvember) eft-
irkl. 20.