Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991.
Bertha María Waagfjörð er ein þekktasta íslenska fyrirsætan í dag og þykir ein af tíu þeim fallegustu i heiminum.
Ein af tíu fallegustu stúlkum í heiminum:
Kvíði ekki
útkomu
Playboy
- segir Bertha María Waagfjörð sem þénar dável á fyrirsætustörfum
„Það hefur gengið mjög vel hjá mér
hér í Los Angeles. Hins vegar er
vinnan farin að minnka og fyrir-
sætur farnar að hugsa sér til hreyf-
ings. Ég býst við að fara fljótlega
aftur til New York,“ segir Bertha
María Waagfjörð, 20 ára fyrirsæta,
sem vakið hefur mikla athygh á
erlendri grundu. í breska blaðinu
Today var á dögunum íjallað um
ný andlit á glanstímaritum heims-
ins. Ein af þeim tíu stúlkum sem
þar eru nefndar undir fyrirsögn-
inni „Leyndarmálið á bak við
heimsins fallegustu stúlkur" er
Bertha María Waagfjörð. Hún er í
greininni sögð vinna hjá Elite í
London og fái fyrir dagsverkið 4.700
pund eða tæpar fimm hundruð
þúsund krónur íslenskar.
Bertha María starfaði í London
áður en hún hélt vestur um haf til
New York. í vor hélt hún síðan til
Los Angeles þar sem hún hugðist
starfa um sumartímann. Hún segir
að svipuð laun séu á þessum tveim-
ur stöðum og straumurinn liggi
mikið tilLAá sumrin. Bertha hefur
haft nóg að gera enda er hún vel
kynnt og hefur skapað sér nafn.
Hún hefur unnið með heimsfræg-
um ljósmyndurum og einn þeirra
tók myndir af henni fyrir þýska
Playboy sl. sumar. Bertha segist
ekki kvíða útkomu þess blaðs, það
geti þvert á móti aukið kynningu á
henni sjálfri en það er einmitt það
sem fyrirsæta þarf á að halda. „Ég
hef lítið hugsað út í þessa birtingu
en það hjálpar auðvitað mikið ef
maður ætlar aö halda áfram á
sömu braut,“ segir hún. Bertha
segist ekki hafa farið úr öllum föt-
um fyrir ljósmyndara Playboy og
þess vegna hafi þetta ekki verið svo
erfitt. „Ljósmyndarinn, sem tók
þessar myndir, starfar hjá ítalska
Vogue og ég hafði starfað með hon-
um oft áður. Annars er ég ósköp
róleg yfir þessu.“
Byrjaði sextán ára
„Ég hef verið heppin og haft nóg
að gera. Hins vegar er það ekki svo
að ég hafni tilboðum vegna þess að
ekki sé nógu vel borgað," segir hún.
Bertha María tók þátt í Elite-
keppninni þegar hún var sextán
ára. Þá fannst henni hún vera of
ung til að takast á við starfið og
hélt heim eftir að hafa dvalið er-
lendis stuttan tíma. „Ég vildi halda
áfram í skólanum," segir hún. „Síö-
an hitti ég Hugrúnu Ragnarsdóttur
á Hótel íslandi og hún hvatti mig
til að koma til London. Það eru tvö
ár síðan. Þá ákvað ég að slá til enda
orðin átján ára og það gekk vel.“
Bertha segist aldrei hafa verið í
tískusýningum enda sé áhugi á
slíku ekki fyrir hendi. Hún hefur
því eingöngu starfað sem ljós-
myndafyrirsæta. „1 fyrstunni var
ég á þvæhngi um Evrópu en fyrir
ári var mér boðiö aö koma til New
York og starfa hjá umboðsskrifstof-
unni Men and Women sem er lítil
skrifstofa. Síðan flutti ég mig yfir
til Elite en þar er meira bisnessfólk
og þess vegna gerðir betri samning-
ar fyrir mann,“ segir Bertha.
Hún hefur ekki séð breska blaöið
Today en hafði fengið upphring-
ingu frá móður sinni sem sagði
henni frá greininni. „Það er mjög
misjafnt hvaö maður fær fyrir þau
störf sem maður vinnur," segir
hún. „Það besta við að vera orðinn
þekktur er að þá þarf maður minna
að ferðast um og kynna sig. Ég var
orðin mjög leið á feröalögum. Mað-
ur getur líka fengið nóg af þeim,“
segir Bertha.
Hún segist finna talsverðan mun
á því hve meira var aö gera í sum-
ar í LA heldur en nú og þess vegna
ætlar hún að flytja sig. „Maður
verður aö færa sig stöðugt á milli
staða. Nú eru allir að fara yfir til
New York,“ heldur hún áfram.
Bertha segir að í LA sé meira um
sjónvarpsauglýsingagerö en ann-
ars staðar. „Hér vilja þeir helst
amerískar glanspíur með gervi-
brjóst sem höföa til almennings.
Minn stíll er ekki þannig og því hef
ég ekki verið í sjónvarpsauglýsing-
um hér.“
Bertha kann vel viö sig í Ameríku
og ætlar sér að búa þar áfram. Þó
segir hún nauðsynlegt að skreppa
til Parísar annað slagið."
- Getur þú síðan komið forrík
heim?
„Já, maður gæti það,“ segir Bert-
ha María og hlær. „Ég reyni að
leggja til hliðar og safna.“
Hittir fræga fólkið
Bertha hefur að sjálfsögðu ekki
komist hjá að hitta frægt fólk í
kvikmyndaborginni. „Ég hef hitt
Mickey Rourke nokkrum sinnum.
Hann er mjög almennilegur. Fyrst
þegar ég kom hingað varð ég oft
undrandi á að hitta fræga fólkið en
svo hættir manni að finnast það
spennandi.“
- En hefur Bertha fengið tilboð um
kvikmyndaleik?
„Það eru alltaf einhverjir aular
að elta mann,“ svarar hún hlæj-
andi. „Ég hef engan áhuga á slíku.
Fyrirsætustarfið á vel við mig og
ég ætla að halda mig við það.“
Bertha veit ekki um aðra íslenska
stúlku sem starfar sem fyrirsæta í
Los Angeles. Reyndar segist hún
ekki hafa hitt neina íslendinga þó
hún viti að þeir séu fjölmargir á
þessum slóðum, sérstaklega í námi.
- Hvenær ætlar síðan fyrirsætan
að koma heim?
„Ætli það verði ekki um jólin. Ég
býst við að halda íslensk jól nema
eitthvað annað komi upp á.“
- Hvað hefur þú verið að fást viö
undanfarna daga?
„Ég hef verið að vinna fyrir
franska og ástralska Vogue og
einnig kanadíska Elle, ásamt
mörgu öðru,“ sagði Bertha Maria.
Hún var ekki viss hvenær forsíðu-
myndin yrði af sér í Playboy en
bjóst við að það yröi fljótlega. Það
mun þó ekki vera í nóvember.
Ætlar aó
kaupa mótorhjól
Bertha María sagðist aö lokum
vera að velta fyrir sér aö kaupa
mótorhjól, að sjálfsögðu Harley
Davidson, en hún hefur mikin
áhuga á slíkum farartækjum. „Þaö
eru að koma ný hjálmalög hér í Los
Angeles og margir ætla að selja
hjóhn sín. Maöur ætti því að geta
gert góð kaup. Hér eru allir á mót-
orhjólum. Ég og vinkona mín fór-
um sl. sunnudag í svokallað Love
Ride en í þeim hópi voru tólf þús-
und mótorhjól. Þetta var ótrúlega
skemmtilegt. í þessum hópi var
Billy Idol og fullt af þekktu fólki.
Hópurinn keyrði til Mahbu þar
sem er mjög falleg strönd. Annars
er svo gott veður að viö fórum á
stutterma bol og stuttbuxum. Þó
hefur verið mjög kalt í Bandaríkj-
unum, t.d. hefur snjóað bæði í
Chicago, Colorado og New York,“
sagði Bertha María Waagfjörð sem
íslendingar eiga væntanlega eftir
að heyra meira um í framtíðinni.
-ELA
Færri ferðalög