Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Page 24
24 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991. Skák Kasparov yfirburða- maður í Tilburg - en Karpov varð að láta sér lynda 4. sætið Fjórir efstu menn á skákmótinu i Tilburg; Kasparov, sem varð efstur, í öðru sæti varð Short, Anand í þvt þriðja og fjórði varð Karpov. „Ég hef lagt harðar að mér en áður við skákrannsóknir," sagöi heimsmeistarinn Garrí Kasparov eftir glæsilegan sigur á stórmótinu í Tilburg og bætti við að hann hefði verið ákveðinn í því að sigra á mótinu. Sigurinn í Tilburg er fyrsti mótasigur heimsmeistarans í ár en hann varð að láta sér nægja 2. sæt- ið í Linares í febrúar og þriðja sæti í Amsterdam í júní. „Mér tókst ekki að vinna skák á hvítt í Amst- erdam en hér vann ég fimm skák- ir,“ sagði Kasparov jafnframt. Kasparov hlaut 10 vinninga af 14 mögulegum og hatði tryggt sér sig- urinn fyrir síðustu umferð er hann svo klykkti út með því að leggja Karpov aö velli. Englendingurinn Nigel Short kom næstur með 8,5 v„ síðan Indverjinn Anand með 8 v., Karpov hlaut 7,5 v., Kamsky 7 v„ Timman 6,5 v., Kortsnoj 5,5 v. og Bareev fékk 3 vinninga. Eftir þennan frábæra árangur dylst engum að Kasparov stendur langfremstur stórmeistara í skák- heiminum. Karpov, sem svo oft er nefndur í sömu andrá og heims- meistarinn, hefur hins vegar fengið harða samkeppni frá yngri mönn- um. Short, sem ásamt Salov sigraði í Amsterdam, fyrir ofan Kasparov og Karpov, sýndi enn að hann er enginn eftirbátur Kasparovs. Þeir eiga að tefla saman í næstu umferð áskorendakeppninnar á næsta ári og verður fróðlegt að sjá hvort Short tekst þá endanlega að brjóta á bak aftur veldi K-anna. Indverjinn Anand vann það afrek að leggja bæði Karpov og Kasparov að velli en undir lokin missti hann flugiö, einmitt er baráttan milli hans og Kasparovs var aö verða spennandi. Líklega er Indverjinn sá mesti skáksnillingur sem fram hefur komið síðan Kasparov sleit barnsskónum. Hann er frægur fyr- ir að tefla hratt, er fljótur að sjá „taktíska möguleika" og meira að segja Karpov viðurkenndi eftir ein- vígið við hann í Brussel í sumar að hann hefði góðan skilning á stöðubaráttu - þó að „stöðulega séð væri ég örlítið sterkari," eins og Karpov komst að orði í viðtali, af sinni alkunnu hógværð. Kamsky kom einnig á óvart og sýnir að hann gæti hæglega bland- að sér í baráttuna um heimsmeist- aratitilinn. Hann er þegar orðinn þekktur fyrir skringileg uppátæki og skapbráður faðir hans, sem jafn- an fylgir honum eftir á skákmót, er orðinn heimsfrægur fyrir al- menn leiðindi. Timman má vera þokkalega ánægður eftir hörmulega frammi- stöðu á heimsbikarmóti Flugleiða og slæma byrjun í Tilburg. Kortsnoj, sem varð sextugur í sum- ar, virðist ekki lengur hafa þrek í svo erfiö mót og Bareev - sigurveg- arinn í Hastings - var algjörlega heillum horfinn. Byijaði illa og tefldi síðan sem niðurbrotinn mað- ur. Skoðum tvær skákir frá mótinu. Fyrst einu tapskák heimsmeistar- ans, sem svo sannarlega er „tekinn í bakaríið“ og síðan sætan sigur í 159. skákinni gegn Karpov. Hvítt: Viswanathan Anand Svart: Garrí Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 RfB 5. Rc3 a6 6. f4 e6 7. Bd3 Rbd7 8. 0-0! Áður var jafnan leikiö 8. RI3 í þessari stöðu, enda virðist texta- leikurinn bjóða hættunni heim, einmitt vegna næsta leiks heims- meistarans. En Anand er ekki að leika af sér. 8. - Db6?! 9. Be3 Dxb2 10. Rdb5!! axb5 11. Rxb5 Hótar 12. Rc7 + og eftir 12. - Kd8 væri 13. a3, sem hótar m.a. 14. Bd4, býsna óþægilegt. 11. - Ha5 12. Hbl! Það er ekki á hverjum degi sem heimsmeistarinn missir drottning- una eftir aðeins tylft leikja. Svarið við 12. - Dxa2 yrði auðvitað 13. Rc3 Da314. Hb3 og drottningin er fallin. Enn sýnir sig að peðið á b2 er „eitr- að“ og munu margir nú eflaust minnast einvígis Fischers og Spas- skys í Reykjavík 1972, þar sem þetta fræga peö var mjög í sviðsljósinu. Raunar minnir skákin sem hér er til umfjöllunar á 11. skákina 1972 er drottning Fischers varð inn- lyksa eftir að hafa gætt sér á b- peðinu og Fischer varð að færa miklar fórnir til að losa hana úr khpunni. 12. - Hxb5 13. Hxb2 Hxb2 14. Dal! í raun er þetta lykilleikurinn. Þar sem 14. - Hb4? strandar á 15. Dc3, verður svartur að láta skiptamun af hendi. Þótt hann fái þijá létta menn fyrir drottninguna, á hann í mestu erföileikum því að menn hans ná ekki aö vinna saman. 14. - Hb6 15. Bxb6 Rxb6 16. Dc3 Be7 17. Hbl Rfd7 18. Dxg7 Bf6 19. Dh6 Ke7 20. Bb5 Hg8 21. Hdl e5 22. f5 Rc5 23. Hxd6! Nú er staðan í molum því að 23. - Kxd6 24. Dxf6+ kostar meira liö í næstu leikjum. 23. - Bg6 24. Dxh7 Rxe4 25. Hxb6 Hd8 26. Bd3 Be3+ 27. Kfl Bxb6 28. Bxe4 Hd4 29. c3! - Og Kasparov gafst upp. Ef 29. - Hxe4 30. f6+ og næst 31. Dxe4 o.s.frv. Kasparov var fljótur að jafna sig eftir þetta áfall en Anand tapaði hins vegar næstu tveimur skákum. Já, það er dýru verði keypt að vinna heimsmeistarann! í þætti Halls Hallssonar um Karpov kvartaði Karpov mjög und- an því að Kasparov fengi vinninga sína á „eldhúsborðinu" - þ.e. með góðum undirbúningi. Ekki átti þetta við um skák heimsmeistarans við Anand hér að ofan en í lokaum- ferðinni gegn Karpov náði Ka- sparov fljótlega vinningsstööu með nýjasta vopninu - skoska leiknum. „Eftir 15. e6 var ég viss um að ég væri að vinna,“ sagði Kasparov eft- ir skákina. Þetta var auöveldur sig- ur heimsmeistarans. Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Skoski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Ba6 9. b3 g6 10. f4! Endurbót Kasparovs á skák Jó- hanns Hjartarsonar og Portisch á heimsbikarmóti Flugleiða á dögun- um. Karpov áttar sig ekki á þvi hvað að baki býr - annars hefði hann leikið 10. - Bg7. 10. - f6? 11. Ba3! Df7 12. Dd2! Rb6 13. c5 Bxfl 14. cxb6 Karpov tekur nú þann kostinn að fórna manni, í ljósi þess að eftir 14. - Bxa3 15. b7, eöa 14. - Ba6 15. bxc7 á hvítur greinilega betri stöðu. Ákvöröun hans er þó umdeild því að það er langt frá því að hann fái nægileg færi. 14. - axb6 15. e6! Sterkara en 15. BxfB Bxg2 16. Dxg2 HxfB, þótt svartur þurfi einn- ig í því tilviki að berjast fyrir lífi sínu. Nú gengur ekki 15. - Dxe6+ 16. Kxfl Bxa317. Rxa3 Hxa3, vegna 18. Hel og leppar drottninguna. 15. - dxe6 16. Bxf8 Hd8 17. Db2 Bxg2 18. Dxg2 KxfS 19. Dxc6 Hd6 20. Dc3 Kg7 21. Rd2 Hhd8 22. 0-0-0! Kóngur hvíts er kominn í örugga höfn og nú er deginum ljósara að svartur hefur ekki fullnægjandi færi fyrir manninn. 22. - De8 23. Dxc7+ H8d7 24. Dc2 Db8 25. Rc4 Hd5 26. Df2 Dc7 27. Dxb6 Dxf4+ 28. De3 Dg4 29. Hdgl Dh4 30. Hg3 e5 31. Hh3 Dg4 32. Hgl Hdl + 33. Hxdl Dxdl+ 34. Kb2 h5 35. Hg3 Dhl 36. Df2 h4 37. Dg2 Dxg2+ 38. Hxg2 g5 39. a4 Kg6 40. a5 e4 41. b4 h3 42. Hg3 Hh7 43. a6 f5 44. Ha3 Og Karpov gaf skákina. Úrslitakeppnin í Grundarfirði Helgi Ólafsson, Karl Þorsteins og Margeir Pétursson urðu efstir og jafnir í landsliösflokki á skákþingi Skák Jón L. Árnason íslands í Garðabæ í ágúst og þurfa að heyja aukakeppni um titilinn „skákmeistari íslands 1991“. Jafn- framt tefla þeir um tvö efstu sætin, sem gefa þátttökurétt á svæðismóti á næsta ári. Nú hefur verið ákveöið að úr- slitakeppnin fari fram í Grundar- firði og hefst hún á morgun, sunnu- dag. Hver keppenda teflir tvisvar við hvern hinna. Teflt er daglega í matsal Fiskverkunar Soffaníasar Cecilssonar og hefjast skákirnar kl. 17.10 - síðasta skákin á fóstu- dag. Standi leikar þá jafnir verður tefld einfóld umferð til viðbótar, síðan bráðabani ef þörf krefur. Þetta er þriðji „stórviðburður- inn“ í skákinni sem fram fer í Grundarfirði. Þar var eitt helgar- móta tímaritsins Skákar 1984 og síðan keppni i landsliðsflokki á skákþingi Islands 1986. Helgarmót í Hafnarfirði Taflfélagiö Hellir og Skákfélag Hafnarfjarðar hafa nú tekið hönd- um saman um að standa að atskák- móti um næstu helgi - umhugsun- artími hálf klukkustund á kepp- anda. Mótið hefst fóstudaginn 15. nóvember kl. 20 og verður fram haldið laugardaginn 16. nóvember kl. 14. Tefldar verða 7 umferðir og verða veitt peningaverðlaun, 20 þúsund, 12 þúsund og 8 þúsund krónur. Teflt verður í húsnæði Skáfélags Hafnarfjarðar, Tómstundaheimil- inu, á homi Suðurgötu og Lækjar- götu. Tekiö er fram í fréttatilkynn- ingu frá félögunum að skákmenn eldri en tvítugir séu boönir sérstak- lega velkomnir en mótið er öllum opið. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.