Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991. 43 \ Friðrik ásamt dóttur sinni, Hjálmfríði Þöll, í Perlunni í Öskjuhlíð. Saman flytja þau þekkta slagara við ýmis tækifæri. Dv-mynd Brynjar Gauti sína hafa reynst sér vel í erfiðleikun- um og veikindunum og að hann hafi fengið ótrúlega mikinn styrk frá þeim. „Þó hefur enginn reynst mér eins stórkostlega og konan mín.“ í Busabandinu Friðrik er fæddur á ísafirði. Ellefu ára gamall flutti hann til Akraness en fannst hann aldrei eiga heima þar. Hann byrjaði að læra á píanó átta ára gamall. Seinna lærði hann á túbu og lauk fjórum stigum á það hljóðfæri. Þegar Friðrik var í heima- vist Menntaskólans á Akureyri lék hann í Busabandinu sem síðar fékk nafnið BB-sextettinn. „Það var ein- mitt í MA sem Þorvaldjgr Halldórs- son og Vilhjálmur Vilhjalmsson hófu sinn feril,“ bætir hann við. Að loknu menntaskólanámi kenndi Friðrik einn vetur en settist svo aftur á skólabekk og þá í Kennaraskólann og lauk almennu kennaraprófi 1966. Samtímis kennaranáminu hóf hann nám í söngkennaradeild Tónlistar- skólans í Reykjavík og lauk þaðan tónmenntakennaraprófi 1967. Síðan lá leiðin í háskólann og 1971 tók Frið- rik BA-próf í sögu og bókasafns- fræði. Lokaritgerðir hans í þessum greinum tengdust tónhst. Sögurit- gerðin fjallaði um sögu langspilsins en bókasafnsfræðiritgerðin um tón- list í almenningsbókasöfnum. Frið- rik var sá starfsmaður Borgarbóka- safnsins sem kom upp vísinum að því tónlistarsafni sem nú er til húsa í Gerðubergi í Breiðholti. Líf Friðriks hefur alla tíð snúist mikið um tónlist og því er ekki úr vegi að spyrja hvaða tónlist honum þyki mest gaman að hlusta á. „Ég hef mjög gaman af fiðlukonsertum og strokkvartettum þó ég spili ekki sjálfur á fiðlu. Mest gaman þykir mér að spila á túbu þó ég hafi ekki snert hana í þrjú ár. En ég held að manns- röddin sé uppáhaldshljóðfærið mitt þegar allt kemur til alls. Ég hef haft mikla ánægju af að stjóma blönduð- um kórum.“ Barnabók í samkeppni Á heimili Friðriks í Reykjavík er langspil og harmóníka, auk ýmissa annarra hljóðfæra. Hann tekur í bæði hljóöfærin og getur þess um leið að hann sé nýfarinn að ,jaga“ harmóníku. Harmóníkunafékk Friö- rik lánaöa í sumar. Auk þess að grípa í hljóðfærin í frístundum fæst hann við yrkingar. „Ég er eiginlega skorpumaöur í yrkingunum. Það er svo einnig upp og ofan hvort það er í alvöru.“ Hann segist vera farinn að fikta við prósa og er með smásögur í handriti en hefur ekki fengið miklar undirtektir enn. Friðrik skrifaði barnabók í sumar sem hann hefur sent í keppni. Hann segir hins vegar ljóðið enn vera sinn aðal. „Það ættu sem flestir að geta horfið til ljóðsins og slakað á og gefið gný og gaspri langt nef um leið. Nútíma- manninum veitir ekki af að slaka á og ljóðið er góður vettvangur til þess. Það er öðmvísi slökun en sú sem fæst við ölkollu og blús,“ heldur Frið- rik áfram. Eins og ortværi í gegnum hann Ljóðin í fimmtu og nýjustu bók Friðriks, Kór stundaglasanna, sem nýkomin er í verslanir, urðu til á ámnum 1984-1990. Hann segir mörg ljóðanna hafa orðið til eins og ein- hver orti í gegnum hann. „Ég settist eitt sinn niður til að prófa penna. Ég var með litla minnismiðablokk og áður en ég vissi af var ég búinn að fylla út níu blokkarblöð. Það var eins og það rynni á mig hamur. í ljóða- bókinni eru beinar tilvísanir til Grettis Ásmundssonar en ég hafði einmitt legið og íhugað Grettissögu áður en ljóðið Síðasta martröð Grett- is varð til.“ Friðrik segist áður hafa orðið fyrir slíkri reynslu við samningu fyrri bóka en aldrei eins sterkt og áber- andi og með þessa bók. Forspjall Fyrsta ljóðið í bókinni nefnir hann Forspjall og segir það tákn um hvemig tíminn sækir að nútíma- mönnum á ófriðsamlegan og hávær- an hátt. Hópumst saman í skellibirtunni hlýðum hugfangin á kór stundaglasanna bera á borð með sér álög vafin marglitum gljápappír varpa litfögrum bjarma í krókana og kimana fylla rjáfrin hvíslandi þrumuraust þangað til veðrin síga yfir höfuð okkar og kór stundaglasanna dregur okkur óvæntar byrðir úr hlustum nærir hálfrökkrið bitmm andgusti. Gefstekkiupp Það er enga uppgjöf að heyra í orð- um Friðriks. Hann kveðst hafa átt erfiðar stundir en það hafi aldrei hvarflað að honum að hætta vera sá sem hann hafi verið. „Ég ætla að reyna það eins lengi og mér er það fært. Ég get spilað létta músík eftir eyranu og mér gengur furðanlega að hltta á nóturnar. Það hefur verið erflðara hvað skriftirnar varðar. Ég hef fengið styrk til að kaupa nýja tölvu og bíð eftir styrk til að kaupa stækkunarbúnað til að ég geti séð betur hvað er á skjánum." Friðrik segir börnin í Ölduselsskóla taka fotlun hans nánast eins og ekkert sé. Langflestum þeirra hafði hann kennt áður en hann varö blindur. Tón- menntakennarinn ítrekar í lokin að hvergi sé hægt að finna hve gildi mannúðar og góðleika hafi mikið vægi eins og í samskiptum við börn. -IBS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.