Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Side 35
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991.
47
Vísnaþáttur
Með hófi
safnaheims-
Lausafjáruppboð
12. nóvember 1991
Eftir kröfu Tryggva Guðmundssonar hdl., Innheimtu rikissjóðs, Sigríðar
Thorlacius hdl., Bjarna Stefánssonar hdl., Gunnars Sæmundssonar hrl.,
Guðmundar Kristjánssonar hdl., Hróbjarts Jónatanssonar hrl., Tómasar
Heiðar lögfr., Símonar Ólafssonar hdl., Innheimtustofunnar sf., Grétars
Haraldssonar hrl., Andra Árnasonar hrl., islandsbanka hf. og sýslumanns
Barðastrandarsýslu verða eftirtaldir munir seldir á nauðungaruppboði sem
haldið verður á lögreglustöðinni að Aðalstræti 92, Patreksfirði, þriðjudaginn
12. nóvember 1991, kl. 17.00, eða þar sem þessir munir kunna aö finnast:
Case jarðýta, nr. 1450, JBC 3 D4 grafa, beltagrafa, OKRH9 LO, árg. '74,
Desta DVHM 2522 LX vörulyftari, serial nr. 7956, B-442, GY-608, HJ-
169, Y-15765, R-21778, Luma sjónvarpstæki, Saloria sjónvarpstæki,
Technics hljómflutningstæki, AEG ís- og frykiskápur, kassaþvottavél, hluta-
fjáreign í Auðnu hf. og hlutafjáreign í Steinbjörgu hf.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaður Barftastrandarsýslu
ins auð
„Gjörið yður vini af þeim ranglætis
mammóna, segir frelsarinn, svo
kallar hann auðlegð heims þessa.
Það ber til þess, að varla nokkurt
það ranglæti í heiminum, sem auð-
urinn sé ekki viðriðinn með ein-
hveiju móti, hvaða ranglæti hafa
menn ekki við í því að afla hans í
kaupum og sölum með yfirvarpi
laga og réttinda, til að svæla undir
sig eigur annarra, með féburði i
dóma, með ráni og stuldi, með ofrí-
ki og ásælni, með lygum og prett-
vísi? En svo sem það er ekki minna
vert, að gæta fengins fjár en afla
þess, svo skeöur og ekki minna
ranglæti í meðferð auðsins heldur
en í safninu, eður hvað gjöra þeir,
er brúka hann til ofmetnaðar,
stæra sig þar af, þakka sjálfum sér
fyrir sitt lukkulán, færa fómir fyr-
ir sínu eigin neti, brúka fé sitt til
að niðurdrepa honum, sem rang-
indum líður, til að réttlæta hinn
rangláta, en fella ranglátan dóm
yfir hinum saklausa, tií óhófs í mat
og drykk og annars bílífis, en láta
hinn fátæka og nakta þorsta og
hungur líða, innihalda lánuðu fé
og svíkja daglaunarann og þann
sem slegið hefur lönd hins ríka, um
sitt verðkaup, svo að þeirra hróp
er inngengið í eyru Drottins seba-
oth?“
Þannig komst Jón Vídalín biskup
að orði í prédikun níunda sunnu-
dag eftir þrenningarhátíð (trinitat-
is) og ýmsir hafa síðan tekið í sama
streng. Bólu-Hjálmar gefur mönn-
um þetta ráð:
Vísnaþáttur
hún lesin aftur á bak verður merk-
ing hennar öll önnur:
Nýtur sinna aura einn
aldrei, snauðum bjargar;
hlýtur vinna sjálfur seinn
sjaldan, nauðum fargar.
ísleifur Gíslason, kaupmaður á
Sauðárkróki, telur að sá sem hann
kveður um hafi unnið meðan hægt
var:
Yfir bárur ágirndar
elhgrár og sUtinn
reri árum rógburðar,
rann af hári svitinn.
DýróUna Jónsdóttir, húsfreyja og
kennari í Fagranesi á Reykja-
strönd, sendir eftirfarandi bend-
ingu til fépúkans:
Sinntu snilldum, sefa hryggð,
sæmdar fylgdu vana.
Vertu mildur, mettu dygð
meira en skildingana.
Sæmdarmorð er sérdrægnin,
sjást þess skorðuð merki.
Sjaldan forðast fépúkinn
fals í orði og verlti.
„Ágirndin undirbýr alltaf veginn
fyrir hrun þeirra sem hafa hana
fyrir leiðarstjörnu í lífinu". Kvæð-
ið, sem fer hér á eftir, nefnist Nirf-
Ul og er eftir gamlan skólabróður
minn og vin, Jónatan Jónsson
Skagan, sem lést á síðasta ári. Telja
má það nánari útfærslu á spak-
mælinu hér að framan:
Ágimd kitlar gætna góma.
Gróðaílog í augum ljóma,
hugur aUur himni fjær.
- Hljómur gulls í bijósti slær.
Eirðarlaus sem iðuhringur
eltir Mammons vísifingur,
sál í veski og vösum ber,
annars hagi ekki sér.
Eins og tré sem ormar naga
er hans líf og verður saga
- þekkir hvorki þig né mig.
Honum varð það hlutverk skapað
að hafa lífsins gUdi tapað
og deyja inn í sjálfan sig.
Torfi Jónsson
Fæst í músíkverslunum
Steina og öbrum alvöru
hljómplötuverslunum
Músík\
hljómplötuverslanir
AustufStiati 22 GteSir
Simi 28319 sími 33528
Strandgata 37
-Simi 53762
Mjódúin
sim; 79050
Borgarkringlunni Lauga*egui24
Silui 6790)5 simi 18670
KRAFTAVERKIÐ
Með hófi safna heimsins auð,
því hans ei nýtur sálin snauð,
fégirndina forðast skalt,
fast þér við guðs boðorð halt.
En þegar hann heyrði lát ríkis-
manns, sem hafði verið harðbýll
og miskunnarlítiU, orti hann:
Er það gleði andskotans,
umboöslaun og gróði,
fémunir þá fátæks manns
fúna í ríkra sjóði.
Sveinn frá Elivogum tekur í sama
streng:
Falskt er gengi fépúkans,
fína drenglund ber hann,
af baklengju öreigans
ótæpt þvengi sker hann.
Þorsteinn Magnússon frá Gil-
haga virðist vera á sömu bylgju-
lengd í sléttubandavísu sinni en sé
Hann kveður einnig og veit ég
ekki hvort það er um sama mann-
inn:
Ágirndin með rámri raust
réð honum fé að safna,
ekki fengi’ hann fargjaldslaust
far til dánarhafna.
Jóhannes Örn Jónsson, Fagra-
nesi í Öxnadal, lýsir aldarandanum
þannig:
Tæla, svíkja tískan er,
- töfrar slíkur matur - ;
enda ríkir ágirnd hér,
öfundsýki og hatur.
Emil Petersen, verkamaður á
Akureyri, orti í kosningahríð:
Nöpur ískrar aulasál.
Andi nískra galar.
Saman pískra pukursmál
pólitískir smalar.
ÖKUMENN
Athugið að til þess að við komumst ferða okkar þurfum við að losna
við bifreiðar af gangstéttum. Kærar þakkir.
I Blindir og sjónskertir.
---------------1
PARTÍ-
SÓFASETTID
¥
¥ ¥
sorssm i urvali
Leður - Lixx - Tau
Verd ffrá kr. 125.800.-
Smídum hornsóffa
efftir máli
\ fHTJSGAGNAIHF
M val
SMIÐJUVEGI 30 - KÓPAVOGI
SÍMI 72870