Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Síða 37
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991.
49
Joe Strummer
syngur
með Pouges
Joe Strummer, gamli Claslt-
söngvarinn, hefur tekið að sér að
leysa hinn afleitlega tennta
Shane MacGowan, söngvara Po-
uges, af í aö minnsta kosti hálft
ár. Liðsmenn Pouges virðast hafa
fengið sig fuilsadda á drykkju-
skap söngvarans og gefið honum
tækifæri til að leita sér lækninga.
Pouges er nú á hijómleikaferð um
Bandaríkin.
Helgaipopp
Rúnar Þór: Ég geri allar plöturnar minar fyrst og fremst fyrir mig.
Rúnar Þór sendir frá sér plötuna Yfir hæðina:
Reyndi að hafa
plötuna
semjafnasta
Þegar allri vinnslu plötunnar Yfir
hæðina var lokið og upptökurnar
farnar utan til endanlegrar vinnslu
geröi Rúnar Þór sér lítið fyrir og
samdi ein tuttugu ný lög á einni viku.
Nú bíður þeirra sumra að fá texta
og verða á næstu plötu hans að ári.
Önnur fara í geymslu og verða
kannski notuð síðar.
„Þetta hefur yfirleitt gerst þegar
ég hef lokið við plötu,“ segir hann,
lítillátur. „Ég held að skýringin sé
sú að ég er í raun og veru afskaplega
latur. Ég lýk þessum lögum af meöan
ég er enn í fullu vinnuformi. Síðan
get ég slakað rækilega á og farið að
leita í rólegheitum að textum við lög-
in.“
Textamir skipta Rúnar Þór miklu
máli. Hann segir að sér finnist
hörmulegt að heyra ung, saklaus
böm syngja sumt rughð sem boðið
er upp á á plötum. Að þessu sinni
hefur hann haft tvö ljóð Steins Stein-
arrs með á plötu sinni. Ekki ýkja
frumlegt að velja einmitt hann, af
öllum skáldum.
„Nei, ég veit það,“ svarar Rúnar.
„En ég hafði Siesta og Haust í Þjórs-
árdal í fyrsta lagi með því að þessi
ljóð em góðir söngtextar. í öðru lagi
gerði ég það af virðingu við gott
skáld. Það hafa margir sett lög við
ljóð Steins. Sumum finnst mér hafa
tekist illa upp svo að ég setti þaö
ekkert fyrir mig þegar ég ákvað að
hafa hann með.“
Sem fyrr er Heimir Már, bróðir
Rúnarsm atkvæðamikih í textunum
og nú á faöir þeirra, Pétur Geir
Helgason, tvo, Nótt og Kveðju.
„Pabbi á slatta af textum," segir
Rúnar. „Þegar ég fer í heimsókn lít
ég yfir það sem hann hefur samið og
vel úr það sem mér þykir best.“
Yfirhæóina
Ég reyndi að þessu sinni að hafa
tónhstina á plötunni sem jafnasta frá
upphafi til enda,“ heldur hann
áfram. „Engan einn smell sem alhr
spila og gleyma svo afganginum. Ég
held að þetta hafi tekist. Tveimur
dögum eftir að plötunni var dreift til
dagskrárgerðarmanna útvarps-
stöðvanna var ég búinn að heyra öll
lögin leikin. Ég hlustaði reyndar
mikið og var sífellt aö flakka á mihi
stöðva. Annað hvort á fólki að líka
öll lögin eða ekki.“
Rúnar Þór sendi um þetta leyti í
fyrra frá sér plötuna Frostaugun.
Hún fékk almennt góða dóma. Rúnar
var enda ánægður með útkomuna en
varð þar af leiðandi að reyna að láta
nýju plötuna, Yfir hæðina, hljóma
öðruvísi en þá síðustu.
„Aðalmunurinn á þessum tveimur
plötum er sá aö á þeirri nýju er mun
minna af hljóðfærum notað og engar
raddir. Hefði ég átt að efna til tón-
leika og flytja lögin af Frostaugunum
nákvæmlega eins og þau eru á plöt-
unni hefði ég þurft 25-30 manna
Umsjón
Asgeir Tómasson
hljómsveit og kór. Lögin á Yfir hæö-
ina getum við flutt þrír, ég, Jón Ólafs-
son og Jónas Björnsson, og bætt Þor-
steini Magnússyni við í nokkrum
lögum.
Mér finnst einnig vera munur á
tilfmningunni sem þessar tvær plöt-
ur vekja,“ heldur Rúnar Þór áfram.
„Frostaugun setur hjartað niður. Yf-
ir hæðina lyftir þvi upp.“ Hann hik-
ar. „Ég geri allar plöturnar mínar
fyrst og fremst fyrir mig,“ segir hann
loks. „Fyrir svo sem fimmtán árum
spilaöi ég aöallega fyrir aðra tónhst-
armenn. Var sífellt aö reyna aö sanna
mig. Nú vil ég hafa plöturnar þannig
að ég geti hlustað á þær sjálfur. Fyr-
ir mér hafa þær allar gengið upp
nema platan Gísli. Hljómurinn á
henni var ónýtur og textarnir afleit-
ir.“
Margt eftir enn
Rúnar Þór segist enn ekki hafa tap-
að fé á neinni plötu sinni. Hann er
handviss um hvað hann gerir ef Yfir
hæðina gengur ekki sem skyldi.
„Hvað ég ætla að gera ef hún verð-
ur bömmer? Gera aöra plötu og vera
snöggur að því,“ svarar hann. „Ég á
svo heilmargt eftir ógert. Píanóplötu,
kassagítarplötu, hljómleikaplötu’
safnplötu... og eina plötu með ensk-
um textum. Ég er bara rétt að byija!
Ég er ákveðinn í að einhvem tíma
ætla ég að taka öll mín bestu lög sem
hafa komið út, fá við þau enska texta,
gefa út plötu í fimm hundmð til þús-
und eintaka upplagi og senda á er-
lendar útvarpsstöðvar undir nafninu
Cat Stevens eöa eitthvað álíka Svo
sjá málaferlin sem á eftir fylgja um
að auglýsa plötuna upp. Getur ekki
klikkað!"
Skipuleggj-
andi LiveAid
látinn
Bill Graham, einn þekktasti
tónleikahaldari heimsins, er lát-
inn. Hann fórst í þyrluslysi á
laugardaginn var er hann var að
koma frá tónleikum með Huey
Lewis and The News. Þyrlan
flaug á háspennustreng um fiöru-
tíu kílómetra norðaustan San
Francisco.
Graham var kunnur af störfum
sínum með Rolhng Stones, Bob
Dylan og fleiri. Hann var aðal-
skipuleggjandi Live Aid-tónleik-
anna árið 1985. Þá þótti framlag
hans til sýrurokkbylgjunnar í
San Francisco um miðjan sjö-
unda áratuginn ómetanlegt. Gra-
ham vann enn fyrir San Franc-
isco-hljómsveitina Grateful Dead
og var að skipulegga fyrir hana
hljómleikaferð er hann fórst. Þá
var hann einnig með Natalie
Cole, Tom Petty and The He-
artbreakers og Paulu Abdul á sin-
um snærum.
Bryan Adams - met á breskum
vinsældalistum.
Lag ársins
Lagið Everything I Do (I Do It
For You) sat sextán vikur sam-
fleytt í efsta sæti breska vin-
sældalistans. Ekkert lag hefur
setið þar lengur í tæplega fiörutiu
ára sögu lista í Bretlandi. Fram
til þess hafði Rose Marie með
kántrísöngvaranum Slim With-
man átt metið. Þaö var ellefu vík-
ur á toppnum síðsumars og fram
á haust 1955.
Bryan Adams gerði gott betur
með laginu Everything I Do (I Do
It For You) en að slá met í Bret-
landi. Hann var í sjö vikur í efsta
sætinu í Bandaríkjunum og hafði
í októberbyrjun náð toppnum í
fiórtán löndum í fimm heimsálf-
um. Aðallagið úr kvikmyndinni
Hróa hetti þjófaprinsi er því
greinilega lag ársins 1991.