Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991.
51
Trimm
Hress í Hafnarfirði:
Aukin hreyfing og
stjóm á matarædi
- námskeið í baráttunni við aukakílóin
„Viö byijuðum með þetta prógramm,
sem heitir Nýr lífsstíll, í maí á síð-
asta ári. Ástæðan fyrir nafngiftinni
er alveg sérstök en hún er sú að nám-
skeiðið" gengur akkúrat út á þetta.
Þetta er ekki einhver skyndi-megr-
unarkúr og við viljum helst ekki tala
um megrun þótt við ætlum að fækka
kílóunum. Þessi Nýi lífsstíl gengur
út á það að auka hreyfingu og að
hafa stjórn á mataræðinu og jafn-
framt að hafa jákvætt hugarfar yfir
þetta sem við erum að gera,“ sögðu
þær Anna Haraldsdóttir og Anna
Karlsdóttir í samtah við DV.
Best að hafa
matardagbók
í Líkamsræktinni Hress í Bæjar-
hrauni 4 í Hafnarfirði stendur nú til
boða sérstakt þriggja mánaða nám-
skeið ætlað konum sem vilja losna
við aukakfióin og hefur árangur
margra þátttakenda verið vægast
sagt mjög góður. „Árangurinn hefur
verið mjög góður og stór hópur hefur
misst jafnvel 20-30 kíló. Margar hafa
misst 15 kíló enda er það markmiðið
í upphafi hjá mörgum þegar þær
byrja. Við leggjum til að konurnar
borði þijár máltíðir á dag og sleppi
öllu á milli mála og borði hollan mat
og þá htla skammta og eins að vera
meðvitaðar um þær fæðutegundir
sem eru innbyrtar.
Þetta er best með því að hafa mat-
ardagbók þar sem fært er inn hvað
á að borða á morgun o.s.frv. Við ráð-
leggjum þeim ekki hvað þær eigi að
borða enda verður hver að finna sinn
matarstíl af því að það er ekki neitt
sem heitir eitt fyrir aha. Það er mis-
jafnt hvað fólki hkar og því verður
hver að finna sinn stíh'Það hefur
gengið mjög vel en þær borða
kannski ekki það sama og ég enda
þurfa þær þess ekki, þetta er fyrst
og fremst spurning um aö halda
stjórninni," segir Anna Karlsdóttir
en hún gefur heilræði varðandi mat-
aræði og hefur umsjón með göngu-
ferðum sem eru tvisvar í viku en það
kemur í hlut nöfnu hennar að stjóma
leikfiminni sem er einnig á dagskrá
tvisvar í viku.
er menntaður íþróttakennari og var
auk þess ágætis hlaupari fyrir
nokkrum árum. *
Þegar DV bar að garði sl. miðviku-
dag gnauðaði vindurinn á gluggun-
um og heldur kuldalegt var úti að en
stelpurnar í Firðinum létu það ekki
á sig fá og þvertóku fyrir allar at-
hugasemdir um að gönguferðir dyttu
niður vegna veðurs. Viðkvæðið var
að þá væri bara að klæða sig betur
og á útbúnaði þeirra mátti sjá að þær^
væru færar í flestan sjó. Reyndar er
ekki rétt að tala bara um konur úr
Hafnarfirði því á þessu námskeiði
og öðrum sem boðið er upp á í Hress
koma kynsystur þeirra úr höfuð-
borginni, Suðurnesjum og jafnvel frá
Hveragerði.
Fara inn í
önnur námskeið
Þetta tiltekna námskeið stendur
yfir í þijá mánuði eins og áður segir
og kostnaðurinn er krónur 11.960 og
með því fylgja nokkrir tímar í ljósa-
bekk. Þær sem standa sig síðan best
eru verðlaunaðar fyrir frammistöð-
una með einhveijum hætti.
Námskeið sem ganga út á það að
hafa betur í baráttunni við aukakíló-
in eru engin nýlunda hérlendis.
Ýmsar leiðir hafa verið reyndar sem
hafa jafnharðan dottið upp fyrir en
hveiju svarar Anna Haralds um
langlífi þessa námskeiðs sem hún
býður upp á. „Ég held að þetta sé
námskeið sem á eftir að vera. Þetta
er ekki einhver bóla enda hefur þetta
tímabil sýnt fram á það. Margar hafa
staðið sig virkhega vel og þær far^.
síðan inn í önnur námskeið og það
er mjög jákvætt."
Sjálfsagt er hér á ferð heppileg leið
til þess að losna við nokkur kíló og
miðað við það sem konurnar segja
sjálfar skilar þetta árangri. Þær sem
eru að spá í að drífa sig af stað verða
þó að muna að hlutimir koma ekki
af sjálfu sér og erfiöasta hindrunin
er oftast að drífa sig af staö. En um
leið og það er afstaðið er erfiðasti
hjallinn oftast að baki.
-GRS
Hópurinn sem mætti í gönguna sl. miðvikudag. Reyndar voru sumar svo áhugasamar að þær máttu ekkert vera
að því að sitja fyrir hjá Ijósmyndaranum og voru þvi lagðar af stað áður en smellt var af.
DV-myndir Brynjar Gauti
Súkkulaði á
svarta listanum
Árangrinum virðast þær ná með
skynseminni og ekki er að heyra að
neitt byggist” upp á boðum og bönn-
um en súkkulaðið er þó á svarta list-
anum. Heilræðin í mataræðinu eru
á svipuðum nótum og stöllumar
kalla þau frekar tillögur heldur en.
eitthvað sem verður að fara eftir. En
það er ekki nóg að breyta matar-
æðinu, hreyfingin verður líka að
vera til staðar.
„Hjá okkur er ganga tvisvar sinn-
um í viku og sömuleiðis leikfimi en
þær sem em duglegastar fara jafnvel
1-2 sinnum í viku aukalega út að
ganga en þaö skiptir líka máli að
hreyfa sig aukalega með. Leikfimin
sjálf er nokkuð hefðbundin. Við er-
um mikið með palla og einnig þol-
þjálfun og styrkjandi æfingar inni í
þessu. í rauninni er þetta bara góð
styrkjandi músík-leikfimi,“ segir
Anna Haralds en þess má geta aö hún
Það verður hver að finna sinn mat-
arstil, segir Anna Karlsdóttir.
Þetta gengur m.a. út á það að hvetja
konurnar til að hugsa jákvætt um
það sem þær eru að gera, segir
Anna Haraldsdóttir.
- en samstaðan er mikilvæg
Guðlaug Adolphsdóttir, t.v., og Svava Hjaltalin. DV-mynd Brynjar Gauti
„Ég var hérna í vor en tók mér
frí í sumar og kom svo aftur núna
í haust. Fyrra námskeiðið skilaði
mér mjög góðum árangri og ég
missti mörg kíló á tæpum tveimur
mánuðum. Ég var búin að prófa
ýmislegt áður en ekkert svipað
þessu námskeiði.
Svörin sem ég fékk hérna þegar
ég var að spyrjast fyrir voru svo
notaleg að ég ákvað aö drífa mig
af staö. Samstaöan hérna í hópnum
er feikilega góð og hún hefur allt
aö segja. Stuðningurinn er svo mik-
ilvægur. Þetta er miklu betra held-
en að vera að pukra einn úti í
horni einhvers staðar," sagði
Svava Hjaltalín, kennari úr
Grindavík, en hún er ekkert að
setja það fyrir sig þótt Hress sé
ekki beinlínis við bæjardyrnar hjá
henni. Þrátt fyrir vegalengdina
segist hún mæta í alla tíma enda
þýöi ekkert annað og bætir við að
svona góö líkamsrækt sé ekki til
staöar í hennar bæjarfélagi.
Konurnar á námskeiðinu eru
ekki 'vitund hræddar við seglu-
bandstæki blaðamannsins og engu
skiptir heldur þótt ljósmyndarinn
sé á vappi með tæki sín og tól og
það er htið mál að heyra áht fleiri
á þessu námskeiði. „Ég byijaði um
miðjan maí og hef verið með síðan
með þeirri undantekningu að ég
tók mér smáfrí í sumar. Ég er búin
að missa nokkur kíló og var búin
að reyna ýmislegt sjálf. Það gekk
reyndar ágætlega en kílóin komu
bara jafnharðan aftur.
Á þessu námskeiði er það gangan
sem gerir útslagiö, það er að ná upp
brennslunni. Þegar maður fer sjálf-
ur í þessa megrunarkúra heima
vill oftast gleymast að huga að
hreyfingunni en þetta tvennt, mat-
aræði og hreyfing, verður að fara
sarnan," sagði Guölaug Adolphs-
dóttir, innheimtumaður úr Breið-
holti, og var með það sama rokin
útaðganga. -GRS
Konumar á námskeiðinu:
Gangan gerir útslagið