Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1991, Side 51
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1991. 63 Meiming Slæmur Hamsun Skáldsagan Leyndardómar er samtímasaga. Hún birt- ist 1892 og var ein af fyrstu bókum Hamsuns en hann varð frægur fyrir skáldsöguna Sult, 1890. Saga þessi gerist fyrir réttum 100 árum í litlum bæ í Noregi. Þang- að kemur aðkomumaður; litlar upplýsingar eru gefnar um fyrra líf hans. Það mun vera skýringin á tith sög- unnar að þessi maður verði alla tíð dularfullur í augum bæjarbúa, óskiljanlegt hvað fyrir honum vaki. Samt fylgir sögumaður honum eftir, segir okkur frá flestum gerðum hans og hugsunum, auk þess sem þessi aðal- persóna, Nagel, talar viðstöðuhtið. En hann segir sjálf- ur að það sé ekki alltaf að treysta á orð hans, jafnvel virðist hann ganga undir tölsku nafni. Maðurinn er ríkur og hefur ekkert fyrir stafni annað en að ganga um skóginn og bæinn og hitta fólk. Þetta fólk er þá hótelstjórinn og þerna, læknirinn, kona hans, fulltrúi og prestsdóttirin fagra, einnig tvær per- sónur úr neðsta lagi samfélagsins, karl og kona. Auk þess kemur kona úr fortíð Nagels í stutta heimsókn. Þessar persónur hafa að nokkru leyti hver sín sér- kenni. Læknirinn er fyrst og fremst fulltrúi 19. aldar fijálshyggju. Kappræður þeirra Nagels virðast um- fram allt vera til að skjóta á trú læknisins á skynsemis- hyggju, lýðræði og framfarir, með öðrum orðum, hann er kannski einkum tilefni til að koma inn í bókina í reiðilestrum gegn Ibsen, Tolstoj, Gladstone og öðrum sem Hamsun virðist hafa veriö uppsigað við (bls. 137 o.áfr.). Þessar rökræður eru að mínu mati bara geð- vonskuraus því þær skipta engu fyrir framvindu bók- arinnar og litlu fyrir mynd aðalpersónunnar. Vissu- lega fáum við nokkrar yfirlýsingar um skoðanir henn- ar, svo sem um að tilveran sé leyndardómsfyllri en svo að vísindatrú geti skýrt hana en þessu er lítt fylgt eftir þótt Nagel segi nokkrar sögur af dularfullri reynslu sinni eða draumum. Slíkar sögur eru hins vegar það besta í bókinni (einkum bls. 76 o.áfr.). Aðrar persónur eru tómir skuggar, með öðrum orð- um þær eru bara snagar fyrir Nagel að hengja tilfinn- ingar sínar á. Dagný prestsdóttir er honum bara til- efni til að vera ástfanginn, fulltrúinn veitir Nagel til- efni til að vera hugaður - en því miður aðeins í upp- hafi sögunnar, síðan er hann skriðdýrslegur gagnvart fulltrúanum en engin skýring fæst á þessum umskipt- um. Og fátæklingarnir tveir eru ósjálfstæðastir allra persóna. Karlmaðurinn er skotspónn samfélagsins, almennt er hæðst að honum og hann kvalinn. Konan er fátæk, þakklát fyrir velgjörðir og ekkert meir. Á þetta fólk hleður Nagel velgjörðum sem ég held að fáir myndu vilja þurfa að þola. Því Nagel nægir ekki að gefa þeim peninga heldur þarf hann að gera mjög mikið úr því með margendurteknum heimsóknum, samtölum og ráðageröum. Og umfram allt vill hann fá að ráða fyrir þessu fólki. Þessi saga minnir í ytri dráttum á ýmsar bestu sögur Hamsuns, til dæmis Pan og Viktoriu. Þær snúast um eina eða tvær persónur sem eru dularfullar og djúp- ar. Náttúrulýsingar og atvik, draumar persónu og hugsanir, allt er þetta samstillt að því marki að sýna margbrotið sálarlíf persónanna. Og það er einmitt það sem brestur hér. Nagel er ekkert spennandi, hann er bara núll sem langar til að verða númer. Hann sér ekki aðra leið til þess en að þrengja sér upp á annað fólk en reynir ekki að nálgast það á þess eigin forsend- um. Þess vegna er afar þreytandi að fá endurtekna hvað eftir annað fundi hans með þessum skuggum sem hann reynir að stjórna. Að ekki sé talað um blaðrið í honum sem mest fjallar um hann sjálfan og er mjög tilbreytingalítið. Ég gæti sem best trúað að það tæki yfir meira en helming textans en auðvitað hefi ég ekki nennt að athuga það. Gagnvart því tali eru viðbrögð annarra persóna jafnan af þessu tagi: „Hún hlustaði á hann dolfallin." Þessi aðalpersóna minnir á yfirborð- inu töluvert á Myskin í Fávitanum eftir Dostojevskíj. Nagel er óeigingjarn, vill öllum gott gera og er einstak- lega klaufalegur í umgengni við fólk, fer til dæmis að Bókmenntir Örn Ólafsson þusa um tilfinningar sínar í löngu máli þegar hann hittir hóp ókunnugra (bls. 48 o.áfr.). En það gerir gæfu- muninn að í sögu Dostojevskíjs tekst slík persóna, eins konar líkamningur kristindómsins, á við merkilegar, sérkenniiegar persónur í mjög margbrotnu samspili. Hér er bara þusað. Ég held að það sé einmitt meinið í þessari sögu að hún er léleg eftirlíking af Dostojevskíj. Hamsun er hér ekki búinn að ná tökum á efninu þótt hann svo gerði það vel síðar. Ég verð að segja það hreinskilnislega að ég botna ekkert í þýðanda og forlagi að velja þessa bók til útgáfu þegar hugsað er til allra þeirra snilldar- verka sem hefði mátt velja í staðinn. En af því má þá væntanlega sjá að einhverja hrífur þessi saga. Og Norræni þýðingarsjóðurinn styrkti þessa útgáfu. Er það bara vegna þess að höfundurinn er frægur og fékk síöar nóbelsverðlaun eða er sjóðsstjórn í rauninni hrifin af sögunni? Svar óskast. Þýðingin Þýðingin virðist yfirleitt vel gerð. Þýðandi hefur mikinn orðaforða og leikni í að orða hlutina svo eðli- lega að ætla mætti að bókin væri samin á íslensku. Það yrði allt of langt mál hér að tína til dæmi þessa eða rökstyðja á annan hátt. Og það dregur ekki úr gildi þessarar fullyrðingar þótt ég komi með fáeinar aðfinnslur. Það bregður stundum fyrir orðalagi sem vanalega er kallað dönskuskotið enda þótt í þessu til- viki sé það af því að orðlagi norska frumtextans er fylgt of náið. Dæmi: „það hastar ekki“ (bls. 9), „hvern fjandann ragar það mig“ (bls. 31, „angaar" á norsku en þetta er jafndönskuskotið fyrir því), „maður gefur eftir fyrir hinum undarlegu áhrifum" (bls. 201), „hann kíkti inn um gluggann" (bls. 204) í stað: leit inn, „ung- karlaveisla" (bls. 209), og fleira af þessu tagi. Orðið „menntunarskortur“ getur aðeins átt við um andlegt svið og því að kauðalegt að segja (bls. 34): „Guð hjálpi mér hvað þetta ber mikinn keim af hálfmenntun, and- legum menntunarskorti, þetta sem þér voruð að segja", fyrir: „hvor det lyder halvdannet, tarvelig aandelig dannet, det De der sa“. Mér finnst fara mjög illa á því að hafa lýsingarorð í fleirtölu þegar einstaklingur er þéraður. „Þér eruð fagrar" er sagt við tvær konur eða fleiri en „þér eruð fógur“ við eina. Knut Hamsun: Leyndardómar (Mysterier) Úlfur Hjörvar þýddi. Forlagiö 1991, 236 bls. Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 Cherokee Limited, árg. '87, með öllu, upphækkaður hjá Bílabúð Benna, læst drif. Til sýnis á Bílasölu Reykja- víkur, sími 678888 og hs. 91-16497. Toyota Hilux ’89, ek. 40 þ„ V6 vél, 5 gíra, 33" dekk, álfelgur, 100% loftlæs- ing að aftan, loftkæling, topplúga, vökvastýri. Skipti á ódýrari. S. 11061. Camaro, árg. ’84, til sölu, ekinn 85 þús. mílur, rafmagn í öllu, T toppur, nýtt lakk, verð 1100 þús., góður stað- greiðsluafsláttur. Uppl. í síma 91- 623070. Volvo 244 turbo, árg. ’82, beinsk., álfelgur, rafmagn í rúðum og topplúgu. Verð 350 þús. stgr. Uppl. í síma 91-641420. Toyota GTi twin cam, 16 v., árg. ’87, til sölu. Verð 850.000, skipti á ódýrari, skuldabréf, | staðgreiðsluafsláttur. Uppl. í síma 98-22224 og 98-22024. Honda Civic 15 GTi Sport, ekinn 65 þús., rauður, árg. ’87, útvarp/segul- band, sumar- og vetrardekk, toppbíll. Sími 92-68087. Toyota Corolla DX Liftback, árg. ’87, góður bíll, gott verð. Sími 91-32610. Ranger Rover Vogue ’88 til sölu, ekinn 29 þús. km, sjálfskiptur. Toppeintak, skipti. Uppl. i síma 91-27626. Chevrolet Monte Carlo ’87 tll sölu, sem nýr, gulur, selst ódýrt. Uppl. í síma 676337. Kinverska Fordstúlkan Chan Juan Hong sem valin var úr hópi 42 stúlkna í Kína mun einnig taka þátt í Supermodel keppninni á næsta ári. Þetta er i fyrsta skipti sem stúlka frá Kína er með í þeirri keppni. Simamynd Reuter Eileen Ford velur Fordstúlkur: Fordkeppni ífyrsta sinn í Kína - og í annað skipti í Sovétríkjunum Eileen Ford, sem hingað kom í apríl sl., til að velja íslenska Ford- stúlku er þegar byrjuð að velja stúlkur fyrir keppnina á næsta ári. Eileen Ford sem rekur eina þekkt- ustu og virtustu umboðsskrifstofu í heimi hefur verið að ferðast um Asíu og Sovétríkin þar sem hún hefur vahð stúlkur. Ekki er nema rúmt ár síðan Sovétríkin voru með í Supermodelkeppninni í fyrsta skipti. í október var haldin Fordkeppni í Kína í fyrsta skipti. 42 stúlkur víðs vegar frá landinu tóku þátt í keppninni. Hlutskörpust reyndist vera 22ja ára stúlka, Chen Juan Hong frá borginni Shenzhen. Keppnin var haldin í Beijing 29. október og vakti mikla athygh. Eileen Ford óskar soveska vinningshafanum i Fordkeppninni til ham- ingju eftir að úrslit lágu fyrir. Sigurvegarinn Irina Kharlamova mun taka þátt i Supermodel of the World keppninni á næsta ári í Bandarikjunum. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.