Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 4
4 LAU(!AI{Í)A(JUK lfi. NÓVRMHRR 1991. Fréttir Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði: . Fjárhagsáætlun krata marklaust plagg ætla að reyna að koma í veg fyrir kollsteypu í fjármálum bæjarins / „Bæjarstjórnarmeirihluti Alþýðu- flokks virðist í málflutningi sinum enga grein gera sér fyrir alvöru þeirri sem við blasir í fjármálum bæjarins og gerir lítið úr varnaðar- orðum þar að lútandi." segir í bækl- ingi sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði dreifðu á bæj- arstjórnarfundi í vikunni. Segjast þeir ætla að reyna með öllum tiltæk- um ráðum að koma í veg fyrir al- gjöra kollsteypu í fjármálum bæjar- ins. í bæklingnum segja bæjarfulltrú- arnir fjárhagsáætlun Alþýðuflokks- ins fyrir yfirstandandi ár hafa reynst marklaust plagg. Með tilvísun til bókunar, sem þeir lögðu fram við samþykkt fjáhagsáætlunarinnar í febrúar, segja bæjarfulltrúarnir níu mánaða uppgjör bæjarsjóðs leiða í ljós að nánast öll varnaðarorö þeirra hafi reynst þörf. Við atkvæða- greiðslu sátu sjálfstæðismenn hjá enda tók meirihluti bæjarstjórnar ekki mark á athugasemdum þeirra. Máli sínu til stuðnings benda sjálf- stæðismenn meðal annars á að i nýrri endurskoðunartillögu meiri- hlutans sé gert ráð fyrir 144 milljóna króna útgjaldaaukningu og 250 millj- ón krónum í auknar lántökur. í sam- þykktri fjárhagsáætlun hafi hins vegar verið gert ráð fyrir að skuldir lækkuðu um 302 milljónir og stór- felldum niðurskurði á útgjöldum. Skuldir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar í lok september síðastliðins námu tæplega 1,4 milljörðum, þar af voru skammtímaskuldir 422 milljónir. Samanburður á níu mánaða uppgjöri bæjarsjóðs fyrir árin 1990 og 1991 leiðir í ljós að heildarskuldir hafa aukist um 200 milljónir og nettó- skuldir 123 milljónir, þar af 90 millj- ónir frá áramótum. Skuldastaðan jafngildir því að hver fjögurra manna fjölskylda í Hafnarfirði skuldi um 370 þúsund krónur. -kaa Það var skrautleg fylking sem mætti Ijósmyndara DV í gær. Þar fóru gosdósir og tannburstar. Þarna voru saman- komnir MH-nemar á dimission. Krakkarnir eru nú að hefja upplestur fyrir stúdentsprófið og útskrifast væntanlega 21.desember næstkomandi. DV-myndGVA Landsbankinn að skoða Sambandshúsið Sverrir Hermansson, bankastjóri Landsbankans, staðfesti við tíöinda- mann DV að bankinn væri að láta sérfræðinga skoða fyrir sig hús Sam- bandsins á Kirkjusandi. Sem kunn- ugt er hefur Sambandið ákveðiö að seþa húsiö. Sverrir sagði að Landsbankinn væri með húsnæði hingað og þangað í borginni og því væri vel þess virði að skoða Sambandshúsiö. Hann var þá spurður hvort Lands- bankinn hefði peninga til að borga það. Hann svaraði á þá leið að þar þyrfti bankinn ekki að reiða út neitt fé, aðeins að millifæra og skrifa und- ir pappíra. -S.dór Guömundur Ami Stefánsson bæjarstjóri: Gagnrýni sjálfstæðis- manna á sandi byggð - segir skuldir bæjarsjóös lækka um 170 milljónir á árinu „Forsendur þessa bæklings bæjar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins eru all- ar á sandi byggðar og staðreyndum er gjörsamlega snúið við. Það er í sjálfu sér broslegt aö þeir skuli lýsa yftr áhyggjum vegna meintra erfið- leika því þeir sátu hjá þegar fjár- hagsáætlunin var afgreidd í febrúar og einnig núna þegar endurskoðuð áætlun var afgreidd. Frá þeim komu engar tillögur. í raun hafa þeir skilað algjörlega auðu í umræðunni, hvort heldur rætt hefur verið um fjármál eða bæjarmál almennt. Það hefur verið lenska hjá þeim að sjá bara svartamyrkur um miöjan dag og þeir verða bara að fá að hadda sér í þeirri þoku,“ segir Guðmundur Árni Stef- ánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Guðmundur Ámi segir það rangt hjá sjálfstæðismönnum að skuldir bæjarsjóðs aukist á þessu ári. Þvert á móti lækki þær um 170 milljónir. Um síðustu áramót hafi heildar- skuldir verið 1.435 milljónir. í lok september hafl skuldastaðan verið 1.389 milljónir en í árslok sé gert ráð fyrir að hún veröi um 1.270 milljónir. Þá segir hann það bera vott um trausta fjármálastjórn hjá alþýðu- flokksmönnum aö við endurskoðun fjárhagsáætlunarinnar frá í febrúar nam breytingin ekki nema 7 prósent- um, sé tekið mið af heildarveltu bæj- arsjóðs. „Á síðustu mánuöum ársins 1990 stóðum við í miklum framkvæmdum og skuldirnar jukust. Núna erum við hins vegar komnir yfir fram- kvæmdatímabilið þannig að skuld- imar koma til með að lækka. Staö- reyndin er sú að við lækkum skuld- imar eilítið minna en viö ætluðum okkur. Við höfum ekki verið í stór- verkefnum en þó fariö í fleiri verk- efni en við ætluðum. Staðan er mjög traust og örugg. Það er enginn harmagrátur í Hafnafirði," segir Guðmundur Árni. -kaa Hótel Stefanía á Akureyri: Uppboðinu á húseignum áf rýjað til Hæstaréttar - kröfur í innbú og búnaö nema 92 milljónum króna Oylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri: Gjaldþrot Hótel Stefaníu á Akur- eyri hefur tekið á sig ýmsar myndir og viröist sem tafir geti orðið á því að málið verði til lykta leitt. Fyrsti skiptafundur hótelsins var haldinn nú í vikunni og komu fram kröfur að upphæð 92 milljónir króna í innbú og búnað hótelsins og þar af em al- mennar kröfur yfir 60 milljónir. Húseignirnar Hafnarstræti 83-85-88, sem vom eign samnefnds hlutafélags, voru seldar á nauðung- amppboði í síðasta mánuði. Kaup- endur vom Byggðasjóður og Ferða- málasjóður. Þessu uppboði hefur nú verið áfrýjað til Hæstaréttar. Hótel Stefanía var í eigu samnefnds hlutafélags og var tekið til gjald- þrotaskipta en rekstur hótelsins hafði áður verið leigður Ingunni Ámadóttur sem er eiginkona Stefáns Sigurðssonar, fyrrum hótelstjóra og aðaleiganda hótelsins og fasteign- anna. Hreinn Pálsson lögmaður, sem skipaður var skiptastjóri Hótel Stef- aníu á fyrsta skiptafundi, segir að leita þurfi leiða til að fá þessum leigu- samningi rift en hann mun hafa ver- ið gerður til ársins 2000. Hreinn sagði einnig í samtali við DV að búnaður hótelsins, s.s. lausa- munir á herbergjum, áhöld í eldhúsi og fleira sem nýtt er af núverandi leigutaka hótelsins, sé notaður í heimildarleysi enda eign þrotabúsins og á því máh þurfi að taka. Það mun hins vegar vera í verkahring Byggða- sjóðs og Ferðamálasjóös, sem keyptu fasteignimar, að losa þær undan þessum rekstri og samkvæmt heim- ildum DV eru slíkar aðgerðir fyrir- hugaðar á næstunni. En þar sem uppboðinu á fasteignunum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar kann að verða bið á að lausn fáist varð- andi það mál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.