Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Síða 9
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992.
9
Reglubundinn sparnabur meö þríþœtt hlutverk
Sparileiö 5 er tvímœlalaust ein arövœnlegasta spamaöarleiöin á fjármagnsmarkaönum.
Segja má aö Sparileiö 5 gegni þríþœttu hlutverki.
Leib ab eigin húsnœbi
í fyrsta lagi sameinar Sparileiö 5 spamaöarkosti fyrir þá sem hyggja á kaup, endurbætur eöa
byggingu eigin húsnœöis.
Leib ab eigin varasjóbi
í ööru lagi er Sparileiö 5 sniöin fyrirþá sem vilja byggja markvisst upp eigin varasjóö fyrir
seinni tíma. Þá er einnig vel til fundiö aö sameina fyrirhyggju og skatthagrœöingu meö því aö
leggja til hliöar reglulega upphœö sem þú getur látiö börnin þín eöa barnabörn njóta góös afsíöar.
Leib til lœkkunar á sköttum
í þriöja lagi gefur spamaöur á Sparileiö 5 möguleika á ríflegum skattafslætti sem nemur fjórö-
ungi árlegs innleggs á reikninginn. Viö álagningu skatta kemur afslátturinn til lœkkunar á
tekju- og eignarskatti álagningarársins.
Raunávöxtun, lánsréttur og binditími
Vextir á Sparileiö 5 eru verötryggöir og miöast viö aö vera hagstæöasta inniánsform
bankans hverju sinni, sem tryggir stööuga og ríkulega raunávöxtun.
Sparileiö 5 erþœgileg leiö til lántöku til langs tíma, þvíílok binditíma öölast
reikningseigandi sjálfkrafa rétt á láni frá íslandsbanka. Lánsupphæö og endur-
greiöslutími (lánstími) tekur miö aflengd sparnaöartíma svo og upphæö sparnaö-
ar. Sparileiö 5 er bundin til þriggja, fimm eöa tíu ára samkvœmt ákveönum reglum.
Dœmi um sparnaö og ávöxtun á Sparileib 5:
Þú ræöur sparnaöarupphœöinni sem þú leggurfyrir, innan vissra marka,
en ídœminu hér aö neöan ergert ráö fyrir aö kr. 10.000 séu lagöar inn mánaöarlega.
Verötryggöir vextir eru 7%, þeir reiknast mánaöarlega og eru lagöir viö höfuöstól í árs
lok. Skattafsláttur er 25% og reiknast af heildarinnleggi hvers árs.
Sparnabartími 3 ár 5 ár 10 ár
Samtals innlagt 360.000 600.000 1.200.000
Vextir alls 38.165 112.229 511.167
Skattafsláttur 90.000 150.000 300.000
Samtals vextir og skattafsláttur 128.165 262.229 811.167
Uppsöfnuð raunávöxtun 22,83% 15,97% 10,94%
Lokastaba með vöxtum 398.165 712.229 1.711.167
Lánsréttur 1.000.000 2.000.000 2.000.000
Lánstími 6 ár 10 ár 10 ár
Samtals til ráðstöfunar að sparnaðartíma loknum: 1.398.165 2.712.229 3.711.167
Forsendur: Allar tölur eru á föstu verölagi og ávallt er mibab vib ab lagt sé inn í lok hvers mánabar.
Meö tilliti til skattafsláttar, verötryggingar og ávöxtunarkjara má
þvíhiklaust fullyröa aö Sparileiö 5 sé ein arövænlegasta spamaöarleiöin
á fjármagnsmarkaönum. Allar nánari upplýsingar ásamt leiöarvísi
fœröu hjá starfsfólki íslandsbanka.
STÖÐVUM BÍLINN
ef viö þurfum aö
tala í farsímann!
UiyiFEROAR
í kjölfar sýningar á íslenska hestinum í Hollywood:
Megumekki
missa dampinn
„Ég var aö ríða út með forstjóra
Wamer kvikmyndafyrirtækisins,
Michael J. Solomon fyrir áramót en
ég seldi honum þrjá hesta. Þar sem
við fórum varð ég var við gífurlegan
áhuga vegfarenda á íslenska hestin-
um. Maður komst varla fetið fyrir
forvitnu fólki. Þá vaknaði sú hug-
mynd að hefja markaðssetningu á
íslenska hestinum í Bandaríkjunum
og fá fagmenn í markaðssetningu og
hestamennsku til aðstoðar. Þetta var
upphafið að atburðarás sem leiddi til
eindæma vel heppnaðrar sýningar á
íslenska hestinum í mars og er von-
andi upphafið að viðtækri markaðs-
setningu á íslenska hestinum
vestra," sagði Þórarinn Jónasson í
Laxnesi í samtali við DV.
Hestaleigan í Laxnesi og Flugleiðir
stóðu, auk fjölmargra aðila, að mjög
velheppnaðri sýningu á íslenska
hestinum á Hollywood Benefit Horse
Show, sýningu sem haldin var í
Hollywood fyrr í mánuðinum. ís-
lensku hestarnir vöktu gífurlega at-
hygli og hrifningu. Láta má nærri
að um 25 milljónir manna víðs vegar
um Bandaríkin hafi séð "íslensku
hestana í sjónvarpi frá sýningunni.
Fjölmargar kvikmyndastjömur
styrkja sýninguna en Patrick Duffy
(Bobby úr Dallasþáttunum) bar mik-
iö lof á íslenska hestinn eftir að hafa
farið á bak einum þeirra.
Sigurður Ragnarsson, hestamaður
og hestaútflytjandi, sá um almanna-
tengsl og önnur samskipti.
„Það er mikilvægt að standa rétt
að markaðssetningú íslenska hests-
ins og það teljum við okkur hafa gert
með því að koma honum á jafn
þekkta sýningu. Við höfum ákveðið
að hafda okkur við Kaliforníufylki
en erum engu að síður að athuga
möguleikann á að senda flokk hesta-
manna með íslenska hestinn á sýn-
ingar í fleiri fylkjum. Við höfum
ákveðið að vera ekki með neinar yfir-
lýsingar um stórkostlega möguleika
eða árangur en viðbrögðin eftir sýn-
inguna lofa óneitanlega góöu,“ sagði
Sigurður.
Sigurður og Ragnar segja að þeir
hafi komist í samband við tvo um-
boðsmenn sem mundu hafa íslenska
hesta á sínum snærum og einn bú-
garð. Þeir segja að eftir sýninguna
sé mikilvægt að láta ekki deigan síga.
Fjölhæfni hreif
„Við þurfum mjög á stuðningi aö
halda, fjárhagslegum og ekki síst
mórölskum, til að missa ekki damp-
inn. Nú er mjög mikilvægt að halda
þessu starfi sem hafið er áfrarn,"
segja Þórarinn og Sigurður.
A sýningarsvæðinu í Hollywood
var íslenskur bás sem vakti athygh
gesta. Margar fyrirspurnir komu
varðandi keppni í tölti og hvemig
slíkri keppni yrði háttað.
„Töltkeppni mundi auka enn
áhuga á íslenska hestinum en það
er fleira sem kemur til. Fólk hreifst
ekki síst af fjölhæfni íslenska hests-
ins. Hér eru hestar sem keppa í gang-
tegundum, „saddle-breed“-hestar en
þeir notast nær eingöngu á sýning-
um. íslenski hesturinn býður hins
vegar upp á græna byltingu með fjöl-
hæfni sinni. Hann verður fljótt vinur fjölhæfnin sem opnar íslenska hest-
manns og öll fjölskyldan getur riðið inum leiðir vestra."
út í náttúnmni. Það er umfram allt -hlh
Einar öder Magnússon knapi hugar að einum íslensku hestanna fyrir hesta-
sýninguna i Hollywood.
Þú fœrð ríflegan skattafslátt
og ríkulega raunávöxtun
á Sparíleið 5