Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 18
18 Veiðivon Verða hálfsjálfvirkar byssur bannaðar? „Skotveiðimönnum er heitt í hamsi þessa dagana og þeir fjölmenntu á fundinn í Odda um síðustu helgi. Frumvarpið á Alþingi um okkar mál er bæði gott og vont,“ sagði Sverrir Sch. Thorsteinsson, varaformaöur Skotveiðifélags íslands, í samtali við DV í vikunni. „Það má margt laga í þessu frum- varpi um vemdun, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum, öðr- um en hvölum. Ef frumvarpið nær í gegn þýðir það að allar hálfsjálfvirk- ar byssur, fimm skota, verða bannað- ar. En í landinu eru til þúsundir af þessum byssum sem kosta frá 50 til 150 þúsund. Þær eru 300-400 milljóna króna virði, sýnist mér. Við viljum að allir beri veiðikort, hvort sem það eru skotveiðimenn eða bændur. Þaö er ýmislegt sem skotveiðimenn ræða um sín á milli um þessar mundir, okkur frnnst að okkur vegið," sagði Sverrirennfremur. -G.Bender Skotveiðimenn, sem mættu á fundinn í Odda, voru áhyggjufullir vegna þess að þeim finnst að sér vegið þessa dagana. DV-mynd Sverrir Verðmæti þeirra 300-400 milljónir Bakkabræöur með leynivopnið fyrir sumariö Bjarni Jónsson, einn félaga í veiðifé- laginu Bakkabæðrum, með laxa- strekkjarann. DV-myndir HÞ „Við viljum hugsa um alla og þess vcgna höfum við framleitt þennan grip,“ sögðu þeir félagamir í veiðifé- laginu Bakkabræðrum í vikunni. „Hérna er loksins komið það sem allir hafa beðið eftir og flestir hafa þráð. Hinn eini sanni laxastrekkjari. Þetta frábæra tæki, sem allir veiði- menn þurfa að eignast, er upprunnið úr hugmyndasmiðju Bakkabræðra. Notkunin er mjög einfold sért þú svo óheppinn að fá t.d. lítinn fisk. Þú skerð haus og sporð, setur hausinn og sporðinn á strekkjarann. Sokkur- inn á ostrekkjaranum á þessum myndum er silfraður, það er hægt að fá hann í tveimur htum. Silfur fyrir vorfiskinn og síðan grágrænan vegna leginna haustfiska," sögðu þeir í Bakkabræðrum og tóku fram að þetta væri ekki það síðasta sem þeir ætluðu að framleiða fyrir stangaveiðimenn. -G.Bender Og á þessari mynd sýnir Bjarni hvernig hægt er aö strekkja á fiskin- um ef hann er lítill. LAUGARDAGUR 28. MARS 1992. Neglan Fyrir mörgum árum þurfti hrcppstjóri einn, sem ekki var ýkja vinsæll á meðal sveitunga sinna, að fá sig feijaðan yflr á- næsta fjörð. Hann var óvanur sjó- ferðum og kunni lítt að róa. Feijubóndinn varenginn vinur Imeppstjónms en þóttist ekki geta synjað honum um farið þar sem lögforja vará bænum. Þegar þeif komu að ferjubátnum mælti bóndi: „Báturinn hriplekur svo að hreppstjórinn sjálfur verður að ausa rösklega alla leiðina." Hreppsijórinn sá að ekkí var um annað aö ræöa, enda erindi hans brýnt Alla leiðina jós hann þvi í dauðans ofboði og haföi naumast undan, svo mikið lak báturinn. Þegar þeir voru komnir yfir fjöröinn steig hreppstjórinn á land, kófsveittur eftir áusturinn, glotti meinfýsinn og sagði viö bónda: „Hvernig ætlar þú svo að komast yfir aftur, spekingurinn? Ekki getur þú bæði róið og aus- ið?“ „Ætli ég setji ekki bara negluna í,“ svaraðí bóndi, rólega, og end- urgalt glottið. Kröftug messa Eftirfarandi auglýsing hékk eitt sinn á kirkjudyrum í þorpi aust- anlands: „Séra Jón Vigfússon mun messa klukkan 11 árdegis næsta sunnudag. Síðan verður kirkj- unni lokað í mánuð vegna nauð- synlegra viðgerða." Vitnið Skömmu eftir aldamótin 1900 var maður í Reykjavík kæröur fyrir að hafa stolið hesti. Hann var þó sýknaður sökum þess að vitni sór kö þaö hefði vitað hest- inn í eigu hans frá því „hrossið var folalú“. Nokkrum dögum síðar var sarai maður ákæröur, nú fyrir að hafa stolið stórri silfurskeið. Aftur var sama vitni kallað fyrir og fullyrti það enn sem fyrr að maöurinn væri alsaklaus „enda heföi silfur- skeiðin verið i hans eigu alveg frá þvi hún var lítil teskeið". Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimiiisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. yerðlaun: SHARP stereo ferðaútvarpstæki með kas- settu að verðmæti kr. 6.380 frá Hljómbæ, Hverfisg. 103. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur að verðmæti kr. 3.941. Bækumar, sem em í verðlaun, heita: Á elleftu stundu, Falin markmið, Flugan á veggnum, Leik- reglur, Sporlaust. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 132 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundrað fertugustu og sjöttu getraun reyndust vera: 1. Finnbogi Pétursson Víðinesi, 270 Mosfellsbæ. 2. Borghildur Baldursdóttir Laxagötu 2, 600 Akureyri Vinningamir verða sendir heim. Heimilisfang:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.