Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 44
56 LAUGARDAGUR 28. MARS 1992. F YLLIN G AREFNI Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæðu veröi. Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi sand og möl af ýmsum gróíleika. Sævarhöföa 13 - sími 681833 Tónleikar í Norræna húsinu Tónlistarskólinn í Reykjavik heldur tón- leika í Norræna húsinu mánudaginn 30. mars kl. 20.30. Á tónleikunum flytja Hild- ur Þórðardóttir flautuleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari Sónötu nr. 2 i Es-dúr eftir J.S. Bach, Inn- gang og tilbrigði við „Trockne Blumen" í E-dúr op. 160 eftir Schubert, Bergingu fyrir einleiksflautu eftir Atla Ingólfsson og Sónötu nr. 2 í D-dúr op. 94 eftir Prokofi- eff. Tónleikamir eru síðari hluti einleik- araprófs Hildar frá skólanum og er að- gangur ókeypis. Einsöngstónleikar Öldu Ingibergsdóttur Alda Ingibergsdóttir sópransöngkona heldur tónleika í Hafnarborg í Hafnar- firði mánudagskvöldið 30. mars kl. 20.30. Á efnisskránni eru m.a. sönglög og aríur eftir Purcell, Mozart, Bellini, Verdi, Biz- et, Puccini, Richard Strauss og Þórarinn Jónsson. Ólafur Vignir Albertsson hefur lengst af unnið með henni sem píanóleik- ari og verður hann meðleikari hennar á tónleikunum. Vortónleikar Lúðra- sveitarinnar Svans Hinir árlegu vortónleikar Lúðrasveitar- innar Svans verða haldnir í Bústaða- kirkju sunnudaginn 29. mars kl. 17. Nýtt yfirbragð verður á þessum tónleikum þar sem nýlega hefur verið skipt um stjóm- anda. Stjórnandaskiptin fóm fram í lok janúar og hefúr lúðrasveitin síðan æft af kappi undir stjóm nýja stjórnandans, Amar Óskarssonar, sem tók við af Ro- bert Darling. Meðal verkefna á efnis- skránni er íslenskt verk, Svite Arctica, eftir Pál Pampichler Pálsson í útsetningu Roars Kvam. Einnig verða flutt Sverða- dansinn eftir Khachaturian, West Side Story, þema úr „Grikkjanum Zorba“, An Outdoor Overture eftir Copland og fleira. Tónleikar Kórs Fjölbrauta- skólans í Breiðholti Kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti held- ur tónleika í Fella- og Hólakirkju laugar- daginn 28. mars kl. 17. Stjómandi kórsins er Ema Guðmundsdóttir og meðleikari á píanó í nokkrum lögum, sem kórinn syngur, er Vilberg Viggósson. Á efnis- skrá er fjölbreytt tónlist frá ýmsum tím- um. Sönghópurinn 1 og 8 villt syngja. Allir em velkomnir á tónleikanna. Andlát Anna Stefánsdóttir fyrrverandi ; kennari frá Eyjardalsá, lést á Akur- eyri að morgni 27. mars. Námskeið Breyttu áhyggjum í upp- byggjandi orku Fundarstjóm, framkoma, vald og skyld- ur, fundarsköp, kosningar, atkvæða- greiðsla, að koma máli á framfæri, tfl- löguflutningur og margt fleira. ITC held- ur þetta námskeið tvö kvöld, 30. og 31. mars kl. 20, bæði kvöidin í Síðumúla 17, Reykjavik, húsnæði frimerkjasafnara. Öllum er heimfll aðgangur, jafnt félags- mönnum ITC sem öðrum. Állar nánari upplýsingar veitir blaöafulltrúi ITC, Guðrún Lilja Norðdahl, sími 91-46751. Ferðalög Ferðafélag íslands Sunnudagsferður 29. mars 1. kl. 10.30 Skíðaganga yfir Leggja- brjót. Gamla þjóðleiðin frá Þingvöllum í Hvalfjörð. Heimkoma um kl. 18. 2. Kl. 10.30 Þingvellir í vetrarskrúða. Stutt og skemmtileg ganga fyrir alla fjöl- skylduna. Heimkoma um kl. 15.30. 3. Kl. 13 Skíðaganga á Hellisheiði. Góð skíðaganga við allra hæfi. 4. Kl. 13 Skálafell-Hellisheiði. Eitt af bestu útsýnisfjöilum suðvestanlands þótt ekki sé það mjög hátt. Brottfór frá Um- ferðarmiðstöðinni, austanmegin. (Við- koma við nýja félagsheimili Ferðafélags- ins að Mörkinni 6). Fundir Kattavinafélag íslands Aðalfundur Kattavinafélags íslands verður haldinn sunnudaginn 29. mars kl. 14 í húsi félagsins, Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík. Venjuleg aðalfundarstörf. Tapaðfundið Lyklar fundust Tveir lyklar fastir við spjald fundust á Grandavegi 20. mars sl. Upplýsingar í síma 33384. Tónleikar Kaffikonsert á Eyrarbakka Laugardaginn 28. mars kl. 16 halda fiðlu- leikarinn Hlíf Sigurjónsdóttir og gítar- leikarinn Símon H. ívarsson tónleika í samkomuhúsinu Stað í samvinnu við kirkjukór Eyrarbakkakirkju. Á efnis- skránni er fjölbreytt tónlist frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar en þar gef- ur m.a. að heyra verk eftir Hándel, Beet- hoven, Paganini, Sarasate, Gunnar Reyni Sveinsson og Albeniz: Kirkjukórinn ann- ast kaöiveitingar og fjöldasöngur við- staddra verður í lok tónleikanna í tilefni af ári söngsins. Innilegar þakkir til ailra þeirra er minntust mín á sjötíu ára afmæli mínu, 12 mars sl. Bestu þakkir fyrir allar árnaðaróskir skeyti, blóm og allar aðrar góðar gjafír. Margir glöddu mig með nærveru sinni og gerðu mér þessi tímamót ógleymanleg. Kærar kveðjur til ykkar allra. Guðmunda Júlíusdóttir, Siglufirði STANGAVEIÐISKOLINN Veiðimenn Fyrsta námskeið vorsins hefst mánudaginn 30. mars í sal SVFR, Háaleitisbraut 68, kl. 20. Hvert námskeið stendur tvö kvöld (mánud. og þriðjud.). Þátttökugjald kr. 6.500. Innritun er i Veiðideild, sími 679955 2 Vortónleikar Lúðra- sveitar verkalýðsins Laugardaginn 28. mars verða árlegir vor- tónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins haldnir í Langholtskirkju og hefjast þeir kl. 17. Að vanda verður efnisskráin fjöl- breytt og væntanlega viö allra hæfi. Stjómandi lúðrasveitarinnar er Malcolm Holloway. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis Tilkyimingar Fornbókamarkaður í Undralandi Fombókamarkaður verður á markaðs- torgi Undralands, Grensásvegi 14, í dag, 28. mars kl. 11-18 og sunnudaginn 29. mars kl. 12-18. Þama verða tfl sölu um 800 titlar nýlegra og eldri bóka og tíma- rita, það elsta frá árinu 1730. Bækumar em úr einkasafni og geta allir fundið eitt- hvað við sitt hæfi, ævisögur, ferðabækur, skáldsögur, ljóðabækur, guðsorð, fomrit og margt fleira. Myndgáta i>v Félag eldri borgara Félagsvist spiluð á sunnudag kl. 14. Dans- að í Goðheimum kl. 20. Silfurlínan s. 616262. Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borgara alla virka daga kl. 16-18. Aðstoð við að versla, menn til viðgerða og fleira. Laugarneskirkja Nýöldin í Ijósi kristninnar Mánudaginn 30. mars kl. 20.30 verður síðasta safnaðarkvöldið í Safnaöarheim- ili Laugameskirkju í vetur. Fyrirlesari verður dr. theol Einar Sigurbjömsson prófessor en hann ræðir um efnið: „Ný- öldin í ljósi kristninnar". Einnig munu Gústaf Jóhannesson og Sigrún Gústafs- dóttir flytja tónlist fyrir flautu og píanó. Þá verður boðið upp á kaffi en kvöldinu lýkur með helgistund i kirkjunni. Safnað- arkvöldið er öllum opið. Kvöldmessa í Hafnar- fjarðarkirkju Sunnudaginn 29. mars fer fram kvöld- messa í Hafnarfjarðarkirkju og hefst hún kl. 20.30. Kvenfélagskonur úr Útskála- sóknum heimsækja þá kirkjuna. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur á Útskálum, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Fermingarböm sýna helgfleik. Kaffisamvera fer fram í boði Kvenfélags Hafnaríjarðarkirkju eftir messima í Álfafelli. Samtök herstöðva- andstæðinga Dagskrá verður á Hótel Borg mánudag- inn 30. mars kl. 20.30 að vegum Samtaka herstöðvaandstæðinga. í tilefni þess að í ár em samtökin 20 ára. Á dagskrá verður m.a. upplestur, ávörp, söngur og fleira. Pizza Hut opnar nýjan veitingastað Sunnudaginn 29. mars mun Pizza Hut opna nýjan veitingastað í Mjódd, nánar tfltekið í húsi Strætisvagna Reykjavikur. Þessi veitingastaður mun verða númer 8410 í heiminum hjá Pizza Hut-keðjmmi. Staðurinn tekur 60 manns í sæti og mun bjóða sömu þjónustu eins og Pizza Hut á Hótel Esju. Jafnframt em bjór og léttvin á boðstólum. Þjónað er til borðs. Heim- sendingarþjónusta frá Pizza Hut í Mjódd verður í Breiðholt, Árbæ, Grafarvog, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Þönt- unarsími Pizza Hut í Mjódd er 682208. Pizza Hut á íslandi er algjörlega í eigu íslenskra aðfla. Nýjungar í rafsuðu Fjölmargar nýjungar á sviði rafsuðu og rafsuöuvéla frá Lincoln/Norweld verða kynntar í sýningarsal Sindra í Borgar- túni 31 laugardaginn 28. mars frá kl. 10-16. „Opið hús“ í Háskóla Islands Hið árlega „opna hús“ Háskóla íslands verður nú haldið öðm sinni í Þjóðarbók- hlöðu sunnudaginn 29. mars kl. 13-19. Kynnt er starfsemi Háskóla íslands og aðrar námsleiðir sem í boði em eftir eða upp úr miðjum framhaldskóla. Um er að ræða kynningu á öllum námsleiðum Há- skólans. Auk þess er nám innan 20 sér- skóla kynnt. Háskólabíó býður bömum gesta tfl kvikmyndasýninga kl. 13 og 15. „Prinsessan á bauninni" í bíósal MÍR Sl. sunnudag var fræg Hamlet-mynd með rússneska leikaranum Innokentíj Smokt- únovskfj í titflhluverki sýnd í bíósal MÍR. Nk. sunnudag, 29. mars, kl. 16 verður önnur kvikmynd með þessum fræga leik- ara sýnd á sama stað. Það er mynd úr allt annarri átt, „Prinsessan á bauninni" (Printsessa na goroshine). Kvikmynd þessi er byggð á ævintýri H.C. Andersen þar sem sagt er frá leitinni að prinsessu sem væri samboðin prinsinum, erfingja krúnunnar í konungsríkinu. Auk Smokt- únovskíjs fara margir aðrir kunnir leik- arar með hlutverk í myndinni: Alísa Freindlikh, Svetlana Orlova og Alexand- er Kaþagin. Leikstjóri er Boris Rytsarév. Rússneskt tal er í myndinni en skýring- artextar á dönsku. Áðgangur er eins og vant er ókeypis og öllum heimill. Ráðstefnur Ráðstefna á Hvanneyri Dagana 30. og 31. mars verður haldin ráðstefna á Hvanneyri um nýtingu bú- fjáráburðar á íslandi. Ráðstefnan er skipulögð af Búvísindadefldinni á Hvanneyri og er haldin til heiðurs Guð- mundi Jónssyni, fyrrum skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri, en búfjárá- burður og nýting hans var eitt þeirra verkefna sem hann lagði mesta áherslu á í kennslu sinni á Hvanneyri. Á ráð- stefnunni verður fjallað um rannsóknir á búfjáráburði. Einnig verður fjallað um efnamagn og verðmæti búfjáráburðar, tækni við meðhöndlun og þjöppun jarð- vegs. Fyrirlestrar Málstofa í hjúkrunarfræði Hrund Sch. Thorsteinsson, hjúkrunar- fræðingur og lektor, og Elín J.G. Haf- steinsdóttir hjúkrunarfræðingur flytja fyrirlesturinn Meðferð verkja af völdum krabbameins: könnun á þekkingu, við- horfum og reynslu íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Málstofan verður haldin mánudaginn 30. mars kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.