Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992. 17 Anette Bening sem eiginkona Bugsys i samnefndri kvikmynd. Anette Bening: Hún tamdi Warren Beatty Það hefur varla farið fram hjá þeim sem fylgjast með fræga fólkinu í Hollywood að Warren Beatty er ekki lengur laus og liðugur. Það er ekki nóg með að hann gifti sig á dögunum heldur eignaðist hann líka bam. Bleiuskipti og bamagælur em nú fastur Uður í tiiveru þessa fyrmm súperpiparsveins. Eiginkona Beattys er Anette Ben- ing. Hún er 33 ára gömul og er skyndilega komin í raðir háaðals Hollywoodborgar. Hún er ekki að- eins virt sem hæfileikarík leikkona, hún er konan sem náði að temja Warren Beatty og eignast með hon- um barn - nokkuð sem flestir höfðu afskrifað sem möguieika í lífi Beatt- ys. Um tíma var hún gift leikstjóran- um J. Steven White en það hjóna- band gekk ekki. Bening hefur eytt mestum hluta ævi sinnar á leiksviði eða framan við myndavélarnar. Hún er ættuð frá Kansas. Faðir hennar var tryggingasölumaöur og móðir hennar hafði atvinnu af kirkjusöng. Hún er yngst fjögurra systkina og var einfari í æsku. „Ég gerði mikið að því að ímynda mér og leika ýmis hlutverk í þykjust- unni þegar ég var lítil. Ég man vel eftir frelsinu sem fólst í að geta þóst vera hver sem er,“ segir hún. Bening þótti snemma sýna mikla leikhæfileika. í leikUstarskóla og síð- ar buðust henni mörg ýmis stór hlut- verk í leikritum eftir Ihsen, Tsjek- hov, Shaw og Shakespeare. En það var ekki fyrr en hún fór að sjá kvik- myndina KilUng Fields, sem gerist' í Kambodíu, að henni urðu almenni- lega Ijósir hinir gífúrlegu möguieikar kvikmyndanna. „Þetta verð ég að reyna," hugsaði hún. Hún reyndi fyrir sér á öUum mögu- legum sviðum, kvikmyndum, aug- lýsingum og fleiru, en fékk margar neitanir. í dag er hún fegin því að henni finnst svo mikið af lélegu efni hafa verið í boði. Til að gera langa sögu stutta hefur hún leikið í nokkrum kvikmyndum og getið sér gott orð. Meðleikarar eins og Harrison Ford og Robert De Niro hafa borið á hana lof. í mynd-_ inni Bugsy leikur hún gegn eigin- manni sínum sem einnig leikstýrir. Hún leikur þar eiginkonu Bugsys Malone, glæpons á flmmta áratugn- um, sem haslaði sér völl í spflavítum Las Vegas. Hún þykir standa sig bet- ur en eiginmaðurinn, skapa trúverð- ugri mynd af eiginkonu Bugsys en Beatty af Bugsy sjálfum. Hann er þó tilnefndur til óskarsverðlauna sem besti leikari en hún ekki. Hamingjan leynir sér þó ekki: „Þetta er besti tími Ufs míns og ég er mjög hamingju- söm,“ segir Bening og hugar að bleiu- skiptum. ^CGGJA GR^ 2? ^fíKUR EINN * 7\ \ '***’, il| kWM’áá k Þegar (dú skráir þig í Vaxtalínuna opnast þér ýmsir möguleikar: Félagar fá Vaxtalínubol um leið og þeir skrá sig - þeim að kostnaðarlausu. HRAÐKORT veitir aðgang að 25 hraðbönkum. Hægt er að millifæra af Gullbókarreikningi yfir á hrað- bankareikning*. Þeir foreldrar sem láta unglinga fá vasapeninga geta samið við bankann um að láta millifæra af sínum reikningi yfir á reikninga barna sinna. *. AFSLÁTTARKORT veitir þér afslátt á ýmsum matsölustöðum, sólbaðs- stofum, myndbandaleigum, tískuverslunum o.fl. um land allt. FJÁRMÁLABÓK er hentug til að fylgjast með stöðu á banka- reikningnum og færa inn útgjöld og gera áætlanir. SKÓLADAGBÓK fyrir félaga 1 byrjun skólaárs. FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ veitir innsýn í hinn flókna heim fjármálanna. VAXTALÍNUVÖRUR Búnaðarbankans á afsláttarverði fyrir félaga. Iþróttatöskur, bolir o.fl. BÍLPRÓFSSTYRKIR eru veittir fjórum sinnum á ári fyrir hluta af bílprófs- kostnaði. Hugmyndasamkeppni í samvinnu við Umferðarráð. LÁNAMÖGULEIKI fyrir félaga sem orðnir eru 18 ára. *Unglingar undir 16 ára aldri sem stofna Hraðbankareikning þurfa samþykki foreldra. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS HVÍTA HÚSID / SÍA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.