Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Page 10
10
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992.
Myndbönd
Fæddur kastari
TALENT FOR THE GAME
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Robert M. Young.
Aðalhlutverk: Edward James Olmos,
Lorraine Bracco og Jeff Corbett.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 96 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Hafnabolti (Baseball) er mjög
vinsæl íþrótt í Bandaríkjunum og
hafa á undanförnum árum verið
gerðar ágætar kvikmyndir sem eru
tileinkaðar íþrótt þessari og má þar
nefna The Natural og Field of
Dreams. Það sem hefur einkennt
myndir um hafnabolta er að íþrótt-
in er sveipuð dulúð og kraftaverk-
um og er Talent for the Game eng-
in undanteknig.
Edward James Olmos leikur
mann sem ferðast um landið í leit
að leikmönnum. Dag einn, þegar
bíllinn hans bilar úti í sveit, sér
hann ungan saklausan pilt sem er
gæddur þeirri orku sem skapar
góðan leikmann og fer með hann
til borgarinnar.
Talent for the Game er ekki eins
góð og fyrnnefndar kvikmyndir en
er engu að síður hin besta aíþrey-
ing þótt maður skilji lítið hvaða
reglur gilda í íþróttinni.
Alltfyrirfrelsið
JUDGEMENT IN BERLIN
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Leo Penn.
Aðalhlutverk: Martin Sheen, Sam
Wannamaker og Sean Penn.
Bandarísk, 1988 - sýningartimi 94 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Nú er ekkert austur og vestur til
í Berlín lengur en Judgement in
Berlin gerist þegar kalda stríðið
var við lýði og múrinn aðskildi
frjálsa og ófrjálsa. Fjallar myndin
um réttarhöld yfir austur-þýskum
flugræningíum sem rændu pólskri
flugvél og létu hana lenda á her-
flugvelli Bandaríkjamanna í V-
Þýskalandi. Þessi atburður kom
Bandaríkjamönnum í mikinn
vanda en þeir voru nýbúnir að
undirrita samning um að skila
flugræningjum.
Martin Sheen leikur dómara sem
fenginn er til að taka að sér málið
og er honum næstum skipað að
dæma flugræningjana til fangelsis-
vistar. Margt verður þó til þess að
dómarinn fer að efast um réttmæti
þess að fóíkið sé dæmt.
Judgement in Berlin er nokkuð
laus viö fordóma gagnvart þeim í
austri og er greinilegt að þíðan er
farin að segja til sín. í heild er um
ágæta og raunsæja mynd að ræða
án þess að hún skilji mikið eftir.
Riddari og skáld
CYRANO DE BERGERAC
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: Jean-Paul Rappenaeau.
Aðalhlutverk: Gerard Depardieu, Anne
Brochet og Vincent Perez.
Frönsk, 1990 - sýningartimi 138 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Rúm fjörutíu ár eru síðan fyrsta
kvikmyndaútgáfan af hinni víð-
frægu skáldsögu og leikriti, Cyrano
de Bergerac, var fyrst gerð og fékk
Jose Ferrer óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í myndinni. Sú mynd þyk-
ir mikil gæðamynd. Steve Martin
gerði síðan fyrir fáum árum nú-
tímaútgáfu í gamansömum stíl sem
hann kallaði Roxanne og þótti sú
mynd einnig takast mjög vel og
ekki hefur franska leikstjóranum
Jean-Paul Rappenau tekist síður
upp en hann leikstýrir stórleikar-
anum Gerard Depardieu í hlut-
verki riddarans með stóra nefið og
er Cyrano de Bergerac mikil gæða-
mynd.
Söguþráöurinn er vel þekktur..
Cyrano er riddari og mikið skáld
sem er mjög ástfanginn af frænku
sinni. Roxanne aftur á móti tjáir
Cyrano að hún sé yfir sig ástfangin
af hermanni sem er undir hans
stjórn og biður hann aðstoðar við
að koma á sambandi þeirra. Til að
fá útrás fyrir ást sína skrifar Cyr-
ano bréf hermannsins til Roxanne
og verður hún svo hrifm af skáld-
legri innsýn unnustans að hún
heimtar að hann tali til sín á jafn
; *fH
M ‘iff' n
Jf ,J
Jil£1
Cyrano de Bergerac (Gerard Depardieu) gerir gys að aðalsmanni á
leiksýningu.
skáldlegan hátt og hann skrifi.
Þarna fara vandræðin að byrja fyr-
ir alvöru því ungi maöurinn er alls
ófær um að tjá sig í orðum...
Cyrano de Bergerac er mikið
sjónarspil gamans og alvöru. Ger-
ard Depardieu fer á kostu.m og er
eins og hlutverkiö hafi verið skrif-
að með hann í huga. Depardieu er
stór og mikill og með stórt nef,
þótt aðeins hafi þurft að bæta við
DV-myndbandalistiim
I þriðja sætí á vinsældalistanum þessa vikuna er Backdraft sem er
spennumynd og fjallar um líf slökkviliðsmanna i stórborg. Aðalhlut-
verkin leika Kurt Russell og Wiiliam Baldwin.
1 (8) Teen Agent
2 (1) TheHardWay
3 (11) Backdraft
4 (3) Fjörkáltar
5 (4) Hudson Hawk
6(2) Shattered
7(6) Arachnophobia
8(5) NewJackCity
9 (5) The Two Jakes
10(9) Naked Gun VA
11 (12) Kiss before Dying
12 (14) The Stranger Within
13 (15) Once around
14 (13) Hrói höttur, prins þjófanna
15 (10) State of Grace
★★
ÆM
í fótspor James Bond
TEEN AGENT
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: William Dear.
Aðalhlutverk: Richard Grieco, Linda
Hunt og Roger Rees.
Bandarísk, 1991 - sýningartimi 85 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Þeir sem hafa fylgst með þátta-
röðinni Booker á Stöð 2 kannast
sjálfsagt við Richard Grieco sem
leikur aðaðlhlutverkið í Teen Ag-
ent. Hann var einnig einn af ungu
mafíuforingjunum í Mobster. í
Teen Agent, sem upprunalega hét
If Looks Could Kill þegar henni var
dreift í Bandaríkjunum, leikur Gri-
eco ungan skólanema, Michael
Corben, sem nýlega hefur veriö
felldur á prófi. Foreldrar hans
ákveða að senda hann til Frakk-
lands á námskeið. Á flugvellinum
verður misskilningur og e’r haldið
að Corben sé hættulegur njósnari
sem ferðast undir þessu nafni. Þeg-
ar til Frakklands kemur er honum
tekið með kostum og kynjum, feng-
inn lúxusbíll og nægir peningar en
í leiöinni sagt að hann eigi komast
að því hver það sé sem er að myrða
háttsetta þingmenn innan Evrópu-
bandalagsins og að hans hlutverk
sé einnig að verja Augustus Ster-
anko (Roger Rees) en búist er við
að hann verði næsta fórnarlamb
morðingjans. Staðreyndin er aftur
á móti sú að Steranko er maöurinn
á bak við moröin og lætur hann
hina stuttu en hættulegu Ilsu
Grunt (Linda Hunt) gera skítverkin
fyrir sig. Eins og við er að búast
lendir Corben í miklum hættum og
ævintýrum.
Söguþráðurinn í Teen Agent er
hið mesta bull og vitleysa. Það er
greinilegt að fyrirmyndin að allri
umgjörð myndarinnar er Bond
myndirnar eins og þær voru þegar
Roger Moore lék 007 þar sem húm-
orinn var í hávegum hafður. Og
stundum tekst að halda uppi mik-
illi keyrslu en Grieco er engin Rog-
er Moore og er heldur tilþrifalítill.
Það er aftur á móti gaman að fylgj-
ast með Lindu Hunt sem fer á kost-
um.
-HK
það, en þrátt fyrir það tapar hann
aldrei þeim sjarma sem einkennir
hann í hlutverkinu. Öll sviðsetning
er sérstaklega vel gerð og er eitt
af mörgu sem hjálpar að gera Cyr-
ano de Bergerac að sérlega eftir-
minnilegri kvikmynd. -HK
★★★
HIDDEN A6ENDA
' k'
M.ui'der... Torture...
CpvmpUönl:J ■
Ógnaröld
HIDDEN AGENDA
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Ken Loach.
Aðalhlutverk: Frances McDormand,
Brian Cox og Brad Dourif.
Bresk, 1990 - sýningartimi 103 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Ken Loach er breskur leikstjóri
sem undanfarin tuttugu ár hefur
verið sér á báti í breskri kvik-
myndagerð. Það líður langt á milli
kvikmynda hjá honum og hann fer
sínar eigin leiðir. Eru myndir hans
yfirleitt mjög pólitískar og Hidden
Agenda, sem sýnd var hér á kvik-
myndahátíð og fékk sérstök verð-
laun á kvikmyndahátíðinni í
Cannes, er engin undantekning.
Hidden Agenda fjallar um atburð
á Norður-írlandi sem gerðist 1982.
Paul Sullivan er bandarískur lög-
fræðingur sem er að rannsaka rétt-
indabrot bresku lögreglunnar í
Belfast. Daginn, sem hann er að
yfirgefa landið, fær hann upp-
hringingu og fer til móts við dular-
fullan aðila en er drepinn af lög-
reglunni. Opinberlega er moröið
skýrt sem réttlætanlegt dráp á að-
ila sem liggur undir grun að styðja
IRA.
Morð þetta vekur mikinn póli-
tískan ótta og er lögreglumaður
sendur frá London til að rannska
málið og kemst hann ásamt unn-
ustu Pauls brátt að sannleikanum
og að morðin tengjast miklu
hneykslismáli innan bresku leyni-
þjónustunnar.
Hidden Agenda er geysisterk og
áhrifamikil kvikmynd og lýsir vel
því viðkvæma og hættulega ástandi
sem ríkir á Norður-írlandi. Myndin
er spennandi og ekki eyðileggur
sterkur og góður leikur Brians Cox
og Frances McDormand. .HK