Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992.
Kvikmyndir
Beauty and the Beast er ekki aðeins fyrir börnin heldur getur öll fjölskyldan notið þessarar hugljúfu kvikmyndar.
Óskarsverðlaunin:
Verður teiknimynd
valin besta myndin?
Beauty and the Beast (Fríða og
dýrið) er á góðri leið með að verða
vinsælasta teiknimynd sem gerð hef-
ur verið. Og hún er ekki aðeins vin-
sæl, hún þykir afbragðsmynd sem
fengið hefur mjög lofsamlega dóma
hjá gagnrýnendum sem margir telja
að hún sé besta kvikmynd ársins.
Það voru samt fáir sem bjuggust
við að hún yrði ein fimm kvikmyr.da
sem tilnefndar yrðu til óskarsverð-
launa sem besta kvikmyndin og er
Beauty and the Beast fyrsta teikni-
myndin sem verður þessa heiðurs
aðnjótandi.
í fyrstu voru það fáir sem héldu
því fram að hún myndi í lokin verða
valin besta kvikmyndin, en eftir því
sem nær dregur afhendingunni fjölg-
ar þeim sem eru þeirrar skoðunar
að baráttan standi á milli Beauty and
the Beast og Bugsy.
Sjálfsagt kannast allir viö hiö
klassíska ævintýri um fallegu, ungu
stúlkuna og samskipti hennar við
ófrýnilegt dýr. Hefur ævintýri þetta
löngum heillað sögumenn og kvik-
myndagerðarmenn. Frægasta kvik-
myndin var gerð árið 1946 af Jean
Cocteau. Sjónvarpsþættir, sem báru
sama nafn og voru meðal annars
sýndir hér, áttu aftur á móti ekkert
sameiginlegt með sögunni nema
nafnið.
Beauty and the Beast gerist í
frönsku þorpi seint á 18. öld. Aðalper-
sónan er Belle, falleg stúlka sem
fmnur leið frá hinu daglega lífi með
því að lesa bækur. Faðir hennar sem
er dálítið sérvitur finnur af tilviljun
kastala þar sem stórt og Ijótt dýr
býr. Er hann fangaöur af dýrinu.
Þegar Belle kemst að þessu býðst hún
til að verða fangi dýrsins ef fóóur
hennar verði sleppt. Hún kemst síð-
an að því að dýrið hefur hjarta og
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
sál mannlegrar veru. í millitíðinni
fréttir Gaston, sem er hrifin af Belle,
hvar hún er fangi og safnar liði tU
að vinna á óskapnaðinum...
Beauty and thé Beast er fimmta
klassíska ævintýrið sem Walt Disney
fyrirtækiö gerir. Sú fyrsta var MjaU-
hvít og dvergamir sjö sem gerð var
árið 1937. Öskubuska var svo gerð
1950 og Þyrnirós 1959. Fyrir tveimur
árum kom svo frá Disney Litla haf-
meyjan rómaða sem einnig fékk mjög
góðar viðtökur.
Eins og í Litlu hafmeyjunni skiptir
tónUstin miklu máli. Howard Ash-
man og Alan Menkin fengu tvenn
óskarsverðlaun fyrir tónUstina við
Litlu hafmeyjuna, bæði fyrir frum-
samda tónUst og besta lag, og er lík-
legt að um endurtekningu verði að
ræða. Þeir fá hvorki meira né minna
en fjórar tilnefningar, þrjú lög þeirra
eru tUnefnd og einnig tónUstin í
heUd. En gleðin mun verða blandin
því Howard Ashman, sem er texta-
höfundurinn, lést rétt áður en mynd-
in var frumsýnd á síðasta ári. Ash-
man var ekki aðeins textahöfundur
þvi hann er einnig aðalframleiðandi
myndarinnar. Áður en hann lést
náði hann að gera söngtexta við
næstu stóru teiknimynd frá Disney,
Aladdin sem verður frumsýnd á
þessu ári. Þess má geta að Ashman
og Menkin sömdu tónlist og texta við
hinn vinsæla söngleik, Litlu hryll-
ingsbúðina.
Hvort sem Beauty and the Beast
fær óskarsverðlaunin sem besta
kvikmynd eða ekki þá hefur hún sett
sín spor á kvikmyndasöguna og
sannar það að ævintýrin gerast enn.
Beauty and the Beast mun að öllum
líkindum ekki verða sýnd hér á landi
fyrr en næsta vetur og þá í einu Sam-
bíóa. Kemur þaö til af því að dreifing-
arréttur fyrir Evrópu verður ekki
leyfður fyrr.
-HK
Bíóborgin:
Herra Johnson
Mister Johnson (Maynard Eziashi) og Harry Rudbeck (Pierce Brosnan)
vinna að vegarlagningu I Afríku.
Bíóborgin hefur nýhafið sýningar
á kvikmynd Bruce Beresford, Mister
Johnson. Um er að ræöa mynd sem
er blanda af gamni og alvöru og ger-
ist í Afríku. Þar segir frá tveimur
ólíkum mönnum sem starfa saman á
krossgötum siðmenningarinnar.
Mister Johnson er afrískur maöur
sem hefur fengið kennslu hjá bresk-
um trúboðum og telur sig hollan
drottningunni og dýrkar allt sem er
breskt. Hann vinnur sem aðstoðar-
maður hjá breskum foringja, Harry
Rudbeck. En ákafi Johnsons í að vilja
gera öllum til hæfis verður tilefni
mistaka hjá honum. Rudbeck er stað-
ráðinn. í koma siðmenningunni á í
héraðinu áður en hann yfirgefur
svæðið og til þess þarf aö leggja veg.
Fyrir Johnson verður þetta einnig
draumur og vinna mennimir báðir
að þessu verkefni, þó hvor með sitt
takmarkið í huga...
Sá sem leikur titilhlutverkiö heitir
Maynard Eziashi. Hann fæddist í
Nígeríu fyrir tuttugu og tveimur
árum en hefur alist upp í Englandi
og hefur eitthvaö leikið á sviði þar
áður. Pierce Brosnan leikur Harry
Rudbeck.
Bruce Beresford gerði Mister John-
son næst á eftir óskarsverðlaun-
myndinni Driving Miss Daisy. Beres-
ford, sem er ástralskur, varð fyrst
þekktur er hann leikstýröi Breaker
Morant. Þar lék aðalhlutverkið Ed-
ward Woodward sem einnig leikur í
Mister Johnson. Aðrar kvikmyndir,
sem Beresford hefur leikstýrt, eru
Crimes of Heart, King David, The
Club og The Tender Mercies. Nýjasta
kvikmynd hans er The Black Rope.
-HK
Sitthvað um
óskarsverðlaunin
AÐGÖNGUMIÐAR aö óskarsverðlaunaíiátiðinni sem veröur aðfara-
nótt þriðjudagsms eru mjög eflirsóttir og erfitt fyrir aðra en þá sem
eiga rétt á að vera viöstaddir aö verða sér úti um miða. Hátíðin verður
haldin í húsi sem tekur 3197 í sæti og er um að ræða mikla fækkun frá
í fvrra þegar sæti voru fyrir 6300 manns. Hverjir skyldu svo fá þessa
miöa? Allir sem tilnefbir eru fá tvo miða hver og það eru 155 aðilar.
Síðar eru miðarnir sem eftir eru seldir meðlimum kvikmyndaademiunn-
ar á 50-200 dollara stykkið. Og er víst að færri komast að en vilja því
meðlimir akademíunnar eru 5431. í fyrra gekk aögöngumiðinn á svört-
um markaði á 1500 dollara miöinn og talið er víst að veröið tvöfaldist nú.
BEIN ÚTSENDING verður á Stöð 2 frá afhendingu óskarsverðlaunanna
og er þaö i fyrsta skipti sem þessi athöfn er sýnd í beinni útsendingu hér
á landi. Ástæðan fyrir þessu er fyrst og fremst sú aö Börn náttúrunnar
er tilnefnd sem besta erlenda kvikmynd. Útsendingin byrjar tvö eftir
miðnætti og er áætlað að hún endi klukkan flmm. Það er Stjömubíó
sem styrkir útsendingu þessa, en Stjömubíó er í lukkupottinum þetta
árið hvað varðar myndir sem tilnefndar em. Fimm krikmyndir sem
hafa veriö eða veröa sýndar í bíóinu fá fleiri en fimm íilnefningar hver,
eru þaö Bugsy (10 tilnefningar), The Prince of Tides (7 tilnefningar),
Terminator 2: Judgement day (6 tilnefningar), The Fisher King (5 tilnefn-
ingar) og Hook (5 tilnefningar). Auk þess hefur Stjörnubíó sýnt undan-
farnamánuði Böm náttúrunnar. Aðrar myndir sem fá fimm tilnefning-
ar eða fleiri eru: JFK (8 tilnefningar), The Silence of the Lambs (7 til-
nefhingar), Beauty and the Beast (6 tilnefhingar) og Thelma and Louise
(6 tilnefningar).
BÖRN NÁTTÚRUNNAR er ein af fimm kvikmyndum sem keppa um
titilinn besta erlenda kvikmyndin, en það voru þrjátíu og fjögur lönd
sem sendu jafn margar kvikmyndir í keppnina. Þegar listinn er skoðað-
ur kemur í ljós að nokkrar þekktar og umtalaðar kvikmyndir frægra
leikstjóra sem sendar vom i keppnina fengu ekki náð fyrir augum The
Foreign Language Film Award Committee, má þar nefna Tvöfalt lif
Veróníku (Pólland), nýjustu kvikmynd Pedro Almodovar Háir hælar
(Spánn), Van Gogh, (Frakkland) og nýjasta kvikmynd hins aldna meist-
ara Akira Kurosawa, Rapsody in August (Japan). Öll Norðurlöndin
nema Finnar sendu myndir í keppnina og verður aö lita á þaö sem enn
einn sigur fyrir kvikmyndagerð á Norðurlöndum að tvær af fjórum
voru valdar.
ÓSKARSVERÐLAUN fyrir bestu erlendu kvikmyndina voru fyrst veitt
1947 og fékk verðlaunin ítölsk kvikmynd, Sciuscia, sem Vittorio de Sica
leikstýrði. Hann fékk aftur óskarsverðlaunin tveimur árum siðar fyrir
myndina Hjólreiðaþjófurinn (Ladri di Biciclette) og nokkrum árum síð-
ar íýrir I gær, í dag, á morgun (II Boom, ieri, oggi domani). Margar
klassískar kvikmyndir hafa fengiö verölaun þessi, má þar nefna kvik-
myndir Rashomon, Seven Samurai og Derzu Ursala, leikstýrðar af
Akira Kurosawa, La Strata, La notti di Cabiria, 8 'ú og Amarcordpallar
leikstýrðar af Federico Felhni og The Virgin Spring (Junfrukálllen),
Through a Glass Darkly (Sasom i en Spegel) og Fanny og Alexander,
leikstýrðar af Ingmar Bergman. Aðrir frægir leikstjórar sem leikstýrt
hafa myndum sem fengiö hafa þessi verðlaun eru Luis Bunuel, Costa
Gavras-og Francois Truffaut svo einhverjir séu nefndir. Af þessu má
sjá að ef Fríðrik Þór Friöriksson fær óskarsverðlaunin fyrir Böm náttúr-
unnar þá er hann kominn í hóp hinna útvöldu.
ÓSKARSVERÐLAUNIN vom fyrst veitt 1927. Þá var tilhögun verðlaun-
anna öðmvlsi, leikarar völdu bestu leikararana, leikstjórar besta leik-
stjórann, framleiðendur bestu kvikmyndina og svo framvegis. Þá voru
meðlinur akademíunnar þrjú þúsund. Fyrsta kvikmyndin sera valin
var besta kvikmynd var Wings með Clara Bow, Buddy Rogers og Cary
Cooper í aðalhlutverkum. Mynd þessi er í dag talin raeðai þekktari
þögulla kvikmynda, en ekki ein af þeim bestu. Bestu leikstjórar voru
tveir, Frank Borzage og Lewis Milestone, besti karOeikarí var valinn
Emil Jannings og besti kvenleikari Janet Gaynor. Naíhið Oscar festist
viö styttuna fáum árum síöar þegar einni starfsstúlku hjá akademiunni
varð aö orði að segja að styttan væri alveg eins og hann Osear frændi.
VANDRÆÐALEGAR uppákomur í sambandi við afhendingu óskars-
verðlaunanna verða oft minnisstæðastar þegar hugsað er til baka og
nóg er af slíkum uppákomura. George C. Scott er eini leikarinn hingað
til sem hefur neitað að taka við verðlaununum, en hann fékk þau fyrir
leik sinn í Patton 1970 og Vanessa Redgrave gerði alla í salnum reiða
þegar hún tók viö verðlaununum fyrir besta leik í aukahlutverki og
úthúðaði gyðingum og hældi Palestínuaröbum. Þegar Marlon Brando
fékk verðlaunin fyrir leik sinn í The Godfather sendi hann unga indíána-
stúlku í sinn stað sem hélt ræðu á indiánamáli. Ein fyndnasta uppákom-
an varð 1973 þegar leikarinn góðkunni David Niven var kominn að því
að afhenda eina styttuna, þá hljóp nakinn maður óvænt yfir sviðið.
Þessi ungi maður var síðan myrtur í San Francisco fimm árum síðar.
AÐEINS TVÆR kvikmyndir hafa fengiö „The Big Five“ (eins og Kaninn
segir) sama áriö, en þaö er besta kvikmynd, besti leikstjóri, besta hand-
rit, besti aöalleikari og besta aðalleikkona. Fyrst var þaö It Happened
One Night, 1934 (leikstjóri, Frank Capra, handrit, Robert Riskin, aðal-
leikari, Clark Gable, aðalleikkona Claudette Colbert) og One Flew Over
the Cuckoo’s Nest, 1975 (leikstjóri, Milos Forman, handrit, Lawrence
Hauben og Bo Goldman, aðalleikari, Jack Nicholson, aðalleikkona, Lou-
ise Fletcher). Sú kvikmynd sem aftur á raóti hefur fengiö flest óskars-
verðlaun er Ben Hur, 1959, en hún fékk ellefu óskara það árið.
KVIKMYNDAAKADEMÍAN bandaríska hefur oft veriö sögð íhaldssöm.
Og ákveðinn sannleikur er til í þessari gagnrýni. Meðalaldur meðlima
akademíunnar er hár eöa um fimmtíu ár og flestir sem í henni eru
starfa við hinn heföbundna kvikmyndamarkað. Ungir og reiðir leikstjór-
ar eiga litla möguleika á tilnefningum, hvað þá verðlaunum. Það sem
hefur þó helst komiö sérfræðingum á óvart er hvað Steven Spielberg
er illa séður innan akademíunnar. Má geta þess að The Color Purple
fékk tíu tilnefningar en engin verðlaun. En hvernig myndir skyldu svo
vera í náöinni? Ef litið er á þær kvikmyndir sem valdar hafa verið best-
ar kemur í ljós að dramatískar myndir hafa yfirburði, kvikmyndir sem
byggðar eru á sögulegum dramatiskum atburðum hafa fengið verðlaun-
in 23 sinnum, aðrar dramatískar myndir 22 sinnum. 7 söngleikjamynd-
ir, 5 stríðsmyndir, 5 gamanmyndir og 1 vestri fylla síðan hópinn.