Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Síða 23
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992.
23
Tina Chow lést úr eyðni í janúar.
Tískudrottn-
ing látin
úreyðni
Ein skærasta stjarnan meðal tísku-
fyrirsætna heimsins, Tina Chow, lést
af völdum eyðni í janúar síðasthðn-
um. Tina er fyrsta fræga konan sem
deyr úr eyðni og talað hefur opin-
skátt um hvernig hún smitaðist - af
kynmökum við karlmann.
Ef tir dauða Tinu hafa verið ritaðar
um hana margar og langar lofgreinar
þar sem henni er lýst sem einstæðri
í sögu tískunnar. Hún var ekki að-
eins einstök fyrirsæta heldur þótti
hún eiga afar gott og mikið safn fata
sem hún safnaði af mikilh kostgæfni
og alúð. Hún var forrík, ekki aðeins
af fyrirsætustörfum heldur einnig af
rekstri kínverskrar veitingahúsa-
keðju sem hún rak með fyrrverandi
manni sínum, Michael Chow.
Faðir Tinu var bandarískur her-
maður en móðir hennar japönsk.
Leiöir þeirra lágu saman á jóladag
1945 og níu mánuðum síðar kom Tina
í heiminn. Hún þótt fljótt eftirtektar-
verð sem fyrirsæta en hún þótt sam-
eina á sérstakan hátt austurlenskt
og vestrænt yfirbragð. Eldri systir
hennar var einnig fyrirsæta en hún
er gift höfuðpaur hljómsveitarinnar
Talking Heads, David Byme.
1972 giftist Tina Michael Chow og
átti með honum eina dóttur. Hún
hafði þá náð sérstakri virðingu með-
al tískufyrirsætna.
Tina skildi viö mann sinn 1988.
Skömmu eftir það átti hún í ástar-
sambandi við leikarann Richard
Gere sem hún tók alvarlega en Gere
ekki. Eftir að upp úr shtnaði leitaði
hún huggunar hjá Kim d’Estainvihe
sem hún hafði þekkt lengi. Sá yar
tvíkynhneigður og hafði sjálfur leit-
að huggunar á hommabörum New
York-borgar eftir að ilmvatnsjöfur-
inn Hélene de Rochas hafði hent hon-
um út. í ferð sinni til Japans 1989
gerðist það að Tina fékk lungna-
bólgu. Var hún flutt á spítala og
greindist þá með eyðni.
Fyrir andlát sitt kom hún fötum
sínum á tískusafn þar sem góður
smekkur hennar fyrir fotum þykir
gerður ódauðlegur. Eitt af síðustu
verkum hennar var að gefa stórfé til
eyðnispítala í Mexíkó sem nefndur
er eftir henni.
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR
ROFINN
NOTAÐIR BÍLAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI
NOKKUR D Æ M I :
VW JETTA C 1600 - árg. 1986, 4gíra, 4 dyra, rauður,
ekinn 95 þ.km., verð kr. 350.000.stgr.
MMC LANCER GLX 1500- árg. 1988, 4 dyra,
sjálfskiptur, hvítur, ekinn 57 þ.km., verð kr. 570.000 stgr.
ii
TOYOTA GOROLLA DX 1300 - árg. 1987, 4 gíra,
5 dyra., hvítur, ekinn 110 þ.km., verð kr. 300.000. stgr.
AMC CHEROKEE LAREDO V6-4000 - árg. 1987, sjálfsk.
5 dyra, svartur, ekinn 88 þ.km., verð kr. 1,380.000.stgr.
DAIHATSU CHARAETE CS 1000 - árg. 1987, 4 gíra,
5 dyra, hvítur/blár, ekinn 71 þ.km.,
verð kr. 280.000 stgr.
MMC GALANT GL 1800 - árgerð 1988, 5 gíra,
4 dyra, grábrúnn, ekinn 88 þ.km.,
verð kr. 600.000. stgr.
VIÐ BJOÐUM TRAUST OG ORUGG VIÐSKIPTI
GREIÐSLUSKILMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA
NOTAÐIR BILAR
BYGGIR A TRAUSTI
HEKLUHUSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
Opið virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl 10-14
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR