Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992.
41
dv_________________________________________Trimm
Kraftur í skokkurum hjá Námsflokkum Reykjavíkur:
Stefnan sett á skemmtiskokkið
- segir Jakob Bragi Hannesson
„Yfirskriftin er „Trimm fyrir alla“
og hugmyndin á bak við þetta er að
fá fólk, sem hefur aldrei hreyft sig,
til að skokka og svo spratt upp sú
tillaga í kjölfarið að koma öllum
hópnum í gegnum Víðavangshlaup
ÍR á sumardaginn' fyrsta en það
hlaup er fjórir kílómetrar. Kappið í
mannskapnum er reyndar svo mikið
og árangurinn svo góður að nú hafa
karlamir stefnt að því að hlaupa tíu
kílómetra og konumar f]óra í svo-
kölluðu Stefánshlaupi 4. apríl nk. en
hlaupið er kennt við kunnan bónda
og hlaupagarp í Vorsabæ,“ sagði Jak-
ob Bragi Hannesson, skokkleiðbein-
andi hjá Námsflokkum Reykjavíkur,
í samtali við DV.
Hjá Námsflokkum Reykjavíkur í
Miðbæjarskólanum er nú hópur
vaskra karla og kvenna sem kemur
saman tvisvar í viku og skokkar
undir handleiðslu Jakobs Braga
Hannessonar en hann er einmitt
sjálfur kunnur hlaupari. Jakob gerir
ýmislegt fleira en að láta mannskap-
inn fara út að hlaupa. í upphafi hvers
tíma heldur hann stutta tölu um fyr-
irfram ákveðið efni. „Ég er yfirleitt
með smáfyrirlestur á undan og tek
þá fyrir eitthvað sem tengist þessu,
t.d. útbúnaö skokkara, teygjuæfmg-
ar, mataræði o.s.frv."
Árangurinn er
gífurlegur
Skokkararnir koma saman á
mánudögum og fimmtudögum og
þegar DV leit inn sl. mánudag voru
átta skokkarar samankomnir ásamt
leiðbeinandanum. Hópurinn er þó
yfirleitt fjölmennari en um fjórtán
manns mæta reglulega í skokkiö.
Átján manns byrjuðu hjá Jakobi fyrr
í vetur en fjórir hafa helst úr lest-
inni. Ástandið í byrjun var ekki upp
á marga fiska hjá sumum, svona eins
og við var að búast, og nokkrir þátt-
takendanna áttu í hinu mesta basli
með að hlaupa smáspöl. Nú, nokkr-
um mánuðum síðar, er annað upp á
teningnum og hinir sömu eru farnir
að hlaupa fjóra kílómetra í einni lotu.
Það verður því ekki annað sagt en
að árangurinn sé gífurlegur.
„Það er áhugi hjá Námsflokkunum
að halda þessu áfram og þá yrði
hugsanlega boðið upp á tvenns konar
námskeið, þ.e. fyrir byijendur og
lengra komna. Þaö fer bara eftir
áhuganum en hér í Miðbæjarskólan-
skokkaranna sjálfra leituðum viö til
Arndísar Steinþórsdóttur, skrif-
stofumanns í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, en hún er í þessum fjórtán
manna kjama sem mætir reglulega.
Reyndar vildi svo til að Arndís mætti
ekki þegar trimmsíðuna bar að garði
en við fyrirgefum henni það enda var
þetta fyrsta „skrópið". í staðinn fyrir
skokkið fór Amdís á skíði og það er
ekkert verri líkamsrækt en hvað
annað.
„Ætli það hafi ekki bara verið al-
menn þörf á líkamshreyfingu sem
varð þess valdandi að ég fór að
skokka á vegum Námsflokkanna.
Kannski líka samviskubit en það er
algjör nauðsyn fyrir kyrrsetufólk að
hreyfa sig eitthvað. Ég er nú ekki á
kafi í útivistinni en ég skokka og fer
á skíði. Þetta er alveg óstjórnlega
skemmtilegt og manni líður ákaflega
vel þegar maður er búinn að pína sig
svohtið og ég finn ótrúlega mikinn
mun á mér núna og þegar ég byrj-
aði,“ sagði Amdís.
-GRS
Sumir gátu varla hlaupið smáspöl í
byrjun, segir Jakob.
um er kjörin aðstaða. Salur til upp-
hitunaræfmga er hér ásamt baðað-
stöðu og þetta er lítið sem ekkert
notað á kvöldin. Annars byggi ég
þetta upp á stuttu spjalli um eitt-
hvert ákveðið efni í byrjun tímans.
Síðan er hitað upp og farið út að
skokka. Við hlaupum frá fjórum kíló-
metrum en þeir sem fara lengst
hlaupa tíu kílómetra og svo er endað
á svokallaðri stöðvaþjálfun.“
í hópnum hjá Jakobi er fólk á aldr-
inum 30-55 ára og er kynjaskiptingin
heldur konunum í hag. Flestir höfðu
aldrei hlaupið áður og einhveijir
nota þetta sem leið í baráttunni við
að hætta að reykja. Mikill hugur er
í mannskapnum og flestir ef ekki all-
ir hafa sett stefnuna á skemmtiskokk
Reykjavíkurmaraþonsins í sumar og
einhverjir era jafnvel að gæla við
hálfmaraþon.
Nauðsynlegt fyrir
kyrrsetufólk
Til að forvitnast örlítið um viðhorf
Hópur vaskra karla og kvenna stundar nú skokk hjá Námsflokkum Reykjavíkur og hér má sjá hluta af hópnum á fleygiferð við Tjörnina.
Skokkararnir samankomnir á tröppum Miðbæjarskólans en þegar DV leit
inn vantaði sex af „fastagestunum". DV-myndir Brynjar Gauti
Það er greinilegt á öllu að upphitunaræfingar þurfa ekki að vera leiðinleg-
ar og hér hafa þátttakendurnir gaman af þvi sem fyrir þá er lagt.
Reykj aví kurmaraþon
Maraþonáætlun þessi miðast við
byijendur sem ætla aö þreyta fullt
maraþon í Reykjavíkurmaraþoni 23.
ágúst nk.
Auðvitaö er það svo að flestir telja
ráðlegt að byija á styttri vegalengd-
um, s.s. hálfu maraþoni eða
skemmtiskokki. Einnig er ráðlegt að
viökomandi hafi hlaupið reglulega í
að minnsta kosti eitt ár. Samt sem
áður vitum við ósköp vel að ofur-
kappið grípur oft íslendinginn og
hann telur sig ávallt vera færan í
flestan sjó. Ég ætla því að koma til
móts við þarfir þeirra' sem vilja
leggja það á sig aö ná settu marki á
styttri tíma.
Æfingaáætlun þessi fer mjög ró-
lega af staö enda er hún miðuð við
algjöra byijendur. Hafa her þó í huga
að þótt fyrstu sjö vikurnar séu mjög
rólegar er gott að viðkomandi stundi
einhverja aðra líkamsþjálfun með,
s.s. sund o.fl. Áætlun þessi miðar að
því að viðkomandi geti hlaupið
maraþon á íjórum til fjórum og hálfri
klukkustund, þægilega og án þess að
örmagnast. Ég mun gefa ráðlegging-
ar síðar þegar alvaran tekur við en
það er í sjöundu viku héðan í frá.
Jakob Bragi Hannesson
Áætlun fyrir fyrstu vikuna:
Sunnudagur: Ganga í 45 mínútur
Þriðjudagur: Skokka í 10 mínútur
Fimmtudagur: Skokka í 5 mínútur