Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
Útlönd
Milan Panic, forsætisráöherra sambandsríkis Serbiu og Svartfjallalands, var sigurviss þegar kjörstööum var lokað í Belgrad í gær. Flest bendir þó til að
kjósa verði aftur vegna þess að hvorki hann né Slobodan Milosevic, núverandi Serbíuforseti, nái hreinum meirihluta. Endanleg úrslit verða ekki kunn fyrr en
í kvöld eða á morgun. Simamyndir Reuter
Mikil óvissa um úrslit í mikilvægum forsetakosningum í Serbíu:
Harðstjórinn í Serbíu
náði ekki meirihluta
- staðan byggð á könnun meðal kjósenda en margir efast um nákvæmni hennar
AUt bendir til að Serbar verði að
kjósa öðru sinni um forseta vegna
þess að hvorki Slobodan Milosevic
né Milan Panic náðu meirihluta í
kosningunum um helgina. Enn er
talning skammt á veg komin en
könnun meðal kjósenda bendir til að
hvor fambjóðandi fái 47% atkvæöa.
Réttkjörinn forseti þarf hreinan
meirihluta. Reynist þetta niöurstað-
an verður kosiö aftur eftir hálfan
mánuð. Könnunin tók til 1370 kjós-
enda í 60 kjördeildum. Hún var gerð
af óháðum aðila en Milosevic hefur
þegar lýst yfir sigri.
Urslit forsetakosninganna ráða
miklu um framtíð Serbíu því að al-
mennt er talið að Milosevic, sem ver-
iö hefur forseti frá árinu 1986, ráði
mestu um hemaðinn í Bosníu. Hann
er gamall kommúnisti og harðlínu-
maður og hefur alla sína tíð á forseta-
stóh barist fyrir stofnun Stór-Serbíu.
í þeim tilgangi hefur hann staðið fyr-
ir víðtækum morðum á saklausu
fólki í Bosníu og Króatíu.
Panic er forsætisráðherra hinnar
nýju Júgóslavíu sem er sambands-
ríki Serbíu og Svartfjallalands. Hann
er andvígur hemaði á hendur ná-
grönnunum og hefur lofað að koma
á friði nái hann kjöri. Panic bjó lengi
í Bandaríkjunum en sneri heim á
síðasta ári.
Almennt er tahð að friður komist
ekki á í bráð verði Milosevic endur-
Slobodan Miiosevic forseti ætlar að
halda hernaði áfram.
kjörinn. Þjóðarleiðtogar hvarvetna
um heim neita að semja viö hann og
Bandaríkjastjórn hefur gengið svo
langt að lýsa því yfir að forsetinn sé
stríðsglæpamaður. George Bush
Bandaríkjaforseti og John Major,
forsætisráðherra Breta, ályktuðu um
helgina að herða bæri á viðskipta-
banninu á lýðveldi fyrrum Júgóslav-
íu.
Lengi vel leit út fyrir að Panic yrði
meinað að bjóða sig fram. Hæstirétt-
ur úrskurðaði á endanum að hann
væri kjörgengur. Hann hefur átt erf-
itt uppdráttar í kosningabaráttunni
enda ahir helstu fiölmiðlar á bandi
Milosevic. Reuter
ATTAVITAR
I JEPPANN
Á SNJÓSLEÐANN
SENDUM í PÓSTKRÖFU
TITANh
TITANhf
Lágmúla 7 - 108 Reykjavík
Sími 814077 - fax 83977
Jólasveinn í heim-
sókntilEistlands
Finnski jólasveinninn hefur farið í
fyrstu opinberu heimsókn sína til
Eistlands. Jólasveinafyrirtækiö
Santa Claus Finland Intemational,
sem skipulagði heimsóknina í síð-
ustu viku, segir að jólasveinninn
hafi tekið þátt í lokaathöfn haust-
fundar eistneska þingsins og flutt þar
stutta ræðu. Lennart Meri forseti tók
á móti sveinka og þeir urðu ásáttir
um að gera heimsókn sem þessa að
árlegum viðburði.
Mammaskilineft-
irábensínstöð
Kona nokkur 1 Ástrahu, sem var á
leið heim til sín, varö óvænt stranda-
glópur um miðja nótt á bensínstöð í
sveitaþorpi. Konan var á ferð með
syni sínum og brá hún sér á klóið á
meðan hann fékk sér hressingu.
Hann ók svo í burtu og skildi
mömmu eftir en lögreglan fann hann
50 kílómetra frá og sneri honum við.
FNB og Reuter
DV
Stórreykingar
björguðii manni
úrsteininum
Hálffimmtugur Svii er nú laus
úr haldi lögreglunnar í bænum
Halden í Noregi eftir að hafa
mátt dúsa þar í hálfan mánuð.
Þá hefur maðurinn veríö hreins-
aður af öllum grun ura að vera
bankaræningi. Og alit vegna þess
að hann er stórreykingamaöur.
Það var kaupmaður í Svina-
sundi sem taldi sig þekkja aftur
rödd mannsins á hljóðupptöku
frá bankaráni i Halden í apríL
Svíinn var handtekinn og
hnepptur í varðhald. Hann hélt
stöðugt fram sakleysi sínu en það
stoðaði ekki.
Það var ekki fyrr en raddsér-
fræöingar frá Þrándheimshá-
skóla rannsökuðu upptökuna aö
hið sanna kom í ljós. Ræningjnn
reykti ekki en Svtinn var stór-
reykingamaður.
Kýrskotnarút
Sveitalöggur i Bandaríkjunum
standa ráðþrota frammi fyrir
nýrri tegund glæpa: kúadrápi úr
bílum á ferö.
Tíu kýr hafa verið drepnar und-
anfarna viku í Claysýslu,
skammt frá Kansasborg i Misso-
uri, Þar eru viðurlög við naut-
gripaþjófnaði enn henging. Yfir-
völd eru þó ekki viss um hvaða
refsing gildi fyrir kúadráp af
þessu tagi.
Kýrnar eru metnar á 40-50 þús-
und krónur stykkið og trygginga-
félag eitt, þar sem nokkrar hinna
drepnu voru tryggðar, hefur heit-
ið 120 þúsund króna verðlaunum
fyrir upplýsingar sem leiða til
handtöku sökudólganna.
Rigoberta Menchu, handhafi
friðarverðlauna Nóbels, sneri
heim til Gvatemala á laugardag
þar sem hún ætlar að eyða fyrstu
jólum sinum i áratug.
Menchu sagði við heimkomuna
að mannréttindabrotum í land-
inu yrði að iinna og að hún mundí
ekki flytja aftur heim í bráð
vegna þessa. Hún sagöist vona að
Sameinuðu þjóðimar og ka-
þólska kirkjan gætu talað um fyr-
ir stjómvöldum.
Mannréttindabrot hersins i
Gvatemala gagnvart indíánum
landsins eru þau svæsnustu á
vesturhveli jarðar.
Landkönnuöirnir
hálfnaðiráSuð-
urpólmn
Tveir breskir landkömuðir eru
komnir rúmlega hálfa leið á Suö-
urpólinn á leið sinni yfir Suður-
skautslandiö, hinni fyrstu þar
sem utanaðkomandi aðstoð er
engin.
Sir Ranulph Fiennes og feröafé-
lagi hans, Michael Stroud, eiga
rétt rúma sex hundmð kílómetra
ófama til Suðurpólsins og tvö
þúsund kílómetra til áfangastað-
ar síns í Scott búöunum.
Fiennes og Stroud vonast til að
safna um tvö hundruð milljónum
króna fyrir ensku MS samtökin
meö uppátæki sínu, Tvímenning-
amir draga 180 kílóa þunga sleða
á eftir sér.
Norðmaðurinn Erling Kagge er
einnig á loið yfir Suðurskauts-
landið án utanaðkomandi aðstoö-
ar með allar vistir sínar í eftir-
dragi. Talsmaður Bretanna neit-
sémflli
liiiíili