Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 20
20 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992. Merming DV „Karlmenn höggvist en konur drekkist" Inga Huld Hákonardóttir hefur skrifað „öðruvísi íslandssögu", heilmikið sagnfræði- rit sem nefnist Fjarri hlýju hjónasængur og segir frá samskiptum kynjanna allt frá upp- hafi íslandsbyggðar fram til okkar daga. Á skipulegan og skilmerkilegan hátt greinir Inga Huld frá þeim breytingum sem verða frá kátínumenningu miðalda, þegar ekkert þótti eðlilegra en menn drykkju, dufluöu og dönsuðu að vild og héldu margra vikna veisl- ur öðnun þræði til aö gleyma „þæginda- Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir snauðu umhverfi, drepsóttum og skammlífi" (Bls. 31.), fram til þeirra tíma er mönnum varð óhægt um vik að gleyma sér í amstri daganna. Þegar kirkja og kóngur tóku sér það himneska umboð að hlutast til um hvað- eina sem mannfólkið snerti, ekki síst kynlíf þeirra sem þótti bæði óhreint og ósæmilegt. Eftir setningu Stóradóms á Alþingi áriö 1564 varö ástin glæpsamleg sem aldrei fyrr og miklu þyngri refsingar settar við siðferðis- brotum en áður var. Samkvæmt Stóradómi var fjöldi manns sendur utan í fangavist, beittur líkamlegum refsingum eða látinn sæta sektargreiðslum. Fyrir verstu brotin voru menn líflátnir, konum drekkt en karlar höggnir og er talið aö a.m.k. 40 manns hafi mátt „gjalda fyrir ólögmæta útrás holdsins með lífi sínu“ og eflaust fleiri (Bls. 71.) Inga Huld rekur mörg átakanleg dæmi þess hvernig menn voru eltir uppi eins og hundar og teknir af, e.t.v. fyrir þá sök eina að hafa eignast böm með tveimur systrum (Bls. 194.) Og óhugnanleg er sagan af stúlkunni sem var nauðgað af fóður sínum. Hún eignaðist bam sem faðir hennar deyddi án hennar vitundar og gróf það. Hann var dæmdur til dauða og eftir heilmikla rekistefnu urðu ör- lög hennar þau hin sömu á þeim forsendum að hún hlyti „að hafa verið með í ráðum um bamsmorðið. Nauðgunin er ekki nefnd á nafn og ekkert tillit til hennar tekið." (Bls. 201.) Niðurlæging kvenna var alger. Þær máttu ekki einungis sæta kynferðislegu of- beldi frá feðmm, bræðmm og húsbændum heldur eiga það síðan yfir höfði sér aö vera drekkt í þokkabót! Hýðingar og sektir vom daglegt brauð enda ástir aðeins leyfilegar milli hjóna og þar sem þeim lægst settu og fátækustu var meinað að giftast má nærri geta hvort konungsvald- ið hafi ekki hagnast á öllum þeim sem létu undan einni af fmmhvötunum og elskuðust í trássi við öll boðin og bönnin. Enda var orsök þessara grimmu laga ágimd, segir Inga Huld: „Það þurfti að auka tekjur dönsku krúnunnar. Ásthneigð íslendinga, þessi frumstæöi kraftur sem varð að fá svölun hvar og hvemig sem á stóð átti að hafa verið jafn óbrigðul tekjulind og Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins er í dag.“ (Bls. 82.) Hér bregð- ur höfundur fyrir sig háði sem víðar skýtur upp kollinum þegar rætt er um valdsmenn þá sem allranáðugast töldu sig bera ábyrgð á þessari lauslátu og léttúðugu þjóð í norður- Inga Huld Hákonardóttir. Vel skrifuð bók. höfum. (Bls. 62.) Háðið er þó einungis krydd í fræðilega og vel skrifaða bók um þetta dimma og niðurlægjandi skeið í sögunni þeg- ar mönnum var meinað að elskast nema eft- ir settum og afar ströngum reglum. Inn í skilmerkilega frásögn, með ítarlegri og vand- aðri tilvitnana- og heimildaskrá, fléttar Inga Huld brotum úr æviminningum, lagasöfn- um, skáldskap og annálum og fram á sjónar- sviðið stíga persónur sem flestir þekkja: Látra-Björg, Natan Ketilsson, Snæfríöur Is- landssól og Bjami og Steinunn á Sjöundá, svo aö dæmi séu tekin. Frásagnirnar af örlög- um þekktra og óþekktra persóna verða skýr- ar og lifandi í meðförum Ingu Huldar, ekki síst vegna þeirrar hlýju og samúðar sem hún umvefur ólánsama forfeður sína og það hvemig hún reynir stundum að knýja fram tilfinningar fómarlamba gerir söguna sterk- ari en ella. Að segja að bókin sé skemmtileg er kannski ofsagt, a.m.k. í bókstaflegri merkingu þess orðs en hún heldur manni viö efnið. Og sú hugleiðing sem Inga Huld skilur lesendum eftir í lokaorðum rýrir síst gildi sögunnar: „Er kynferðislegt ofheldi horfið? Eru sam- skipti elskenda rómantískari en fyrr? Eru hjónabönd ástríkari?" Skyldi það kannski vera að „aldagömul bæhng hafi heppnast svo vel að hún sé orðin okkur samgróin?" (Bls. 278.) Svari hver fyrir sig! En samkvæmt Ingu Huld „eru fyrri kynslóðir lifandi í okkur. Blóð þeirra rennur í æðum okkar, syndir þeirra, þrár og óskir...“ (279.) Og þeir eru vissulega margir sem lifna við á síðum þess- arar bókar. Fjarri hlýju hjónasængur Inga Huld Hákonardóttir Mái og menning 1992 Afmælis minnst Bók Karls Helgasonar, Við erum heppnir, viö Víðir, er bók með tilgang. Hún er samin í tengslum við verk- efnið HeO á húfi sem birtist í bamablaðinu Æskunni á árinu. Tilgangur verkefnisins var að minna börn á hve mikið væri hægt aö ráða um heill sína og heil- brigði með því að gæta sín. Bókin er gefin út í tilefni 95 ára afmæhs Æskunnar og send öllum börnum sem fæddust árið 1983 að gjöf. Er það vel þegar afmæhs er minnst á svo höfðinglegan hátt. Sagan segir frá bræðrunum Víði og Birki sem eru fæddir á sama árinu og því jafnaldrar. Birkir segir söguna og það verður ekki annað sagt um þá bræður en þeir séu uppátektarsamir, þeir víla ekki fyrir sér að fara út í snarvitlaust veður, ráðast á hrekkjusvín og skemmdarvarga, stökkva á bak böldnum hesti og Bókmenntir Jóhanna Margrét Einarsdóttir svo framvegis. Heppnin fylgir þeim bræðrum á hverju sem gengur þangað til annar þeirra verður fyrir alvar- legu bílslysi og fatlast. Birkir klifar stöðugt á því hversu mikhr lukkunnar pamfílar þeir bræður séu. Við erum heppnir, við Víðir og ámóta setningar eru fleiri en tölu verður komið á í bókinni. Þetta virkar ákaflega staglkennt og gerir söguna miklu leiðinlegri aflestrar fyrir vikið. Við sögu koma svo fleiri persónur, systir þeirra bræðra, Sóley, foreldrar þeirra, þau Fjóla og Hlynur, afar þeirra og ömmur, vinkona þeirra hún Finna sem þeir bræður kaha Ösp, frænka hennar hún Hróðný og svo ótal böm sem koma mismikið við sögu. Sagan er kaflaskipt og íjallar hver kafli um einhvern einn ákveðinn atburð. Bókin fer hægt af staö en batn- ar þegar á líður. En endirinn er hörmulegur. Það hefði sem best mátt vinna betur úr frásögninni af slysinu sem Víöir lendir í og afleiðingum þess. Frásögnin af því er snubbótt. í raun hefði slysið og afleiðingar þess verið efni í heila bók en ekki stuttan kafla. Höfundur tæpir á ýmsum vandamálum í samtíman- um. Það er meðal annars fjallað um það hvemig það er að vera af öðrum kynþætti, ellina og hvemig hægt sé að lifa lífinu lifandi á efri árum og ýmislegt fleira. Einnig er greint frá huldufólkstrú afa og ömmu í sveit- inni, nokkuð sem ekki er algengt að finna í bamabók- um nútímans. Inntak sögunnar er gleðin og hamingjan, hver og einn er í raun og vem sinn eigin gæfusmiður. Karl Helgason. Gott málfar prýðir söguna. Þaö besta við þessa bók er málfariö á henni. Það er svo sannarlega tíl þess falliö að bæta málkennd bama jafnt sem fuhorðinna. Ýmis gömul orðatiltæki og orð er að finna í bókinni en þau útskýrð vel og svo vand- lega fehd inn í textann að þau verða aldrei vandræða- leg eða stinga í augu. Enda notar höfundur þá aðferð að það er eldra fólkið í sögunni sem notar orð og orða- thtæki sem ekki era lengur alvanaleg í daglegu tali. Þeir sem yngri era læra svo málið af þeim eldri. Höf- undur leggur hverri kynslóð í munn mál sem er trú- verðugt. Bókin er vel þess viröi að hún sé lesin þó ekki væri nema vegna textans því aö af honum má mikið læra. Búi Kristjánsson teiknari myndskreytir bókina. Myndir hans era nokkuð grófar en fuhar af glensi og gríni og faha vel að efni bókarinnar. Við erum heppnlr, við Víðir Karl Helgason 113 bls. Æskan 1992 Um sólarlag mannsævinnar Á sínum tíma thgreindi Cicero fjórar ástæður þess að menn telji ehina ömurlega. Þá fyrstu að ellin svipti menn starfshæfni, í öðra lagi aö hún veikli likamann, hina þriðju að hún ræni okkur næstum öhum lystisemd- um og loks þá fjórðu að hún sé fyrirboöi dauðans. í þessari bók Þóris S. Guðbergs- sonar sem byggist á samtölum hans við sjö íslendinga á aldrinum 68-100 ára er ráöist gegn þeirri skoöun að ehin þurfi að vera ömur- leg. Þessir einstaklingar lýsa reynslu sinni af ehinni á jákvæðan hátt. Sérstaklega kröftugur and- mælandi þeirrar skoðunar að elhn þurfi að vera dapurleg er Hrefna Tynes, skátaforingi og fuhtrúi æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar, 80 ára. Hún líkir ehiáranum viö sólar- lag og bætir því við að sér finnist sólarlagið eitt af því fegursta sem Þórir S. Guðbergsson ræðir við 7 er th frá hendi skaparans. Hrefna íslendinga á aldrinum 68-100 ára. segir aö hvert æviskeið hafi sína töfra og ellin sé þar ekki undanskhin. En hún leggur áherslu á að aðgerða- leysið sé hættulegt og að það sé bráönauðsynlegt að búa sig undir það að vera gamah. Sjálf hefur Hrefna aldrei sest í helgan stein og er th dæmis að búa sig undir þaö að fara á skátamót í Noregi næsta sumar. Fuh ástæða er til að taka undir áskorun Hrefnu th íslenskufræðinga um Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson að þeir finni betra orð og meira aölaðandi í stað orðsins „ellhífeyris- þegi“. Hún bendir rétthega á að orðiö hafi neikvæðan blæ: sá sem þiggur lífeyri vegna ehi. AJF öðram sögumönnum þessarar bókar má nefna Ingibjörgu Gísladótt- ur, 100 ára, sem ýmislegt hefur mátt reyna um ævina. Hún flytur þann boðskap að fáir verði hamingjusamir án átaka og hún hafi aldrei fundið ghda ástæðu th að kvarta. Hér tjáir sig einnig Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi, 81 árs, og eins og að hkum lætur leggur hann áherslu á mikhvægi leikja og hkamsrækt- ar fyrir aldraða. Þaö er sannarlega full ástæða th aö gefa út bók sem er helguð gamla fólkinu í landinu og það fer vel á því að í bókarlok skuli höfundurinn skrifa kafla þar sem safnað er saman ýmsum hagnýtum upplýsingum fyrir aldraða, svo sem um lífeyrissjóði, Tryggingastofnun ríkisins, hús- næðismál, áhugamál, heimahjúkrun o.fl. Þetta er hógvær bók, sem vissu- lega er ekki meðal þeirra bóka sem mesta athygli vekja fyrir þessi jól, en hefur engu að síður í mörgum tilfellum að geyma þýðingarmikinn boðskap og mikhvægari en margt af því sem meiri athygli vekur. Þórir S. Guðbergsson. Lífsgleði. Viðtöl og frásagnir um líf og reynslu á efri árum. Hörpuútgáfan 1992 (143 bls.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.