Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
47
Fréttir
Hið sígilda ævintýri Astrid Lindgren:
Pétur Kristjánsson, DV, Seyöisfiröi;
Ljós voru tendruö á jólatrjám Seyð-
firðinga fyrir helgina og er venjan
að hafa tvö stór jólatré utandyra,
vegfarendum og öðrum til yndisa-
auka. Annað tréð stendur á Hólman-
um í Lóninu og hitt stendur framan
við sjúkrahús Seyðisfjarðar. Á síðar-
nefnda staðnum spfiaði Lúðrasveit
Seyðisfjarðar meðan á athöfninni
stóð.
Bæjarbúar gera mikið af því að
skreyta hús sín með rafljósum, bæði
á þakskeggjum og í gluggum og gleöj-
ast menn jafnan yfir ljósadýröinni á
þessum árstíma, enda sést ekki til
sólar frá því um miðjan október fram
í miðjan febrúar.
Gottverð
ágrálúðu
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Regína Thorarensen, DV, SeBhssi:
Afréttur Tungnamanna iila farinn vegna eldgosa og búfénaðar:
Hæsta grenitréð
Jólatréð á myndinni er trúlega
hæsta íslenska grenitréð á landinu.
Tréð er úr Hallormsstaðarskógi,
stendur við verslun Kaupfélags Hér-
aðsbúa á Egilsstöðum og er um 12
metrar á hæð.
DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir
SeyðisQörður:
Jólaljóstendruð
Undanfarin ár hefur það verið
venja að láta togara Hraðfrystihúss
Fáskrúðsijarðar sigla og selja afla
sinn í erlendum höfnum fyrir hver
jól. Nú í ár hefur verið breytt út af
þessari venju og afli verið settur í
gáma tU sölu erlendis.
Nýlega fékk HofleU SU mjög gott
verð fyrir grálúðu, rúmar 205 krónur
fyrir kUóið, í Frakklandi. Töluvert
hefur verið um landanir aðkomubáta
í gáma hér undanfarnar vikur en það
er Skipaafgreiðsla Sigurðar Þor-
geirssonar sem sér um þá þjónustu.
Jólaskreytingar
íSelfossbæ
Mikið er nú um jólaskreytingar í
Selfossbæ en þó er ekki enn búið að
skreyta Ölfusárbrúna. Þegar því
verður lokið er jólaskreytingin orðin
fullkomin að mínum dómi.
Selfossbær er sannkaUaöur þjón-
ustubær, aUs staðar er frábær þjón-
usta. Kaffivagninn er ekki stór en þar
vinna hjón sem veita góða þjónustu
og þau selja aUtaf drjúgt þótt versl-
unin sé Utíl.
Nú getur þú keypt söguna
um Ronju Ræningjadóttur
á myndbandi.
Myndbandið er til sölu í helstu stórmörkuðum og hljómplötuverslvmum.
Ronja Ræningjadóttir er einnig á sviðinu í Borgarleikhúsinu.
JAPISS
Heildsöludreifing: Verksmiðjan Brautarholti 8 sími: 622070 og Japis Brautarholti 2 sími: 625200
Fundurinn var lokapunktur í sam-
norrænu verkefni nemendanna um
umhverfismál og fræðslu. Á fundinn
mættu ríflega 70 manns og var hann
hinn fjörugasti.
Undanfama mánuði hafa nemend-
umir kynnt sér aðstæður á afréttí
Biskupstungnahrepps. Hafa þeir
unnið mikið verk við gróðursetningu
og sáningu, unnið að gagnasöfnun
og gert myndband um gróðureyð-
ingu og vamir gegn henni.
Meginástæðu þess hve lítill gróður
er á afrétti Tungnamanna taldi land-
græðslustjóri vera áhrif eldgosa en
einnig orsakaði ágangur búfénaðar
hluta þeirrar gróðureyðingar sem
þama hefði orðið.
Gísh Einarsson oddviti lagði fram
tölulegar staðreyndir er varða afrétt-
Um 20% gróið land
Sigmundur Sigurgeiisson, DV, núðum;
Gróið land á afréttí Tungnamanna
er aðeins í kringum 20 prósent og
ekki allt algróið. Þetta kom fram í
máii Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra á fundi sem 10. bekkur
Reykholtsskóla í Biskupstungum
boðaði til um uppgræðslu Biskups-
hmgnaafréttar.
inn og nýtingu hans. Þar kom fram
að sauðfé í sveitinni hefur fækkað
úr tæpum 14 þúsundum niður í rúm
5 þúsund á síðustu árum. Einnig kom
fram í máli Gísla að hreppurinn hef-
ur á undanfornum árum kostað 16
milljónum króna til uppgræðslu á
hálendinu.