Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992.
5
Fréttir
Réttað í máli annars íslendingsins í Orlando:
„Ég er sekur“
- gæti fengið 5 ára fangelsi og 15 milljóna kr. sekt
Fangelsið þar sem íslendingarnir tveir dvelja, rétt hjá Orlando í Flórida.
DV-mynd Anna Bjarnason
Anna Bjamason, DV, nórida;
„Ég er sekur," sagöi annar íslensku
fanganna sem eru í haldi í Sanford í
Flórída er hann var leiddur fyrir
dómara í Orlando í fyrradag. íslend-
ingamir tveir eru ákærðir fyrir ólög-
legan innflutning steralytja sem þeir
ætluðu að selja í Bandaríkjunum.
Dómarinn spurði sakbominginn
ítarlega út í brot hans, leiddi honum
rólega fyrir sjónir þá möguleika sem
harm hefði.
Hlekkjaður og
í hvítum sokkum
Það var klukkan tvö mánudaginn
28. desember að Baker dómari gekk
í réttarsal númer 5 í alríkisdómhús-
inu í Orlando. Þar voru þá mættir
saksóknarinn í málinu, Randy
Gould, réttargæslumaður og ritari,
dómtúlkur, Sigrún Guðmundsson,
sakborningurinn og veijandi hans,
auk fangavarðar - og tveir íslenskir
blaðamenn.
Fanginn var í ryðrauðu fangaföt-
unum sem fyrr og hafði ilskó á fótum
en nú var hann í hvítum sokkum.
Fanginn var hlekkjaður á höndum
og fótum en handjárnin voru tekin
af honum er hann hann gekk í sal-
inn. Hann var fölur og hár hans úfið
en úti var skýjað og hráslagalegt
veður og nokkur gola.
Sakborningurinn var mættur í
réttarsalinn til aö breyta framburði
sínum og játa sekt sína í stað þess
að halda fram sakleysi eins og hann
gerði í síðasta mánuði. Ef sakbom-
ingar lýsa sig seka á þennan hátt eru
þeir leiddir fyrir dómara án kvið-
dóms og ákveður dómarinn þá einn
refsinguna.
Vingjarnlegur dómari
Dómarinn, sem var í svartri
skikkju, var afar vingjarnlegur við
fangann sem er 31 árs að aldri og
talaði mjög lágt - svo lágt að saksókn-
arinn varð tvisvar að biðja hann um
að tala hærra. Fanginn kvaðst hafa
verið sjómaður frá því hann var 19
ára til 26 eða 27 ára aldurs. Eftir-það
kvaðst hann hafa unnið við ýmis-
legt, m.a. sem ráðgjafi á stofnun fýrir
eiturlyíjanotendur sem rekin er af
íslendingum í Svíþjóð.
Dómarinn spurði næst hvort fang-
inn hefði skilið ákærana og kinkaði
hann kolli því til samþykkis. Þá
spurði dómarinn hvort fanginn væri
sáttur við þá meðferð sem hann fengi
og játti fanginn því. Dómarinn spurði
hvort reynt hefði verið að hafa áhrif
á fangann þannig að hann lýsti sig
sekan og hvort hann lýsti sig sekan
af einhverri annarri ástæðu en þeirri
að hann væri sekur. Það var þá sam
fanginn sagði stundarhátt: „Ég er
sekur."
Rannsaka ferilinn á Islandi
Loks spurði dómarinn saksóknar-
ann fram á hvaða refsingu yrði farið
fyrir brot sakbomingsins. Saksókn-
arinn kvað hámarksrefsingu vera 5
ára fangelsi og skilorð í 2-5 ár að því
loknu og hámarkssekt væri 250 þús-
und dahr (rúmlega 15 milljónir kr.).
Veijandinn fór fram á mildari dóm.
Dómarinn sagði að nú færi fram
ítarleg rannsókn á ferli sakbomings-
ins á íslandi. Á þessu stigi málsins
væri ekki hægt að segja fyrir tun á
hvem hátt yrði dæmt í málinu. Það
byggðist að verulegu leyti á hvað sú
rannsókn leiddi í ljós og fleiri málsat-
vikum. En hver sem refsingin yrði
þyrfti sakborningurinn að afplána
hana alla, eða svo gott sem alla, hér
í landi.
Dómur í málinu verður kveðinn
upp eftir um það bil sextíu daga.
OKKAR TILBOÐ
PD 101 Gelslaspilari
3ja ára ábyrgð
VERÐ AÐEINS 16.900,-
HVERFISGÖTU 103; SÍMI25999
Umboðsmenn um land allt.
TT
MISSIÐ EKKI AF
SKATTAFSLÆTTINUM!!
OPIÐ Á MORGUN KL 9:00-13:00
Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér skatt-
afslátt fyrir árið 1992. Hlutabréfasjóðurirm
Auðlind er settur saman af traustum
skuldabréfum og hlutabréfum í fjölmörgum
traustum fyrírtækjum. Slík dreifmg minnkar
áhættuna enda hafa hlutabréfasjóðir í vörslu
Kaupþings komið best út allra hlutabréfa-
sjóða á árinu.
Hlutabréfakaup á árinu 1992 geta lækkað
tekjuskattstofn hjóna um allt að 200.000 kr.
*
SPARISJÓÐIRNER
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunm 5, sítni 689080
í eigu Búnaðarbanka lslanrts
og sparisjóðanna
1