Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1992, Page 43
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992. 63 Ástæður svefnleysis geta verið margar en algengast er að fólki gangi illa að sofna vegna streitu eða kvíða. Mörg ráð eru til vegna svefnleysis. Affarasælast er þó að forðast svefnlyf i lengstu lög. Helsti ókostur svefn- lyfja er að mikil ávanahætta fylgir notkun þeirra og oft reynist erfitt aö venja fólk af þeim. Þess í stað ættu menn að reyna almenn ráð sem reynst hafa mörgum vel. Svefn og svefnleysi Flestir taka svefninum sem sjálf- sögðum lífsgæðum eða mannrétt- indum. Gömul trú segir að svefn- inn bæti allt og talað er um hina liknandi.hönd svefnsins. Allir vita að svefn er nauðsynlegur. Enginn veit þó með vissu af hverju heilinn er óstarfhæfur nema honum takist að loka að sér inni í heimi svefns- ins þriðjung ævinnar. Fullorðnir sofa 6-9 klukkustund- ir á hverri nóttu ákaflega misdjúp- um svefni en börn mun lengur. Dýpsti svefninn kallast delta-svefn og er ráðandi fyrri hluta nætur en nokkrum sinnum á nóttu sofa menn grunnum draumsvefni sem einkennist af hrööum augnhreyf- ingum og draumum. Sá hluti svefnsins kallast REM (rapid-eye- movement) svefn. Draumsvefninn virðist vera hverjum manni nauð- synlegur svo að sVefninn nýtist til hvíldar. Margar ástæður svefnleysis Ástæður svefnleysis geta verið margar. Algengast er að fólki gangi illa að sofna vegna streitu eða kvíða. Margir kvíða nóttunni og þora ekki að reyna að sofna af ótta við svefnleysi. Þeir Uggja glaðvak- andi af áhyggjum yfir því að geta ekki sofið og verða æ áhyggjufyllri og spenntari eftir því sem tíminn líður. Svefnherbergið getur haldið fyrir fólki vöku, léleg loftræsting, mikill hiti, dýnan í rúminu léleg. Kynlíf verkar róandi á suma en aðrir æsast svo mjög að þeir eiga erfitt með að sofna að loknum sam- fórum. Nikótín, koffin og mikill sykur getur haldið vöku fyrir fólki. Marg- ir þunglyndir einstaklingar vakna snemma að morgni í mikilli vanlíð- an en aðrir eiga erfitt með að sofna vegna depurðar og svartsýni sem sækir á þá þegar þeir taka á sig náðir. Ýmsir líkamlegir sjúkdómar geta haldið fólki vakandi, hjartasjúk- dómar, skjaldkirtilssjúkdómar, Á læknavaktiniú lungnasjúkdómar, nýrnasjúkdóm- ar. Sama máli gegnir um lyf eins og prednisolon, astmalyf (Bricanyl, Ventohn), sum þunglyndislyf, bjúg- töflur og lyf gegn Parkinsonveiki. Mikil alkóhóldrykkja er algeng orsök svefnleysis. Sumir telja að alkóhól sé ágætt svefnlyf og svo er ef þess er neytt í hófi en aukist magnið verða áhrifin öfug. Ein- stakUngurinn vaknar þá í mikilU vanlíðan eftir nokkurra stunda svefn, kaldsveittur og kvíðinn og á erfitt með að sofna aftur. Margt eldra fólk á erfitt með að sofna vegna verkja í mjöðmum, baki eða víðar sem angra fólk þegar það snýr sér í rúmi. Aörar algengar orsakir geta verið vaktavinna, ferðalög o.fl. Stækkun á blööru- hálsirtU getur haldið fyrir mönn- um vöku vegna tíðra ferða á sal- erni. Margir sem kvarta undan svefn- leysi sofa eitthvað á daginn og eiga í erfiðleikum á nóttunni. Eldra fólk situr stundum og sefur sig í gegn- um alla sjónvarpsdagskrána. I slík- um tilfeUum stafar svefnleysiö oft af aðgerðaleysi og leiða sem gerir þaö að verkum að fólk dottar á þennanhátt. Ráð við svefnleysi Mörg ráð eru til vegna svefnleys- is. Affarasælast er að forðast svefn- lyf í lengstu lög en reyna þess í stað almenn ráð sem reynst hafa mörg- um vel. Þeir sem kvarta undan svefnleysi eiga ekki að leggja sig yfir daginn og taka lífinu með ró á kvöldin áður engengið er til náða. Best er aö forðast kaffi, sígarettur kóka-kóla og alkóhól eftir klukkan 18.00. Ákveðinn matur, sem inni- heldur amínósýrunna L-trypto- phan, viröist virka á heUann og framkalla svefn. Mikið er af þessu efni í mjólk sem skýrir af hverju heit mjólk er víða talin ágætt ráð við svefnleysi. Oft reynist vel að athuga svefn- herbergið sitt vandlega, bæta loft- ræstingu, kaupa sér nýja dýnu. Ef einhver líkamlegur sjúkdómur veldur svefnleysi þarf að með- höndlahann. Svefnlyf eru mikið notuð vegna svefnleysis og eru margir læknar aUtof fljótir að ávísa slíkum lyfium. Best er að ná svefni án lyfia. Lang- vinsælustu svefnlyfin eru hin svo- kölluðu benzodiasepin-lyf. Þessi lyf eru mýmörg en helsti munurinn á þeim er hversu vel þau frásogast frá maganum og hversu langvirk þaueru. Gamalt fólk getur orðið ruglað og kvartað undan vöðvaslappleika, minnistruflunum og jafnvægis- leysi. Helsti ókostur þessara lyfia er þó sá að mikU ávanahætta fylgir notkun þeirra og oft reynist erfitt að venja fólk af þeim. Verkjalyf fyrir svefninn reynast oft vel hjá eldra fólki. En best reynist að bæta svefninn með ákveðnum fyrirbyggjandi og styðjandi aðgerðum. Góðanótt! Aukin ökuréttindi Ökuskólinn í Mjódd, rekinn af Ökukennarafélagi Is- lands, býður upp á námskeið til aukinna ökurétt- inda, þ.m.t. próf á vörubíl, rútubíl, leigubíl, og hefj- ast þau um miðjan janúar. Upplýsingar í síma 670300. JÓLATRÉSSKEMMTUN í 100. SKIPTI Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur eitt hundr- uðustu jólatrésskemmtunina fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 3. janúar nk. kl. 15.00 í Perlunni, Öskju- hlíð. Miðaverð er kr. 600 fyrir börn og kr. 200 fyrir fullorðna. Miðar, eru seldir á skrifstofu VR í Húsi verslunarinar, 8. hæð. Nánari upplýsingar í síma fé- lagsins, 687100 Verzfunarmannafélag Reykjavíkur Styrktarfélag vangefinna Vinningsnúmer í happdrætti félagsins. 1. vinningur: MMC Pajero, 3ja dyra, V6 ...nr. 91478 2. vinningur: VW Vento G L, 4ra dyra, 5 gíra nr. 30098 3. -12. vinningur: Bifreið að eigin vali á kr. 635.000: nr. 2281 - 10015 -12597 -19638 - 54065 - 63179 - 64330 - 70768 - 97515 - 99010 Þökkum stuðninginn. Gleðilegt nýár. Styrktarfélag vangefinna fLeikskólar Reykjavíkurborgar Breytingar á reglum um innritun í leikskóla Reykja- víkur sem taka gildi þann 1. janúar 1993. Heimilt er að sækja um leikskóladvöl þegar barn er 6 mánaða eða þegar fæðingarorlofi lýkur. Staðfesta þarf umsókn einu sinni á ári, fyrst þegar liðið er eitt ár frá dagsetningu umsóknar. Foreldrar fá þá sent eyðublað þar sem þeir skrá breyt- ingar eða staðfesta umsóknina. Fjögurra og fimm ára börnum er veittur forgangur á hálfsdagsleikskóla. Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að viðkomandi eigi lög- heimili í Reykjavík. Nýtt símanúmer innritunardeildar verður 627115. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Uppboð Framhald uppboðs á eftirlöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Gerðavegur 7 (Jónshús), Garði, þingl. eig. Sigvaldi Eiríkur Hólmgrímsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Gjaldheimta Suðumesja og Lífeyrissjóður sjómanna, 6. janúar 1993 kl. 11.35. Austurvegur 10, Grindavík, þingl. eig. Haukur Pálsson, gerðarbeiðendur Birgir Guðnason og Hörður Jónsson, kt. 1704594669,6. janúar 1993 kl. 14.15. Háeyri Bergi, efri hæð, Keflavík, þingl. eig. Hraíhhildur Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sparisjóðurinn í Keflavík, 6. janúar 1993 kl. 10.15. * Fagridalur 10, Vogum, þingl. eig. Frið- finnur Sigíusson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Kaupfélag Suðumesja, Samverk hf. og Ábyrgð hf., 6. janúar 1993 kl. 13.30. Fitjabraut 24, syðri hluti, 0102, Njarð- vík, þingl. eig. Oddgeir Amar Jóns- son, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf., 6. janúar 1993 kl. 10.45. Hjallavegur 9B, 1. hæð, Njarðvík, þingl. eig. Brynjar Gunnarsson, gerð- arbeiðandi Lífeyrissjóður verslunar- manna, 6. janúar 1993 kl. 10.30. Holtsgata 25, Sandgerði, þingl. eig. Laufey Kolbrún Snorradóttir, gerðar- beiðandi Gjaldheimta Suðumesja, op- inber gjöld, 1990, 6. janúar 1993 kl. 11.55. Framnesvegur 14, neðri hæð, Kefla- vík, þingl. eig. Guðbjartur Kristins- son, gerðarbeiðandi Páll Skaftason, 6. janúar 1993 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í KEFLAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.