Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Side 2
2
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR1993
Fréttir
Bílstjóri leigubíls sem fór út af Óshlíðarvegi:
Stýrði bflnum niður
snarbratta hlíðina
- var hræddur um að lenda 1 sjónum en stöðvaðist 5 metra frá fjörukambinum
„Þaö var nánast engin ferð á bíln-
um þegar hann fór fram af. Þegar
sýnt var hvert stefndi var ekki um
annað að ræða en stýra bílnum nið-
ur, leyfa honum aö fara þangað sem
hann vildi. Ég neita þvi ekki að ég
var svolítið hræddur um að lenda í
sjónum þegar bíllinn fór fram af,
þarna hafa jú orðið banaslys, en þetta
gekk framar öllum vonum og bíllinn
stöðvaðist eftir um 30 metra ferð. Þá
voru aðeins um fimm metrar eftir í
fjörukambinn," sagði Flosi Jónsson,
leigubílstjóri á ísafirði, í samtali við
DV.
Leigubíll, sem Flosi ók, fór út af
Óshlíðarvegi aðfaranótt sunnudags.
Fór bíllinn út af við svokallaðan
Seljadal þar sem er um 40 metra
snarbrött brekka niður í sjó. Fljúg-
andi hálka var á veginum en snjór í
hlíðinni gerði að verkum að bílnum
hvoldi ekki heldur fór á hjólunum
niður. Tveir farþegar voru í bílnum
hjá ’Flosa, par sem var á leið heim
til Bolungarvíkur eftir þorrablót á
ísafirði. Flosi segir fólkið hafa tekið
þessum ósköpum með ró enda værð
komin yfir það eftir gleðskap nætur-
innar. Hvorki Flosi né farþegarnir
urðu fyrir meiöslum en víst þykir
að þessi leigubílsferð verður parinu
eftirminnileg. Engar skemmdir uröu
á bílnum.
Þegar bíllinn hafði staðnæmst
skammt frá fjörukambinum hringdi
Flosi á annan leigubíl til að taka far-
þegana og kom sá eftir tíu mínútur.
Þá fékk hann vörubíl með krana til
að koma á staðinn og var leigubíllinn
hífður upp á veginn. Flosa fannst
engin ástæða til að fara heim eftir
þessa glæfraferð niður hlíöina og
hélt áfram að keyra ísfirðinga til síns
heima. „Það var ekkert annað að
gera,“ sagði Flosi.
-hlh
||r®:!yÍ5 I Sjrlr'1" H * ;(5k| 2 Jm
W' Æ&ifflfa' \ ■ i <«• x .JH lív v 2-aty
ifj \JS| %\\\ 11 ' H mnm
Húsfyllir var á fundi sem haldinn var fyrir börn bandarískra hermanna í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Þetta fólk á það sameiginlegt að vilja hafa uppi
á feörum sínum sem þaö hefur í flestum tilvikum aldrei séð. DV-mynd GVA
Böm bandarískra hermanna funduöu um stofnun samtaka:
Áfjórða hundrað stríðsböm mættu
- bjóst við 30-40 manns, segir Bjöm Leósson
„Ég er mjög hissa yfir viðbrögðun-
um. Eg bjóst viö 30-40 manns á fund-
inn en það komu hátt í 400 manns.
Við urðum að flyfja okkur úr litlum
sal sem við höfðum tekið frá fyrir
fundinn í íþróttamiðstöðinni þar sem
hann troðfylltist löngu áður en fund-
urinn átti að hefjast. Nú bíður okkur
mikið og erfftt verkefhi, að hjálpa
þessu fólki að komast í samband við
bandaríska feður sína,“ sagði Björn
Leósson, einn aðstandenda fundar
sem böm bandarískra hermanna
vora boðuð á í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal í gærdag.
Á fundinn kom fólk á öllum aldri,
böm bandarískra hermanna og að-
standendur þeirra. Þetta fólk á þaö
sameiginlegt að eiga bandaríska feð-
ur sem þaö hefur aldrei hitt. Er þvi
mikið í mun að komast í samband
við þá eða nánustu ættingja vestan-
hafs.
Viðtal í DV
DV birti í sumar sem leiö ítarlegt
viðtal við Bjöm þar sem hann sagði
frá þvi hvemig hann hafði upp á
bandarískum foður sínum sem hann
hafði aldrei hitt. Viðtalið vakti mikla
athygli og dagana á eftir linnti ekki
símhringingum heima hjá Bimi frá
fólki sem var í svipaðri stöðu og
hann. Fljótlega var ljóst að hefja
þurfti skipulegt leitarstarf og haft
samband viö íslenska sendiráðið í
Washington. Þar á bæ buðust menn
til að hjálpa, fara í þjóðskrár, kosn-
ingaskrár og aðra upplýsingabanka.
„Viö kynntum undirbúningsstarf
okkar á fundinum en það er ljóst að
þetta er of stórt mál fyrir einn sendi-
ráðsmann að leysa. Það var skipuð
stjórn á fundinum sem ætlað er að
undirbúa og boða til formlegs stofn-
fundar samtaka stríðsbama. Við vilj-
um kynnast starfsemi hliðstæðra
samtaka í Bretlandi, „War babies",
og kanna fleiri möguleika. Það er til
að mynda hægt að kaupa þjóðskrár
og símaskrár á tölvutæku formi frá
bandarísku fyrirtæki en það kostar
fleiri þúsund dollara. í fyrstu verður
allt starf unnið í sjálfboðavinnu en
það er ljóst að við þurfum fjármagn
ef starfsemin á að geta gengið,“ sagði
Bjöm.
-hlh
Fyrirgefning syndanna verður gefin út í Bandaríkjunum:
Gæti ekki veríð í betri höndum
- segirhöfundurinnólafur Jóhann Ólafsson
„Forlagið er mér mjög að skapi.
Random House er stærsta og eitt virt-
asta útgáfuforlag Bandaríkjanna. Ég
er ákaflega ánægður með að það
skuli ætla að gefa bókina út. Þá er
það ekki síður ánægjulegt að aöalút-
gáfustjórinn, Jason Epstein, ætlar að
hafa umsjón með útgáfunni. Hann
er einn helsti bókmenntapostuli
Bandaríkjanna þannig að ég gæti
ekki verið í betri höndum," segir
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur
og aðstoðarforstjóri Sony-samsteyp-
unnar í Bandaríkjunum.
Random House hefur ákveðið að
gefa út bók Ólafs Jóhanns, Fyrirgefn-
ing syndanna, í Bandaríkjunum á
næsta ári. Samningur þessa efnis var
undirritaður um helgina. Ólafur
Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Vöku-Helgafells, hefur unnið að und-
irbúningi þessa samnings um nokk-
urt skeið. Aö mati Jason Epstein er
bókin svo góð að hún gæti allt eins
verið skrifuð af Strindberg eða
Tsjekhov á yngri áram.
Áður en bókin verður gefin út er
fyrirhugað að efna til víðtækrar
kynningar á Ólafi Jóhanni í Banda-
ríkjunum, meöal annars í víðlesnum
fagtímaritum. Ástæðan mun vera sú
að Epstein vill ekki gefa bókina út í
kyrrþey, eins og hann kaUar það.
Gera má ráð fyrir að bókin verð seld
í allt að 30 þúsund bókaverslunum
eftir að hún kemin* út.
„Ég hef aldrei skrifað peningana
vegna og ekki þurft þess. í þessum
samningi er kveðið á um að gefa
engar tölur upp. Samningurinn gæti
hins vegar ekld verið betri og seljist
bókin vel þarf ég ekki að kvarta."
Að sögn Ólafs Jóhanns er hann
með nýja bók í undirbúningi sem
hann vonast til aö geta lokið við inn-
an fárra ára. Sú bók mun fjalla um
íslending á fyrri hluta aldarinnar.
Ólafur hefur undanfama daga verið
með annan fótinn á íslandi með konu
sinni og nýfæddum syni.
-kaa
Stuttarfréttir
Nýr (járf estingarbanki
Ríkið og samtök iðnaðarins
ætla að stofna hlutafélag um fiár-
festingarbanka í iönaði. Rikisút-
varpið haföi eftir iönaðarráð-
herra í gær að stefht væri að því
að bankinn yfirtæki hlutverk
Iönlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs.
Þjarfc í stað upplýsinga
Upplýsingar um afleiðingar
kjamorkuslysa eru afar tak-
markaðar enda hefur tíma verið
eytt í þjark um fjármögnun rann-
sókna. Þetta hafði Sjónvarpið eft-
ir Láru Margréti Ragnarsdóttur
sem flutti ræðu í Evrópuráðinu.
Starfsemi íslenskra ígulkera hf.
í Stykkishólnú verður flutt til
Njarðvíkur á næstu dögum.
Reiknað er með aö allt að 50
manns starfi við vinnsluna.
Vatnslaust varð í tæpan sólar-
hring í Neskaupstað um helgina
þegar gömul lögn gaf sig. Bera
varð vatn í hús, þar á meðal
sjúkrahúsíö, en hafnarsvæðið
slapp.
Minni islenskukennsla
íslenskukennsla í grtmnskól-
tun landsins hefur verið skert um
15 vikustundir á undanfómum
30 árum. Þá era kennsludagar
mun færri í islenskum grann-
skólum en algengum samanburð-
arlöndum. Þetta kom fram á ráð-
stefnu Kennaraháskólans um
helgina.
Skemmdirá loðnuskip
Skemmdir urðu á loðnuskipinu
Isleifi í fyrrinótt þegar það tók
niðri í höfhinni í Vestmannaeyj-
ura. Viögerð var þegar hafin.
Nýtt hús Landsbjargar var vígt
í Reykjavík um helgina að við-
stöddum forseta íslands, biskupi
og samgönguráðherra. í húsinu
er fullkomin stjómstöð með fjar-
skiptatækjum.
Hitaveita Suðumesja hefur
fengiö leyfi iðnaöarráöuneytisins
til aö framleiða rafmagn í Svarts-
engi með fjórum gufuaflsvélum.
Nýting vélanna verður aukin stig
af stigi til ársins 1997 en alls er
aflgeta þeirra 4,8 megavött.
Rigaþorskur í snurvoð
Snurvoðarbáturinn Björgvin
úr Garðinum fékk í fyrradag um
20 tonn af rigaþorski í einu kasti
er hann var við veiðar skammt
frá Höfnum. Á 11 tímum fékk
báturinn alls 26 tonn. Aflaverð-
mætið er hátt í 3 milljónir. Stöö
tvö sagði frá þessu í gær. -kaa
Innbrot
í pylsu-
vagn
Tveir menn bratu rúður í
pylsuvagni sem stendur við
Sundhöllina í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudagsins. Hugðust þeir
fara inn í vagninn þegar vegfar-
andi fældi þá í burtu. Mennirnir
voru á bak og burt þegar lögregla
kom á' vettvang.
Lögreglan hafði stuttu síðar
hendur í hári innrbotsþjófs á
hlaupum í Bankastræti með fulla
vasa af tóbaki og fleiri vörum.
Hafði sá brotist inn í tóbaksbúð-
ina Bristol, brotið rúðu og valdið
fleiriskemmdum. -hlh