Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Page 16
kWWWWWWWWV
16
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1993.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Gránugötu 4-6, Siglu-
firði, 12. febrúar 1993 kl. 14.00, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Hólavegur 4, þingl. eign Jóhannesar I. Lárussonar og Guðrúnar Reynisdótt-
ur, eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs, Árna Pálssonar hdl., Landsbanka Islands
og Jóhannesar A. Sævarssonar hdl.
Hlíðarvegur 15, þingl. eign Jóhannesar I. Lárussonar og Guðrúnar Reynis-
dóttur, eftir kröfu Innheimtu ríkissjóðs, Árna Pálssonar hdl., Landsbanka
íslands og Jóhannesar A. Sævarssonar hdl.
SÝSLUMAÐURINN í SIGLUFIRÐI
Aðalfundur
Vesturgötu 3 hf. verður haldinn í Hlaðvarpanum,
Vesturgötu 3, laugardaginn 20. febrúar nk. kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
LOKAÐ í DAG,
MÁNUDAG
ÚTSALAN
HEFSTÁ MORGUN KL. 8.00
Toppstórinn
VELTUSUMOI • Sflll: 21212
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Malbikun-
arstöðvar Reykjavíkurborgar, óskar eftir tilboðum í
15.000-19.400 tonn af asfalti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
17. mars 1993, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Aukablað
BÍLAR1993
Miðvikudaginn 17. febrúar mun auka-
blað um bíla fylgja DV
í þessu aukabiaði verður fjallað um nýja
bíla af árgerð 1993 sem bilaumboðin
koma til með að bjóða upp á.
Menning
Meniiingarvika 1 Jónshúsi:
Varð að endurtaka
sum atriði vegna
mikillar aðsóknar
Gizur L Helgason, Kanprnannahö&u
Lokiö er menningarviku sem hald-
in var í Islands Kulturhus, öðru nafni
Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Tahð er
aö milli 700 og 800 manns hafi komið
í húsið dagana 22.-31. janúar þegar
menningarvikan stóð yfir. Sum at-
riði sýningarinnar varð aö endur-
taka vegna þess hversu margir urðu
frá aö hverfa.
í veitingasal hússins stendur þó
enn sýningin „Námsárin". Sýningin
hefur vakið verðskuldaða athygli.
Hún er haldin í tilefni af aldaraf-
mæli Stúdentafélagsins í Höfn. Þama
getur að líta verk eftir marga af
þekktustu listamönnum íslendinga
og öll eiga þau það sameiginlegt að
vera unnin á meðan Ustamennimir
vora viö nám í Kaupmannahöfn.
Flest listaverkanna era frá fyrstu
fjórum áratugum aldarinnar. Þama
eru m.a. verk eftir Ásgrím Jónsson,
Finn Jónsson, Guðmund Thorsteins-
son (Mugg), Gunnlaug Blöndal, Jó-
hannes Kjarval, Kristínu Jónsdóttur,
Jón EngUberts, Nínu Tryggvadóttur,
Þorvald Skúlason og Svavar Guðna-
son. Höggmyndin „Knattspymu-
menn“ frá 1936, eftir Siguijón Ólafs-
son, er einn af gimsteinum sýningar-
innar, aö öðrum verkum ólöstuðum.
Hún var til sýnis í lok þriöja áratug-
arins, komst síðan í einkaeign og
hefur ekki verið sýnd síðan. Annars
eru öU verkin fengin að láni hjá ís-
lendingum búsettum erlendis.
Dagskráin HafnarroUa, sem sam-
Höggmyndin Knattspyrnumenn Sig-
urjóns Ólafssonar hefur ekki verið
til sýnis síðan f lok þriðja áratugar-
ins fyrr en nú í Jónshúsi.
anstendur af söng, Ijóöalestri, leik
og sögum, var sýnd þrisvar í vikunni
fyrir fuUu húsi. Hér er sett upp
myndbrot af sögu Hafnar-íslendinga
á árum áöur. Við sögu koma leikar-
amir Borgar Garðarsson, María
Amadóttir, Eiríkur Guömundsson
og Jóhannes Hilmarsson. Sveinn
Einarsson leUcstýrði en hann ásamt
leikurunum tók saman efnið.
Menningar- og upplýsingafuUtrúi
íslendinga hér í Kaupmannahöfii er
Helga Guömundsdóttir en hún var
ráðin í starf þetta þann 1. ágúst sl.
af félagsheimUisnefnd (Jónshúss) og
Námsmannafélagi íslendinga í
Kaupmannahöfh. Um er aö ræða
hlutastarf. Helga eyðir samt mun
meiri tíma í starf sitt en segir í verk-
lýsingu enda leikur enginn vafi á því
að hér þyrfti að vera manneskja í
fuUu starfi. í Jónshúsi fer ffam mik-
U menningar- og kynningarstarfsemi
enda búa um 5000 Islendingar í Kaup-
mannahöfn og nágrenni og flölmarg-
ir íslendingar, sem eiga hér leið um,
Uta inn í Jónshús. Staðurinn er því
félagsheimih íslendinga aUs staöar
af Norðurlöndum. Fiölmargir Danir
leita einnig til Helgu um fyrirlestra-
hald um sögu lands og þjóðar því að
áhugi frænda okkar hér í Danmörku
er mjög mikiU á öUu sem varöar ís-
land og íslendinga.
Helga er að ljúka kandídatsnámi
viö verslunarháskólann hér í Höfn í
hagfræði, með tölvunám sem sér-
svið.
1. janúar tók Ruth Ragnarsdóttir
veitingakona við veitingarekstri í
Jónshúsi. Hún sér nú um að hafafjöl-
breyttan matseðU á boðstólum sex
daga vikunnar, frá þriðjudegi tU
sunnudags. Húsiö er opnað klukkan
12 og opiö langt fram á kvöld. Þeir
íslendingar, sem sakna íslenskra sér-
rétta að heiman, geta nú fengiö ástríð-
unni svalað. Hér gefst líka tilvaUð
tækifæri fyrir okkur, sem búsett er-
um hér í Höfn, til að fara með danska
vini í mat í Jónshús, þannig að þeir
fai satt forvitni sína hvað varðar gæði
íslensks matar. Húsakynni í Jónshúsi
bjóða og upp á veisluhöld en einnig
er auövitað tílvaUð að bjóða við-
skiptaaðUum erlendis upp á íslenskan
mat og brennivín þar.
Ballett í Ráðhúsinu
í næstu viku verður íslenski dans-
flokkurinn með hádegissýningar í
Tjamarsal Ráðhússins. Hugmyndin
er sú að fólk geti skroppiö í hádeg-
inu, fengiö sér hádegisverð og horft
á stutta baUettsýningu. Dansflokkur-
inn hefur undanfarið veriö að æfa
flögur ný dansverk fyrir þessa sýn-
ingu og er meðal annars um að ræða
frumsýningu á þremur nýjum verk-
um, en þau em: Evridís eftir Nönnu
Ólafsdóttur, en verkið er samið við
samnefnda tónUst eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, MUU manna eftir Maríu
Gísladóttm-, sem samið er fyrir þrjá
dansara við tónUst Normans DeUo-
Joio og Svítur eftir William Soleau,
við tónUst J.S. Bach. Þá veröur einnig
sýnt eitt klassískt verk sem er Pas de
six úr Raymonda sem Alan Howard
hefur sviðsett Auk sex dansara dans-
flokksins taka tíu stúlkur úr List-
dansskóla íslands þátt í Pas de six.
Einungis veröur sýnt eitt til tvö verk-
Dansarar úr íslenska dansftokknum æfa ballettana í Tjarnarsal Ráðhússins.
anna hveiju sinni og er sýningar- urinn ekki hannaður sem leikhús.
tíminn miUi 20 og30mínútur. Sýningin Fyrsta sýning er í hádeginu í dag og
er með einfóldu sniöi enda Tjamarsal- önnur sýning á funmtudaginn.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að
auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega
hafi samband við Sonju Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta í
síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skila-
dagur auglýsinga er fimmtudagurinn 11.
febrúar.
Ath.! Bréfasími okkar er 63 27 27.
Ftank Lacy heldur fyrirlestur og tónleika
Frank Lacy. Jafnvígur á básúnu og
flygelhorn.
Básúnu- og flygelhomleikarinn
Frank Lacy, sem er íslendingum aö
góðu kunnur, en hann kom hingaö
tfl landsins 1991 og hljóðritaði þá ís-
landsfor með hljómsveit Tómasar R.
Einarssonar, mun halda fyrirlestur
og tónleika á næstu dögum. Fyrir-
lesturinn verður á morgun í Tónhst-
arskóla FÍH. Tónleikamir verða
tveir á fimmtudaginn í Sólon Island-
us og á Höfn í Homafirði á laugardag.
Frank Lacy er í fremstu röð bás-
únuleikara í bandarískum nútíma-
djassi. Hann var ungur þegar hann
vakti fyrst athygh í stórsveitum
Dizzy Gillespie og Illinois Jacquet.
1986 varð hann meðlimur í Brass
Fantasy, hljómsveit trompetleikar-
ans Lesters Bowie og um sama leyti
lék hann með Henry Treadgill og
Cörlu Bley. 1988 gekk hann til Uðs
við The Jazz Messengers, hljómsveit
Arts Blakey. Þar var hann tónlistar-
stjóri uns hann hætti 1990. Síðan
hefur hann jöfnum höndum veriö
með eigin hljómsveit og leikið með
mörgum af þeim sem ber hæst í
bandarískum djassi.
Þeir sem leika með Frank Lacy að
þessu sinni era Matthías Hemstock,
Tómas R. Einarsson og Eyþór Giurn-
arsson. -HK