Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Side 33
MÁNUDAGUR8. FEBRÚAR1993
45
Leikarar í Blóðbræðrum.
Blód-
bræður
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
um þessar mundir söngleikinn
Blóöbræöur á stóra sviöinu í
Borgarleikhúsinu. Verkiö er
vægast sagt umdeilt, ýmist lofað
í hástert eöa rakkaö niöur.
Höfundurinn er Willy Russell
en hann samdi einnig Educating
Rita eöa Ríta gengur menntaveg-
inn, sem nú er sýnt í Þjóðleikhús-
inu, og Sigrúnu Ástrós.
Söguþráðurinn er á þá leið aö
tvíburar eru skildir aö skömmu
eftir fæðingu. Annar dvelur um
Leikhús
kyrrt hjá sinni fátæku móður en
hinn elst upp í aUsnægtum. Ör-
lögin færa þá saman aö nýju og
náinn vinskapur tekst með þeim.
Á fullorðinsaldri tekur svo alvara
lífsins viö og reynir mjög á sam-
band þeirra.
Leikstjóri er Halldór E. Lax-
ness, leikmynd gerði Jón Þóris-
son, tónlistarstjóri er Jón Ólafs-
son og þýöingu annaöist Þórar-
inn Eldjám. Meðal leikenda eru
Ragnheiður Elfa Amardóttir,
Felix Bergsson, Magnús Jónsson,
Sigrún Waage, Valgeir Skagfjörö,
Hanna María Karlsdóttir, Jón St.
Krisfjánsson, Ólafur Guömunds-
son og Jakob Þór Einarsson.
Elisabet Bretadrottning.
Meðal-
Breti
Vísitölufjölskyldan í Bretlandi
notar tvær mílur af klósettpappír
á ári.
Blessuð veröldin
Sæðissund
Hin mikla ferð sem mannssæö-
ið leggur á sig er hlutfallslega
svipað og maöur sem synti þvert
yfir allt Atlantshafið.
Tennislungu
Ef slétt væri úr lungum manns-
ins mundu þau þekja svipað
svæöi og tennisvöllur.
Alvöru fótbolti
Fótbolti var spilaður á tólftu
öld, án nokkurra reglna.
Færðávegum
Fært er á vegum í nágrenni Reykja-
víkur og á Suðumesjum. Einnig
austur um Þrengsli og Hellisheiöi.
Vegir á Suöurlandi eru færir og sama
Umferðin
er aö segja um vegi á Austfjöröum.
Þá er fært um Borgarfjörð og um
Heydai í Dali og þaðan í Reykhóla-
sveit. Á Snæfellsnesi var veriö aö
hreinsa Kerlingarskarö en aörir veg-
ir þar eru greiðfærir. Á sunnanverð-
um Vestijöröum var verið aö hreinsa
Kleifaheiði og Hálfdán. Fært er um
Holtavörðuheiöi noröur Strandir til
Hólmavíkur, Steingrímsíjaröarheiöi
er ófær. Á Norðurlandi eru aliar aö-
alleiðir færar. Frá Akureyri er fært
um Víkurskarö til Húsavíkur.
Isafjöröur
Stykkishóh
Borgarnes
Reykjavik
\J\ Hálka og snjór\V\ Þungfært
án fyrirstööu
[X] Hálka og [/] Ófært
skafrenningur
Myrkir músíkdagar í Listasafninu:
Píanóleikarinn
James Clapperton
fremstu píanóleikurum af sinni
kynslóð. Hann er fæddur í Aber-
deen 1968 og stundaði tónlistarnám
viö Konunglega tónlistarskólann í
Manchester, Tónlistarháskólann í
Freiburg og viö Buffalo-háskólann
í Bandaríkjunum.
Meðal kennara hans má nefna
James Avery og Yvar Mikhashoff.
Clapperton hélt sína debut-tónleika
á Edinborgar-hátíðinni 1985 og
vakti feiknaathygli. Hann hefur
sfðan haft nóg aö gera við tónleika-
James Clapperton er talinn með eftir Kjaitan Ölafsson. hald.
I kvöld klukkan 20.30 veröa
píanótónleikar í Listasafhi íslands.
Píanóleikarinn James Clapperton
leikur verk eftír Iannis Xenakis,
Skemmtanalífið
Edward Dudley Hughes, Michael
Finissy, James Dillon, Hilmar
Þórðarson, Kjartan Ólafsson og
eigið verk, Robene And Makyne.
James Clapperton llytur m.a. verk
Baödagurinn mikli.
Baðdagur- 1
inn mikli
Háskólabíó sýnir nú myndina
Baödagurinn mikli eða Den store
badedag eins og hún heitir á
frummálinu.
Bíóíkvöld
Myndin gerist í Kaupmanna-
höfn á tímum kreppunnar.
Gústav Adolf er tíu ára og býr
meö foreldrum sínum, Axel og
Sveu, í litilli og lélegri íbúö. Þau
búa viö kröpp kjör en fjölskyldan
er samhent og hlýja og ástúð ríkj-
andi. Móðurina dreymir um aö
komast til strandarinnar og hús-
bóndinn gerir sér lítiö fyrir og
safnar öllum nágrönnunum sam-
an í strandarferð. Ferðin hefur
mikil áhrif, ekki síst á Gústav
Adolf.
Leikstjóri er Stellan Olsson en
í aöalhlutverkum eru Erik Claus-
en og Nina Gunke.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Laumuspil
Laugarásbíó: Rauði þráöurinn
Stjörnubíó: Þrumuhjarta
Regnboginn: Síðasti móhlkaninn
Bíóborgin: Háskaleg kynni
Bíóhöllin: 3 ninjar
Saga-bíó: Farþegi 57
lifandi himinninn
Frá örófi alda hafa menn starað út
í víðáttur himingeimsins og látið
hugann reika um þessi torskildu fyr-
irbæri sem þar má sjá. Það er því
ekki óeðlilegt að menn hafi sett
stjömumar saman í merki og kennt
Stjömumar
þau viö lifandi verar, aö ekki sé talað
um tengsl himins og trúarbragða.
Kortiö sýiúr eina útgáfu á þvi hvern-
ig menn sáu fyrir sér himininn.
1. Herkúles.
2. Drekinn.
3. Svanurinn.
4. Kefeifur.
5. Eðlan.
6. Pegasus.
7. Stóribjöm.
8. Gíraftínn.
9. Kassíópeia og Andrómeda.
10. Ljónið.
11. Krabbinn.
12. Gaupan.
13. Tvíburarnir.
14. Perseifur.
15. Hrúturinn.
16. Nautið.
Marin og Magnús
eignast dóttur
Marin Kristjánsdóttir og Magnús annað bara þann fyrsta þessa mán-
Þór Gunnarsson eignuðust sitt aðar. Við fæöingu var dóttir þeirra
------------------------------ 4008grömmog51sentímetri. Fyrir
Bam dagsins Í5ggíáraaöa Hraíh en liann er
17. Vatnaskrímslið.
18. Einhymingurinn.
19. Hundurinn.
20. Óríon.
Sólarlag í Reykjavik: 17.40.
Sólarupprás á morgun: 9.40.
Síðdegisflóð i Reykjavik: 19.40.
Árdegisflóð á morgun: 8.00.
Lágfjara er 6-614 stundu eftir háflóð.
Gengið
Gengisskráning nr. 25. - 8. feb. 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,130 65,270 62,940
Pund 94,670 94,873 95,842
Kan. dollar 51,619 51,730 49,655
Dönsk kr. 10,3407 10,3629 10.3286*—
Norsk kr. 9,3243 9,3443 9,4032
Sænskkr. 8,7682 8,7870 8,8444
Fi. mark 11,4063 11,4308 11,6312
Fra. franki 11,6522 11,6773 11,8064
Belg. franki 1,9108 1,9149 1,9423
Sviss. franki 42,6662 42,7579 43,4458
Holl. gyllini 35,0152 35,0905 35,5483
Vþ. mark 39,3773 39,4619 40,0127
It. líra 0,04273 0,04282 0,04261
Aust. sch. 5,6014 5,6134 5,6818
Port. escudo 0,4362 0,4372 0,4407
Spá. peseti 0,5554 0,5566 0,5616
Jap. yen 0,52355 0,52468 0,50787
Irskt pund 95,832 96,038 104,990
SDR 88,7507 88,9415 87,5055
ECU 76,9316 77,0969 77,9575
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
7 5“ r n !& T~
8 1
/o TT i
TT 1 'L.
J 1 *■ ici '
j \
lo J *
Lórétt: 1 skipamálning, 6 kusk, 8 púki, 9
röng, 10 slítur, 11 utan, 12 klútur, 14 und-
irlag, 16 þegar, 17 býsn, 18 mjúk, 20 stétt,
21 róta.
Lóörétt: 1 fugl, 2 vísan, 3 kona, 4 tröll, 5
forfaðir, 6 kylfu, 7 hótar, 11 verur, 13
blanda, 15 vaeta, 16 tré, 19 komast.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 lyppa, 6 læ, 8 árla, 9 ger, 10
ásóknin, 11 lag, 12 kíki, 14 issa, 16 tár, 18
te, 19 tröll, 21 skálka.
Lóðrétt: 1 lá, 2 yrsa, 3 plógs, 4 pakkar, 5
agn, 6 leik, 7 æmir, 10 álits, 13 ítök, 154
sek, 17 ála, 19 tá, 20 lá.