Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1993, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1993, Side 40
52 LAUGARDAGUR 27. MARS1993 Iþróttir Snorri Amarson í fremstu röð í hnefaleikum í Svíþjóð: Stefnir á Atlanta og atvinnumennsku Snorri Arnarson á æfingu í Helsingborg. Hann hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og æfir með sænska unglingalandsliðinu. Sfmamynd HD - Göran Stenberg „Ég fluttist frá íslandi til Svíþjóðar árið 1980 og byrjaði að æfa hnefaleika þegar ég var 14 eða 15 ára gamall. Ég fór með vini mínum á æfingu og það má segja að ég hafi smitast strax. Síðan hef ég æft af miklum krafti og ætla að halda því áfram,“ segir Snorri Arnarson, 17 ára íslendingur sem er að gera það gott í hnefaleikum í Svíþjóð. Snorri æfir með sænska unglingalandsliðinu í hnefaleikum og hefur þegar keppt með hðinu, meðal annars í landskeppni gegn Noregi. Hann keppir í 60 kg flokki eða léttvigt. Langar mikið á Evrópumótið í Grikklandi „Ég er þó ekki fullgildur meðlimur í sænska liðinu þvi ég er ennþá ís- lenskur ríkisborgari. Til þess að ég geti keppt á alvörumótum með sænska liðinu þarf ég að skipta um ríkisborgararétt. Ég hef heyrt að það standi jafnvel til að leyfa hnefa- leika á íslandi og það finnst mér góðar fréttir. Ef hnefaleikar verða leyfðir á íslandi mun ég að sjálf- sögðu keppa fyrir íslands hönd í framtíðinni. Ég vil helst keppa fyr- ir ísland. Ef ekki þá er ég alveg ákveðinn í að skipta um ríkisborg- ararétt. Ég æfi sem stendur með sænska unglingalandsliðinu og stefni á að komast með liðinu á Evrópumeistaramótið sem fram fer í Grikklandi í október. Það er stóra málið í dag.“ Snorri meistari í Suður-Svíþjóð tvö síðustu árin Snorri hefur tekið ótrúlegum fram- fórum í hnefaleikunum á þeim stutta tíma sem hann hefur lagt stund á íþróttina. Snorri hefur að- eins æft hnefaleika í tvö til þijú ár en árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hann varð sigurvegari á meist- aramótinu sænska í Suður-Svíþjóð og hefur unnið það mót síðustu tvö árin. í fyrra, þegar Snorri sigraði á mótinu í Suður-Svíþjóð, sigraði hann sænskan unglingalandsliðs- mann í úrslitaviðureigninni. Að sögn Snorra er þetta hans stærsti sigur í hnefaleikunum og jafnframt sá sætasti. Sá þriðji besti í sínum aldurs- flokki í Svíþjóð Á sænska meistaramótinu, þar sem saman voru komnir allir bestu hnefaleikarar Svíþjóðar í unglinga- flokki, hafnaði Snorri í þriðja sæti, tapaði í undanúrslitum fyrir strák sem síðar varð sænskur meistari. „Viðureign okkar í undanúrslitun- Framtíðarmarkmið Snorra Arnar- sonar eru Evrópumótið í haust, ólympiuleikarnir í Atlanta 1996 og svo atvinnumennskan. um var mjög jöfn og honum var dæmdur sigur á stigum í lokin og var ég mjög ósáttur við þá niður- stöðu.“ Æfir fímm til sex daga í hverri viku tvo tíma í senn „Ég er ákveðinn í að halda áfram á fullu í hnefaleikunum. Ég æfi fimm til sex daga í hverri viku og yfirleitt í um tvo klukkutíma á dag. Það er ekkert launungarmál að ég stefni að því að ná mjög langt í þessari íþrótt. Draumurinn er auð- vitað að komast alla leið í atvinnu- mennskuna. Það verður auðvitað mjög erfltt en ég mun gera mitt besta. Til þess aö komast í atvinnu- mennsku og beijast við þá bestu í heiminum þarf ég að gera góða hluti á stórum mótum. Það sem truflar mig mest er að hnefaleikar eru ekki leyfðir á íslandi og ég get ekki 'gert það upp við mig sem stendur, hvort ég verð í framtíðinni íslenskur eða sænskur ríkisborg- ari. Ef hnefaleikar verða ekki leyfð- ir á íslandi er ég ákveðinn í að verða sænskur ríkisborgari. Ég vona innilega að þessi skemmtilega íþrótt verði leyfð á íslandi." Sugar Ray Leonard helsta fyrirmyndin Framtíðaráform Snorra eru Ijós. Hann stefnir á Evrópumeistara- mótið í Grikklandi í október. Því næst eru það ólympíuleikarnir í Atlanta 1996. Þar á eftir kemur at- vinnumennska. Helsta fyrirmynd- in er Sugar Ray Leonard og að sögn sænskra dagblaða, sem fjallað hafa mikið um þennan unga íslending, er hér framtíðarmaður á ferð. Frammistaða Snorra hefur þegar vakið mikla athygli í Svíþjóð og hann æfir undir stjórn eins þekkt- asta þjálfara Svía í hnefaleikum. Það verður gaman að fylgjast með Snorra á komandi árum og ef marka má áhugann og eljusemina við strangar æfingar ætti hann aö geta náð mjög langt í þessari um- deildu íþróttagrein hér á landi. -SK Grethe Iversen fyrir miöri mynd í blárrl peysu. Hún átti ekki sjö dagana sæla á áhorfendapöllunum í Keflavík á dögunum. DV-mynd Ægir Már Kárason Auðvitað var ég í miklum vandræðum - segir „körfuboltamamman' Grethe Iversen „Þetta var ekki mjög auðvelt en samt mjög gaman að eiga stráka í báðum liðunum," sagði Grethe Iversen í samtali við DV en hún lenti í þeirri skrítnu og sjaldgæfu stöðu í síðasta leik ÍBK og Skallágríms í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar að synir hennar léku með báðum liðum, Guðjón Skúlason með ÍBK og Skúli Skúla- son með SkaUagrími. „Ég verð að viðurkenna að þótt ég sé Norðmaður í húð og hár þá hef ég búið mjög lengi í Keflavík og auðvitað voru taugamar meira þeim megin í þessum leik. En auðvitað hélt ég með htla bróður líka. Ég var auðvitað í mestu vandræðum á áhorfendabekkjunum og klappaði fyrir báðum liðunum. Og þegar maður leyfir sér slíkt í Keflavík hggur við að manni sé bara hent út. En eför að Borgnesingar eru úr leik eftir fræki- lega frammistöðu klappa ég bara með Keflavík og get verið rólegri á áhorfendapöhunum. Eg er mjög stolt af strákunum en þykir verst að geta ekki komið þeim í handboltann," sagði Grethe Iversen sem lengi lagöi stund á handknattleik og á meðal annars að baki einn landsleik með íslenska landshðinu þrátt fyrir norskan ríkisborgararétt. Þaö var leikur gegn Hohandi fyrir einum sautján árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.